Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2003, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2003, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2003 DV Fréttir Alþjóöleg ráöstefna: Fróðleiksveisla um samkeppni svæða og fyrirtækja Samkeppnishæfni svæða og fyritækja verður brotin til mergjar á alþjóðlegri ráðstefnu á Akureyri á föstudag sem iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, Verkefn- isstjórn um byggðaáætlun Eyja- fjarðar og Iðntæknistofnun ís- lands standa fyrir. Baldur Pétursson, deildarstjóri í iðnaðarráðuneytinu segir að grunnurinn að ráðstefnunni sé stefnumörkun iðnaðarráðherra í málum er varða byggðamál og samkeppnishæfhi, og einnig í byggðaáætlun sem samþykkt var á Alþingi síðastliðið vor. Viðamikil ráöstefna Ráðstefnan er ein sú viöamesta á sínu sviði sem haldin hefur verið hér á landi. „Meginatriöið er að draga til landsins erlenda þekkingu í byggðamálum og sam- keppnishæfni sem vel hafa tekist erlendis og líkur eru á að megi hagnýta hér með góðum árangri. Þarna verða mjög athyglisverðir fyrirlesarar, frá OECD og frá World Economic Forum en á þeirra vegum er gerð einhver viðamesta úttekt á samkeppnis- hæfhi landa sem þekkist í heim- inum. Fulltrúi þaðan mun fjalla um stöðu íslands,“ segir Baldur. Fróðleiksveisla Baldur segir að einnig komi hingað fulltrúi frá EIM í Hollandi sem hefur rannsakað byggðakjarna og klasa í Evrópu og loks frá Nordregio sem er nor- ræn byggðastofnun og fjallar um byggðaþróunina í Finnlandi. „Þetta er því fróðleiksveisla," segir Baldur Pétursson. Innlendir fyrirlesarar verða Kristján Þ. Júlíusson, bæjarstjóri á Akur- eyri, Karl Friðriksson frá Iðn- tæknistofnun, Guðbrandur Sig- urðsson, forstjóri ÚA, og Sig- mundur Ernir Rúnarsson rit- stjóri og formaður Verkefnisstjórnar um byggða- áætlun Eyjaijarðar. -GG Enskir hrappar: Stöð 2 sýnip umtalaðan svikaþátt Nýja Norræna Góður farkostur sem stóreykur flutn- inga ferðafólks til íslands. Ný Norræna á leið til Færeyja Ný Norræna var afhent Smyril Line í Þýskalandi í gær og lagði hún úr höfn frá Lúbeck fyrir hádegi í gær og tók kúrsinn á Þórshöfh í Færeyj- um. Ferjan var smíðuð í skipasmíða- stöðinni Flender Werft í Lúbeck. Ferjan er þrefalt stærri en gamla Norræna sem þjónaði vel um árabil. í nýju feijunni verður rúm fyrir 1.482 farþega og allt að 800 fólksbíla. Ef allt fer sem horfir mun Norræna fjölga ferðamönnum sem hingað leggja leið sína svo um munar. Feijan hefúr reynst vel í þeim reynslusiglingum sem hún hefur farið og er ganghrað- inn allt að 22 sjómílur. Jónas Hall- grímsson, framkvæmdastjóri Ausfars hf. á Seyðisfirði, var um borö í gær og var ánægður með nýja farkostinn að sögn, en ekki náðist i farsíma hans eftir að skipiö var komið i Noröursjóinn í gær. -HEB/JBP Austfirðingar ræða breytta framtíð Austfiröingar huga að því í hvemig samfélagi þeir vilji búa þeg- ar stórframkvæmdir setja mark sitt á líf manna. Á Austur-Héraði held- ur atvinnumálanefndin fundi undir nafhinu Heiti potturinn og var fyrsti hádegisverðarfundurinn hald- inn í gærdag á Hótel Héraði. Mein- ingin er að auka upplýsingaflæðið milli sveitarfélagsins, atvinnulifsins og íbúanna og skapa umræður um helstu málefni. Frummælandi í gær var Eiríkur Bjöm Björgvinsson, bæjarstjóri Aust- ur-Héraðs. Eiríkur ræddi meðal ann- ars mikilvægi þess að sveitafélagið og atvinnulífið þekktu skoðanir og væntingar hvort annars og nauðsyn þess að snúa bökum saman. Um 30 manns mættu á fundinn og sköpuð- ust líflegar umræður um hin ýmsu mál sem brunnu á fundargestum. Næsti fundur í þessari fundaröð verður næstkomandi þriðjudag og fiallar um áhrif stórframkvæmda í sveitarfélaginu og verður framsögu- maður fulltrúi frá bæjarráði Austur- Héraðs. -HEB Vinstri grænir vilja innkalla kvótann á 20 árum: Þriðjungur á markaö og útgerðin fái aðlögun Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill vinda ofan af kerfi varanlegra aflakvóta í sjávarútvegi með þvi að fyma kvótann um 5% á ári. Til þess að auövelda útgerðinni aðlögun að breyttum aðstæðum verði henni þó fyrstu sex árin gert kleift að halda eft- ir meirihluta þess kvóta sem árlega er fymdur og nýta hann sem eins konar „biökvóta" samkvæmt sérstök- um afnotasamningi í sex ár. Þannig myndu fyrstu sex árin aðeins 2% kvótans verða innkölluð. Biðkvótinn kæmi til innköllunar á sjöunda til tólfta ári og þannig yrði eftir tólf ár búið að innkalla alls 60% kvótans. Þriðjungur á markað Vinstri grænir vilja að kvótanum sem ríkið innkallar verði ráðstafaö með þrennum hætti. Þriðjungur verði boðinn upp á landsmarkaði og útgerðum og fiskvinnslum sem stunda frumvinnslu gert kleift að leigja hann til sex ára í senn. Annar þriðjungur verði byggðatengdur og úthlutað til sveitarfélaga sem ráð- stafi honum síðan á grundvelli jafn- ræöis, annaðhvort með útleigu eða öðmm hætti. Loks verði síðasti þriðjungur kvótans boðinn þeim handhöfum kvótans, sem fymt er DV-MYND HAFDÍS ERLA BOGADÓTTIR Ný framtíöarsýn Hilmar Gunnlaugsson atvinnurekandi hvatti menn til þess aö missa ekki sjónar á því markmiði að þæta lífsgæöi og þjónustu í kapphlaupinu um fólksfjölgun. A Kænunni Forystumenn Vinstri grænna völdu veitingastaöinn Kænuna við Hafnarfjaröar- höfn til þess að kynna stefnu sína í sjávarútvegsmálum. frá, til endurleigu gegn „hóflegu kostnaðargjaldi“ til sex ára í senn. Ámi Steinar Jóhannsson, þing- maður Vinstri grænna, sagði á kynn- ingarfundi í gær að sjávarútvegur- inn væri viðkvæmur fyrir miklum breytingum, róttækar breytingar frá degi til dags gætu sett samfélagið í uppnám og því væri ljóst að gefa þyrfti greininni rúman aðlögunar- tíma. Steingrímur J. Sigfússon lagði áherslu á að ekki væri hægt að tala um breytingar á fiskveiðistjómunar- kerfinu án þess að gera jafhframt ná- kvæma grein fýrir því hvemig kvót- anum yrði endurúthlutað. Það hefði Vinstrihreyfmgin - grænt framboð gert. -ÓTG Mosfellsbær dæmdur til aö greiöa manni skaðabætur: Kom í veg fyrir að maðurinn yrði ráðinn skólastjóri Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær Mosfellsbæ til aö greiða manni 1.3 milljónir króna í bætur fyrir að hafa komið í veg fyrir með ólögmætum hætti að hann hlyti stöðu skólastjóra grannskóla Mosfellsbæjar og skert starfsheiður hans sem skólastjóra og kennara. Málavextir voru þeir aö í byrj- un ársins 2001 var auglýst laus staða skólastjóra grunnskóla Mos- fellsbæjar og var stefnandi einn sex umsækjenda. Formaður bæj- arráðs og fræðslunefndar Mos- fellsbæjar hringdi síðar í hann og greindi honum frá því að gerð yrði tillaga um ráðningu hans. Skömmu síðar dró einn umsækj- enda umsókn sína til baka og sam- þykkti bæjarráð síðan að stefn- andi yrði ráðinn skólastjóri. Viku seinna var málið enn á dagskrá bæjarráðs og þar var samþykkt sú tillaga að framlengja áöur auglýst- an umsóknarfrest og afturkalla og fella úr gildi fyrri ákvörðun í mál- inu vegna viðbótarupplýsinga sem fram höfðu komið eftir að um- sóknarfrestur rann út. Var síðan sá sem dregið hafði umsókn sína til baka ráðinn sem skólastjóri þar sem hann hafði óskað eftir því að fá að koma inn í hóp umsækjenda á ný. Af hálfu stefhanda var þvi haldið fram að sögusagnir um að hann heföi verið viðriðinn bama- vemdarmál er hann starfaði sem kennari á Vestfiörðum heföu verið á kreiki og hefði þaö verið ástæða þess að ákvöröun bæjarráðs var afturkölluð. Af hálfu Mosfellsbæj- ar var því mótmælt harðlega og því haldið fram að hæfasti um- sækjandinn hefði verið ráðinn. Hefði sú ráðning byggst á hlutlæg- um og málefnalegum sjónarmiö- um þar sem menntun, hæfileikar og reynsla hans umfram aðra um- sækjendur hefðu einir legið til grundvallar niðurstöðunni. í niðurstöðum héraðsdóms segir að sýnt þyki að eftir að fræðslu- nefiid og bæjarráð höfðu ákveöið að mæla með stefnanda í stöðu skólastjóra heföu komið til um- ræðu sögusagnir um hann sem ekki heföi verið sýnt fram á að neinn fótur væri fýrir. Lægi fyrir að eftir að sögusagnimar komust á kreik heföi bæjarráð afturkallað og fellt úr gildi fýrri ákvörðun sína um aö mæla með honun í starf skólastjóra en hann hafði áður verði talinn hæfur til starfans. Taldi dómurinn ljóst af fundar- gerðum að þeir sem um málið fiöll- uðu hafi rætt þessi mál sín á milli og yrði að telja að umræddar sögu- sagnir heföu verið til þess fallnar að hafa áhrif á ákvarðanir þeirra. Ekki hefði verið sýnt fram á að gerð heföi verið nein könnun af hálfu bæjaryfirvalda á sannleiks- gildi þeirra sögusagna sem voru á kreiki og ekki lá fyrir að stefnanda heföi verið gefinn kostur á að tala máli sinu áður en ákvörðunin var tekin af hálfu bæjarráðsins. Þótti nægilega sýnt fram á að hann heföi hlotið stöðuna eftir að fræðslu- nefnd og bæjarráð höföu mælt með honum heföu sögusagnirnar ekki komist á kreik. Taldi dómurinn að Mosfellsbær hefði brotið gegn rannsóknarreglu og andmælarétti stjómsýslulaga og því komið í veg fyrir með ólög- mætum hætti að stefnandi hlyti stöðuna. Var því Mosfellsbær tal- inn skaðabótaskyldur gagnvart honum. -EKÁ Stöð 2 mun í næsta mánuði sýna umtalaðan þátt, Who Wants to be að Millionaire? bresku út- gáfuna af Viltu vinna milljón? Þessi þáttur var tekinn upp fyrir hálfu öðru ári en var aldrei sjón- varpað. Ástæðan var sú að vinn- ingshafinn, Charles Ingram, majór í breska hernum, var sak- aður um að hafa svindlað. Til liðs við sig hafði hann fengið eigin- konu sína og félaga þeirra. Lögreglan var þegar kölluð til og tók rannsókn málsins marga mánuði. Á mánudaginn féll dóm- ur í málinu þáttaframleiðendum í vil. Þátturinn sem Stöð 2 hefur keypt greinir ítarlega frá réttar- höldunum sem vöktu heimsat- hygli. Ingram hefur haldið fram sakleysi sínu en sér fram á að þurfa að greiða háa sekt fyrir svindliö sem hann hefur nú verið dæmdur fyrir. -JBP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.