Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2003, Síða 47
LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2003
Helgarblctö 13V
Mengunarreglur mótorhjóla
- kostur eða kyrking?
Með strangari inengunarreglugerðum er hætt við að tekið verði fyrir
breytingar á hjóluni seni hingað til hafa verið vinsælar, eins og púst-
flækjur. DV mynd ÞÖK
Mótorhjól og vélsleðar hafa hingaö
til sloppið við ákvæði um mengun í
flestum ríkjum heimsins. Reyndar
hafa þau orðið að sætta sig við mun
strangari hávaðareglur á síðustu árum
en önnur farartæki en þar sem þau
menga minna en stærri farartæki hafa
Evrópusambandið og Bandaríkin horft
fram hjá mengun í útblæstri þeirra
hingað til. Þetta er breytist þó alit á
næstu árum ef reglugerðir beggja
vegna Atlantsála ná fram að ganga.
Reglugerð í smíðum hjá ESB
Samkvæmt reglugerð sem nú er í
smiðum hjá Evrópusambandinu eiga
mótorhjól að falla undir sömu meng-
unarstaðla og bílar fyrir árið 2006.
Áætlanir ESB miðast við að ná þessu
markmiði í tveimur þrepum. í fyrra
þrepinu á að
minnka
kolmónoxíð og kol- Njáll
vetnissameindir í Gunnlaugsson
fjórgengisvélum blaöamaöur
framleiddum eftir
1. apríl 2003 um
60%. í seinna þrep-
inu, sem kemur til aðgerða 1. janúar
2006, þarf hlutfall þeirra að lækka um
50% í viðbót. Tvígengisvélar þurfa að
minnka kolmónoxíðútblástur um 30%
og kolvetni um 70% en þar sem hlutfaU
níturoxíðs í útblæstri þeirra er lágt
verða engar breytingar á magni þeirra
í útblæstri fyrir 2003 til þess að gefa
framleiðendum aðlögunartíma til að
lækka hlutfall þeirra fyrir 2006.
Nýtt prófunarferli
Þessar mengunarreglur falla vel að
framleiðsluumhverfmu í dag og flest
hjól standast 2003 reglugerðina. Sem
dæmi stenst Suzuki V-Strom 1000 hjól-
ið hana og er ansi nálægt að standast
2006 reglugerðina líka en það hjól er
búið hvarfakút, súrefnisskynjara og
beinni innspýtingu. Samhliða þessum
mengunarreglugerðum veröur búið til
nýtt prófunarferli fyrir mótorhjól. Mið-
ast þær prófanir við eðlilega notkun
fyrstu 30.000 kílómetrana. Einstök riki
geta þó sett sín viðmiðunarmörk sjálf
og ráðið því hvort þau sekta eldri far-
artæki sem ekki uppfylla staðla.
Annar staðall í BNA
Nýr mengumarstaðall EPA (En-
vironmental Protection Agency) fyrir
mótorhjól og vélsleða í Bandaríkjun-
um byggist á því að þessi tæki eigi
stóra sök á mengun andrúmsloftsins.
Þessi staðreynd virðist úr lausu lofti
gripin hjá EPA þvi að í samanburði
við einkabílinn menga til dæmis mót-
orhjól töluvert minna. Reyndar getur
þessi staðhæfmg átt við í Austurlönd-
um fjær þar sem stór hluti farartækja
er mótorhjól og mörg þeirra tvígengis
og því skýtur það skökku við að meng-
unarstaðailinn skuli fyrst vera settur
þar sem mikill meirihluti mótorhjóla
er fjórgengis. Það að staðallinn er kom-
inn til að vera í Bandaríkjunum má
þakka náttúruvemdarsamtökunum
þar i landi en þau hafa lengi séð ofsjón-
um yfir umferð torfæruhjóla og
vélsleða í náttúrunni. Búast má við að
þessi staðall hafl lamandi áhrif á fram-
leiðslu vélsleða á næstu árum og menn
verði að bregðast
viö með fjórgeng-
isvélsleðum eins
og Yamaha var
reyndar að gera
með nýja RX-1
sleðanum.
Strangari reglugerð
Þessi staðaU kemur fyrst til aðgerða
i Kalifomíu árið 2004 og verður lands-
staðall árið 2006. Hætt er við að tví-
gengis-torfæruhjól og fjórhjól deyi út
eins og risaeðlumar þegar staðlinum
verður fylgt eftir en reyndar nær hann
ekki yfir keppnishjól og keppnissleða
sem einungis eru ætluð fyrir keppni.
Núverandi reglugerð leyfir 5 grömm af
kolvetnis- og nlturoxíðsameindum og
12 grömm af kolmónoxiði i hverjum
eknum kílómetra. 2004-reglugerðin
lækkar þessar tölur niður í 1,4 grömm
fyrir kolvetnis- og níturoxíðsameindir
en hlutfall kolmónoxíðs verður áffarn
óbreytt. Mörg þeirra fiórgengis-mótor-
hjóla sem framleidd eru i dag standast
þessa mengunarstaðla en hætt er við
að R-hjólin svokölluðu eigi erfiðara
með að ná þeim. Líklega verða ffarn-
leiðendur að eyða meiri peningum í
þróun sem aftur leiðir til dýrari hjóla
og sleða.
Rúm fyrir breytingar
Mörg þeirra mótorhjóla sem seld
eru i dag eru með beinum innspýting-
um. Þrátt fyrir að þau séu ljósárum á
undan blöndungshjólum í minni meng-
unarmagni er samt hægt að gera betur
í því efnum. I mótorhjólum er tjúnun
þeirra kóðuð í tölvuheila sem stjómar
kveikjunni og miðast hún við meðalað-
stæður sem breytast ekki þrátt fyrir
breytingar á ytri aðstæðum, eins og
loftþrýstingi, lofthita og þess háttar.
Bílar hafa fúllkomnara rafkerfi sem
leyfir það að hægt er að koma fyrir
skynjurum hvar sem er sem senda aft-
ur upplýsingar til tölvuheilans sem aft-
ur breytir kveikjunni eftir aðstæðum.
Strangari reglugerð í Bandaríkjunum
er líkleg til að neyða framleiðendur til
að setja flóknari rafkerfi í mótorhjólin
sem einnig leiðir til hækkandi verðs á
þeim. Þetta mun líklega einnig leiða til
þess að ekki verður hægt að gera
breytingar á mótorhjólum nema á full-
komnu verkstæði. Hlutir eins og flækj-
ur og aðrir tjúnhlutir munu því ryk-
falla í hillum mótorhjólaverslana áður
en langt um líður og tekið verður fyrir
það að eigendur mótorhjóla breyti
þeim sjálfir.
Lítil mengun í hjólum
Að sögn Þorsteins Marels hjá Vél-
hjólum & sleðum er talvert um hyster-
íu meðal umhverfissamtaka sem fara
offari þegar rætt er um mengun öku-
tækja. „Ofl er verið að einblína á það
sem mönnum er næst í umhverfmu án
tillits til hvað mengar og hvað ekki.
Má nefna þegar aðalpúströr heimsins,
sem eru eldfjöll, fara í gang. Eitt með-
aleldgos mengar á örfáum andartökum
ársskammt allrar umferðar heimsins.
Hvað mótorhjól varðar þá mengar
einn strætó meira en öll hjól landsins
yfir árið. Mér er það líka til efs að
vélsleðar hafi í við hverasvæðin í Yell-
owstone Park. Frægt er þegar um-
hverfisvemdarsinnar þar reiknuöu út
mengun af sleðum í garðinum. Þeir
tóku öll efni í áætlaðri bensín- og tví-
gengisolíusölu til sleðamanna á svæð-
inu og sögðu það fara beint í jarðveg-
inn.“
Tækni kostar peninga
Framleiðendur tvígengisvéla eru á
fullu að hanna innspýtingar og lofa t.d.
OMC og Orbital-útfærslumar góðu.
Gallamir koma hins vegar í kostnaði
og þyngd. „Öll þessi tækni kostar pen-
inga og þarf mun þyngri og öflugri raf-
kerfi sem vinna með fiórgengisvélum í
samanburði. Báðir kostir em slæmir
fyrir léttustu tækin.“ Krossarar og
keppnissleðar finna mest fyrir hverju
grammi sem við bætist. „Varðandi
breytingar eða „tjúningar" á hjólum og
sleðum framtíðarinnar held ég að lítið
breytist annað en græjumar sem not-
aðar verða til verksins. Nú kaupa
menn einfaldlega nýjan stýrikubb í
tölvu tækisins með flækjunum, rétt
eins og menn breyta tölvum þessa dag-
ana. Hluti þess að eiga flott hjól eða
nýjasta sleðann er einfaldlega yfirlýs-
ing eigandans til umhverfis sín. „Ég er
ekkert eins og meirihlutinn" eða „Ég
fer mína leið.“ Þetta verður áfram til
þess að tækjum verður breytt og gæð-
ingum hleypt," segir Þorsteinn. -NG
Bílaljós
Haft er eftir Lars Evenson,
verkefnisstjóra þjófavarna hjá
Saab Automobile í Trollháttan,
að nú hafi menn það svart á
hvítu að þessi bíll sé þjófheldur. í
því felst að þó ef til vill megi með
öflugum tækjum komast inn í
hann sé þar eftir litlu að slægjast.
Útvarp og geislaspilari eru til
dæmis þannig samtengd að hvort
Þjófheldur Saab
Sænska Brunavarna-
isvottunarstofan
(Svensk brand &
sikkerheds-
certificering)
hefur vott-
að fyrsta
þjófhelda
bílinn.
Hann er
að sjálf-
sögðu
sænskur,
Saab 9-3 Sport
Sedan.
og örygg- verður ekki notað án hins og
ógerlegt að „urnkóða" þessi
tæki - það er að segja
komast fram hjá
uppruna-
9-3
Heimild:
Motormagasinet.
leg- ^
um öryggiskóða þeirra. Þar |
að auki eru fiölmargir hlut- *
ar í bílnum þannig merktir
að það verður alltaf hægt að
þekkja þá og gera sér grein
fyrir hvaðan þeir eru sprottnir.
Við hönnun þjófavarna í bíln-
um naut Saab aðstoðar sænsku
þjófavarnasamtakanna (Svensk
Stöldskyddsforening), Thatcham,
sem er þjófavarnaráð bresku
tryggingafélaganna,
sænsku lögreglunnar
og Interpol - en
allar
þessar stofhanir hafa yfirgrips-
mikla þekkingu á vinnubrögðum
5 I
BILA-
VARAHLUTIR
Öxulhosur
Hjólalegusett
Tímareimar
Skeifunni 2
108 Reykjavík
Sími 530 5900
poulsen@poulsen.is
www.poulsen.is
Smáauglýsingar
DV
Þjónustu-
auglýsingar
►I 550 5000