Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2003, Síða 63

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2003, Síða 63
LAUGARDAG U R I. FEBRÚAR 2003 Helgorblctö 33 "V 6 V Myndagátur Myndirnar tvær virð- ast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemurdjós aðá annarri myndinni hef- ur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi og senda okkur ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimurvikum liðnum birtum við nöfn sigur- vegaranna. Verðlaun: Ideline samlokugrill frá Sjónvarpsmiðstöðinni, Síðumúla 2, að verðmæti 3990 kr. Vinningarnir verða sendir heim til þeirra sem búa úti á landi. Þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu þurfa að sækja vinningana til DV, Skaftahiíð 24. eigi síðar en mánuði eftir birtingu. Olían var svo ódýr þama úti, ég ákvað að taka smá með mér heim. Svarseöill Nafn: ________________________ Heimili:__________________’__________ Póstnúmer:—--------Sveitarfélag:----- Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? nr. 703, c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík. Verðlaunahafi fvrir eetraun 701: Ari Th. Sigurðsson, Sjávargötu 9, 225 Bessastaöahreppi. Lífið eftir vinnu •Opnanir Blngimar Waage í Gallerí Skugga Kl. 16 opnar Ingimar Waage sýningu á mái- verkum í Gallerí Skugga, Hverfisgötu 39, 101 Reykjavík. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga kl. 13 til 17 og lýkur sunnudaginn 16. febrúar. Þetta segir Ingimar um sýningu sína: „Viðfangsefni mitt er landslagsmálverkið og sú hefð sem rikir á því sviði. Ég sæki efni- við minn í fjallaferðir um öræfi og hálendi ís- lands. Birtan er mér sérlega hugleikin og tefli ég saman hinni tæru og léttu birtu við þunga og formstyrk fjallanna. Ég skoða hið íslenska landslag og set það í samhengi við rómantískt landslagsmálverk f Evrópu á fyrri hluta 19. ald- ar og við upphaf 20. aldarinnar á íslandi." ■ILvsir í Hafnarhúsi Lýsir er heitið á sýningu sem verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, í dag. Á sýningunni gefur að líta myndir Jóns bónda Bjarnasonar og ýmissa myndskreyta og skiptast verkin í nokkra efnisfiokka, sem gerð er grein fyrir í sýningarsölum. Á sýningunni verður einnig flutt hljóðlistaverkið Hvísl skrifarans eftir Sjón og Hilmar Örn Hilmarsson. Lýsir er heiti á verkefni sem sett var á stofn með það að markmiöi að búa til gagnagrunn um myndlist í íslenskkum handritum en að verkefninu standa Árnastofnun og Listasafn Reykjavíkur. Sýningin í Hafnarhúsinu er fyrsta skrefið íá þeirri leið að efna til sýninga á völdu myndefni í tengslum við rannsóknir á handritum. Sýningin stendur til 9. mars • T ónleikar ■Tónleikar Slglufirfti Tónleikar verða haldnir í Siglufjarðarkirkju kl. 17. Flytjendur á tónleikunum eru Kristín R. Slgurðardóttir sópran og Antonía Hevesi pianóleikari. Á efnisskránni eru þekkt íslensk sönglög og óperuariur, m.a. eftir: Eyþór Stef- ánsson, Árna Björnsson, Markús Kristjáns- son, Þórarin Guðmundsson, Sigvalda Kalda- lóns, Hándel. Mozart, Cilea, Rossini, Puccini, Mascagni og Verdi. ■Sign og Eivör á Grandrokk Það eru enn einir gæðatónleikarnir á Grand Rokk í kvöld. Nú eru það glysrokkararnirí Sign og færeyska söngkonan Eivör Pálsdóttir sem stíga á stokk. Tónleikarnir hefjast eftir mið- nætti. •Krár ■Benni og Doddi litli á Hverf- isbarnum Þaö eru þeir Bennl og Doddi litli sem verða við völd í þúrinu á Hverfisbarnum í kvöld. ■Mannakorn á Kringlukránni Um helgina verður sérstakur viðburður á Kringlukránni. Þá verður gestum staöarins boðið upp á svokallaða Mannakornshelgi. Eins og kunnugt er eru Mannakorn skipuð hin- um ástsælu tónlistarmönnum Magnúsi Eiríks- syni og Pálma Gunnarssyni og frá þeim hafa komið gegnum árin margar af fallegustu perl- um íslenskrar dægurlagasögu. Þeir sýndu rækilega með útgáfu sterkrar hljómleikaplötu nú fyrir skömmu hversu fráhær skemmtun er að hlusta á lifandi flutning þeirra af lögum sín- um. Það verður því sannkölluö tónlistarveisla, sem Kringlukráin býður gestum til nú um helg- ina. •Uppákomur ■Kínaklúbbur llnnar fagnar ári geitarinnar I dag byrjar nýtt ár samkvæmt klnverska alm- anakinu. Þá byrjar ár geitarinnar en það tekur við af ári hestsins. Kínaklúbburinn fagnar nýárinu meö sýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 16. Þar mun Unnur Guðjónsdóttir sýna skyggnur úr ferð Kínaklúbbsins til Klna, jafn- framt þvl að sýna dans, klædd búningi Miao- þjóðflokksins I Klna. Ár geitarinnar er gott fyrir ferðalög, enda mun Klnaklúbburinn fara I viða- mestu ferð slna hingað til, til Klna, dagana 8,- 30. mal nk. * ’S •ofl Þetta var auð- vitað óumflýj- anlegt... e-zi Bridge ... 6porttýpan! K Haustleikar Bandaríkjanna 2002: Fjórum sinnum í röð er einsdæmi Eins og ég gat um í síðasta þætti unnu sveitarfélagar Hjör- dísar Eyþórsdóttur, Shawn Quinn og Mildred Breed, Life Masterkeppnina í tvímenningi kvenna fjórða árið í röð sem er einsdæmi á landsvísu. Quinn er hæst á heimslista kvenna og makker hennar, Breed, er í fjórða sæti. Við skul- um líta á eitt spil frá tvímenn- ingskeppninni, þar sem Quinn og Breed voru komnar í ógöng- ur, en botn breyttist í topp með frábærri varnarspilamennsku. suður drap á ásinn og gat nú unnið spilið auðveldlega með því að spila litlu hjarta, eins og spil- ið liggur. Ef hjartastaðan er hins vegar öðruvísi gætu það verið mikil mistök. Betri áætlun hefði heppnast; þú tekur tvisvar tígul, endar i blindum og síðan hjarta- gosa. En sagnhafi trompaði spaða, sem virðist hættulaust, tók síðan þrisvar tígul og kastaði spaða. Nú kom hjarta- gosi sem var svínað og vestur drap á kónginn. Nú var staðan þessi: S/Allir 4 G952 «4 K9 4 G10842 * 53 4 3 «4 G54 ♦ ÁD5 * KD9872 4 KD1087 W D63 ♦ 973 * Á4 «4 Á10875 4 K6 * G106 N V A S 4 Á64 4 - «4 4 4 - * KD9872 4 G9 «4 9 4 GIO * 53 4 - %> Á1087 4 - 4 G106 N V A S 4 KIOB <4 D6 4 - * Á4 Með Quinn og Breed í a-v gengu sagnir á þennan hátt: Suður Vestur Norður Austur 1 «4 pass 2 * 2 4 pass 4 4 5 «4 pass pass pass Það getur gefið vel að ýta and- stæðingunum upp á fimmta sagnþrepið en í þetta sinn voru hetjur okkar komnar í ógöngur í fjórum spöðum. Hins vegar er ekki sjálfgefið hjá norðri að dobla og því fór sem fór. Vestur spilaði út spaðatvisti, Mildred Breed gerði engin mistök. Hún spilaði tígli og Quinn kastaði laufi. Það var sama hvoru megin sagnhafi trompaði, hún gat aldrei svínað fyrir hjartadrottninguna. Sagn- hafi varð því einn niður og topp- ur haföi skipt um eigendur. Á flestum borðum var loka- samningurinn fjögur hjörtu sem unnust auðveldlega og stundum með yfirslag. Ókeypis bridgekennsla Ástæða er til þess að geta um lofsvert framtak hjá stjórn Bridgesambands íslands varð- andi ókeypis bridgekennslu fyrir ungt fólk og framhaldsskóla- nema. Vonandi er þetta vísir að meiri þátttöku ungs fólks í þessu vinsæla spili sem bridge er. Kennari er ekki af verri endan- um þar sem er Ljósbrá Baldurs- dóttir, ein af okkar fremstu bridgekonum til margra ára. Umsjón Stcfán Guðjolinsen

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.