Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2003, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2003
Fréttir DV
Niðurstaða fengin í helstu mál EFTA-ESB samninganna:
Framlög íslands fimm-
földuð og síldarflök tollfrjáls
Niöurstaða fékkst í gær í helstu
málum í samningum EFTA-ríkjanna
og Evrópusambandsins um aðlögun
EES-samnmgsins að stækkun ESB.
Framlög íslands til þróunarsjóða
ESB verða fimmfölduð og tollfrelsi
fékkst á síldarsamflök, svokölluð
„fiðrildi"; þau hafa íslendingar selt
tollfrjálst til ríkja í Austur-Evrópu
en þau heföu að óbreyttu borið 15%
toll við inngöngu þeirra í ESB.
„Ég tel að niðurstaðan liggi í meg-
inatriðum fyrir,“ sagði Halldór Ás-
grímsson í samtali við DV í morgun.
„Það liggur fyrir að greiðslur okkar
inn í þróunarsjóðina verða um 500
milljónir á ári og það liggur jafii-
framt fyrir að hlutverk þeirra hefur
verið skilgreint með þeim hætti að
þar koma bæði til álita verkefni í
sjávarútvegi og jarðhitaverkefni. Við
höfum verið í samvinnu við mörg
umsóknarríkjanna á sviði nýtingar
jaröhita og við töldum mikilvægt að
þau viðfangsefni gætu fengið stuðn-
ing þaðan. Ég tel þá niðurstöðu mik-
ilvæga,“ segir HaBdór.
Hann segir að varðandi sjávarút-
veg hafi viðræðumar gengið út á að
fá ekki verri viðskiptakjör í umsókn-
arríkjunum en við höföum. „Þaö hef-
ur tekist að því er varðar mikilvæg-
ustu afurðina, síldina. í samningun-
um lagði ESB upp með að þeir væru
eingöngu tilbúnir að ræða um toll-
kvóta byggða á reynslu undangeng-
inna ára. Það var okkur mjög óhag-
stætt og við höfum fengið endur-
flokkun á svokölluöum síldarfiðrild-
um. Við teljum þess vegna samning-
inn viðunandi miðaö við þá aðstöðu
sem við vorum í.
Ef við heföum dregið málið fram á
sumar eða haust hefðum við tekið
áhættu með EES-samninginn i heild
sinni og við vildum ekki gera það,“
segir Halldór.
Hann segir að bæði íslendingar og
Norðmenn hafi neitað að ræða kröf-
Kjell Magne Bondevik, forsætis-
ráðherra Noregs, hefur farið fram á
stuðning norrænna starfsbræðra
sinna í samningaviðræðum við
Evrópusambandið um nýjan EES-
samning. Göran Persson forsætis-
ráðherra hafnaði þessari beiðni í
ur ESB um að opna fyrir erlenda
íjárfestingu í sjávarútvegi.
Samningum er ekki endanlega lok-
ið en Halldór segist telja að miðað
við stöðu málsins í dag geti ekkert
komið í veg fyrir að þeir verði undir-
ritaðir og að þannig ætti að vera
tryggt að EES-svæðið stækki um leið
og ESB. -ÓTG
viðtali við norska útvarpið og sagði
að Norðmenn, sem ein auðugasta
þjóð Evrópu, yrðu að sætta sig við
að greiða jafn mikið fyrir markaðs-
aðgang að innri markaði Evrópu-
sambandsins og önnur aðildarríki.
-GG
Norðmenn blðja um stuðning
Bóksali á Engjateigi:
Páskaegg
með bókunum
„Ég kappkosta að bjóða besta
mögulegt verð á bókum og rit-
föngum og því ætti fólk ekki að
eiga þess kost að kaupa hjá mér
páskaegg á góðu verði? Ég býð
30-50 prósent lægra verð á páska-
eggjunum en Hagkaup og er enn
sem komið er ódýrari en Bónus,“
sagði Guðjón Smári Agnarsson í
Bókabúð Lárusar Blöndal við DV.
Guðjón Smári telur sjálfsagt að
færa sig yfir í annan geira mark-
aðarins þegar við á og hefur því
tekið upp á því að bjóða páskaegg
í versluninni. Eggin eru fá Nóa
Síríusi og Góu.
- Hvernig hafa viðbrögðin við
þessari þjónustu verið?
„Mjög góð. Fólk er hriflð af að
geta fengið páskaegg í bókabúð á
sama hátt og fá má bækur í kjör-
búð eða stórmarkaði." -hlh
Bók og páskaegg
Guöjón Smári Agnarsson í Bókabúö Lárusar Blöndal býöur páskaegg frá Nóa og Góu á hagstæðu veröi. Hann segir til-
valiö aö fá sér bók og páskaegg, setjast í gðöan stól og njóta hvors tveggja.
Penninn:
Vill kaupa allar
búfiir Máls og
menningar
Penninn hf. og Edda útgáfa hf.
hafa staðfest að félögin muni
ganga til formlegra samninga um
kaup Pennans hf. á verslana-
rekstri Máls og menningar að
Laugavegi 18, Bankastræti 2,
Síðumúla 7 og Álfabakka 10 nl2 í
Reykjavík, sem eru í eigu Eddu
útgáfu hf. Væntanlegan kaup-
samning þarf að bera undir sam-
keppnisyfirvöld. -aþ
Varðskip til bjargar norsku selveiðiskipi
- 15 norskir sjómenn fastir í ísnum á löskuðu og leku skipi
Varðskip Landhelgisgæslunnar
var í morgun á leiö til bjargar
norska selveiðiskipinu Polarsyssel
en það festist í þykkum ís 160 sjó-
mfiur vestnorðvestur af Ísaíjarðar-
djúpi. Stýri skipsins er fast í bak-
borða og leki jókst mjög þegar aðal-
skrúfan var notuð. Aftanverður
skrokkur skipsins var sagður tals-
vert skemmdur. Dælur ráða þó við
lekann á meðan skrúfa snýst ekki.
Ekki er mikill sjór í aðalvélarrúmi
og því virka dælur og rafalar. Um
borð í selveiðiskipinu er 15 manna
Stuttar fréttir
Hert eftirlit með arnarvarpi
Siv Friðleifs-
dóttir umhverf-
isráðherra boð-
ar hert eftirlit
með arnarvarpi
strax í vor til að
taka af allan
vafa um friðun
stofnsins.
Ákvörðunin er
tekin í kjölfar þess að hæstiréttur
sýknaði æðarbónda af ákærum
um brot á lögum vernd og veiðar
villtra fugla.
Flugvöllur í Þorlákshöfn
Aðalskipulag Ölfuss, sem kynnt
var gær, gerir ráð fyrir að reistur
verði flugvöllur á Hafnarsandi fyr-
áhöfn og telur hún sig ekki í hættu
stadda og vill vera áfram um borð.
Hafrannsóknaskipið Árni Frið-
riksson var á svipuðum slóðum og
Polarsyssel, en var kominn nokkuð
frá skipinu í morgun þegar rætt var
við Landhelgisgæsluna. Um hálfátta
átti varðskipið eftir um 80 sjómílur
að Polarsyssel og gæti komið á stað-
inn um tvö í dag.
Veður á staðnum var skaplegt í
gærkvöld, vind að lægja og var orð-
inn 15 hnútar. Skipstjórinn sagði að
norðaustanáttin væri kærkomin, þá
ir ofan byggð í Þorlákshöfn. Völl-
urinn er hugsaður sem æfmga- og
kennsluflugvöllur.
Lánshæfi hækkar
Lánshæfismat íslandsbanka er
nú hærra en annarra banka hér-
lendis að mati alþjóðlega fyrirtæk-
isins Moody’s.
mundi ísinn hugsanlega reka frá
skipinu og yrði þess þá freistað að
nota hliðarskrúfu skipsins til að
reyna að ná því út en um 500 metr-
ar munu vera í auðan sjó.
Tilkynning um vandræði Polar-
syssel barst frá Loftskeytastöðinni í
Reykjavík kl. 14.26 í gær. Annað
norskt selveiðiskip, Polarfangst, var
þá statt skammt undan og var
ætlunin að Polarfangst reyndi að
draga Polarsyssel út úr ísnum en að-
alvél fyrmefnda skipsins bilaði og
ekki gat orðið af því. -JBP
Mola leitað ákaft
Kattarins Mola, sem hvarf á
Holtavörðuheiði um helgina, er
sárt saknað. Kötturinn er fatlaður
og hafði búið um hríð í Kattholti.
Hann eignaðist nýja eigendur fyr-
ir síðustu helgi en þeir lentu í um-
ferðaróhappi á heiðinni og hefur
kötturinn ekki sést síðan.
Reynir við hæðarmet
Anna Svavarsdóttir hyggst
ganga á fjallið Cho Oyo í Tíbet.
Fjallið er 8201 metri á hæð og tak-
ist Önnu ætlunarverk sitt setur
hún glæsilegt hæðarmet íslenskra
kvenna. Anna Lára Friðriksdóttir
á núgildandi met en hún kleif fjall-
ið Huscaran í Perú, sem er 6.768
metrar, árið 1987.
■■
Olvunar-
akstur minnk-
ar um 36%
Ölvunarakstur í umdæmi lög-
reglunnar í Reykjavík hefur
minnkað um 36% frá fyrra ári, en
tilvikin í fyrra voru 181. Hlutfalls-
lega hefur brotunum fækkað mest í
marsmánuði en minnst í janúar en
þó má greina fækkun í öflum mán-
iðunum. Sé fjöldi brota skoðaður
með tilliti til meðalfjölda öku-
manna sem stöðvaðir voru á dag í
mánuðnum má sjá talsverða fækk-
un frá fyrri árum.
Lögreglan bendir hins vegar í
þessu sambandi á að frá lokum síð-
asta árs hefur sérstakt átak verið
gert tfl að koma í veg fyrir ölvun-
arakstur. Þessar aðgerðir lögregl-
unnar eru enn í fuflum gangi en
þær felast í þvi að hafa uppi sér-
staka eftirlit þegar mest er um ölv-
aða ökumenn. Fram kemur að lög-
reglan bindur miklar vonir við
þessar hertu aðgerðir og mun hún
koma til með að halda þeim áfram
enda hefur árangurinn ekki látið á
sér standa. -áb
Rannsókn á
ílugslysi TF-
FTR miðar vel
Frumrannsókn Rannsóknarnefnd-
ar flugslysa (RNF) á flugslysi TF-
FTR við Miðfellsmúla á Hvalfjarðar-
strönd þann 28. mars síðastliðinn
miðar vel. Rannsókn RNF beinist
meðal annars að veðurfarslegum
þáttum og áætlar nefndin að gefa út
bráðabirgðaskýrslu um slysið fyrir
miðjan maímánuð.
Flak flugvélarinnar var flutt í
skýli til frekari rannsóknar
skömmu eftir slysið. Gerir RNF ráð
fyrir að upplýsingaöflun, þar á með-
al viðtölum við málsaðfla og vitni,
muni ljúka á næstu dögum.
TF-FTR, sem var eins hreyfils
tveggja sæta kennsluflugvél af gerð-
inni Cessna 152, smíðuð árið 1978,
var í sjónflugi á leið frá flugvellin-
um á Stóra-Kroppi í Borgarfirði til
Reykjavíkur að kvöldi 28. mars síð-
astliðins. í flugvélinni voru flug-
kennari og nemandi og voru þeir í
hringflugi að bíða af sér veður
skammt norðan Grundartanga þegar
slysið varð kl. 21.35.
Við slysið kom upp eldur í flug-
vélinni og brann hún að miklu leyti.
í námunda við flakið fannst hins
vegar óskemmt GPS-tæki úr flugvél-
inni sem hefur geflð RNF dýrmætar
upplýsingar um flug vélarinnar
fram að slysinu. -HKr.
Fimm hundruð hvalir
Fimm hundruð hvalir verða
veiddir hér við land á tveimur
árum ef marka má áætlun Haf-
rannsóknarstofnunar um vísinda-
veiðar. Áætlunin hefur verið lögð
fyrir vísindanefnd Alþjóða hval-
veiðiráðsins og er fundur ráðgerð-
ur í júní nk. .aþ