Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2003, Page 10
10
Fréttir
MÁNUDAGUR 12. MAÍ 2003
DV
„Það er alveg ótrúlegt að vera orð-
inn þingmaður. En þó ekki, því ég
fann að það var mikil sveifla til
Framsóknarflokks í kjördæminu og
fylgi við okkur jókst mikið nú allra
síðustu vikurnar," sagði Siglfirðing-
urinn Birkir Jón Jónsson, 23ja ára
og nýr þingmaður Framsóknar-
flokksins í Norðausturkjördæmi.
Svo ungur maður sem Birkir hefur
ekki verið kjörinn á þing síðan 1934,
þegar Gunnar Thoroddsen varð
þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Gunnar var þá 23 ára og 177 daga.
Birkir Jón, sem fæddist 23. júlí 1979,
var 23 ára og 292 daga á kjördag.
Siglfiröingur í húö og hár
í Norðausturkjördæmi fékk
Framsóknarflokkurinn nærfellt
þriðjung greiddra atkvæða og fjóra
menn kjöma; ráðherrana Valgerði
Sverrisdóttur og Jón Kristjánsson,
og svo nýliðana Dagnýju Jónsdóttir,
formann SUF, og Birki Jón sem var
í íjórða sæti.
Þingmaðurinn ungi er Siglfirð-
ingur í húð og hár. Eftir stúdents-
próf las hann um hríð stjómmála-
fræði við Háskóla íslands, en síð-
ustu þrjú árin hefur hann verið að-
stoðarmaður Páls Péturssonar í fé-
Birkir Jón Jónsson
Nýkjörinn þingmaður. „Það var mikil sveifla til Framsóknarfiokks í kjördæm-
inu og fyigi við okkur jókst mikiö nú alira síðustu vikurnar. “
lagsmálaráðuneytinu. Hann segist
þar hafa fengið mikla og góöa
reynslu sem efalitið muni gagnast
sér vel á Alþingi.
„í þessum kosningum hefur verið
horft til Framsóknarflokksins sem
var gjaman með ungt fólk í baráttu-
sætum. Þetta skapaði flokknum já-
kvæða ímynd. Einnig var nauðsyn-
legt að ný kyslóð fengi brautargengi
í þessum kosningum. Eins og staðan
var fyrir kosningar var yngsti þing-
maðurinn 28 ára - því vantaði heila
kynslóð á þing,“ segir Birkir.
Beiti mér fyrir byggðirnar
Á Alþingi kveðst Birkir ekki síst
munu beita sér fyrir hagsmunum
námsmanna. Annars segist hann
hafa sérstakan áhuga á byggða- og
atvinnumálum og hafa lagt sig fram
um að kynnast þeim.
„Ég er ókvæntur og bamlaus,
sem hefur hreinlega verið kostur í
þessari löngu kosningabaráttu," seg-
ir Birkir Jón, spurður um sína hagi.
Hann kveðst vera fréttafíkill og seg-
ir að þjóðmálin almennt eigi hug
sinn. „Síðan hef ég líka mikinn
áhuga á bridds og finnst mjög gam-
an að grípa í spil. Áhugamálin eru
ekki öllu fleiri og kannski hljómar
þetta eins og uppskrift að nörd. Ég
vona hins vegar að briddsið geti
hjálpað mér í pólitíkinni, sem geng-
ur út á það að sjá leiki í stöðunni -
og stundum langt fram í tímann."
-sbs
Birkir Jón Jónsson yngstur þingmanna:
Ótrúlegt að vera orðinn þingmaður
Reynsluboltar á Alþingi:
Halidór að byrja
34. þingið
Með úrslitum þingkosninganna
er Halldór Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra og formaður Framsókn-
arflokksins, orðinn sá þingmaður
sem lengsta hefur þingreynsluna
sem aðalmaður á þingi. Komandi
þing er hans 34. en Halldór hefur
setið á Alþingi frá 1974 að frá-
töldu tímabilinu 1978 til 1979.
Halldór Blöndal, forseti Alþingis,
er að byrja sitt 36. þing. Hann
hefur setið á þingi síðan 1979 en
fyrir þann tíma hafði hann alls
átta sinnum komið inn sem vara-
maður.
Ef litið er yfír lista þeirra tólf
þingmanna sem lengst hafa setið
á löggjafarsamkundunni eru næst
í röðinni Jóhanna Sigurðardóttir
með 30 þing og Jón Kristjánsson
er nú að hefja sitt 28. -sbs
Guðjón Hjörleifsson
8. þingmaður Suðurkjör-
dæmis
Guðjón fædd-
ist í Vest-
mannaeyjum
ÍfflTj 1955 og hefur
I ætíð átt þar
:M~m heima. Hann
lauk gagn-
ffræðaprófi frá
Gagnfræða-
skóla Vest-
mannaeyja, iðnskólaprófi frá
Iðnskólanum í Vestmannaeyj-
um 1974 og hefur meiraprófs-
réttindi og skipstjórnarréttindi
fyrir 30 tonna bát. Guðjón
stundaði verslunar- og skrif-
stofustörf hjá versluninni Tang-
anum í Eyjum 1973-1975, var
gjaldkeri og skrifstofustjóri hjá
Sparisjóði Vestmannaeyja
1975-1990 og bæjarstjóri í Vest-
manneyjum frá 1990-2002. Hann
er kvæntur Rósu Elísabetu
Guðjónsdóttur og eiga þau fjög-
ur börn.
DV-MYND TEITUR
Margrét tekur lagiö
Margrét Sverrisdóttir, Frjáisiyndum, var inni á þingi lengi nætur en var úti þegar lokatölur höfðu birst. Hún tók lagið í
karaoke á kosningavökunni og virtist þá vera inni á þingi.
Þingmenn hluta nætur
í þingkosningum þurfa afltaf
nokkrir frambjóðendur að upplifa
það að vera ýmist inni eða úti,
þ.e. ná kosningu samkvæmt fyrir-
liggjandi atkvæðatölum, eða falla
út. Þannig var það lengst af næt-
ur með tvær konur á Norður-
landi, Láru Stefánsdóttur á Akur-
eyri, sem skipaði 3. sæti Samfylk-
ingarinnar í Norðausturkjör-
dæmi, og Herdísi Á. Sæmundar-
dóttur sem skipaði 3. sætið á lista
Framsóknarflokksins í Norðvest-
urkjördæmi.
Auðvitaö fúlt
„Ég gerði mér alltaf grein fyrir
því að þetta gæti staðið tæpt en
þetta var alveg rosalega spenn-
andi, það viðurkenni ég. Ég veit
nú ekki hvort vonbrigðin hafi
verið meiri að detta svona út á
lokasprettinum þar sem ég var
inni lengst af nætur. En auðvitað
er fúlt þegar eitthvað gengur ekki
upp sem stefnt er að og kosninga-
baráttan er búin að vera
skemmtileg. En nú taka við önn-
ur verkefni. Ég get ekki annað en
glaðst með framsóknarmönnum
hvað þeim gekk vel hér en maður
stendur fyrir sínu sjálfur, það
keppast aflir við,“ segir Lára Stef-
ánsdóttir.
Var mjög sérkennilegt
„Þetta var auðvitað sérkenni-
legt að detta út á lokaprettinum
en ég er mjög glöð fyrir hönd
Framsóknarflokksins að hann
skyldi halda sinni stöðu. Ég fann
á lokasprettinum að við höfðum
mikinn meðbyr en það var við
ramman reip að draga þar sem
við vorum meö formann Frjáls-
lynda flokksins, Guðjón Arnar, í
framboði hér. Ég var lengur úti
en inni en þetta stóð mjög lengi
og ég gerði mér grein fyrir því að
þetta mundi standa mjög tæpt og
það gæti brugðið til beggja vona.
Tveimur vikum fyrir kosningar
fannst mér útlitið býsna dökkt
svo kannski er ég bara sátt við þá
vinnu sem við lögðum í þetta og
þær móttökur sem við fengum.
En auðvitað heföi ég viljað kom-
ast í þennan hóp þingmanna,“
segir Herdís Á. Sæmundardóttir.
-GG
Helgi Hjörvar
9. þingmaður Reykjavíkur-
kjördæmis norður
Helgi Hjörv-
ar fæddist í
Reykjavík 1967.
Hann ólst
fyrstu árin upp
í Kaupmanna-
höfn en eftir
heimkomu
gekk hann í ís-
aksskóla, síðan
Æfingaskólann. Helgi varð
stúdent frá Menntaskólanum í
Hamrahlíö og las síðan heim-
speki við Háskóla íslands. Helgi
hefur einkum starfað við fjöl-
miðla, bókaútgáfu og verið
virkur í hagsmunasamtökum
fatlaðra. Helgi var fram-
kvæmdastjóri Blindrafélagsins
og síðan formaður þess um
skeið. Helgi var virkur í stofn-
un Reykjavíkurlistans, var
borgaifulltrúi fyrir Reykjavík-
urlistann en er nú varaborgar-
fulltrúi og stjórnarmaður í
Landsvirkjun, Línu.neti og
Reykjavíkurhöfn. Helgi er
kvæntur Þórhildi Elínardóttur
og eiga þau tvö börn.
Jón Gunnarsson
10. þingmaður Suðurkjör-
dæmis
Jón er 43
ára, fæddur og
uppalinn í
Sandgerði.
Hann er fisk-
tæknir frá fisk-
vinnsluskóla
íslands. Hann
var á sjó og í
fiskvinnslu
með skóla á sínum yngri árum,
gerðist síðan verkstjóri og
framleiðslustjóri í fiskvinnslu-
stöðvum, meðal annars í Súg-
andafirði og í Njarðvík. Árið
1986 stofnaði hann eigið fyrir-
tæki í fiskvinnslu sem hann
seldi 1992. Hann hefur síðan
stundað ráðgjafarstörf fyrir fyr-
irtæki í sjávarútvegi og verið
framkvæmdastjóri fiskeldisfyr-
irtækisins Sæbýlis í Vogum í
hálft fjórða ár. Hann hefur ver-
ið oddviti Vatnsleysustrandar-
hrepps frá 1990-1998 og aftur
frá 2002. Jón er giftur Guðrúnu
Gunnarsdóttur og eiga þau tvö
börn, Gunnar, 21 árs, og Svan-
hvíti, 11 ára.
Mörður Árnason
7. þingmaður Reykjavíkur-
kjördæmis-suður
Mörður verð-
ur fimmtugur
30. október.
Hann er fædd-
ur í Reykjavík,
ólst þar upp,
lauk stúdents-
prófi frá MR
1973, var for-
maður Fram-
tíðarinnar í MR og formaður
SÍNE 1983-1984. Hann stundaði
nám í íslensku og málfræði við
HÍ, í Ósló og París á árunum
1974-1981, gegndi trúnaðarstörf-
um fyrir Alþýðubandalagiö og
sat m.a. í miðstjórn þess frá
1986, var í stjórn Birtingar frá
1989 og hefur setið í siðanefnd
Blaðamannafélags íslands.
Hann starfaði við Orðabók HÍ
1981-1991 og hefur starfað á rit-
stjóm Eddu-útgáfu, var ritstjóri
íslenskrar orðabókar sem kom
út á síðasta ári og á sæti í út-
varpsráði. Mörður er kvæntur
Lindu Vilhjálmsdóttur; hann á
dótturina Ölrúnu og tvö barna-
börn, Hlín og Hafþór.