Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2003, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2003, Page 18
I 8 Helga rblaö 3Z>V LAUGARDAGUR 24. MAÍ2003 Innblástur frá París /1/etur di/aldi hópur nemenda af fatahönn- unar- og textílbraut Listaháskólans íParís þar sem þeir voru ílæri hjá hinum ýmsu hönnuðum. Markmiðið með dvölinni i/ar að gefa nemendunum betri innsgn ítísku- heiminn en einnig að fá þá til að sanka að sér hugmgndum til að ngta íeigin hönnun. A tískusgningu um síðustu helgi mátti sjá afraksturinn. „Þaö er mikill kraftur í skólan- um og það kom manni tvímæla- laust á óvart aö sjá hve margar af flíkum samnemendanna voru flott- ar,“ segir Eygló M. Lárusdóttir og undir það taka Ásgrímur Már Frið- riksson og Berglind Laxdal sem öll eru nemar í fatahönnun í Listahá- skólanum, Eygló og Berglind á fyrsta ári en Ásgrímur á öðru. Þau eru að tala um tískusýningu sem haldin var í Hafnarhúsinu um síð- ustu helgi þar sem nemendur á fatahönnunar- og textílbraut Lista- háskólans sýndu hönnun sína á tveimur tískusýningum. Á fyrri sýningunni sýndu útskriftarnemar verk sín en á þeirri seinni sýndu fyrsta og annars árs nemar. Eins og sést á myndunum hér á síðunni, sem teknar voru á seinni sýning- unni, var breiddin mikil bæði í lit- um, efnisvali og viðfangsefnum. Enda kannski ekki nema von því némendurnir hafa sótt innblástur til hinnar litríku tískuborgar Par- ísar í vetur þar sem tólf þeirra dvöldu í mánaðarlæri hjá hinum ýmsu hönnuðum. „Maður sýgur alltaf eitthvað í sig frá einhverjum öðrum en samt verð ég að ségja að hópurinn var að gera mjög ólíka hluti og eitthvað sem maður hefur ekki séð áður,“ segir Ásgrímur, ánægður með tískusýninguna og útkomu vetrar- ins. Átta í tveimur herbergjum Hópurinn sem dvaldi í París fór út á eigin kostnað og vann kauplaust hjá hinum ýmsu fyrirtækjum 'og |1 i Reynslunni ríkari Eygló, Ásgrímur og Berglind voru meðal þeirra nemenda úr Listaháskólanum sem nutu lífsins í tískuborginni París fyrr í vetur. Þar unnu þau sem hjálparliellur fyrir misfræga hönnuði og söfnuðu hugmyndum í eigin viskubrunn. Hér eru þau mynduð á aðaltískugötu Revkjavíkur. Laugaveginum. DV-mynd E.ÓL. j hönnuðum til að fá betri tiifinningu fyrir tískubransanum, en misjafiit var hversu mikið þau báru úr býtum. Átta úr hópnum deildu tveggja her- bergja íbúð og var því oft glatt á hjalla þótt þröngt væri búið. „Ég lenti hjá uppáhaldshönnuðinum mínum fyrir hreina tilvOjun, Bemhard Wiil- helm. Hann er mikOl húmoristi eins og ég og sækir mikinn innblástur í leikhúsheiminn svo við erum á svip- aðri línu. T.d. var hann með risastóra friðardúfu á hausnum á einni fyrir- sætunni á tískusýningu. Og þótt ég hafi ekki fengið að sauma svo mikið fyrir hann þar sem búið var að senda aOar prufuflOmmar í framleiöslu þá fannst mér ég mjög heppin aö lenda hjá honum,“ segir Eygló og bætfi- við að hún hafi einnig verið svo lánsöm að hitta annan uppáhaldshönnuð sinn þama úti, Maijan Pejoski, en hún er hvað þekktust fyrir að hafa gert hinn fræga svanakjól á Björk. Ásgrímur lenti í læri hjá ungum hönnuði að nafni Thomas EngeOiart en hann fór einnig út árið á undan á vegum Listaháskólans og þá var hann i læri hjá stórfyrirtæki. „Það var gaman að sjá muninn á þessu tvennu og vissulega ólík reynsla," segir hann en aðalverkefiii hans hjá Thomas var að lita efni, festa tölur á flíkur og fara í ýmsar sendiferðir. Berglindi var hins vegar alveg þrælað út. „Ég lenti hjá írskum hönnuði að nafhi Sharon Wauchob sem rekur tískuhús í París. Þar var ég látin vinna dag og nótt og svaf t.d. ekkert í tvo sólarhringa fyrir tískusýninguna. Ég var látin gera ýmislegt eins og sníða, teikna og sauma og hafa sam- band við módelskrifstofur o.fl. Ég lærði auðvitað mikið á þessu hvemig tískuheimurinn gengur fyrir sig,“ segir Berglind en viðurkennir að það hafi óneitanlega verið erfitt að vera eina manneskjan í íbúðinni sem þurfti að vinna svona mikið. Á meö- an hinir vom t.d. í fríi um helgar var hún að vinna. „Ég kom heim úr vinn- unni kannski kl. eOefu-tólf á kvöldin aOa daga vikunnar og þá vom þau hin löngu farin eitthvað út tO að gera eitthvað skemmtOegt." Tjútt í tískupartíum Fyrir utan að hafa séð vinnubrögð hönnuða og vinnuferli fannst þeim ekki síöur lífsreynsla að komast í j tískupartí. Slíkar samkomur em víst mjög eftirsóttar en ekki auðvelt að komast þar inn nema maður sé helst eitthvert nafii. „Við hittum margt áhugavert fólk í Fatahönnuðir framtíðarinnar Fyrsta og annars árs nemar í fatahönnun í Listaháskólanum ánægðir eftir vel heppnaða tískusýningu í Hafnarhúsinu um síðustu helgi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.