Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2003, Blaðsíða 36
36
MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2003
Sport
DV
Knattspyrnusamband Evrópu ósátt viö Alex Ferguson:
KærðUP
- fyrir haröar ásakanir í garö sambandsins
Knattspymusamband Evrópu
ákærði í gær Alex Ferguson, knatt-
spymustjóra Manchester United,
fyrir vanvirðingu við sambandið
eftir að hann lét þau orð falla að
maðkur væri í mysunni varðandi
dráttinn í 8-liða úrslitum meistara-
deildarinnar.
Ferguson sagði um helgina að það
væri hreint með ólikindum að
þremur ítölskum liðum og þremur
spænskum hefði tekist að sleppa við
að spila hvert við annað og lét að
því liggja að Knattspymusamband
Evrópu hefði haft eitthvað með mál-
ið að gera.
Ferguson dró reyndar ummæli
sin til baka i gær en það var ekki
nóg fyrir hina háu herra sambands-
ins sem kærðu hann samt og birtu
eftirfarandi yfirlýsingu:
„Alex Ferguson, sem mun stjóma
liði sínu, Manchester United, gegn
Real Madrid í fyrri leik liðanna í 8-
liða úrslitum meistaradeildarinnar
á Spáni í kvöld, hefur með ummæl-
um sínum kastað rýrð á heiðarleika
í drætti fyrir 8-liða úrslit. Leik-
menn, þjálfarar og aðrir innan
knattspymuhreyflngarinnar eiga,
samkvæmt agareglum Knattspyrnu-
sambands Evrópu, að sýna hollustu
og heiðarleika í samskiptum sínum
og hver sá sem gerist sekur um ann-
að hlýtur viðeigandi refsingu. Dóm-
ur mun fálla i málinu 1. maí næst-
komandi."
Tek orö þeirra trúanleg
Ferguson er þó rólegur yfir öllu
saman og svaraði ákæru sambands-
ins á blaðamannafundi í Madrid í
gær.
„Ég hef verið fullvissaður um það
af hálfu sambandsins að ekkert mis-
jafnt hafi átt sér stað þegar dregið
var. Ég tek þeirra orð trúanleg og
viðurkenni að það var rangt af mér
að halda öðra fram,“ sagði Fergu-
son.
Ferguson stendur þó við þær yflr-
lýsingar sínar að Roberto Carlos,
sem var dæmdur í bann frá lands-
leikjum fyrir aö hrinda dómara í
landsleik nýverið, hefði einnig átt
að vera bannað að spOa með Real
Madrid.
„Það er ekkert við því að gera.
Þetta atvik sýnir bara styrk Real
Madrid í alþjóðlegri knattspymu.
Það hreyfír enginn við þeim en það
er ekki víst að það hjálpi þeim inni
á vellinum,“ sagði Ferguson við
blaðamenn i gær.
Alex Ferguson, knatt-
spyrnustjóri Manchester
United, var i góöu skapi á
blaðamannafundi í Madrid
fyrir leikinn gegn Real
Madrid. Reuters
Vialli til
Fulham?
Stuðningsmenn Fulham velta
því nú fyrir sér hver muni stjórna
liðinu á næstu leiktíð en Mohamed
A1 Fayed, eigandi félagsins, til-
kynnti á dögunum að Jean Tigana,
knattspyrnustjóri liðsins, myndi
ekki fá nýjan samning í vor þegar
núgildandi samningur hans við fé-
lagið rennur út.
Flestir sérfræðingar telja líkleg-
ast aö ítalinn Gianluca Vialli mun
taka við stjórninni hjá félaginu og
eiga menn allt eins von á því að
það gerist á næstu dögum. Fulham
á í hatrammri botnbaráttu i ensku
úrvalsdeildinni og stórtap liðsins
gegn Blackbum á heimavelli á
mánudagskvöldið var hvorki til
þess fallið að létta lund A1 Fayeds
né styrkja stöðu Jean Tigana í
stjórastóli liðsins. -ósk
Hector Cuper, þjalfari
Inter Milan, tekur á móti
fyrrum lærisveinum
sinum i Valencia á San
Siro-leikvanginum i
kvöid. Reuters
llla gengur að klára nýtilkomið leyfiskerfi KSI:
Leyfisfundi enn frestaö
- Knattspyrnusamband Evrópu ekki enn búiö aö samþykkja leyfishandbókina
Ekkert varð úr fundi leyfisráðs
Knattspyrnusambands íslands sem
fara átti fram i gær. Fundinum var
einnig frestað í síðustu viku þar
sem leyfishandbók sambandsins
hafði ekki enn verið sam-
þykkt af Knattspyrnusam-
bandi Evrópu og sagði
Geir Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri KSt, i sam-
tali við DV-Sport í gær að
ástæðan fyrir frestun
fundarins nú væri tví-
þætt.
Enn ekki samþykkt
í fyrsta lagi hefur Knattspymu-
samband Evrópu ekki enn sam-
þykkt leyfishandbókina okkar en
við höfum þó verið fullvissaðir um
• «
&
KSI
að hún verði samþykkt. Aðeins á
eftir að setja stimpilinn á hana en
þetta er mikið bákn og hlutirnar
taka sinn tíma þama úti. í öðru
lagi er Ómar Smárason, sem hefur
umsjón með
leyfiskerfmu,
veikur og það er
til lítils að halda
fund án hans. Því
ákváðum við að
fresta fundinum
um rúma viku til
viðbótar og vonandi verð-
ur allt komið á hreint þá,“
sagði Geir Þorsteinsson.
Allt í rétta átt
Geir sagði jafnframt að hann
væri bjartsýnn á að öll félög yrðu
Geir
Þorsteinsson.
komin með sín mál á hreint þegar
næsti fundur yrði haldinn.
„Við höfum verið að gera at-
hugasemdir við leyfisumsóknir fé-
laganna og mér sýnist allt stefna í
rétta átt. Það hefur örlað
á neikvæðri umræðu í
garð þessa kerfis en eftir
þvi sem við höfum fengið
tækifæri til að kynna
kerfið og kosti þess hefur
viðmótið breyst mikið.
Ég er sjálfur sannfærð-
ur um að þetta muni
hjálpa félögunum mikið
þegar fram liða stundir,"
Geir Þorsteinsson, fram-
í samtali við
-ósk
sagði
kvæmdastjóri KSÍ,
DV-Sport í gær.
Tveir leikir fara fram í 8-liöa úrslitum meistaradeildar Evrópu í kvöld:
Pressan magnast
- Hector Cuper rær lífróður til aö halda starfi sínu hjá Inter Milan
Það verður mikil pressa á Arg-
entínumanninnum Hector Cuper
næstu daga. Cuper, sem er þjálfari
Inter Milan, á fyrir höndum tvo
leiki sem munu að öllum líkindum
skera úr um hvort hann heldur
starfl sínu sem þjálfari liðsins.
Pressan á Cuper er orðin svo mikil
að ítalskir fjölmiðlar eru þegar fam-
ir að velta fyrir sér hugsanlegum
eftirmanni hans ef illa gengur í
leikjunum tveimur.
Fyrst fær Inter Milan Valencia í
heimsókn í kvöld í fyrri leik lið-
anna í 8-liða úrslitum meistara-
deildarinnar. Cuper er ekki ókunn-
ur spænska liðinu því hann stjórn-
aði Valencia áður en hann tók við
Inter Milan og kom því meðal ann-
ars tvívegis í úrslitaleik meistara-
deildarinnar.
Á laugardaginn mætir liðið síðan
grönnum sínum í AC Milan í
ítölsku deildinni, leik sem skiptir
miklu upp á framhaldið fyrir Inter
sem er fimm stigum á eftir Juvent-
us á toppi deildarinnar.
Verða ekki auðunnir
„Ég get ekki hugsað um leikinn á
laugardaginn. Leikurinn gegn Val-
encia skiptir öllu máli núna. Ég
þekki það lið út og inn og veit að
þeir verða ekki auðunnir. Við þurf-
um hins vegar að hugsa um sjálfa
okkur og klára þennan leik með
sæmd,“ sagði Cuper.
Leikmenn Valencia segjast ætla
að spila til sigurs í kvöld.
„Viö vitum að það er erfitt að
spila gegn ítölskum liðum á útivelli
en við ætlum samt að sigra í leikn-
um,“ sagði spænski landsliðsmaður-
inn Vicente við blaðamenn í gær.
Munur á gengi
Það hefur verið mikill munur á
gengi Juventus og Barcelona í deild-
arkeppnunum í vetur en liðin mæt-
ast í kvöld í Tórínó í fyrri leik lið-
anna í 8-liða úrslitum. Juventus er í
efsta sæti ítölsku deildarinnar en
Barcelona er í tómu mgli á Spáni
og er um miðja deild.
„Ég hlakka mikið til að mæta
Barcelona því að þetta verður í
fyrsta sinn sem ég stjórna mínu liði
gegn þessu fræga félagi,“ sagði
Marcelo Lippi, þjálfari Juventus, og
bætti við að gengi liðanna í deild-
inni heima fyrir skipti engu.
„Barcelona er búið að spila frá-
bærlega í meistaradeildinni og ég á
ekki von á því að það breytist,"
sagði Lippi. -ósk
Úrslit í nótt:
Philadelphia-Detroit .......91-74
Iverson 37 (8 stoðs.), Thomas 16 (15
frák.), McKie 10 - Robinson 16,
Hamilton 14, Billups 12 (10 stoðs.)
Cleveland-Washington . . . 91-100
Ilgauskas 23, Davis 18 (9 frák., 11 stoð.),
Boozer 16 (14 frák.) - Jordan 26 (10
frák.), Stackhouse 18, Lue 18 (8 stoðs.)
New York-Atlanta ...........99-95
Houston 29 (7 stoðs.), Sprewell 21 (9
frák.), Thomas 15 (8 frák.) - Terry 27,
Rahim 16 (8 frák.), Glover 16
Miami-Toronto...............89-83
Grant 16 (10 frák.), C. Butler 12, R.
Butler 11 - Williamson 16, Jefferies
15, McCoy 13 (6 frák.), Williams 13
Memphis-LA Clippers . . . 111-108
Gasol 25 (10 frák.), Williams 23 (6
stoðs.), Battier 17 - Maggette 22,
Brand 21 (10 frák.), Odom 20 (6 stoðs.)
Chicago-Indiana...........115-103
Crawford 33 (8 stoðs.), Rose 27, Curry 15
(6 frák.) - O'Neal 38 (13 frák.), MUler 18
(10 frák.), Miller 12, Artest 12
Houston-Portland.............66-81
Posey 15, Francis 12, Rice 8, Mobley 8
(7 frák.), Taylor 8 - Stoudamire 21,
Wells 17 (11 frák.), Sabonis 11 (7 frák.)
Denver-Phoenix...............78-98
Howard 15 (9 frák.), Hilario 14,
Harvey 12 - Marion 27 (10 frák.),
Johnson 23, Marbury 16 (9 stoðs.)
Sacramento-Seattle........107-85
Webber 20 (6 frák.,7 stoðs.), Stoja-
kovic 18, Bibby 15 - Allen 22 (6
stoðs.), Drobnjak 22 (7 frák.), Ollie 9
LA Lakers-Dallas............108-99
George 21, Horry 17 (10 frák.), Fisher 16
(8 stoðs.), Fox 16 - Lafrentz 26 (7 frák.),
Nowitzki 26 (9 frák.), Nash 19 (10 frák.)
Golden State-Utah .........128-102
Arenas 34, Dunleavy 17 (6 frák.),
Jamison 16 - Malone 17 (10 frák, 5
stoös..), Arroyo 16, Stevenson 13
Jason Kidd, leikstjómandi New
Jersey Nets, og miðherji Los Angeles
Lakers, Shaquille O’Neal, voru
valdir leikmenn vikunnar 31. mars til
6. apríl í NBA-deildinni.
Kidd skoraöi 20,5 stig, gaf 9,3
stoðsendingar og tók 7 fráköst að
meðaltali í fjórum leikjum New
Jersey í vikunni en Sliaq skoraði 30
stig, tók 15 fráköst, gaf 3,5
stoðsendingar, varði 3,75 skot og stal
þremur boltum að meðaltali í fjómm
sigurleikjum Lakers. -ósk