Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2003, Side 6
6
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003
DV
Fréttir
Ríkisstjórnin ver 4,2 milljörðum króna til vega- og gangagerðar:
Ríkisstjómin hefur samþykkt aö
láta auka vegaframkvæmdir á næstu
18 mánuðum og flýta vinnu við þegar
ákveðin verkefni til að stuðla að efl-
ingu atvinnutækifæra til þess tima er
áhrifa af stóriðjuframkvæmdum á
Austurlandi fer að gæta til fulls eftir
um tvö ár. Jafnframt samþykkti rík-
isstjómin að hrinda í framkvæmd
áætlun um menningarhús og auka fé
til atvinnuþróunar. 4,2 milljarðar
króna fara til verkefna í vegagerð og
fer milljarður til vegagerðar á höfuð-
borgarsvæðinu og sama upphæð til
vegagerðar á norðaustursvæðinu,
sem m.a. mun tengja Þórshöfn og
Raufarhöfn við hringveginn, og tU
vegagerðar á Vestfjörðum. 500 miUj-
ónir króna fara í Suðurstrandarveg,
200 mUljónir króna í HeUisheiði, 200
mUljónir króna í Gjábakkaleið, 200
mUljónir króna í ÞverárfjaUsveg og
500 mUljónir króna tU gangagerðar
undir Almannaskarð mUli Homa-
ijarðar og Lónsvíkur, um eins km
löng göng, en vegurinn er í dag erfitt
haft á veginum tU Austurlands.
Settar verða 700 mUljónir króna tU
atvinnuþróunarátaks á vegum
Byggðastofnunar og þar m.a. nefnt
fiskeldi. Einn mUljarður króna fer tU
byggingar menningarhúsa á Akur-
eyri og í Vestmannaeyjum að því tU-
skUdu að viðhlítandi samningar ná-
ist viö þau sveitarfélög. Meðal vega-
framkvæmda sem þegar hafa verið
ákveðnar og verður flýtt má nefna
gatnamót Stekkjarbakka og Reykja-
nesbrautar, Reykjanesbraut í Hafnar-
firði, Kjósarskarðsveg, Kolgrafarfiörð
á SnæfeUsnesi, Hólmavíkurveg um
DV-MYND HARI
Aðgerðir gegn atvinnuleysi kynntar
Halldór Ásgrímsson utanríkisráöherra og Davíö Oddsson forsætisráöherra kynna samþykkt ríkisstjórnarinnar sem á
aö stuðla aö eflingu atvinnutækifæra fram aö stóriöjuframkvæmdum.
Kálfaneslæk, brú á Ólafsfiarðarós og
Aðaldalsveg í Suður-Þingeyjarsýslu.
TU að fiármagna verkefni verða öU
bréf ríkisins í Búnaðarbanka og
Landsbanka seld á markaði svo og
bréf í íslenskum aðalverktökum. Rík-
issjóður á 2% í Búnaðarbanka, 9% í
Landsbanka og 40% í íslenskum aðal-
verktökum. Samtals á það að skUa 5
mUljörðum króna. Ríkissjóður mun
fiármagna framkvæmdir uns sölu-
tekjur hafa skUað sér en áætlað er að
sölu verði lokið í marsmánuði.
„Slakinn í efnahagsmálum er held-
ur meiri en gert var ráð fyrir og at-
vinnuleysið er það mikið að það er
nauðsynlegt að grípa tU aðgerða því
ríkisstjómin hefur aUtaf lagt megin-
áherslu á fulla atvinnu í landinu. Það
er einsdæmi i íslandssögunni að það
hafi verið þetta mikUl slaki í efna-
hagslífinu og lítUl ótti um verðbólgu
á næstunni. Það er einsdæmi að fara
út í 6 mUljarða útgjöld án þess að
hækka skatta,“ sagði utanrikisráð-
herra.
„Framkvæmdir á höfuðborgar-
svæöinu verða auðvitað í samráði
Vegagerðar og sveitarfélaga á svæð-
inu og þar horft tU nokkurra verk-
efna. Skipulag verður fyrst að hafa
verið unnið, en það er t.d. ekki fyrir
hendi á gatnamótum Miklubrautar
og Kringlumýrarbrautar og virðist
langt í það. En við horfum t.d. tU
Vesturlandsvegar. Það hefur ekki
verið slegin á það fóst tala hvað þetta
skapar mörg störf, en þau eru ein-
hver hundruð og afleidd störf tU hlið-
ar við þessi störf,“ sagði Davíð Odds-
son forsætisráðherra. -GG
Spýtt í lófana
- framkvæmdir fjármagnaðar med sölu banka og íslenskra aðalverktaka
Skiptafundur fram undan í þrotabúi Fréttablaðsins ehf.:
Dæmi sem gekk ekki upp
Fréttablaðið selt til Útgáfufélagsins Þverholts ehf:
Tollstjóri gerir fjár-
nám í samningnum
- kaupandinn með sömu kennitöiu og Blaðavinnslan ehf.
Enn fer lítlum sögi»m af áframlutid- Þetta þýðir með öðrum orðum aft ta-kjaskrá Hngstofu Uiands t morgun
andi Utgáfu Króttahlaðsins eða fjár- Fréttablaðið Josnar okki undan þeirri var ekkert fyrlrtæki tii á skra með
festum sem sagðir eni standa að baki kvöð að nreiða áfallin gjftld satn- níifninu Útgáftiféiagið Ijvtrholt chf.
áframhaldandi útgáfu. Híns vt-gnr hef- kvæmt krfifum rlkissjóðs þó hreytt sé Ekkcrt hafði þá verið tiikynnt um
ur Tollstjórinn í ReykjavSk sam- um kennítölu og skipt um eigendur. breýlíngar á nafhi Blaðavinnslunnar
kvæml áreiðanlegum hotmildum DV Fomiðamanní Útgáfufélagins Þver- ehf. sem stofnuð var 17. apríl 2002.
«ert Ijúntám f kaupsamningsiírcíösl• holts er því óhcimiit að greíða ftönun Stofhundi Biaðavinnslunnar er Sax-
um l kaupsamnlngi um sftht á rckstri cn (ollstjóninutn i Reykjavík um- h6U chf. sem er i cigu Nóatfinsfiöl-
og eigum Fréitablaösfm ehf. Fðr Ijúr ncdda krölu vegna kaujw fóbgsíns A skyldunnar og cr Einar Örn Jónsson
náinið Erani i lok Jóní aft kröfu toil- elgum og rekstrí Fréttabiaftsins. Toll- fóamkvwmdastjóri. ðaxhðU leigðí hús-
stjóra vegna vangolriinna opnbcrra stjórí hefur þanuíg komíð í veg fvrtr nmði undir starfsemi Isafoldarprent-
gjalda. aft andvíröíð af aftiu rcksturs og eigna smiðju i Garðahse sm annaftist prent-
Samningur l>essi er um sftlu á Fréttabiaðsins rainl til eigendanua un Fréttablaðsins. Svavar Ásbjftrns-
Frétt um Fréttablaöið í DV 3. júlí 2002
Tollstjóri skarst í ieikinn er tilraun vargeró til aö endurvekja útgáfuna.
Skiptafundur í þrotabúi Frétta-
blaðsins ehf. verður haldinn 27. febr-
úar. Félagið hóf útgáfuferil sinn er
Fréttablaðið leit fyrst dagsins ljós á
sumardaginn fyrsta, 23. apríl árið
2001, undir merkjum Frjáisrar fiöl-
miðlunar. Fréttablaðið var byggt á
dæmi sem gekk hreinlega ekki upp
og var formlega lýst gjaldþrota í nóv-
ember 2002, um sama leyti og Frjáls
fiölmiðlun. Eigi aö síöur var hug-
myndinni haldið á floti og hafinn
rekstur á ný eftir gjaldþrotið í íyrra
og með enn meiri tiikostnaði en áöur.
Aðaleigandi Fréttablaðsins í upp-
hafi var Frjáls fiölmiðlun undir
stjóm Eyjólfs Sveinssonar. Hann
stýrði FF ásamt föður sínum, Sveini
R. Eyjólfssyni. Þetta mikla fiölmiðla-
veldi er nú til meðferöar í einu af
stærstu gjaldþrotum íslandssögunn-
ar. Þótt ferill Fréttablaðsins hæfist í
sumarbyrjun þá rann sumarið í raun
aldrei upp hjá útgáfufélaginu sökum
erfiðleika við fiármögnun. Fór svo að
eftir aðeins rúmlega eitt ár var útgáf-
an komin í þrot og stórskuldug.
Aö eriendrí fyrirmynd
Eyjólfur Sveinssona lagði drög að
Fréttablaðinu í Fijálsri fiölmiðlun og
helsti hugmyndasmiður með honum
og hönnuður var Gunnar Smári Eg-
ilsson, núverandi ritsfióri. Hugmynd-
in var sótt í útgáfu svokallaðra
Metró-blaða úti I heimi sem byggist á
ódýrri dreifmgu ókeypis dagblaða á
lestar- og strætisvagnastöðvum. Var
útgáfan alfarið byggð á auglýsinga-
tekjum.
Helsti gallinn við þessa hugmynd
er sú staðreynd að lestarstöðvaum-
hverfið er alls ekki fyrir hendi hér-
lendis. Því varð að grípa til þess ráös
að dreifa Fréttablaðinu með æmum
kostnaði heim til lesenda, aðallega á
höfuðborgarsvæöinu. Til að þetta
gæti gengið upp varð hlutfail
greiddra auglýsinga að vera mjög
hátt, ekki síst þar sem miðað var við
að upplag blaðsins yrði á bilinu 70 til
80 þúsund eintök. Fljótlega var ljóst
að auglýsingatekjurnar hrykkju
hvergi nærri til. Blaðið safnaði því
skuldum sem námu samkvæmt
kröfulýsingaskrá um 300 miiljónum
króna eða rúmlega miiljón á hvem
útgáfudag blaðsins. Ljóst er því að
margir sitja nú eftir meö sárt ennið.
Margvísleg vandræði
Margvísleg vandamál komu upp
vegna erfiðrar fiárhagsstöðu Frétta-
blaðsins. Prentsmiðjan ísafold, sem
prentaði blaðið, komst í þrot, en hún
var einnig í eigu sömu aðila.
Var þá gripið til þess ráðs að
stofha Blaðavinnsluna ehf. 17. apríl
2002. Stofhandi Blaðavinnslunnar var
Saxhóll ehf. undir sfióm Einars Am-
ar Jónssonar. Saxhóll var eigandi að
húsnæðinu sem leigt var undir starf-
semi ísafoldarprentsmiðju í Garða-
bæ. ísafoldarprentsmiðja gekk áfram
um sinn en var svo úrskurðuð gjald-
þrota 31. maí 2002. Var í kjölfarið
gengið frá sölu á þrotabúi prentsmiðj-
unnar til Kristþórs Gunnarssonar,
íyrrverandi framkvæmdastjóra
prentsmiðjunnar, Kjartans Kjartans-
sonar prentsmiðjustjóra og Guðjóns
Ámasonar í byijun júní 2002. Keypt
var ný Roland-prentvél eftir aö
Fréttablaðið hóf göngu sína á ný í
kjölfar gjaldþrots.
Dreifmgin gekk líka brösuglega
þegar blaðburðarböm fóm aö upplifa
það að fá ekki greitt fyrir vinnu sína.
Fjölmargar fréttir birtust síðustu út-
gáfumánuði blaðsins vegna þessa.
Þar kvörtuðu foreldrar sáran undan
meðferðinni á bömum sínum. Sömu
sögu var að segja af blaðamönnum og
margsinnis lá við vinnslustöðvun
vegna þessara mála.
í byijun maí 2002 lögðu Hömlur,
Eignarhaldsfélag Landsbankans,
fram kröfu um útburð Fréttablaðsins
úr húsnæði félagsins að Þverholti 9.
Útburðarkrafan var tilkomin vegna
vangoldinnar húsaleigu Fréttablaðs-
ins til margra mánaða.
Vinnslan stöðvast
Þann 20. júní 2002 stöðvaðist
vinnsla Fréttablaðsins þar sem
starfsmenn höfðu þá ekki fengið
greidd laun sín. Ljóst var að útgáfu-
dæmið hafði ekki gengið upp.
Svavar Ásbjömsson, fiármálastjóri
Fréttablaösins, var handtekinn undir
lok júní 2002 vegna kæm SPRON á
meintu fiármálamisferli Fréttablaðs-
ins. Svavar var jaftiframt skráður
stjómarformaður í Blaðavinnslunni
ehf.
Þeir Gunnar Smári Egilsson rit-
sfióri og Ragnar Tómasson lögmaður
sögðust þá hafa átt fundi með hugs-
anlegum fiárfestum. Samningur var
gerður um sölu á rekstri og eignum
Fréttablaðsins til Útgáfufélagsins
Þverholts ehf. Athygli vakti að Út-
gáfufélagið Þverholt ehf. var á sömu
kennitölu og Blaöavinnslan ehf. sem
stofnuð var í apríl sama ár.
Gerði Tollstjórinn í Reykjavík fiár-
nám í lok júní í kaupsamnings-
greiðslum í kaupsamningi um sölu á
rekstri og eigum Fréttablaðsins ehf.
Var fiámámið gert vegna vangold-
inna opinberra gjalda. Kom tollstjóri
þannig í veg íyrir að andvirðið af
sölu reksturs og eigna Fréttablaðsins
rynni til eigenda Fréttablaðsins ehf.:
C-L Consulting S.A., Saxhóls ehf.,
Eignarhaldsfélagsins Gimli ehf.,
Eignarhaldsfélagsins Reynis ehf.,
Eyjólfs Sveinssonar og Dægradvalar
ehf.
Þann 6. júli 2002 var síðan gefin út
tilkynning um aö enn eitt félagið,
Frétt ehf., hefði verið stofnað um
rekstur Fréttablaðsins. Fréttablaðið
kom síðan út um miðjan júlí 2002
undir nýrri kennitölu án þess að
nokkuð væri látið uppskátt um raun-
verulega eigendur. Útgáfan í dag er
þó trúlega mun kostnaðarsamari en
fyrr, með auknum blaðsíðufiölda,
auk þess sem það er gefið út 6 daga
vikunnar í stað 5 áöur. Kallar það án
efa á stórauknar auglýsingatekjur en
ekkert hefur þó verið gefiö upp um
fiárhagsafkomuna það sem af er.
-HKr.
Tölvulistinn í morgun:
Haglaskot á
víð og dreif
„Aðkoman var Ijót hér I morg-
un. Glerbrot um öll gólf og auk
þess haglaskot um alla búö. Tvær
tölvur sem voru í glugganum eru
ónýtar eftir skot og auk þess
prentarar og skjár,“ sagði Óskar
Óskarsson, verslunarstjóri Tölvu-
listans við Nóatún, í samtali við
DV í morgun.
Bíræfið innbrot var framið í
Tölvulistann um tvöleytið í nótt
en þá gerðu þrír ungir menn sér
lítiö fyrir og skutu úr afsagaðri
haglabyssu á sýningarglugga versl-
unarinnar. Þeir höfðu á brott með
sér fartölvu en Óskar segir örygg-
iskerfi hafa farið í gang og þeir
hafi ekki haft meira en rúma mín-
útu til að athafna sig. Ungu menn-
imir voru handteknir á fiórða tím-
anum í morgun; fartölvan fannst í
fórum þeirra og haglabyssan
fannst stuttu síðar í bifreið sem
þeir höfðu til umráða.
Tjónið í versluninni er töluvert
að sögn Óskars. „Það skiptir
hundruðum þúsunda ef ekki millj-
ón krónum. Rúðubrotsskynjarinn
virkaði hins vegar vel og það er
auðvitað fyrir mestu að mennimir
skuli komnir í hendur lögreglu,"
sagði Óskar.
Þremenningarnir, sem eru tví-
tugt, gistu fangageymslur í nótt og
verða yfirheyrðir í dag. Þeir munu
áður hafa komið við sögu lögregl-
unnar. -aþ
Samstarf ÍE:
Undirbúningur
klínískra lyfja-
prófa hafinn
Bandarísk samtök fiölskyldna
með hryggvöðvarýrnun, sem
stofnuð voru til að efla rannsókn-
ir sem kynnu að leiða til með-
ferðar á þessum illvæga og oft
banvæna sjúkdómi, hafa skrifað
undir samning við íslenska erfða-
greiningu um þróun lyfs gegn
hryggvöðvarýrnun. Lyfiaefna-
fræðideild ÍE í Chicaco í Banda-
ríkjunum mun vinna áfram með
efnasambönd sem hafa gefiö væn-
legar niðurstöður 1 rannsóknum
sem fiármagnaðar voru af sam-
tökunum.
Hlutverk ÍE verður að skil-
greina efnasambönd sem líkleg-
ust eru til að hægt verði að þróa
í lyf, sjá um áframhaldandi rann-
sóknir og þróun á þeim, þróa aö-
ferðir til aö framleiða þau í
miklu magni og gera úr þeim lyf
fyrir klínískar lyfiaprófanir.
Samningurinn er til þriggja ára
og gæti skilað ÍE 5,2 milljónum
Bandaríkjadollara. -GG