Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2003, Side 50
"N 54
Helqarblað DV LAUGARDAGUR I. FEBRÚAR 2003
Sími:
544 4G5G
Dalvegur 16a • 201 Kópavogur • Pósthólf 564 • Sími: 544 4656
Fax: 544 4657 • Netfang: mhg@mhg.is
5NJDKEÐJUR
Fyrir flestar gerðir vinnuvéla og vörubifreiða
Skoðið heimasíðuna
okkar og kíkið á tilboðin
Síðustu dagar útsölunnar
ZU70%
afsláttur
A borni Laugavegar og Klapparstigs
HÖFUM OPNHÐ GLFESILEGR UEFSÍÐU
ummj.borgarhus.is
Myndir, teikningar o.fl. á síðunni
Upplýsingar í síma 894-3555 °S / eða infosborgarhus.is
Borgarhús ehf.
Minni Borg
Grímsnes 801 Selfoss
| —«»
*—H j
VIDEOHÖLLIN
Á prfnu faancjj—-
Skákþátturinn
Umsjón
Sævar Bjamason
Skákþing Reykjavíkur:
Spennandi lokasprettur
Skákþingi Reykjavíkur lýkur á
morgun og er spennan mikil um það
hver fer með sigur af hólmi. Stefán
Kristjánsson og Sigurbjörn Bjöms-
son eru efstir og jafnir eftir 9 um-
ferðir, með 7 v. Stefán hefur teflt
ágætlega að mestu. Að vísu hefur
hann misst niður a.m.k. eina auð-
velda vinningsstöðu og hefur ekki
verið í alvarlegri taphættu í mótinu.
En hann er langstigahæstur og lik-
legur til sigurs.
Sigurbjöm Björnsson hefur tetlt
við flesta af efstu mönnunum og
sýnt mikla baráttu. Hann hefur ver-
ið frekar farsæll - verið með a.m.k.
2 gjörtapaðar stöður, en hann hefur
þann eiginleika að hann gefst aldrei
upp og tekst oft aö „galdra“ fram
ótrúlegustu úrslit. Hann hefur líka
teflt 2 af glæsilegustu skákunum til
þessa svo öfgarnar eru miklar!
Þarna í mótinu tefla margir af
ungu skákmönnunum sem efnileg-
astir eru og ætla sér að ná lengra í
skákinni. Traustur hópur. I 3.-7.
sæti með 6,5 vinning eru Jón Viktor
Gunnarsson, Magnús Örn Úlfarsson,
Bragi Þorfinnsson, Bergsteinn Ein-
arsson og Sævar Bjarnason.
Jón Viktor hefur teflt vel en hlot-
ið tvær slæmar byltur. Hann teflir
þó oftast af miklum þrótti og þarf að
ná meiri yfirvegun í taflmennsku
sinni, þá bætir hann sig enn meira.
Magnús Örn teflir mjög vandað en á
það til að missa þráðinn. Hann hef-
ur ekki teflt mikið undanfarin ár en
þegar hann mætir á skákstað þá
nær hann oftast góðum árangri.
Bragi Þorfinnsson hefur náð öllum
áfóngum sem til þarf til að ná alþjóð-
legum meistaratitli. Hann vantar að-
eins að ná 2400 alþjóðlegum stigum,
þá verður hann útnefndur alþjóðleg-
ur meistari. Bragi hefur ekki teflt
mjög vel í mótinu tU þessa en getur
að sjálfsögðu mun betur. Hann legg-
ur, líkt og Sigurbjörn, oft of mikið á
stöður sínar og það vill stundum
verða þeim að meini. En þeir eru
miklir baráttumenn og ég vona að
þeir móðgist ekki þegar ég segi að
þeir tefli oft meira af kappi en forsjá.
Bergsteinn Einarsson hefur lengi
verið góður skákmaður en ekki teflt
mikið síðustu ár. Hann er þó bar-
áttujaxl og gæti með aukinni tafl-
mennsku náð langt. Höfundur þess-
arar greinar er aldursforseti þessa
hóps; farinn að nálgast fimmtugt
ískyggilega! Ég tefli oftast mjög
ójafnt, tefldi Ula í 8 fyrstu umferð-
unum, mjög Ula, og fékk að líta
margar slæmar stöður en tókst ein-
hvern veginn að ná saman 6 v. Þeg-
ar ég svo mætti Sigurbirni í 9. um-
ferð var ég með gjörunnið tafl mest-
alla skákina en tókst á einhvern
undraverðan hátt að forðast að
vinna stöðuna. Best að ræöa það
ekki meira, ég „náði“ þó jafntefli.
I 8.-9. sæti koma svo Björn Þor-
finnsson og Sigurður Páll Steindórs-
son. Björn teflir ævintýralegast og
oftast eru skákir hans innihaldsríkar
og fjörugar en hann á það tU að detta
niður á „lægra plan“ og þá verður lit-
ið úr hjá kappanum. En hann hefur
verið að bæta sig í síðustu umferð-
um. Sigurður Páll er einnig i tölu-
verðri framför og gæti skotist í
fremstu röð eins og títt er um unga
menn hvenær sem er.
10. umferð var teUd í gærkvöld og
hefur hún vafalaust ráðið miklu um
úrslit sem vonlegt er. Og lokaumferð-
in er á morgun. Þá ráðast úrslitin og
þau koma þá í mánudagsblaði DV!
Bandaríska meistaraniótíð
Bandaríska meistaramótinu er
nýlokið og lauk með sigri Alexand-
ers Shabalovs sem flutti vestur um
haf frá Lettlandi fyrir um 10 árum.
Svo skemmtilega vildi til að banda-
ríski kvennameistarinn, Anna
Hahn, er einnig frá Lettlandi, en
hún flutti vestur um haf fyrir 5-6
árum! Þau skötuhjú bjuggu saman í
nokkur ár en leiðir hafa skilið utan
skákborðsins. Mótið var æsispenn-
andi og verðlaunaféð var hátt, enda
keppendur margir. Fyrstu verðlaun
voru 25.000 dalir og margir kepp-
enda tóku upp á því að semja jafn-
tefli þegar þeir höfðu unnið nokkrar
skákir. En ekki Shabalov, hann
tefldi grimmt til vinnings á meðan
helstu keppendurnir sömdu um
stórmeistarajafntefli í síðustu um-
ferð. 1. Alexander Shabalov, 6,5 v. af
9; 2.-8. Gregory Kaidanov, Alexand-
er Goldin, Boris Gulko, Joel Benja-
min, Alexander Ivanov, Alexander
Stripunsky, John Fedorowicz, 6 v.
Neðar voru vinir okkar Larry
Christiansen og Nick de Firmian.
Þeir eru famir að eldast eins og ég.
Kortsnoj er hins vegar antik-maður!
Lítum á úrslitaskákina! Akobian
hafði teflt eins og herforingi og þurfti
aðeins jafntefli til að ná stórmeist-
araáfanga. En það er víst hægara
sagt en gert. Og þó venjulegir Banda-
ríkjamenn séu orðnir varkárir þá er
fjör í innflytjendunum, sumum.
Hvítt: Alexander Shabalov (2613)
Svart: Viktor Akobian (2531)
Frönsk vörn.
Bandaríska meistaramótiö,
Seattle (9), 18.01. 2003
1. e4 e6 2. d4 d5 3. e5 c5 4. c3
Rc6 5. Rf3 Db6 6. a3 Rh6 7. b4
cxd4 8. cxd4 Rf5 9. Bb2 Be7 Venju-
legast er leikið hér 9. a5 strax. En
keppendur tefla óvenjulega enda
mikið í húfi. 10. h4 h5 11. Bd3 g6
12. Bxf5! gxf5 13. Rc3 Hg8 14. g3
Bd7 15. Bcl Hc8 16. Re2 a5.
Svartur stendur grár fyrir járnum
og vill fá reiti fyrir menn sína. En
nú leikur hvítur leik sem tölvur
myndu fordæma; hann fórnar peð-
um til þess að svartur fái ekki góða
reiti fyrir menn sína og þrýstir á að
hann geti brotist í gegn á kóngs-
vængnum. Shabalov er mjög hug-
myndaríkur skákmaður og þorir að
leggja undir á móti andstæðingi sín-
um, ungum alþjóðlegum meistara
frá Armeníu, æ, ég meina Ameríku.
Tölvuforritið mitt vill endilega leika
17. bxa5 en eins og ég hef hamrað á
þá hugsa tölvur ekki, allavega ekki
eins og menn!? 17. b5 Dxb5 18. Bg5
a4 19. Hbl Da5+ 20. Kfl Bxa3 21.
Hal Db4 22. Rf4 Hh8.
Tölvurnar segja svartan vera með
gjörunnið. En skákin er ekki búin
og leggja þarf fyrir mannsheila
nokkrar spurningar sem hann gæti
Bandaríkjameistarar 2003
Alexaiider Shabalov og Anna Hahn
sem bæði eru fædd í Lettlandi.
svarað vitlaust, t.d. vegna
prófskrekks, þó hann viti betur?! 23.
Kg2 b5 24. Bf6 Hh6 25. Hel Df8
26. De2 Be7 27. Bg5 Hh8 28. Hecl
Hb8 29. Habl Bxg5 30. hxg5 Da3??
Menn hafa verið að leita færa og
sennilega hefði verið betra hjá
svörtum að leika 30. - b4 eða 30. -
Re7. En það er erfitt að tefla rétt
með dollaraglampann í augunum og
þetta á við um báða keppendur.
Hvítur fær þó færi núna og rífur í
sundur skjól svarta kóngsins. 31.
g6! fxg6 32. Rxe6! Bxe6 33. Hxc6
De7 34. Hxb5
Og nú hrynur staðan. Eftir 34. -
Hxb5 35. Dxb5 Bd7 36. Hc8!+ KÍ7 37.
Dxd5+ Be6 38. Rg5+! er ekki mikið
eftir. Og eftir hinn gerða leik þarf
bara að skoða úrvinnsluna hjá
Bandaríkjameistaranum. 34. - Kf7
35. Rg5+ Dxg5 36. Hc7+ De7 37.
Hxe7+ Kxe7 38. Hc5 Hhc8 39. Da6
Hxc5 40. Da7+ Ke8 41. dxc5 Hc8
42. Dxa4+ Bd7 43. Dd4 Be6 44. f4
Ke7 45. Db4 Hc6 46. Kh3 Bd7 47.
Kh4 Kf7 48. Kg5 Ke7 49. Db3 He6
50. Dxd5 Bc6 51. Da2 Bd7 52. Kh6
Be8 53. Kg7 Bd7 54. Dh2 Hc6 55.
Dh4+ Ke8 56. Df6 Hxf6 57. exf6
Be6 58. c6 g5 59. fxg5 f4 60. g6
fxg3 61. Í7+ 1-0
Stórniót hjá Hróknum!
Dagana 18.-27. febrúar nk. fer
fram stórmót Hróksins á Kjarvals-
stöðum. Mótið er líkast til þriðja
sterkasta skákmót, á eftir heimsbik-
armótunum sem fóru fram 1988 og
1990, sem haldið hefur verið á ís-
landi. Alls taka 10 skákmenn þátt.
Mót þetta verður án efa skemmti-
legt. Gaman verður að sjá gömlu
kempuna Viktor Kortsnoj að tafli en
hann er kominn yfir sjötugt! Adams
og Shirov eru alls staðar aufúsugest-
ir og verða að teljast sigurstrangleg-
ir. En þarna getur margur komið á
óvart. Það verður gaman í skáklist-
inni á næstunni og margs að njóta,
kærar þakkir fyrir það!
Ljóst er að Hróksmenn koma
mjög sterkir til leiks í Islandmóti
skákfélaga sem fram fer 28. febrúar
og 1. mars, enda eru allir erlendu
keppendurnir skráðir í Hrókinn, að
Bacrot undanskildum!