Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2003, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2003
x>v
9
Fréttir
Argentína:
Bjartsýnin snýst í
andhverfu sína
Samfélagiö snarbreytist þegar kemur aö skuldadögum
Vonsviknlr Argentínumenn mótmæla ákvöröunum alþjóölegra peningastofnana um aö fella gengl gjaldmiðils þeirra
og gera bankana gjaldþrota. Þeir mlsstu bæri sparifé sitt og atvinnu vegna óstjómar í fjármálalífi.
Glæpir í Argentínu hafa tekið
stakkaskiptum síðustu árin og er
helsta ástæðan kollsteypur í efnahags-
lífmu. Áður sáu herforingjastjómir
um pólitíska glæpi og borgaralegir
pólitikusar voru duglegir að græða á
spiilingu sem þeir stjórnuðu beint og
óbeint. Nú er þetta allt oröið lausara í
reipunum og glæpaalda ríður yfir
landið, þar sem fjórði hver vinnufær
maður er atvinnulaus og enginn sér
færa leið út úr kreppunni sem fylgdi í
kjölfar hremminganna í Suðaustur-
Asíu þegar „tígramir“ þar kiknuðu
undir lánabyrðinni. Rán og oíbeldi
aukast hraðfara og er enginn óhultur
fyrir þeim ófógnuði og löggæslan er
áiíka ráðvillt og fjármálastjórnin.
Um aldamótin síðustu var Argent-
ína meðal 10 ríkustu þjóða heims og
var landið langauðugast allra ríkja
Rómönsku Ameríku. Eftir Falklands-
eyjastríðið tók lýðræðisleg stjóm við
og uppgangstímar gengu í garð með
mátulegri spillingu ráðandi stjóm-
málamanna og þeirra sem tóku að sér
að sjá um fjármálin. Tekin voru mikil
lán og alit lék í lyndi um skeið. En
efnahagshmnið í sunnanverðri Asíu
1997 dró dilk á eftir sér viða um heim
og ekki síst í Argentínu, þar sem þó
ríkti meiri velferð og jöfnuður mllli
ríkra og fátækra en í nokkra öðra ríki
í heimshlutanum.
Það var svo um aldamótin að vera-
lega tók að harðna á dalnum. Ekki var
hægt að standa í skilum við erlenda
lánardrottna og alþjóðlegar peninga-
stofnanir neituðu að framlengja lán
eða bæta á skuldasúpuna. Fjármagns-
flótti var eðlileg afleiðing og bankar
fóra á hausinn. Vel stöndugur al-
menningur missti sparifé sitt og
drjúgur hluti vinnandi stétta varð at-
vinnulaus. Stöðugleiki þessarar 37
milljóna manna þjóöar var rokinn út í
veður og vind og stjómleysið tók við.
Áður var ástandið í borgum og bæj-
um álíka tryggt og gerist og gengur í
Vestm--Evrópu og efnahagur almennt
svipaður. En nú er ástandið orðið eins
og í Mexíkóborg, Rio de Janeiro eða
New York áður en Giuliani borgar-
stjóri lét hreinsa þar til svo um mun-
aði.
Nú hefúr glæpatíðni aukist fram úr
öllu hófi í borgum Argentínu en of-
beldisglæpir í auðgunarkyni vora
nær óþekktir fyrir efnahagshranið.
Rán, morð, bílaþjófnaðir og mannrán
þar sem krafist er lausnargjalds era
meira en daglegir viðburðir og í Buen-
os Aires era framin að meðaltali tvö
bankarán á dag.
Allt snýst á veni veg
Kreppan og gengishrun gjaldmiðils-
ins sem hófst fyrir tveimur árum hef-
ur breytt þjóðfélagsmyndinni mjög til
hins verra. Stöndugt samfélag, þar
sem borgaraleg gildi vora í heiðri
Áður sáu hershöfðingja-
stjómir og spilltir stjóm-
málamenn um glœpastarf-
semina. Nú varð sú breyt-
ing á að vonsviknir at-
hafnamenn og menn sem
rúnir eru sparifé og at-
vinnu gerast glœpamenn
og rœna og rupla hver sem
betur getur og ofbeldis-
glcepir í auðgunarskyni
eru tíðari en nokkru sinni
áður í sögu landsins.
höfð, breytist í stjómleysi, glæpaflokk-
ar vaöa uppi og kvíði og vonleysi gríp-
ur um sig. Efnahagshrunið hefúr al-
varlegri afleiðingar en þær sem varða
lífskjörin ein. Siðleysið á öllum svið-
um keyrir úr hófi og máttlaus stjóm-
völd fá lítið við ráðið.
Morðtíðni í höfuðbroginni og út-
borgum, þar sem þriðjungur lands-
manna bý, hefur tvöfaldast á tíma
kreppunnar. 300 bílaþjófnaðir era
kærðir daglega og aðrir þjófnaöir og
mannrán aukast að sama skapi. Eftir
því sem kreppan harðnar eykst glæpa-
tíðnin og fer hvergi á milli mála að
fylgnin er augljós.
Áhrifin á þjóðlífið era augljós. Fólk
er farið að setja jámrimla í glugga og
kaupa alls kyns öryggiskerfi til að
verja heimili sín sem líkjast æ meir
fangelsum sem íbúamir loka sig inni
i. Erfitt er að fá leyfi til að kaupa byss-
ur í Agrentínu en mikil sala er í úða-
brúsum sem konur nota sér til varnar
þegar á þær er ráðist. Mikill uppgang-
ur er í einum atvinnuvegi, þ.e. nám-
skeiðum þar sem bílstjóram er kennt
að verjast því að þjófar ryðjist inn í
bílana þeirra og ræni þeim.
Ungir sem gamlir hírast heima hjá
sér á kvöldin því ekki er öraggt að
vera á ferð, hvorki akandi né gang-
andi, eftfr að skyggja tekur. Það er
mikil breyting á venjum íbúanna sem
era frægir fyrir mikið og glæsilegt
næturlíf þar sem miðbæimir iðuðu af
mannlífi.
Mannrán era meðal þeirra glæpa
sem Argentínumenn óttast hvað mest
og þau geta líka gefið vel af sér. Þar
era hinir ríku í mestri hættu og veit í
raun enginn hve tíð þau eru vegna
þess að oft er lausnargjald greitt án
vitneskju lögreglu eða annarra. Samt
er margt vitað um þá starfsemi. Ný-
lega var bróður dáðrar fótboltahetju
rænt og sömuleiðis fóður frægs sjón-
varpsleikara. Lausnargjaldið var 200
þúsund dollarar á haus.
Fólki er líka rænt af handahófi. Það
er tekið á götunni og haldið á afvikn-
um stað um stund á meðan eigur þess
era hirtar og fómarlömbin neydd til
að taka út peninga með bankakortun-
um sínum og afhenda ræningjunum.
Þeir era stundum lítilþægir og láta sér
nægja að hirða sem svarar nokkrum
hundraðum dollara áöur en þeir
sleppa gíslimum lausum.
Einangrun einstaklinga og
þjóðar
í uppsveiflunni um miðjan tíunda
árauginn vora tekin mikil erlend lán
og almenningur, ekki síst millistéttin,
hafði mikið handa á milli og naut vel-
gengninnar. En hún reyndist vera tek-
in að láni. Árið 2001 var gengið fellt
verulega samkvæmt kröfu alþjóðlegra
peningastofnana sem fengu ekki
greiddar umsamdar afborganir af lán-
um og kreppan með öllu sínu atvinnu-
leysi og örvilnan breytti þjóðféalginu
á nær svipstundu.
Áður sáu hershöfðingjastjórnir og
spilltir stjómmálamenn um glæpa-
starfsemina. Nú er orðin sú breyting á
að vonsviknir athafnamenn og menn
sem rúnir era sparifé og atvinnu ger-
ast glæpamenn og ræna og rapla hver
sem betur getur og ofbeldisglæpir í
auðgunarskyni era tíðari en nokkra
sinni áður í sögu landsins.
Fátæktarlýður hefúr ekki áður sést
á götum argentínskra borga, er haft
eftir gömlum lögregluforingja í Buen-
os Aires, en nú er hann þar í stórhóp-
um. Og glæpamennimir era ófyrir-
leitnari en nokkra sinni fyrr.
Landið er að einangrast og annars
félagslyndir og opnir íbúar finna til
óöryggis utan heimila sinna og loka
sig þar inni og allt svipmót borga og
þjóðfélagsins yfileitt tekur stakka-
skiptum.
Undirrótin er óstjóm í fjármálum
ríkis og fyrirtækja þegar eyöslulán
vora tekin óspart á timum þegar flest-
ir vildu trúa að efnahagsleg uppsveifla
væri stöðug. Þegar svo kom að skulda-
dögum var búið að stórskemma allt
samfélagið og nú súpa Argentínu-
menn seyðið af bjartsýni sem fremur
stjómaðist af óskhyggju en raunvera-
legu efnahagsástandi heimsins.
(Heimild: Washington Posí)
-20%
afsláttur af dekkjum
Ef þú lætur umfelga hjá okkur fyrir Páska þá færöu
-20% afslátt af dekkjum. Líttu viö, það borgar sig.
Bílkó Smiðjuvegi 34 Kópavogi Rauð gata s. 557 9110 Opið 8-18 mán-fös og 10-16 lau
SJMAREíÆ>ieSK4Ta-
ÚLFLJÓTSVATNI
UTILIFS- OG ÆVINTYRANAMSKEK) I SUIAAk
-fyrir hressa krakka og unglinga
INNRITUN ER HAFIN í SKÁTAMIDSTÖDINNI ARNARBAKKA 2
Opið 9-17 virka daga - Sími 550 9800 - ulfljotsvatn@skatar.is
Upplýsingar og skróning á netinu: WWW.skatar.is/SUmarbudir