Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2003, Síða 29
MÁNUDAGUR 12. MAÍ 2003
!OV
Tilvera
49
«»2e
Interstate 60 ick-k
Ævintýri á þjóðvegi
Interstate 60 er þjóö- p""
vegur í Bandaríkjun-
um sem ekki er til. Að-
alpersóna Interstate 60,
Neal Oliver (James
Marsden), er þó meiri-
hluta myndarinnar að
keyra þennan veg.
Þetta stenst að sjálfsögðu ekki eins og
flest annað í þessari ágætu gaman-
mynd sem segja má að sé gamaldags
ævintýri, fært í nútímann. í mynd-
inni koma við sögu nokkrar persónur
sem hafa fengið ósk uppfyllta hjá hin-
um dularfulla O.W. Green (Gary Old-
ham). Þær eiga það sameiginlegt að
hafa samt ekki öðlast hamingjuna.
Oliver hittir Green og fær sína ósk
eins og aðrir. í kjölfarið er honum
sagt að keyra eftir Interstate 60. Þegar
hann finnur veginn sem ekki er til
taka við ævintýri sem eru bæði raun-
veruleg og óraunveruleg. Það er viss
ádeila í atriðum á borð við þaö þegar
hann kemur í bæ þar sem öllum er
haldið ánægðum með eiturlyíjum.
Kurt Russell leikur lögreglustjórann
sem rökstyður það að dópið hafi
bjargað bænum. Svo eru fyndin atriði
sem eingöngu eru skemmtunarinnar
vegna. Má þar nefna þegar Neal hittir
puttalingsstúlkuna sem er í leit að
hinum eina sanna drætti.
Interstate 60 er frumleg og
skemmtileg. Leikarar eru yfirleitt
góðir - enginn þó betri en Gary Oldm-
an sem leikur „töframanninn". Það
geislar af honum leikgleðin. Myndin
er þó ekki allra. Til þess er hún um of
á mörkum fáránleikans. -HK
Útgefandi: Myndform. Gefin Ot á mynd-
bandi og DVD. Leikstjóri: Bob Gale.
Bandaríkin, 2002. Lengd: 112 mín.
Bönnub börnum innan 16 ára. Leikarar:
James Marsden, Gary Oldman,
Christopher Lloyd, Amy Smart og Ann
Margret.
The Badge ★★
Morðsaga
Billy Bob Thorton
lék Suðurríkjalöggu í
Monster’s Ball. Hér
birtist hann aftur í
hlutverki sams konar
löggu sem er með allt
niður um sig. Það er
þó ekki vegna kynþáttahaturs heldur
leikur hann spilltan löggustjóra, Darl
Hardwick, sem mútar til að fá fólk til
að kjósa sig aftur. Honum verður á í
messunni þegar hann kemur á morð-
stað þar sem klæðskiptingur hefur
verið myrtur. Flutningabíll með full-
an farm af skóm hafði á sama stað
farið út af til að aka ekki yfir fórnar-
lambið og Hardwick hugsar meira
um að úthluta skóm til kjósenda
heldur en að rannsaka morðið. Hon-
um er í kjölfarið sagt af mun verri
mönnum að hann fái engan stuðning
í kómandi kosningum og er rekinn.
Þetta verður til þess að Hardwick
fer upp á eigin spýtur að huga að
morðinu og um leið að reyna að
bjarga andlitinu.
Eftir að hafa verið þreytandi fram-
an af tekur The Badge vel viö sér
þegar Hardwick fer að rannsaka
morðið. T0 að nálgast lausnina þarf
hann að fara til New Orleans og
kemst þar að því að þeir sem ætla að
reka hann hafa ekki hreinan skjöld
þegar kemur að morðinu.
Sagan í The Badge er alls ekki svo
vitlaus og hefur marga áhugaverða
anga. Það er samt svo að trúverðug
verður hún aldrei. Má þar að miklu
leyti kenna Billy Bob Thorton um.
Hann drattast einhvern veginn
áfram af gömlum vana og reynir lít-
ið til að gera persónuna sem hann
leikur áhugaverða. Mun betri er Pat-
ricia Arquetta sem leikur eiginkonu
klæðskiptingsins sem var myrtur.
Þegar við svo fáum lausnina á morö-
inu þá stenst hún ekki miðað við það
sem gerðist í byijun. -HK
Útgefandl: Myndform. Gefin Ot á mynd-
bandi og DVD. Leikstjórl: Robby Henson.
Bandaríkin, 2002. Lengd: 103 mín.
Bönnuö börnum Innan 16 ára. Leikarar:
Billy Bob Thornton, Patricia Arquette,
Sela Ward og William Devine.
ÞARFASTI
ÞJÓNNINN!
DV-MYND HARI
Flytjendurnir
Hulda Björk, Sesselja og Davíð í forgrunni og á bak við eru Óskar, Sigurður og Kjartan.
Mozart fyrir sex í íslensku óperunni:
Þrír af fastráðnum söngvurum ís-
lensku óperunnar og Chalumeaux-
tríóið flytja tónlist eftir Wolfgang
Amadeus Mozart á tónleikunum
„Mozart fyrir sex“ í íslensku óper-
unni annað kvöld, þriðjudagskvöld-
ið 13. maí, kl. 20.00. Söngvararnir
eru þau Hulda Björk Garðarsdóttir,
Sesselja Kristjánsdóttir og Davíð
Ólafsson og hljóðfæraleikarar þeir
Kjartan Óskarsson, Óskar Ingólfs-
son og Sigurður I. Snorrason. Sess-
elja verður fyrir svörum þegar for-
vitnast er um dagskrána. Hún byrj-
ar á að lýsa því yfir að tónleikamir
séu haldnir að frumkvæði hljóð-
færaleikaranna. Þetta sé að sjálf-
sögðu gullfalleg og skemmtileg tón-
list og það nýstárlegasta séu útsetn-
ingar þeirra Kjartans og Sigurðar á
aríum, dúettum og terzettum úr
tveimur óperum Mozarts, Brúð-
kaupi Figaros og Cosi fan tutte.
„Þeir umrituðu þessa tónlist fyrir
söngvara og klarínettuhljóðfæri en
maður er vanari henni í hljómsveit-
arbúningi," útskýrir hún.
Að auki segir hún að flutt verði
fmun næturljóð og ein kansónetta
fyrir þrjá söngvara, klarínettur og
bassetthorn, sem Mozart samdi á ár-
unum 1783-1788 fyrir sig og vini
sína til að leika og syngja á góðum
samverustundum í heimahúsum.
„Þetta er hrein kammertónlist og
engirrn stjórnandi. Slíkt fyrirkomu-
lag gerir miklar kröfur til allra,“
segir Sesselja.
Aðspurð segir Sesselja þessa tón-
leika verða þá síðustu sem íslenska
óperan standi fyrir á þessu vori.
Þeir séu góð upphitun fyrir haustið
því þá verði Brúðkaup Fígarós sett á
svið. -Gun.
Armúll 17, IOB RBykJavih
slml: 533 1334 fax, 55B 0433
Erum með sagir með
hraðastilli, sem henta vel
til að saga gifsplötur.
Tenging við ryksugu
tryggir nánast ekkert
ryk á vinnustað.
Beinn og góður skurður
sem minnkar alla eftirvinnu
fyrir málara.
Nýjar útsetningar
á aríum og dúettum
Arkitektar framtíðar
Börn úr Háteigsskóla voru í fræðsluferð um miðbæinn einn góðviörisdag ný-
lega og tókust meðal annars þaö verk á hendur að teikna hiö gamla góða
skólahús Menntaskólans í Reykjavík.
BÓNUSUÍDEÓ
Lrlgan I þlnu hverfl