Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2003, Síða 19
LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2003
HelQorbloö H>"V
I O
Þegar Skífan endurinnréttaði verslun sína við Laugaveg 1999 mætti Halldór Ásgrímsson,
formaður Framsóknarflokksins og utanríkisráðherra, á staðinn til að samfagna
atliafnaskáldinu. Jón hefur sagt í viðtölum að |>að sé mikilvægt að eiga
stjórnmálamenn að vinum.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þáverandi borgarstjóri, mætti á fund Jóns í Skífunni árið 1999.
Jón hefur stvrkt alla stjórnmálaflokka á íslandi, að eigin sögn, og forsetafrainboð Ólafs
Ragnars Gríinssonar. Nýleg ræða Ingibjargar Sólrúnar um meinta luismunun yfirvalda gagnvart
fyrirtækjum, þar sein hún nefndi fvrirtæki Jóns sérstaklega, vakti næstum eins mikla athvgli
og fréttirnar af meintum skattsvikum Jóns.
kemur fram að íslenska útvarpsfélagið
hf. skuli greiða í lífeyrissjóð fyrir Jón
10% af framangreindri fjárhæð. Þá skuli
Jón fá bíl til afnota fyrir sig í London, tii
viðbótar þeim sem hann hafi til afnota á
íslandi.
Sigurjón Sighvatsson, náinn sam-
starfsmaður Jóns í viðskiptum hér á
landi, er alfarið bandarískur skattþegn.
Hann kemur þvi sem slíkur ekki inn í
rannsókn íslenskra skattayflrvalda.
Greiðslur auknar
Með samningi, dagsettum 12. mars
1999, eru greiðslur frá Islenska útvarps-
félaginu hf. vegna starfa Jóns hækkaðar
úr USD 175.000 í 192.600, eða úr 13,5 í
nærri 15 milljónir króna. Samningurinn
er gerður í nafni Inuit Enterprises Ltd
annars vegar og íslenska útvarpsfélags-
ins hf. hins vegar.
46 inilljónir og frí áskrift
Síðar í sama kafla kemur fram að
þeir Jón Ólafsson og Sigurjón Sighvats-
son, tveir stærstu hluthafamir i Norð-
urljósum, hafi samið sin á miili, hinn
14. júlí 1999, um greiðslu á launum og
svonefndum ráðgjafagreiðslum. Fram
kemur að þessi samningur tryggði Jóni
Ólafssyni USD 600.000 á ári, eða 46,2
milljónir króna að núvirði í heildar-
greiðslur frá Norðurljósum samskiptafé-
lagi hf. og dótturfélögum, auk afnota af
tveimur bifreiðum, greiðslu á trygging-
um, ferða- og uppihaldskostnaði, áskrift-
ar að fjölmiðlum og alls símakostnaðar.
Auk þess var samið um að Inuit Enter-
prises Ltd fengi USD 50.000, greidda fyr-
ir fram fyrsta dag hvers mánaðar, vegna
stjómarformennsku hjá Norðurljósum
og síðar stjómarformennsku í Northem
Lights Communication SA, í Lúxem-
borg, þegar eignarhald í hlutum félaga-
samsteypunnar væri komið þangað.
Bifreiðalilunnindi
í skýrslunni kemst skattrannsóknar-
stjóri að þeirri niðurstöðu að fyrir árin
1998,1999,2000 og 2001 hafi Jón Ólafsson
vanframtalið bifreiðahlunnindi sem
metin em á 7,4 milljónir króna, en Jón
hafi við skýrslutöku svarað þvi til að
þessi hlunnindi vegna bifreiðarinnar í
Bretlandi yrðu talin fram á framtölum
fyrir hann í Bretlandi, en gleymst hafi
að telja fram hlunnindi vegna afnota
hans af bifreiöum á íslandi. Greint er
frá því að Jón hafi vantaliö tekjur á
skattframtölum sinum vegna bifreiða-
hlunninda allt frá árinu 1992.
Persónulegur kostnaður
Við rannsókn hefur komið í ljós að
Norðurljós samskiptafélag og/eða tengd
félög hafi greitt fyrir Jón ýmsan per-
sónulegan kostnað hans sem telja beri
honum til tekna. Þar er m.a. um að
ræða líftryggingariðgjöld, laun vegna
starfsmanna sem unnu fyrir Jón per-
sónulega, eða þáðu laun frá Norðurljós-
um samskiptafélagi hf. og/eða tengdum
félögum vegna þeirra starfa.
Starfsmaðurinn Ingunn Halldórsdótt-
ir sá m.a. um persónuleg málefni Jóns
og fjölskyldu hans. Hún var ritari hjá
Skífunni og síðar Norðurljósum og þáði
þaðan launagreiðslur sínar. Skattrann-
sóknarstjóri telur það samsvara 5 millj-
ónum króna sem telja eigi Jóni til tekna
vegna tekjuáranna 1998-2001.
Bamapía á launum hjá
Norðurljósum
Norðurljós réðu Barbel Gamsu sem
aðstoðarmanneskju fyrir Jón með aðset-
ur í London á árinu 2001 og greiddu
henni laun, tæplega 1,9 milljónir króna.
Hún starfaði hjá Jóni í nokkra mánuði
og gætti m.a. bama Jóns og hafði yfir-
umsjón með daglegum/vikulegum þrif-
um í húsinu, annaðist minni háttar
heimilisverk, aðstoðaði í boðum á heim-
ilinu og annaðist innkaup.
Auk þess eru í smáatriðum talin fjöl-
mörg mál er skattrannsóknarstjóri telur
miður fara viö framtöl Jóns Ólafssonar
til skatts hér á landi.
-HKr.
hveiju sinni.
Á árinu 1999 var
gerður samningur
við Jón Ólafsson um
að Inuit Enterprises
Ltd tæki við endur-
gjaldi vegna starfa
Jóns. Á árinu 1999
var einnig gerður
Þessi mynd af Jóni Ólafssyni og Ilelgu Hilmarsdóttur konu hans var tekin á
áramótafagnaði í Perlunni 2001. Þar skemmtu þau sér með öðrum sterkefnuðum
íslendingum. Jón og Helga búa í London og Cannes til skiptist. Þau safna listaverkum og
leyfa sér flestan munað sem hugur manna getur girnst.
94% fjíirfestinga á íslandi
Skattrannsóknarstjóri telur óhjá-
kvæmilegt að líta svo á að miðstöð fjár-
hagslegrar umsýslu Jóns sé á íslandi,
þar sem hlutfall þeirra Qárfestinga af
heildarumsvifum Jóns sé mjög hátt, og
nefnir máli sínu til stuðnings að ef
heildareignir Inuit Enterprises séu
skoðaðar út frá drögum að ársreikningi
vegna rekstrarársins 5. apríl 2000 - 5.
apríl 2001, megi sjá að fjárfestingar sem
ekki tengist íslandi séu u.þ.b. 6%.
Eignarhaldsfélag í Lúxemborg
Eignarhaldsfélagið NLC Holding SA
verður til í nóvember 2000 þegar Kaup-
þing Luxembourg stofnar félagið í Lúx-
emborg og var hlutafé félagsins þá tæp-
lega 1,7 milljarðar króna. Félagið var
stofnað fyrir hönd hluthafa Norðurljósa
samskiptafélags og voru öll hlutabréf
Norðurljósa keypt af NLC Holding á
nafnverði og söluandvirðið greitt með
hlutabréfum í NLC Holding.
Norðurljós seld langt undir
markaðsvirði
Hluthafar Norðurljósa samskiptafé-
lags hf. selja allan eignarhlut sinn í fé-
laginu á kr. 1.683.305.500 til eins aðila,
þ.e. NLC Holding SA, sem er langt frá
raunverulegu virði félagsins.
Á sama tíma liggur fyrir verðmat frá
Kaupþingi hf„ dagsett 29. nóvember
2000, þess efhis að heildarverðmæti
Norðurljósa samskiptafélags hf. sé
8.750.000.000 krónur.
Með því að selja eignarhlutana á
nafnverði myndast ekki neinn sölu-
hagnaður fyrir eigendur félagsins og
nýr eigandi alls hlutaíjár er eignar-
haldsfélag í Lúxemborg.
Jón hefur með sambærilegum hætti
flutt eignir sínar yfir í Inuit Enterprises
Ltd, að þvi er virðist til þess eins að
komast hjá skattlagningu á söluhagnaði
af raunvirði eignanna eins og segir í
skýrslu skattrannsóknarsljóra.
Ráðgjafagreiðslur
í mars 1998 byrjaði Rotschild á
Guemsey að senda reikninga til ís-
lenska útvarpsfélagsins, Spors, Skífunn-
ar og Sýnar i nafhi Inuit Enterprises
Ltd vegna ráðgjafastarfa Jóns. Sam-
kvæmt skýrslunni stýrði Jón Ólafsson
fjárhæð þessara reikninga, texta og til
hvaða félaga senda átti reikningana
annar samnmgur í
nafni Inuit Enter-
prises Ltd sem tók
yfir allt endurgjald
vegna svokallaðra
ráðgjafastarfa Jóns
fyrir Norðurljós
samskiptafélag hf„
en það félag varð á
þvi ári móðurfélag
íslenska útvarpsfé-
lagsins, Skífunnar og Sýnar, en áður
hafði Spor verið sameinað Skífunni.
Greiðslur til Inuit Enterprises Ltd
vegna ráðgjafastarfa Jóns Ólafssonar
námu:
Árið 1998 kr. 31.705.788
Árið 1999 kr. 52.309.854
Árið 2000 kr. 49.594.623
Árið 2001 kr. 70.480.700
Samtals kr. 204.090.965 vegna allra ár-
anna.
Samkvæmt samantekt skattrann-
sóknarstjóra hefur ekki verið gerð grein
fyrir þessum greiðslum í launauppgjöf
til skattyfirvalda af hálfu félaganna,
ekki haldið eftir af þeim til staðgreiðslu
opinberra gjalda og Jón ekki talið þær
fram í skattframtölum sínum.
Viðbótargreiðslur,
lífeyrissjóður og bflar
Samkvæmt minnisblaði
(„Memorandum") á milli Jóns og Sigur-
jóns Sighvatssonar kemur fram að frá
því í júní 1998 skuli íslenska útvarpsfé-
lagið greiða Jóni 175.000 Bandaríkjadoll-
ara á ári, eða um 13,5 milljónir króna á
núvirði. Sú greiðsla kemur til viðbótar
við aðrar greiðslur sem Jón fær frá ís-
lenska útvarpsfélaginu. Enn fremur