Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2003, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2003, Page 10
10 Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf. Framkvæmdastjóri: Örn Valdimarsson A&alritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson A&stoóarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift: Skaftahlí& 24,105 Rvik, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5749 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akuroyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Satning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. PlötugerO og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgialds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viötöl við þá eöa fyrir myndbirtingar af þeim. Kynslóðaskipti Kynslóðaskipti eru að verða á Al- þingi og þau ná einnig inn í hina nýju ríkisstjóm sem tók við völdum í gær. Eitt af því athyglisverðasta sem gerðist í nýafstöðnum alþingis- kosningum var endurnýjunin á þingi. Átján nýir alþingismenn voru kosnir, meira og minna ungt fólk. Von er því til þess að ferskari vindar hefur lengi. Af þeim átján þingmönnum sem nú setjast nýir á þing eru aðeins tveir fimmtugir og tveir á fimmtugsaldri. Aðrir eru ungt fólk, tíu á milli þrítugs og fertugs og fjórir á þritugs- aldri, þar af einn aðeins 23 ára gamall, svo ungur að við lá að hann slægi áratugagamalt met Gunnars Thoroddsens sem einnig settist 23 ára á þing. Þessi þróun er af hinu góða og tímabær. Alþingi endur- speglar með þessu móti betur aldurskiptingu þjóðarinnar. Hinir ungu og kraftmiklu hitta fyrir þá sem reynsluna hafa. Blandan verður betri en ef meðalaldur þingsins er hærri. Þessi endurnýjun sést og í vali á ráðherrum. Fjórir nýir ráðherrar taka við, ýmist nú í ráðuneyti Davíðs Oddssonar eða síðar í ráðuneyti Halldórs Ásgrímssonar. Tveir þeirra eru ungt fólk, innan við fertugt, Árni Magnússon og Þorgerð- ur Katrín Gunnarsdóttir. Báðir formenn stjómarflokkanna vildu endumýjun og gera það meðal annars með því að velja ungt fólk til þeirra áhrifastarfa sem ráðherrastörf vissulega eru. Halldór Ásgrímsson lýsti því beinlínis yfir í gær að Árni Magnússon hefði, auk prýðilegrar fyrri reynslu af störfum sínum, verið valinn sem fulltrúi nýrrar kynslóðar. Framsóknarflokkurinn lagði ekki síst áherslu á að ná eyr- um ungs fólks í kosningabaráttunni, fólksins sem er að koma undir sig fótunum, þeirrar kynslóðar sem á næstu árum mun bera þyngstu byrðina vegna afborgana af hús- næðislánum, námslánum og greiðslu leikskólagjalda. Aðrir flokkar komu auðvitað einnig inn á þau svið. Þannig vildu Vinstri-grænir leggja alveg af leikskólagjöld, að leikskólinn væri rekinn á sama hátt og grunnskólinn. Það er þó á engan hallað þótt því sé haldið fram að Framsóknarflokkurinn hafi best náð eyrum unga fólksins, ekki síst vegna þeirrar áherslu sem hann lagði á að lánshlutfall almennra íbúðar- lána yrði hækkað í allt að 90%, að ákveðnu hámarki, mál sem einkum brennur á ungu fólki. Þessa sér stað í stjómarsáttmála hinnar nýju ríkisstjómar. Þetta loforð Framsóknarflokksins er tekið orðrétt í stefnuyf- irlýsingu stjórnarinnar. Með því verður fylgst hvort efnt verður. Þá segir einnig að hugað verði að lækkun endur- greiðslubyrði námslána. Það orðalag er að vísu loðnara en enginn efi er heldur á því að ungt fólk fylgist ekki síður með aðgerðum stjórnarinnar hvað þetta varðar. Skattamál snúa ekki síst að unga fólkinu, fólki sem þarf að vinna mikið meðan það er að eignast þak yfir höfuðið. Sá ald- urshópur hefur farið illa út úr því skattkerfi sem við höfum búið við. Skattalækkun var á loforðalista stjórnarflokkanna í kosningabaráttunni, ekki síst Sjálfstæðisflokksins. í stefnuyf- irlýsingu hinnar nýju ríkisstjórnar eru kosningaloforð flokksins tekin nánast orðrétt upp í stefnuyfirlýsingunni. Boðað er að tekjuskattur á einstaklinga eigi að lækka um allt að 4%. Nái það fram að ganga snertir þaö alla en ekki síst þá sem þurfa aðstæðna vegna að afla sér mikilla tekna. Aðrar skattalækkanir em einnig á dagskrá. Með efndum þeirra lof- orða mun fólk fylgjast, ekki síst yngri kynslóðin. Nýju þingi og rikisstjórn er óskað velfarnaðar. Fróðlegt verður að fylgjast með störfum þeirra sem valist hafa til for- ystu, einkum og sér í lagi hinna ungu sem nú eru að hasla sér völl. Jónas Haraldsson leiki um þá sali en gert _________________________________________LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2003 DV Góðra gjalda vert (?) Ólafur Teitur Guönason blaöamaöur mmm Því er gjaman haldiö fram að fólk sé reiðubúið að greiða hærri skatta fyrir betra velferðarkerfi. Það á sjálfsagt við um marga, ef ekki flesta. Þess vegna hefur það borið nokkum árangur að halda því fram, sem einni af meginrök- semdunum gegn hugmyndum Framsóknarflokks og Sjálfstæðis- flokks um víðtækar skattalækk- anir, að þær hljóti að þýða niður- skurð í velferðarkerfinu. Mjög fáir em hlynntir niðurskurði í velferðarkerfinu. Til upprifjunar En fólki sem hefur efasemdir um að hægt sé að lækka skatta án þess að skera niður í velferðar- kerfinu væri holit að blaða i gegnum íjárlögin. í rauninni væri freistandi að leggja til að fjárlög- unum væri haldið meira að fólki svo það gerði sér betur grein fyr- ir í hvað skattgreiðslur þess fara. Það mætti gera þau að skyldu- lesningu í framhaldsskólum. Það mætti birta valda fjárlagaliði á sjónvarpsskjánum þegar engin dagskrá er, i staðinn fyrir að hafa enn meirá fé af fólki með spum- ingaleikjum. Það mætti sýna sundurliðaða nauðungarstyrki al- mennings til ýmissa verkefna á mjólkurfernum, svona í bland við smásögur og ljóð. Ætli fólk geri sér til dæmis grein fyrir því að árleg útgjöld ríkisins til landbúnaðar- og sjáv- arútvegsmála em tæpir fjórtán milljarðar króna á ári? Það er miklu minna en fer til löggæslu- og öryggismála. Greiðslur ríkis- ins til mjólkurframleiðenda nema meira en 4 milljörðum á ári. Það eru tæpar tólf milljónir króna á dag! Og beinar greiðslur til sauð- fjárbænda em um 2 milljarðar til viðbótar. Eiga þessar upplýsingar ekki heima á mjólkurfemunni? Hvað skyldi mikið af sköttum fólks og fyrirtækja renna til skóg- ræktar? Ætli það séu 100 milljón- ir á ári? Eða 200 milljónir? Nei, það em um 620 milljónir á ári eða 1.700.000 krónur á dag. Miklu fleiri dæmi mætti nefna um verkefni sem margir telja að séu góðra gjalda verð. Stefnuyfirlýsingin í fljótu bragði virðist stefnuyf- irlýsing nýrrar ríkisstjómar end- urspegla að langmestu leyti sögu- legar skattalækkunartillögur Sjálfstæðisflokksins sem formað- urinn kynnti á landsfundi. Enda hafa flokksmenn lýst ánægju með að hafa náð þeim í gegn í stjóm- armyndunarviðræðum. Þegar betur er aö gáð verður hins vegar ekki betur séð en að Framsóknarflokkurinn hafi að miklu leyti haft þessar skatta- lækkanir af fólki - eða að minnsta kosti trygginguna fyrir því að þær komi til framkvæmda - án þess að ná fram sínum eigin loforðum á móti. Hvers vegna leyfði Halldór Ás- grímsson ekki Davíð Oddssyni að standa við það kosningaloforð sitt beram orðum í stjómarsáttmál- anum að virðisaukaskattur af matvælum veröi lækkaður um helming? Hvers vegna í ósköpun- um ekki? Gleymum því ekki að þótt Halldór hafi gagnrýnt tillög- ur Davíðs í kosningabaráttunni og talið þær heldur djarfar, þá kom hann sjálfur fram með djarfar tillögur í skattamálum. Hann vildi lækka tekjuskattspró- sentuna um 3,35% i staðinn fýrir 4% sem Davíð boðaði. Munurinn var nú ekki meiri en það. Hvers vegna gátu þeir ekki náð saman um að negla niður lækkun ein- hvers staðar þama á milli? Kaup kaups? Halldór vildi líka hækka per- sónuafslátt og gekk að því leyti lengra en Davíð í skattalækkun- um. Þetta er mjög dýr aðgerð, eins og Halldór benti Guðjóni Amari Kristjánssyni á með eftir- minnilegum hætti í kosningabar- áttunni. En það er ekkert fjallað um þetta kosningaloforð Halldórs í stjórnarsáttmálanum. Hvers vegna er það ekki inni? Halldór virðist jú hafa fengið það fram að matarskatturinn verði ekki lækk- aður um helming. Kannski Halldór hafi gefið þetta eftir gegn því að hans eigið loforð um að hækka ótekjutengd- ar bamabætur upp i 73.000 krón- ur fyrir böm undir 7 ára aldri næði fram að ganga. Ekki svo gott: Þessa upphæð er ekki að finna í stjómarsáttmálanum. / # # # „I raumnm vœri freistandi að leggja til að fjárlögunum vœri haldið meira að fólki svo það gerði sér bet- ur grein fyrir í hvað skattgreiðslur þess fara. Það mætti sýna sundurliðaða nauð- ungarstyrki almenn- ings til ýmissa verk- efna á mjólkurfem- um, svona í bland við smásögur og Ijóð. “ Vonandi var það ekki loforð um algjöra ríkisvæðingu húsnæð- islána, með 90% lánum, sem hafði af fólki tryggingu fyrir því að matarskatturinn lækkaði um helming. Þetta verður bjamar- greiði við almenning í landinu. Yfirgnæfandi líkur era á að íbúðaverð muni snarhækka þeg- ar allir eiga kost á 90% lánum. Og ef eitthvert kraftaverk verður til þess að þetta gerist ekki, þá mun hitt gerast: eftirspurn eftir ódým húsnæði mun hrapa. Og hverjir sitja þá í súpunni? Auðvitað þeir sem hafa haft lítið á milli handa og ekki haft efni á öðru en lítilli íbúð. Þeir munu eiga í mestu vandræöum með að, taka þátt í 90%-veislunni þegar meira og minna hver einasti maður hefur möguleika á að eignast dýrari íbúð. Vel sloppið? Engin leið er að átta sig á hver gaf hvað eftir og í skiptum fyrir hvað í þessum stjómarsáttmála. Það ætti raunar að krefja þá svara um það, svo betur megi mæla hve vel þeir uppfylla loforð sín. Á yfirborðinu virðist hins vegar sem tiUögur beggja flokka hafi heldur verið vatnaðar út. Og hvað þýðir það? Jú, það þýðir að það hefði þurft að setja umfangs- meiri skattalækkanir í stjómar- sáttmálann ef annar hvor flokk- urinn hefði fengið hreinan meiri- hluta og sest einn að völdum. Það er sérkennileg niðurstaða, ef rétt er, að með samningavið- ræðum geti báðir flokkar komist ódýrar frá kosningaloforðum sln- um og í rauninni kennt um „nauðsynlegri málamiðlun" við hinn flokkinn. ímyndum okkur aö foreldrar séu að semja um fermingargjöf handa bami sínu. Annað vUl gefa dýr hljómflutn- ingstæki og tvo geisladiska með. Hitt vill gefa heldur ódýrara tæki og flmm diska. Annað segir: „Ég fellst á millidýrt tæki og er tilbú- in(n) að sleppa mínum diskum ef þú sleppir þínúm.“ Hver situr þá eftir með sárt ennið? Til happs Það vill skattgreiðendum til happs að stjómarflokkamir hafa getið sér orð fyrir að ganga lengra, ef eitthvað er, í skattamál- rnn en segir skýram stöfum í stjómarsáttmála. Allir vita að vegna sjálfvirkni kerfisins þyngd- ist skattbyrði fólks í uppsveifl- unni, en hinu verður heldur ekki neitað að skattar voru lækkaðir og hefðu því orðið enn hærri ef ekkert hefði verið að gert. Að þessu sinni er kveðið skýrt á um ýmsar lækkanir og aðrar gefnar í skyn þótt ekki sé um bein loforð að ræða. Ætla má að hugur stjómarherranna stcmdi til þess að framkvæma þær til hins ftrasta. Það væri góðra gjalda vert. Og það verður enginn vandi að tína til milljarðana á móti kostnaðinum. Af nógu er að taka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.