Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2003, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2003
Helqarblctö JOV
25
DV-myndir Sigurður Jökull
Þegar turmerik og saffran
hefur verið látið krauma
smástund í smjörinu er lax-
inn settur á pönnuna og litlu
seinna afgangurinn af fisk-
metinu, hörpudiskur, skötu-
selur, r^ekjur, krabbi og
kræklingur.
Veróníka kveðst ekki geta án
mortéls verið í sínuin bú-
skap. Þar mer hún saman
kryddjurtir, hvítlauk. skalott-
lauk, sítrónulauf, genegal,
chiliávexti og fleira sem gef-
ur matnum bragð.
Fiskurinn er tekinn af pönn-
unni um stund meðan krvdd-
jurtirnar, sem búið er að
merja í mortélinu, eru steikt-
ar. Síðan er allt soðið saman
i kókosmauki og rjóma.
SSJéMUÍÍÉ.
<fc <%s>ufjach
'-tWUR^n; AMlS|fR
2000
- frá víndeildum Austurbakka og Globus
Hátíð hafsins, sem haldin verður um næstu
helgi, ætti að verða mikil veisla fyrir sælkera
enda verður mikið um að vera hjá matreiðslu-
snillingum í tengslum við hana. Hér til hliðar
er verið að matreiða sjávarfang með austur-
lensku ívafi þar sem karrý leikur aðalhlut-
verkið. Aðstæður urðu til þess að í þetta skipti
bregðum við á það ráð að bjóða upp á bland í
poka frá tveimur innflytjendum.
Fyrra vínið er fyrirtaks Alsace-vín, Gewur-
straminer Cote de Rouffach. Cote de Rouffach
línan frá René Muré er framleidd með það í
huga að gefa neytendum kost á mjög góðum
vínum, vínum sem hafa að geyma það besta
sem hið rómaða Alsace-hérað hefur upp á að
bjóða. Að auki er lögð áhersla á að bjóða þessi
vín á viðráðanlegu verði, að saman fari gæði
og gott verð. Þrúgurnar sem René Muré notar
gefa frá sér misjöfn einkenni, bæði bragð og
angan. Virðast vínin falla íslendingum vel í
geð.
Gewurstraminer er kryddboltinn í Cote de
Rouffach-línunni, þetta vín býður uppá mikið
og spennandi bragð og angan sem einkennist af
austurlenskum kryddjurtum, hunangi og
aprikósum. Vínið virkar sætt og feitt í glasi
sem og munni en er í raun þurrt. Þetta vín
þykir henta einstaklega vel með austurlensk-
um mat, sérstaklega indverskum karrýréttum.
Og gildir þá einu hvort kjöt eða fiskur er i rétt-
unum. Gewurstraminer Cote de Rouffach kost-
ar 1540 krónur í ÁTVR.
En þar sem sjávarfang mun setja svip sinn á
næstu helgi er sjálfsagt að vekja athygli á öðru
afar ljúffengu víni, sannkölluðu sumarvíni frá
hinum ástralska Peter Lehmann. Samnefnt
fyrirtæki hefur yfir löngu haslað sér völl
sem eitt helsta víngerðarfyrirtækið í
Barossa-dalnum og gengur oft undir nafninu
Baróninn af Barossa. Ef hægt er að tala um
innfæddan Barossa-búa þá kemst enginn nær
því en Peter Lehmann. Hann er af fimmta ætt-
lið fjölskyldunnar sem býr í dalnum. Öll helstu
vín Peter Lehmanns eru kennd við hann sjálf-
an.
Peter Lehmann Chardonnay var aðalmatar-
vínið þegar Menningarverðlaun DV voru af-
hent í febrúarlok og féll gestum afar vel í geð.
Vínið hefur ferskan og ávaxtarikan karakter
með mikilli dýpt og suðrænum ávexti. Peter
Lehmann Chardonnay smellpassar með salt-
fiski og fellur einnig einstaklega vel að feitu
sjávarvangi á borð við lax, þorsk og skötusel.
Flaskan kostar um 1300 krónur í ÁTVR.
Umsjón
llaukur Lárus
Hauksson
Flott vín vín með sjávar-
fangi frá Alsace og Astalíu