Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2003, Blaðsíða 29
LAUGARDAGU R 24. MAÍ 2003
He Igct rb lað H>V
29
Hin ótrúlega
strengjasveit
Sumar hljómsveitir eru endurreistar þótt
enginn sýni þeim áhuga meðan aðrarsem
þögnuðu fgrir áratugum þuerskallast við
áskorunum um „comeback“. Eitt sérstæð-
asta dæmið um vel heppnaða endurkomu
vegna fjölda áskorana er The Incredible
String Band sem mun koma fram ííslensku
óperunni 30. maínk.
Það er í tísku að hafa verið vinsæll og vera kominn aft-
ur. Hvert sem við lítum blasa við endurreistar hljóm-
sveitir, endurgerð tíska og gömul tekkhúsgögn. Hippa-
tískan hefur lengi verið vinsæl í endurgerð en virðist
vera að láta undan síga fyrir tísku áttunda áratugarins.
Hringurinn virðist því stöðugt vera að þrengjast og hóp-
urinn sem þráir ekkent heitar en fortíðina virðist stækka
og stækka.
Rolling Stones eru enn á ferðinni, Pétur Kristjánsson
og Pops eru enn að og Hljómar eru alls ekki dauðir. Það
virðist varla hafa verið til sú hljómsveit á árunum 1960
til 1980 að það taki því ekki að endurreisa hana, ef hún
heíúr þá nokkum tímann lagt upp laupana.
Sennilega er leitun á uppvakningum sem hafa vakið
eins mikla athygli með endurkomu sinni og verið tekið
betur en hinni undarlegu hljómsveit The Incredible
String Band. Þessi stórundarlega hljómsveit naut mikilla
vinsælda á sjöunda áratugnum, var þá lögð niður en end-
urreist og síðan aftur lögð flöt en endurreist vegna blank-
heita meðlima. Sveitin naut feikna vinsælda og má segja
að frægðarsól hennar hafi risið hvað hæst á hippahátíð-
inni Woodstock árið 1969, en eftir það var sveitin enn
Mike Heron ásamt Clive Palmer og Lawson Dando. Saman skipa þeir
hljómsveitina The Incredible String Band sem mun konia til íslands 30.
maí og halda tónleika. Almennt er hátindur ferils sveitarinnar talinu liafa
verið á tónlistarliátíðinni Woodstock árið 1969.
lögð niður og meðlimir hennar dreifðust hver í sína átt-
ina.
Endurreisnin hefst
Þannig má segja að The Incredible String Band hafi
eiginlega aldrei troðið tónlist sinni upp á vamarlausan
almúgann. Þvert á móti hafa þeir starfað að list sinni á
eigin forsendum og hefðu sennilega aldrei risið aftur úr
öskuhaug gleymskunnar nema vegna þess að haldið var
upp á 25 ára afinæli Woodstock-hátíðarinnar árið 1994.
Skyndilega reis upp her listamanna af yngri kynslóðinni
sem lýsti því hvemig tónlist The Incredible String Band
hefði mótað þá og Robert Plant, söngvari risasveitarinn-
ar Led Zeppelin, lýsti því yfir í viðtölum að tónlist sveit-
arinnar hefði mótast af Incredible String Band á sínum
tíma og Led Zeppelin hefði litið á þá sem tákn og inn-
blástur.
Hinar þjóðsagnakenndu plötur sveitarinnar vorú þeg-
ar i stað endurútgefhar og seldust eins og mjólk. Fljótlega
var flestum meðlimunum safnað safnað saman og haldn-
ir nokkurs konar reynslutónleikar með endureistri sveit.
Fólk dreif að úr öllum hornum
heimsins og þá varð eiginlega ekki
aftur snúið. Gervöll tónlistarpressa
heimsins virtist vera með á nótunum
því á sama tíma birtust langar út-
tektir á áhrifum og störfum Incredi-
ble String Band í helstu tónlistar-
tímaritum heimsins.
Afraksturinn af þessari vel heppn-
uðu endurreisn má svo sjá á sviði ís-
lensku óperunnar hinn 30. maí og
verður það í fyrsta sinn á samtals
nærri 40 ára ferli hljómsveitarinnar
sem hún leikur á íslandi og fetar
þannig í fótspor helstu poppara nú-
tímans þar sem ísland er í tísku og
enginn poppari með poppurum nema
hafa stigið á svið í Bangkok noröurs-
ins. Ekkert hefur breyst nema nafn
sveitarinnar sem heitir ekki lengur
The Incredible String Band heldur
incrediblestringband2003, en þessi
nafnbreyting er í virðingarskyni við
Robin Williamson fiðluleikara sem
er ekki með hljómsveitinni.
Byrjaði allt í Skotlandi
Allt byrjaði þetta á miðjum sjö-
unda áratugnum þegar Williamson
stofnaði þjóðlagatríó ásamt banjóleikaranum Clive Pal-
mer og gítarleikaranum Mike Heron. Þeir ferðuðust um
Skotland og léku sina sérkennilegu blöndu af bluegrass-
tónlist og keltneskri þjóðlagatónlist. Það voru einkum
Heron og Williamson sem sömdu tónlistina á fyrstu plöt-
uxrni sem framleiðandi þeirra, Joe Boyd, taldi réttilega aö
gæti vel náð eyrum fleiri en þjóðlagaunnenda.
Fyrst eftir endurreisn sveitarinnar árið 2000 var hún
skipuð þeim Williamson og Heron ásamt Clive Palmer,
Lawson Dando og Bina Williamson, sem öll höfðu komið
meira og minna við sögu sveitarinnar á árum áður. End-
urreisn þeirra fékk gríðarlega góðar viðtökur en eins og
áöur sagði verður Williamson ekki með á tónleikunum á
íslandi. Hann hefur enn einu sinni dregið sig í hlé til að
sinna margvíslegum hugðarefnum sínum. í staö hans var
Claire Smith, sem leikur á fjölda hljóðfæra, bætt í hópinn.
Búist er við að hápunktur tónleikanna verði flutningur á
lagi Herons, A Very Cellular Song, sem er af mörgum
talið eitt besta lag sveitarinnar en er flókin tónsmíð sem
tekur 13 mínútur í flutningi og mun ekki hafa verið flutt
á sviði í heild síðan 1968.
Deutsche Post sr World Net
MAIL EXPRESS LOGISTICS FINANCE
Nýtt fyrirtæki hefur litið dagsins Ijós sem skapar nýtt viðmið á sviði hraðflutninga, vöruflutninga og vörustjórnunar. Eftirtalin fyrirtaeki
hafa sameinast undir nafni DHL til að bjóða jafnvel enn fjölþættari þjónustu: DHL Worldwide Express, leiðandi fyrirtæki í hraðflutningum á
heimsvísu, Danzas, sem er í fararbroddi í flug- og skipafrakt á heimsvísu, og Deutsche Post Euro Express, leiðandi evrópskt fyrirtæki í bögg-
ladreifingu. Nú getum við boðið þér meiri afköst, meiri þjónustu og fleiri möguleika í yfir 220 löndum. Einu gildir hverjar þarfir þínar eru, við
getum uppfyllt þær. Hringdu í okkur I síma 535 1100 eða kíktu á www.dhl.is svo kraftur DHL geti stutt við bakið á rekstri þínum.
VIÐ FÆRUM ÞÉR HEIMINN