Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2003, Page 36
»
40
HelQorblaö X>’V LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2003
H
Alþjóða ólympíunefndin tekur 2. júlí ákvörðun um hvar vetararólympíuleikarnir verða haldnir árið 2010:
Kóreumenn metnaðarfullir
Það verður stór dagur hjá alþjóða ólympíunefnd-
inni 2. júli en þann dag tekur nefndin ákvörðun
um hvar vetrarólympíuleikarnir verða haldnir árið
2010. Þrjár borgir berjast um að fá að halda leikana
og hafa þær allar lagt mikið undir til að hreppa
hnossið. Umræddar borgir eru PyeongChang í Suð-
ur-Kóreu, Vancouver í Kanada og Salzburg i Aust-
urríki. Undirbúningur þeirra umsækjanda sem eft-
ir eru í pottinum hefur staðið lengi yfir og hafa
þeir lagt spilin á borð fyrir alþjóðlegu ólympíu-
nefndina sem tekur af skarið um hvar leikarnir
verða eins og áður sagði á fundi sínum í Prag í
Tékklandi 2. júlí nk.
Hverjir eru líklegastir?
Hvaða staður skyldi nú verða líklegastur til að fá
að halda leikina. Allir hafa þeir eitthvað til brunns
að bera. Menn eru þó flestir á því að slagurinn
Suður-Kóreumenn taka erlendum gestum opnum örmum en þeir eru frægir fyrir gott viðmót og frábæra gestrisni. Hér sýna
kóreskar stúlkur dans og eins og sjá má á skilti fyrir ofan þær eru allir hjartanlega velkomnir til S-Kóreu.
standi á milli PyeongChang og Vancouver þó Salz-
burg sé alls ekki verri kostur. Það sem ööru frem-
ur gæti komið í veg fyrir að leikarnir séu haldnir í
Austurríki er nálægðin við Torino en þar verða
vetrarólympíuleikarnir haldnir 2006. Ólympíu-
nefndin mun varla hafa tvenna leika í röð í Evrópu
og af þeim sökum er Salzburg talin hafa minnsta
möguleikana. Alþjóða ólympíunefndin hefur þó síð-
asta orðið í þessum efnum og henni er vandi á
höndum eins og alltaf þegar kemur að ákvörðun-
um sem þessum.
Kóreumenn leggja hart að sér
Suður-Kóreumenn héldu eigi alls fyrir löngu
mikla kynningu á umsókn sinni fyrir leikunum
2010 fyrir íþróttafréttamenn af Norðurlöndunum og
víðar. Þar mátti glöggt sjá að Kóreumenn hafa lagt
gífurlega vinnu í umsókn sína og leggja hart að sér
til að fá leikina til sín. íþróttaviöburður af þessari
stærðargráðu er ekki bara hristur fram úr erminni
heldur liggur að baki mikil undirbúningsvinna
sem að koma sérfræðingar af öllum sviðum.
í kostnaðaráætlun Kóreumanna kemur fram að
það kosti ekki minna en 270 milljarða króna að
halda leikana. í þessari tölu er kostnaður við
mannvirkjagerð, lagning nýrra járnbrauta frá
Seoul til PyeongCang, langstærstur. Þetta eru ekki
litlir peningar en á hitt bera að líta að þetta er á
margan hátt fjárfesting til margra ára. Það er ekki
tjaldað til einnar nætur heldur mun almenningur
í landinu njóta góðs af þessum framkvæmdum öll-
um og mannvirkjum eftir leikana. Suður-kóreska
ólympíunefndin lét vinna fyrir sig könnun á meðal
landsmanna til að kanna hug þeirra til leikanna í
PyeongChang 2010 og voru niðurstöður vægast
sagt sláandi. Um 97% landsmanna voru mjög já-
kvæð fyrir þvi að leikarnir yrðu haldnir i landinu.
Þessar niðurstöður voru mjög uppörvandi og hvetj-
andi fyrir umsækendurna og gaf heldur betur byr í
seglin.
Reynslan er til staðar
Ekki vantar Kóreumenn reynsluna að halda
stærstu íþróttamót sem haldin eru í heiminum. Ár-
ið 1988 voru sumarleikarnir haldnir í Seoul og
þóttu takast vel og í fyrra héldu þeir í samvinnu
við nágranna sína í Japan Heimsmefstaramótið í
-l