Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2003, Síða 32
32
__________________________________________________MIÐVDCUDAGUR 9. APRÍL 2003
Tilvera DV
Ármann Magnús, 13 ára, var í hringnum:
„Mamma hringdi í mig og sagði
mér að ég væri í hringnum á
mynd í DV og væri búinn að
vinna sjónvarp og 3ja mánaða
áskrift að DV. Ég varð náttúrlega
mjög ánægður,“ sagði Ármann
Magnús Ármannsson, 13 ára, þeg-
ar hann tók við 14 tomma United-
sjónvarpi frá Sjónvarpsmiðstöð-
inni úr hendi Finns Thorlaciusar,
markaðsstjóra DV, í gær.
Ármann var á ferð með pabba
sínum og systur í Smáralind á
föstudag en ferðinni var heitið í
Hagkaup þar sem máta átti föt á
systurina. Þegar Ármann var í
rúllustiganum smellti ljósmyndari
DV mynd og hringur var gerður
um andlit Ármanns. Ármann
fermist um næstu helgi og því má
segja að þessi glaðningur sé
snemmbúin fermingargjöf. Til
hamingju, Ármann.
Hér er verið að endurvekja vin-
sælan þátt sem felst í því að hring-
ur er dreginn utan um andlit eða
höfuð fólks á mynd eftir ljósmynd-
ara DV. Þeir sem lenda í hringn-
um geta verið hverjir sem er og
hvar sem er. Þeir þurfa aðeins að
hafa orðið á vegi ljósmyndara DV.
Sé hringur dreginn utan um and-
litið hefur viðkomandi unnið
vinning sem kynntur er í blaðinu
hverju sinni. Það getur því borgað
sig að lenda á mynd í DV. -hlh
DV-MYNDIR E.ÓL.
Tll hamingju, Ármann
Ármann Magnús Ármannsson tekur
viö United-sjónvarpi úr hendi Finns
Thorlaciusar, markaösstjóra DV.
I
El Dumba
Félagar í Árnesingakórnum í Reykjavík
og Söngfélagi Skaftfellinga flytja „Ei
Dumba“, lag úr regnskógum Brasilíu.
Bíógagrtrýní
UV-MYNUIK KAKL KtltKbUN
500 manna kór
Siguröur Bragason stjórnar um 500 manna kór í verkinu „Á páskum “ í lok
tónleikanna í Flallgrímskirkju.
Einsöngvarinn
Signý Sæmundsdóttir, sópran, þen-
ur raddböndin.
HHBIki
Sambíóin/Háskólabíó -The Core
Þangað sem enginn kemst
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Fíkn er fjötur, um það efast eng-
inn. Nýlega stóð Ungmennafélag ís-
lands fyrir tónleikum með þessari
yfírskrift víða um land, og síðast
voru stórtónleika i Hallgríms-
kirkju þar sem fram komu níu kór-
ar auk einsöngvara. í lokin sungu
svo allir kóramir saman verkið „Á
páskum“ eftir Sigurð Bragason
undir stjóm höfundar, en auk þess
komu þar fram einsöngvaramir
Signý Sæmundsdóttir, Kristín Sig-
tryggsdóttir, Snorri Wium og Dav-
íð Ólafsson auk íjögurra bama úr
Bama- og kammerkór Bústaða-
kirkju. AUs voru þetta um 500
manns, og hefur sennilega aldrei
stærri kór sungið á íslandi. -GG
Fíkn er fjötur
Hvemig lítur jörðin út að inn-
an? Reiknilíkön, byggð á rann-
sóknum, segja okkur í grófum
dráttum úr hverju jörðin er og
hvað það er sem við stígum fótum
okkar á. Engin mannleg vera hef-
ur samt komist undir efstu lög
jarðar. Tekist hefur að bora
nokkra kílómetra niður en þá eru
þúsundir kílómetra eftir í kjarna
jarðarinnar. Það er einmitt þessi
kjarni sem er örlagavaldurinn í
heimsendamyndinni The Core.
Kjarninn hefur sem sagt hætt að
snúast með þeim heiftarlegu af-
leiðingum að rafsegulsvið jarðar
breytir sér - norðurljós sjást á
slóðum þar sem þau eiga ekki að
sjást og jarðskjáiftar verða þar
sem ekki eiga að geta orðið jarð-
skjálftar, svo eitthvað sé nefht.
Þetta er þó aðeins byrjunin. Eftir
því sem lengra líður frá því kjam-
inn stöðvaðist því alvarlegra verð-
ur ástandið og loks mun jörðin
eyða sjálfri sér.
Lækningin er ekki til. Það verð-
ur að finna aðferð til þess að fá
jörðina til að lækna sjáifa sig. Það
verður aðeins gert með því að fara
í ferð sem enginn hefur áður farið
og enginn möguleiki á að vera að
komast í - niður að kjarnanum og
sprengja þar kjarnorkusprengjur
tU að koma kjamanum af stað aft-
ur. Með slíkum krafti fer kjarninn
af stað aftur og jörðin læknast.
The Core er um slíka ferð.
Myndin fer einkar vel af stað. í
Boston hnígur fjöldi fólks niður -
hefur allt dáið á sömu sekúnd-
unni. Það á það sameiginlegt að
hafa verið með gangráð í hjarta. í
London erum við komin á slóðir
Hitchcocks í The Birds - fuglar
fljúga á hvað sem fyrir þeim verð-
ur og drepast. Þá fylgjumst við
með þegar fullkomin geimskutla
fer af leið í lendingu og lendir 300
kílómetra frá áætluðum lendingar-
stað. í kjölfarið verða veðrabrigði
sem engin skýring er á.
Ungur eðlisfræðikennari kemst
að hinu sanna: aö kjami jarðar-
innar hafi stöðvast. Viti menn: Er
ekki útskúfaður prófessor í eyði-
mörkinni búinn að hanna , jarðar-
far“ sem getur borið sex manns og
á að geta borað sig í gegnum jörð-
ina, niður í kjarnann.
Hingað til hefur The Core verið
þétt, skemmtileg og forvitnileg. Nú
fer hún aðeins að fara fram úr
sjálfri sér, aðallega vegna þess að
hönnuðir myndarinnar hafa ekki
hugmynd um það frekar en aðrir
hvemig mnhorfs er undir yfir-
borði jarðar. Myndin missir þó
aldrei taktinn og er alltaf spenn-
andi og lífleg þó sagan verði ótrú-
verðugri með hverju atriðinu.
Sá sem á mestan þátt í að gera
The Core að góðri skemmtun er
leikstjórinn, Jon Amiel. Þéttleik-
inn í myndinni er honum að
þakka. Hann leysir öll vandamál
sem í sögunni eru með lausnum
sem virka vel í þeim ævintýra-
heimi sem við erum að kynnast.
Hann getur þó ekki breitt yfir fá-
ránleikann þegar kemur að „lands-
laginu" í iðrum jarðar eða ,jarðar-
farinu“ sjálfu, sem virkar ósann-
færandi. Amiel tekst þó það sem
hann hefur lagt upp með - að gera
skemmtilega afþreyingu sem geng-
ur upp í öllum sínum fáránleika.
Lelkstjóri: Jon Amlel. Handrit: Cooper
Lane og John Rogers. Kvikmyndataka:
John Lindley. Tónllst: Christopher Young.
Aöalleikarar: Aaron Eckhart, Hilary
Swank, Delroy Lindo, Stanley Tucci, D.J.
Qualls, Tcheky Karyo og Bruce
Greenwood.
Svióstjós
Colin Farrell
Irski leikarinn Colin Farrell
hefur skotist upp á stjörnuhim-
ininn með miklum hraða. Þessi
28 ára leikari hefur ekki legið á
liði sínu við að halda nafni sínu
á lofti, er yfirlýsingaglaður og
lætur allt flakka um allt og alla.
Hefur hann orðið eftirlæti slúð-
urdálkahöfunda á stuttum tíma.
Farrell er ekki að fela neitt í
einkalífinu - viðurkennir að
hann sé ekki ekki einnar konu
maður, fær sér fyrsta sjússinn
fljótlega eftir hádegi og reykir
einn pakka á dag. Það má þó
ekki gleymast að Farrell er góð-
ur leikari, vinnur mikið og hlíf-
ir aldrei sjálfum sér. Hann held-
ur uppi Phone Booth, vinsæl-
ustu kvikmyndinni vestan hafs
um þessar mundir. Hér fara á
eftir nokkrar spurningar til
hans og svörin við þeim:
Þú hefur leikið í þremur kvik-
myndum á þessu ári - ertu kom-
inn á toppinn?
- Þetta er allt að koma. 1 þrjú
brjálæðisleg ár hef ég unnið
eins og vitleysingiu- og haft er-
indi sem erfiði, en ég hef sagt
það áður og segi enn að það
skiptir mig engu máli þótt allt
hverfi á morgun. Ég hef átt þrjú
góð ár og á fullt af sögum sem
ég get sagt öðrum.
Öll þessi athygli sem einkalíf
þitt vekur - kemur hún þér á
óvart?
- Alls ekki. Ég vinn í um-
hverfi sem kemur alltaf til með
að vekja athygli fjölmiðla. Fólk
horfir á þig, hvort sem þú ert í
kvikmynd eða á sviði, og það er
eðlilegt að það vilji fá að vita
eitthvað um þig og ég læt mér
það vel líka.
Þú hefur orð á þér fyrir að
vera mikill kvennamaður, er þaö
rétt?
- Sjáðu nú til. Ég er 28 ára
gamall karlmaður og vinn sem
kvikmyndaleikari. Það er því
mun auðveldara fyrir mig að ná
mér í stelpu þegar ég vil heldur
en jafnaldra mína sem ekki eru
þekktir. Orðsporið er því fyrst
og fremst vegna starfsins og að
ég er þekktur og þar sem ég er
fyrir konur þá nýti ég mér að-
stöðu mína. En að ég sé einhver
Casanova, því neita ég. Ég er
aðeins einhleypur strákur sem
hefur gaman af að skemmta sér.
Hvað heillar þig mest í fari
konu?
- Heiðarleiki, gjafmildi og
kímnigáfa. Hún þarf einnig að
geta sagt mér að halda kjafti. Og
ekki má gleyma fallegum rassi
og góðu pari af fótleggjum.
Sérðu eftir einhverju sem þú
hefur sagt opinberlega?
- Ekki neinu. Það hefur kom-
ið fyrir að ég lít í blað og sé
eitthvað sem mér finnst koma
illa út, eins og þegar ég sagði
við einn blaðamanninn: „Ég er
kominn hingað til að ríða öllum
stelpum sem ég kemst yfir og
svo er ég farinn.“ Þegar ég sagði
þetta þá var ég glottandi og
þetta var sagt í stríðnistón. Þeg-
ar þetta svo svo á prenti þá var
eins og ég hefði sagt það í al-
vöru og þá hugsaði ég: Nú er ég
búinn aö fá alla femínistana á
bakið.