Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2003, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2003, Page 16
16 Útlönd MIÐVTKUDAGUR 9. APRÍL 2003 DV SARS-faraldurinn SARS-vírusinn hefur þegar valdiö dauöa aö minnsta kosti 103 manna í heiminum og þar af er um helmingurinn frá Kína. WHO rukkar Kínverja um frekari upplýsingar Alþjóða heilbrigðisstoíhunin, WHO, hvatti í gær kínversk stjórn- völd til þess að upplýsa um allt það sem þau vita um upptök og út- breiðslu SARS-vírusins dularfulla, sem síðustu vikumar hefur breiðst út víða um heim frá suðurhluta Kína. Þessi beiðni WHO barst i gær eftir að hópur faraldsfræðmga á vegum stofnunarinnar lauk sex daga rann- sóknarleiðangri til Guangdong-héraðs í suðurhluta Kína þar sem grunur leikur á að SARS-flensan, sem þessi óþekkti vírus veldur, hafi fyrst kom- ið upp. WHO hefur áður sakað kínversk stjórnvöld um seinagang vegna máls- ins og sagði talsmaður stofnunarinn- ar í gær að hann vænti skjótra við- bragða kínverskra stjórnvalda. Útlægir frakar með í bráðabirgðastjórn Condoleezza Rice, þjóðarörygg- isráðgjafi Bandaríkjaforseta, sagði í gær að íraskir útlagar myndu gegna „mikilvægu hlut- verki“ í bráðabirgðastjórn íraks að stríðinu loknu. „Maður skyldi ekki vanmeta mikilvægi fólks sem hefur verið utan landsins en hefur haldið kyndli frelsis í írak logandi í meira en áratug," sagði Rice við fréttamenn í forsetaflugvélinni á heimleið til Bandaríkjanna. Bandaríska leyniþjónustan tel- ur að margir írakar séu andvígir því að leiðtogar útlægra stjórnar- andstöðuhópa komist til valda í nýrri ríkisstjórn. REUTERSMYND Leiötogar heilsast Bush og Blair heilsast í kastala skammt frá Belfast á N-írlandi. Bush hvetup N-íra tU ai sýna gott (ordæmi George W. Bush Bandaríkjafor- seti hvatti deilendur á Norður-ír- landi í gær til að grípa nú sögu- legt tækifæri til að semja um frið sín í milli og vera þannig öðrum góð fyrirmynd. Bush hafði, opinberlega að minnsta kosti, ekkert fram að færa sem gæti orðið til að norð- urírska heimastjórnin yrði end- urlífguð og að sögn Reuters- fréttastofunnar virtist þetta hon- um ekki jafnmikið hjartans mál og Bill Clinton. Bush ræddi meðal annars Norður-írland á fundi með Tony Blair í Belfast í vikubyrjun. Hmm Palestínumenn féllu í loftárás á Gaza-borg í gær líka bifreið hans. Að sögn talsmanns palest- insku öryggissveitanna í Gaza var fimmta fórnarlambið óbreyttur borgari en auk þess mun fjöldi óbreyttra borgara hafa slasast og þar á meðal nokk- ur böm sem urðu fyrir sprengju- brotum og braki en eitt flugskeytanna sprakk ekki fyrr en eftir að fólk hafði fjölmennt út á götur til að fylgjast með atburðum. Að sögn sjónarvotta flugu tvær F-16 orrastuþotur yfir borgina rétt fyrir árásina en í kjölfarið lét árásarþyrla tO skarar skríða. Zeitoun-hverfið í Gaza, þar sem árásin var gerð, er eitt helsta vígi vopnaðs arms Hamas- samtakanna í borginni en síðan yfirstandandi ófriður blossaði upp fyrir um það bil þrjátíu mánuðum hafa liðsmenn þeirra orðið uppvísir að tugum árása á ísraelska borgara. - fyrsta loftárás ísraela síöan stríðiö hófst í írak Að minnsta kosti fimm Palest- ínumenn létu lífið í loftárás ísra- elsmanna í Gaza-borg í gær, þeirri fyrstu sem gerð er á heimastjórnarsvæði Palestínu- manna síðan stríðið i Irak hófst fyrir tæpum þremur vikum. Að sögn talsmanns Hamas- samtakanna í Gaza lést Saed Arabeed, einn helsti foringi vopnaðs arms Hamas, í árásinni og einnig einn aðstoðarmanna hans. Tveir aðrir liðsmenn Hamas fórust einnig í árásinni en mikil ringulreið ríkti í borginni eftir sprengingarnar og tafði það mjög fyrir björgunarliðum. TEdsmaður ísraelsku leyni- þjónustunnar sagði í morgun að tilgangurinn með árásinni hefði verið að drepa Arabeed en hann væri ábyrgur fyrir fjölda árása á ísraelska borgara á síðasta áratug. Að sögn sjónarvotta var sprengjuflaugum ekki aðeins beint að húsi Arabeeds heldur Slasaðlr fluttir á brott Auk hinna látnu slasaöist fjöidi óbreyttra borgara í árásinni. REUTERS-MYND Klippt í skjóli Saddams Bandarískir hermenn í írak þurfa aö láta klippa sig eins og aörir menn. Þessi mynd var tekin í írösku höfuöborginni Bagdad í morgun þegar liöþjálfinn Mewhinney lét Hamilton major klippa sig. Yfir þeim vakir risamynd af Saddam. Á meöan umheimurinn einblínir á írak: Hungurvofan ógnar í Afríku Hungursneyð blasir við fjörutíu milljónum Afríkubúa en þeir fá ekki nægilega aðstoð vegna þess að augu allra beinast þessa stund- ina að ástandinu í írak. James Morris, yfirmaður mat- vælaaðstoðar Sameinuðu þjóð- anna (WFP), hefur sent Öryggis- ráðinu bréf þar sem hann sakar meðal annars Vesturlönd um tvö- feldni. „Hvernig má það vera að við sættum okkur alla jafna við meiri þjáningar og vonleysi í Afríku en við myndum líða annars staðar í heiminum? Við getum einfaldlega ekki liðið þetta,“ segir Morris í bréfi sínu til Öryggisráðsins. Hann segir að matvælaaðstoð- ina vanti einn milljarð dollara af REUTERSMYND Neyðin er stór Þótt neyö íraka sé mikil um þessar mundir telja ýmsir aö ástandiö í Afr- íku sé enn verra og aö tugir milljóna manna eigi á hættu aö svelta. þeim 1,8 milljörðum sem hún þarf til að kaupa matvæli og dreifa. „Við þurfum bráðnauðsynlega meira fé á næstu mánuðum til að komast hjá alvarlegri hung- ursneyð meðal flóttamanna," segir Morris. Breska blaðið Guardian sagði að Afríkuríki þyrftu á meiri að- stoð að halda en írak en samt fengju þau bæði minni athygli og fé. Morris ber loforð Bandaríkja- manna og Breta um aðstoð við íraka saman við þverrandi áhuga á Afríku. „Þótt mér sé það óljúft kemst ég ekki hjá því að halda að við búum við tvöfalt siðgæði," segir yfir- maður matvælaaðstoðar SÞ. Blaip hræddur við 50 árin Tony Blair, for- sætisráðherra Bretlands, horfir með nokkrum kvíða til þess dags þegar hann verð- ur fimmtugur en segir að börnin hans muni þó að minnsta kosti halda honum ung- um. Blair verður fimmtugur þann 6. maí næstkomandi. Kanar og Kúrdar taka fjall Hersveitir Bandaríkjamanna og Kúrda hafa lagt undir sig mikil- vægt fjall þar sem írakar héldu uppi vörnum fyrir borgina Mosul í norðanverðu írak. Unnið að frelsi stríðsfanga Bush Bandaríkjaforseti hét því í gær að vinna að frelsi banda- rískra stríðsfanga í írak. Friðarboðskapur í vanda Hópar í Bandaríkjunum, sem hafa lýst andstöðu sinni við stríð- ið í írak, kvarta undan því að þeir eigi í vandræðum með að fá auglýsingar birtar í ljósvakamiðl- unum. Óhress með kynfræðsluna Færeyski þingmaðurinn Jenis av Rana hefur lýst vanþóknun sinni á ýmsu efni sem notað er tO kynfræðslu í skólum landsins og kallar það klám. Enn frekari handtökur Serbneska lög- reglan tilkynnti í gærkvöld að hún hefði handtekið tvo embættismenn sem tengjast Kost- unica, fyrrum for- seta Júgóslavíu, í rannsókn sinni á morðinu á Zoran Djindjic, forsæt- isráðherra Serbíu. Óbreyttir drepnir í Afganistan Ellefu óbreyttir borgarar, þar af sjö konur, létu lífið þegar sprengja úr bandarískri flugvél missti marks í austanverðu Afganistan í morgun og lenti á íbúðarhúsi. Neitar að hringja í Bush Anders Fogh Rasmussen, for- sætisráðherra Danmerkur, neit- ar að hringja í bandaríska ráða- menn til að kanna hvað hæft sé í fregnum um að bandaríska leyniþjónustan CIA hafi staðið á bak við hvarf írasks herforingja sem var í stofufang- elsi í Danmörku. Frakkar á móti Yfirgnæfandi meirihluti Frakka er andvígur stríðinu í írak en meira en helmingur þeirra vill þó að Bandaríkjamenn og Bretar fari með sigur af hólmi. Annan frestar Evrópuför Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, hefur ákveðið að fresta Evrópufór sinni í þessari viku og fara þess í stað á fund ESB í Aþenu í næstu viku að ræða írak.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.