Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2003, Qupperneq 2
2
LAUGARDAGUR 29. MARS 2003
Fréttir
DV
Tony Soprano.
Soprano-þættirnir:
Tony með nakinni
„Miss Reykjavík"
íslenskt kvenfólk verður aftur í
sviðsljósinu í sjónvarpsþættinum
um Soprano-fjölskylduna sem sýnd-
ur verður á RÚV á mánudagskvöld.
í þætti kvöldsins eiga íslendingar
sinn fulltrúa í formi ljóshærðrar
fegurðardrottningar. Þar fræðir hún
höfuðpaur þáttanna, áðumefndan
Tony Soprano, um eldvirkni íslands
á meðan hún liggur nakin við hliö
hans. Með hlutverk stúlkunnar fer
leikkonan Tone Christensen en í
þættinum sjáifum er hún einfald-
lega titluð Miss Reykjavík. Sam-
kvæmt heimildum DV hefur Miss
Reykjavik þó ekki enn sagt sitt síð-
asta orð eftir þáttinn á
mánudagskvöld.
Mikið hefur verið rætt um hinn
svokallaðan flugfreyjuþátt þar sem
mafíuforinginn Tony Soprano sást
gamna sér með nokkrum íslenskum
flugfreyjum ásamt undirmönnum
sínum. Þátturinn olli hörðum við-
brögðum forsvarsmanna Icelandair
á sínum tíma. í kjölfarið hófst mikil
umræða, sérstaklega meðal kvenna,
um að fyrirtækið sjálft bæri ábyrgð
á þessu með markaðsherferðum
Icelandair á erlendum vettvangi þar
sem m.a. var notað slagorðið „One
night stand“. -áb
Næsta kjörtímabil
það síðasta hjá Davíð?
Davíð Oddsson.
Davíð Oddsson
forsætisráðherra
segist ekki hafa
hug á að fara fyr-
ir rikisstjóminni
meira en eitt
kjörtímabil enn.
Þetta kom fram í
fréttum Stöðvar 2
í gær. Þess 1 stað
vill hann halda í
önnur störf.
Eins og kunnugt er hefur Davíö
þótt nokkuð liðtækt skáld og ekki
að vita nema hann muni láta meira
að sér kveða á þeim vettvangi. For-
sætisráðherrann sagðist heldur ekki
hafa áhuga á því að gegna embætti
forseta lýðveldisins því það væri
einfaldlega starf sem honum hentaði
ekki. Hann sagði þó ekkert ákveðið
í þessum efnum. Sér gæti allt eins
snúist hugur og haldiö áfram í
stjómmálunum eftir næsta kjör-
tímabil. -áb
Héraðsdómur Reykjavíkur segir gáleysi að fara upp í bíl drukkins manns:
Slasaður farþegi beri
tjon sitt að hluta sjálfur
Héraðsdómur Reykjavíkur
hefur dæmt á þann veg að með
þeirri háttsemi að fara upp í bif-
reið með ölvuðum ökumanni hefði
maður sýnt af sér stórkostlegt gá-
leysi og því þyrfti sá að bera tvo
þriðju hluta tjóns sem hann hlaut
í árekstri með hinum ölvaða.
Málsatvik voru þau að þann 6.
mars 1998 ók maðurinn ásamt öðr-
um manni úr Mosfellsbæ niður í
miðbæ Reykjavíkur. Höfðu þeir
meðferðis einn lítra af landa og
viðurkenndi ökumaðurinn að hafa
drukkið fjórðung úr vatnsglasi af
landanum. Voru þeir í miðbænum
til morguns og kláruðu þeir úr
landabrúsanum. Þeir fóru svo aft-
ur í bifreiðina og héldu af stað
heim. Maðurinn sem dæmdur var
kvaðst hafa sofnað fljótlega eftir að
í bílinn var komið. Á Vesturlands-
vegi sofnaði ökumaðurinn undir
stýri og fór bíllinn yfir á öfugan
vegarhelming. Lenti hann framan
á öðrum bíl með þeim afleiðingum
að ökumaður þess bíls stórslasaö-
ist og stúlka sem var farþegi í bíln-
um lést samstundis. Ökumaðurinn
var ákærður í kjölfarið og dæmd-
ur í tveggja mánaða skilorðsbund-
ið fangelsi og sviptur ökuréttind-
um í þrjú ár.
Umræddur maður kvaðst hafa
fótbrotnað illa við áreksturinn og
hlotið varanlega örorku. Trygg-
ingafélag ökumannsins synjaði
manninum um bætur þar sem
hann hefði fyrirgert rétti sínum til
bóta með því að taka sér far með
ölvuðum ökumanni. Vísaði félagið
í áratugalanga dómvenju Hæsta-
réttar. Stefndi maðurinn þá
tryggingafélaginu fyrir dóm.
í niðurstöðum Héraðsdóms
Reykjavíkur segir aö með dómi
Hæstaréttar frá 2001 hafi dómstóll-
inn komist að þeirri niðurstööu að
efni væru til að breyta hinni löngu
dómvenju um að það leiddi til miss-
is bótaréttar að þiggja far með ölv-
uðum ökumanni og ætti niðurstaöa
máls aö fara eftir reglum um eigin
sök og eðlilegt væri að meta hvert
tilvik fyrir sig.
Héraðsdómur segir svo að stefn-
andi hafi þegið far með ökumanni
þrátt fyrir fulla vitneskju um áfeng-
isneyslu hans og með því hefði
hann sýnt af sér stórkostlegt gá-
leysi og þurfi því að bera tvo þriðju
hluta tjóns síns sjálfur.
-EKÁ
Elnu löglegu slagsmálin á íslandl
Sjöttubekkingar í Menntaskólanum í Reykjavík reyndu hvaö þeirgátu aö hringja inn í tíma þegar hinn árlegi
gangaslagur fór fram. í MR í gær. Yngri bekkingum tókst hins vegar meö herkjum aö koma í veg fyrir fyrirættanir þeirra
eldri. Gekk mikiö á og var heitt í kolunum eins og myndin sýnir berlega. Fengu hiniryngri frí aö iaunum.
Arnar og Bjarki með KR í sumar
Tvíburarnir Arnar og
Bjarki Gunnlaugssynir
skrifuðu báöir undir
samning við KR í gær
um að spila með liðinu í
Símadeildinni í sumar.
Arnar lék síðast með
Dundee United og þar
áður var hann í láni hjá
Stoke en Bjarki lék
síðari hluta síðasta
tímabils með
Skagamönnum og
skoraði þá 7 mörk í 7
leikjum. Síðustu þrjú
Tvíburarnir í Frostaskjólið
Bræöurnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir innsigla
samninga sína viö forráöamenn KR í gær.
tímabil sem tvíburnarnir
hafa leikið saman hér á
landi hefur lið þeirra
orðið meistari og Arnar
orðið markakóngur. ÍA
vann 1. deildina 1991 og
varð íslandsmeistari 1992
og 1995 með þá
innanborðs en Arnar
hefur skorað 31 mark í
síðustu 27 leikjum sínum í
efstu deild á íslandi, þar
af gerði hann 15 mörk í
aðeins sjö leikjum
sumarið 1995. -ÖÓJ
- um fólkið
... fypjp fólkið v
DV á 100 kall
DVálOO kall
DV mun kosta 100 krónur í
lausasölu frá og með næstkom-
andi mánudegi til fostudags. Með
þessu vill DV treysta böndin við
almenning í landinu. DV hefur
áður veriö selt á 100 krónur og
fékk það tilboð geysigóðar viðtök-
ur lesenda um allt land. -hlh
Mýrdalsjökull:
Aukin skjálftavirkni
Skjálftavirkni virðist nokkuð
vera að færast í aukana á ný í
Mýrdalsjökli eftir rólegheit að
undanfómu. Frá aðfaranótt fóstu-
dags í síðustu viku til hádegis í
gær voru skráðir samkvæmt yfir-
fömum niðurstöðum hjá Veður-
stofu íslands samtals 32 jarð-
skjálftar undir Mýrdalsjökli og
langflestir undir vesturhlíðum
Goðabungu. Stærsti skjálftinn
mældist 2,55 á Richter klukkan 17
mínútur yfir 7 á fimmtudags-
morgun. Skjálftinn sem kom um
hádegisbil í gær mældist 2,46 á
Richter. Nokkrir skjálftar hafa
mælst í Kötluöskjunni sjálfri. Þá
hefur einnig orðið vart við
skjálfta norðaustur af Hveragerði
og eins skammt norðan Grímseyj-
ar. -HKr.
Uppsagnir hjá
Landsbankanum
Landsbanki íslands hefur sagt
upp 20 starfsmönnum í yfirstjóm
höfuðstöðva bankans og sam-
þykkt nýtt stjómskipurit. Ástæð-
urnar eru sagðar vera einfóldun
á skipulagi bankans og hagræð-
ing í rekstri. Uppsagnirnar ná
m.a. til framkvæmdastjóra, for-
stöðumanna og sérfræöinga en
auk þess hafa deildir og hin
ýmsu starfssvið verið sameinuð. í
tilkynningu frá Landsbankanum
er ennfremur sagt að með þess-
um breytingum sé verið að búa
bankann undir þau miklu um-
skipti sem fyrirséð eru á íslensk-
um fjármálamarkaði. -áb
mmm
Enginn vatnsskortur í Eyjum
Enn hefur ekki borið á vatns-
skorti í Vestmannaeyjum þrátt fyr-
ir að önnur leiðslan milli lands og
Eyja leki. Útlitið var svart en eftir
að loðnuvertíð lauk hefur vatn aft-
ur tekið að safnast í tanka Eyja-
manna. RÚV greindi frá.
Heimili fyrir heimilislausa
Félagsþjónusta Reykjavíkurborg-
ar hefur fengið heimild borgarráðs
til að semja við Samhjálp um rekst-
ur á nýju heimili fyrir útigangsfólk.
Heimilið mun verða opnað 1. maí.
Lagfæringa þörf
Veruleg þörf er á úrbótum í ör-
yggismálum tölvubúnaðar hjá sum-
um sýslumannsembættum að mati
Ríkisendurskoðunar. í úttekt kom í
ljós að stundum geti óviðkomandi
auðveldlega komist að netþjónum
og öðrum gögnum.
Hættuleg efni ekki í göngin
Bæjarráð Borgarbyggðar sam-
þykkti á síðasta fundi sínum bókun
um að tafarlaust bann verði sett við
flutningi hættulegra efna um Hval-
fjarðargöng.
Hvalveiðar ótímabærar
Árni M.
Mathiesen
sjávarútvegs-
ráðherra sagði
í fyrirspurna-
tíma á flokks-
þingi sjálf-
stæðismanna í
gær að ekki
væri tímabært
að hefja hval-
veiðar að svo stöddu. Hann sagði
markaðinn fyrir hvalkjöt enn vera
óljósan.
Vísað frá dómi
Héraðsdómur Reykjaness hefur
vísað frá dómi kröfu þriggja
manna á hendur Garðabæ um að
felld verði úr gildi ákvörðun bæj-
arráðs um að stöðva bygginga-
framkvæmdir húss að Stekkjar-
flöt, þar sem mennimir búa. Vík-
urfréttir greindu frá. -áb
Haldið tíl haga
Páskarjúpur
„Þetta er algjör misskilningur,“
sagði íbúi á Seyðisfirði, en mynd
birtist í blaðinu í fyrradag af rjúp-
um hans hangandi utan á hús-
vegg, sem er nokkuð óvenjuleg
sjón á þessum árstíma. Maðurinn
sagði að hann heföi fengið þessar
rjúpur í haust og sett í frystikistu.
Nú héngju þær og ættu að verða í
matinn á páskunum.