Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2003, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2003, Qupperneq 20
20 Helcjorbloö DV FIMMTUDAGUR 17. APRfL 2003 Svo lengi lærir sem lifir Það er stundum sagt um alla skapaða hluti að það sé aldrei ofseint að bregta til og ganga ngjar slóðir. Þetta hefur verið leiðarljós Háskólans íRegkjavík sem fgrir rúmum tveimur árum ákvað að bjóða upp á viðskiptafræðinám fgrirfólk íatvinnulífinu. DV hegrði ídeildarstjóranum og þremur einstaklingum sem sitja á skólabekk samhliða vinnu sinnu. „Það virðist hafa verið mikil þörf fyrir nám af þessu tagi,“ sagði Þóranna Jónsdóttir, deildarstjóri HR, sem sér um framkvæmd „Háskólanám með vinnu“ (HMV). „Undir- tektimar eru margfalt betri en forstööumenn skólans höfðu þorað að gera ráð fyrir. Fyrsta árið sem þessir nýju náms- möguleikar voru auglýstir bárust hvorki meira né minna en 300 umsóknir en samtals 150 af þeim settust síðan á skólabekk. Árið eftir bárust aftur nærri 300 umsóknir og þá voru 120 nemendur samþykktir," segir Þóranna og bætir við að reiknað hefði verið með því að drægi úr aðsókn eft- ir fyrstu árin en engin merki sæjust um það enn þá. Nemendahópurinn er mjög fjölbreytilega samsettur. Þarna er fólk á öllum aldri og ýmsum námsstigum. Þarna sitja hiið við hlið forstjórar, heilaskurðlæknar, flugmenn og fólk úr öllum starfsgreinum. Sumir vilja breyta til eða hafa haslað sér völl í annarri starfsgrein en upphaflegt nám þeirra gerði ráð fyrir, aörir vilja einfaldlega afla sér nýrrar þekkingar og enn aðrir hafa færst upp metorða- stigann í sinni starfsgrein og vilja því fylgjast með. Námið fer þannig fram að þrjá daga í viku mæta nem- endur í skólann milli klukkan 16 og 19 en þess á milli stunda þeir sjáifsnám. Meö þessum vinnuhraða geta þeir lokið náminu á fimm önnum samtals. „Við gefum engan afslátt í þeim skilningi að þetta er jafnþungt nám og aðrir nemendur þurfa að takast á við og sömu kröfur gerðar til allra," sagði Þóranna. Hver önn kostar 89 þúsund krónur. Margvíslegir möguleikar á námi bjóðast í Háskólanum í Reykjavík og ætti hver nemandi að geta fundið verkefni við sitt hæfi, hvort sem hann kýs að stefna að MBA-gráðu eða fást við svokallað „undergraduate" nám. Þóranna seg- ir að þaö séu ekki bara nemendurnir sem læri af skólan- um heldur læri skólinn af nemendunum. Námið sem fjallað er um er nám á svokölluðu „und- ergraduate" stigi (stundum kallað nám á fyrsta háskólastigi) þ.e. til BS-gráðu (90 ein.) eða Diplomagráðu (45 ein). Það er mjög mikil- vægt að rugla þessu ekki saman við MBA-nám (Master of Business Administration) eða MS-nám (Master of Science) sem er nám á meistarastigi og eru tekin eftir að „undergraduate" námi lýkur. „Það er hörkupúl að stunda háskólanám og vera í vinnu um leið, svo ekki sé minnst á ef fólk ætlar einnig að sinna fjölskyldu eða öðru. Sumir nemendur kvarta yfir því að þeir hafi ekki verið búnir nægilega undir hversu mikið álag þetta væri, og því höfum við lagt áherslu á aö nefna þennan þátt í kynningarefni okkar og annarri um- fjöllun um námið Þetta er gríðarlega áhugasamur hópur og þarna er sam- an komin mikil og fjölbreytt reynsla úr atvinnulífinu og þekking á því að leysa verkefni við raunverulegar að- stæður. Þess vegna geta þessir nemendur lagt sitt af mörkum til skólans með nokkuð öðrum hætti en „venju- legir“ nemendur,“segir Þóranna að lokum. Lögreglumaðurinn Bjarni hefur gefið egóinu góða vítamínsprautu með viðskiptafræðináminu. Gott fyrir egóið „Það var nú svona aðallega upp á egóið sem ég fór í þetta nám. Ég kláraði stúdentinn 1986 og útskrifaðist úr Lögregluskólanum 1992 og hafði löngun til þess aö llæra meira. Því var þetta viss áskorun fyrir mig persónulega að hella mér út í þetta.“ Þetta segir Bjami Ólafur Ólafs- son, 38 ára 1-greglufulltrúi í Alþjóðadeild Ríkislögreglu- stjórans. „Lögreglustarfið var í upphafi einungis hugsað sem sumarstarf en hér hef ég ílengst, enda starfið skemmtilegt og áhugavert," segir Bjarni sem verið hef- ur í lögreglunni í 13 ár, fyrst í almennri deild lögreglunnar í Reykjavík, síðan hjá útlendingaeftirlitinu og nú á alþjóðadeildinni. Bjami, sem er giftur, viðurkennir að vissulega sé ekki alltaf skemmtilegt að búa með sér því það koma tímabil sem hann geri fátt annað en lesa skólabækumar. „Þaö hefur gengið ágætlega að samræma vinnuna, skólann og fjölskylduna en vissulega hefur námið bitnaö á fjöl- skyldulífmu, t.d. á sumrin þegar maður hefur verið að taka sumarnámskeið í stað þess að vera í fríi með kon- unni. Sum verk hafa einfaldlega þurft að bíða,“ útskýr- ir Bjami. Það sér þó fyrir endann á þessari töm þvi í sumar lýkur hann Diplomaprófi og eftir 2 ár ár ætti hann að útskrifast sem viðskiptafræðingur. „Ég veit ekki alveg hvað ég ætla mér að gera viö þessa gráðu, ég hef allavega ekki hugsað mér að fara yfir á annan starfs- vettvang, en vissulega víkkar þetta sjóndeildarhringinn og veitir mér ýmsa möguleika," segir Bjami og bætir við að ef til vill hefur þetta vakið áhuga sumra félaga hans á frekara námi.. „Þeir hafa verið að skoöa þetta og hugsa sinn gang en það er auðvitað meira en að segja það fyrir fjölskyldufólk að fara í svona nám, það þarf að skipuleggja slíkt vel.“ Ragnheiður vinnur sem fiugmaður hjá Icelandair og tekur oft bækurnar með í flug og les þær í stoppum. Ný viðhorf í gegnum nýtt fólk „Mig langaði til þess að víkka sjóndeildarhringinn og læra eitthvað nýtt því menntun mín er mjög sérhæfð," segir Ragnheiður Guðjónsdóttir, flugmaður hjá Icelandair og förðunarfræðingur, um ástæðu þess að hún settist á skólabekk í Háskóla Reykjavíkur haustið 2001. Ragnheiður hefur unnið við flugið í sex ár en hún er 27 ára gömul. Ekki segist hún hafa hugsað sér að skipta um starfsvettvang þegar hún verði búin með viðskiptafræð- ina, heldur telur hún að námið geti komið að góðum not- um í framtíðinni og einnig í núverandi starfi. „Ég hef lagt áherslu á mannauðsstjórnun í viðskipta-1 fræðináminu en það er vettvangur sem mun örugglega nýtast í minu starfi. Flugmannsstarfinu fylgir samvinna margra mismunandi aðila og mér fmnst mjög gaman að velta því fyrir mér hvemig fólk „fúnkerar" í starfsum- hverfi almennt," segir Ragnheiður. Hún bendir einnig á þá staðreynd að ef heilsa hennar bilaði alvarlega þá yrði hún ekki flugmaður mikið lengur. „Ég fer í læknisskoðun einu sinni á ári og ef ég yrði t.d. flogaveik eða fengi insúl- ín-háöa sykursýki yrði ég að finna mér eitthvað annað að gera. Með þetta í huga finnst mér góð tilhugsun að hafa einhveija aðra menntun upp á að hlaupa, svo ég standi ekki á götunni einungis með stúdentspróf og mjög sér- hæfða starfsreynslu. Ég hef líka alltaf litið á hvers konar menntun sem gulls ígildi og ég er bara rétt að byija. Það kæmi mér ekki á óvart ef ég yrði enn á skólabekk þegar ég verð komin á heldri manna heimili," segir Ragnheiöur og glottir. Hún segir að námið hafi sóst vel með vinnunni en þó sé stundum erfitt að plana tímann, sérstaklega á há- annatímum. Námið er kröfuhart, verkefnavinna og próf tíð og tímaplön þess vegna oft mikið púsl. En yfirleitt | gengur þetta upp. „Vissulega hljómar þetta ekki sem sér- lega spennandi líf, vinna, skóli, vinna, en þetta er samt ótrúlega upplífgandi þó strembið sé. Nemendahópurinn í HR er mjög fjölbreyttur og þar kemur saman fólk á öllum aldri. Það hefur verið virkilega gaman að kynnast nýjum viðhorfum og eignast nýja vini,“ segir Ragnheiður. Hún segir að hún eigi það til að missa úr kennslutíma vegna vaktavinnu en hún taki alltaf bækumar með í flug og reyni að nýta tímann í stoppunum til lesturs. „Starfsfélag- ar mínir hafa sýnt náminu áhuga og spyrja talsvert enda er ég oft með bækumar á lofti eða að kvabba í vinnufélög- unum um skipti á vöktum til að komast í skólann. Nokkr- ir hafa meira að segja hafið nám. Ég held ég verði að fara að biðja Háskólann um prósentur, svo vel hef ég auglýst námið enda afskaplega ánægð í HR,“ segir Ragnheiður og skellir upp úr. Gunnhildur er 45 ára þriggja barna móðir sem segir að það sé aldrei uf seint að sctjast á skólahckk. Hvatning til frumsköpunar „Hvað sem ég vil gera í framtíðinni þá gefur þetta nám mér aukna möguleika. í skólanum fer fram mflcið frum- kvöðlastarf og em nemendur hvattir til frumsköpunar og því aldrei að vita nema ég eigi eftir að stofha eigið fyrir- tæki,“ segir Gunnhfldur Amardóttir, 45 ára húsmóðir og nemandi í HMV í Háskólanum í Reykjavík. Gunnhfldur, sem er með verslunarpróf frá Verzlunarskólanum, hefur mestan sinn starfsaldur unnið sem starfsmanna- og skrif- stofustjóri hjá Samvinnuferðum. Hún hefur samhliða vinnu stundað nám m.a. við öldungadefldina í Hamrahlíð og stjórmálafræði í Háskóla íslands. Það var síðastliðið vor sem áhugi hennar kviknaði á HMV-náminu í gegnum nám- stefnu sem Háskólinn í Reykjavík hélt en Gunnhfldur var fengin til þess að halda utan um. „Háskólinn í Reykjavík á í samstarfi við erlenda háskóla og þessa námstefnu sóttu er- lendir nemendur og leiðbeinendur. í gegnum þetta verkefni kynntist ég starfsfólki skólans og hefllaðist af þeim góða anda sem þar ríkti,“ segir Gunnhildur og er greinilega mjög hrifin af öllum aðbúnaði og andrúmslofti skólans. „Rektor Háskóla Reykjavíkur er kona sem býr yfir ótrú- legum krafti, manni finnst allir vegir færir og að allt sé hægt eftir að hún hefur talað yfir hópnum.“ Þrátt fyrir að Gunnhfldur sé heimavinnandi þá er í nógu að snúast. Hún á eiginmann, þijú böm og móður komna á efri ár sem hún nýtur þess að eyða tíma með. Einnig er hún nýbúin að fá sér hund, hann Nask litla, svo það er mikið að gera á fjör- ugu heimili. „Ég hlakka alltaf tfl þess að mæta í skólann og fiölskyldumeðlimimir verða bara að bjarga sér án mín með kvöldmatinn. Þaö er gaman að segja frá því að ég og marg- ir kvenkyns samnemendur mínir höfum verið að uppgötva nýja hliö á mökum okkar, þeir em oft tilbúnir með matinn þegar við komum heim úr skólanum. Við konur erum oft svo stjórnsamar, en þarna hefur mörgum eiginmanninum gefist tækifæri tfl þess að sýna hvað í honum býr hvað heimflið varðar á meðan konan er í skólanum," segir Gunnhfldur og hlær. Hún segir marga samnemendur sína vera virkilegar hetjur, því alls ekki era allir með sérlega góðan grann fyrir námið. „Við þurfum mörg hver að ná upp mjög miklu t.d varðandi tölvukunnáttu því þar eru gerðar sömu kröfur til okkar og þeirra sem eru í dagskóia," segir Gunnhildur og minnir á að stúdentspróf sé ekki skfl- yrði fyrir inntöku í HMV-námið og því sé óneitanlega erfitt fyrir marga að stíga það skref að byrja aftur í skóla. „Ég verð 48 ára þegar ég klára en ég segi að maður sé aldrei of gamall til þess að læra. Ég á t.d. frænku, Friðnýju Péturs- dóttur, sem var 64 ára þegar hún útskrifaðist með ágætis- einkunn úr sögu frá Háskóla íslands. Svo lengi lærir sem lifir, það er svo gaman að fræðast og læra eitthvað nýtt.“ -snæ/PÁÁ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.