Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2003, Page 52
i
56
He I c) a rb la ö JO’V LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2003
Islendingaþættir
Umsjón
Kjartan Gunnar
Kjartansson
Markús Örn Antonsson
útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins verður 60 ára á morgun
Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri,
Vesturgötu 36a, Reykjavík, verður
sextugur á morgun.
Starfsferill
Markús fæddist í Reykjavík og ólst þar
upp. Hann var skiptinemi í Oregon í
Bandaríkjunum 1961-62, lauk
stúdentsprófi frá MR 1965 og hóf nám í
lagadeild HÍ 1965 en hóf störf hjá
Sjónvarpinu í desember það ár og vann að
undirbúningi að stofnun þess sem
fféttamaður og dagskrárgerðarmaður og
var við þjálfun í fréttamennsku og
dagskrárgerð fyrir sjónvarp hjá ITV í
Bretlandi og SVT í Svíþjóð 1966.
Markús starfaði á skólaárum sem
blaðamaður og ljósmyndari á
Morgunblaðinu, vann að gerð
útvarpsþátta fyrir Ríkisútvarpið 1963 og
1964, var stundakennari í ensku við
Gagnfræðaskóla verknáms veturinn
1965- 66, var fréttamaður og
dagskrárgerðarmaður við Sjónvarpið
1966- 70 og hefur annast umsjón fjölda
dagskrárþátta í sjónvarpi og útvarpi.
Hann var kynningarfulltrúi hjá
Ferðaskrifstofu ríkisins 1971, starfaði sem
stundakennari í dönsku við
Réttarholtsskóla 1970 og 1971 og var
ritstjóri tímaritsins Frjáls verzlun og fleiri
tímarita hjá útgáfufélaginu Frjálst
framtak hf. 1972-83. Þá gaf hann út eigið
viðskiptatímarit á ensku, Modern Iceland,
1983-85.
Markús var borgarfulltrúi 1970-85, var
borgarráðsmaður 1973-78 og 1982-85,
forseti borgarstjórnar 1983-85 og
borgarsljóri í Reykjavík 1991-94.
Markús sat í ýmsum ráðum og nefndum
Reykjavíkurborgar, var formaður æskulýðsráðs
1970-74, formaður félagsmálaráðs 1974-78 og 1982-85,
formaður fræðsluráðs 1982-85 og formaður
ferðamálanefndar 1982-85.
Markús sat í útvarpsráði 1978-85, var formaður
ráðsins 1983-85, var útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins
1985-91, vann að gerð sjónvarpskynningarmynda
1994-95 á vegum Myndbæjar hf. og stofnaði
útvarpsstöðina Sígilt FM 1994, einnig í samvinnu við
það fyrirtæki, var skipaður framkvæmdastjóri
Ríkisútvarpsins-hljóðvarps í apríl 1995, skipaður
útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins í ársbyrjun 1998 og á ný
í ársbyijun 2003.
Markús var Inspector schiolae í MR 1964-65,
formaður starfsmannafélags Sjónvarpsins 1966-68, sat
i stjórn Framfarafélags Árbæjar- og Seláshverfis
1967- 70, var formaður Heimdallar, félags ungra
sjálfstæðismanna 1970, sat í stjórn SUS 1973-77, í
stjórn Varðbergs, félags ungra áhugamanna um
vestræna samvinnu, og var formaður þess 1974, var
stofnfélagi í Rotary-klúbbnum Reykjavík-Breiðholt
1983 og forseti hans 1996, var fulltrúi íslands í
íjölmiðlanefnd Evrópuráðsins' 1985-91, sat i
ráðgjafanefnd European Institute for the Media í
Manchester og Eiuopean Television and Film Forum
1987-91, sat í stjórn menningarstofnunar
höfuðborganna á Norðurlöndum í Hasselby 1991-94,
var fulltrúi menntamálaráðuneytis í stjórn
kvikmyndasjóðs Evrópm'áðsins, Eurimages, 1994-98,
situr í fulltrúaráði og framkvæmdastjóm European
Cultural Foundation í Amsterdam frá 1994, sat í
stjórn Sinfóníuhljómsveitar íslands 1995-98, í
úthlutunamefnd Kvikmyndasjóðs íslands 1995-97, er
einn af ritstjómm Rotary Norden, tímarits Rotary-
hreyfingarinnar á Norðurlöndunum frá 1995, var
formaður hátíðarnefndar vegna 200 ára afmælis
Dómkirkjunnar í Reykjavík 1996, sat í stjórn
Þjóðræknisfélags íslendinga, Icelandic National
League, er annast samskipti við Vestur-íslendinga,
1998 og er formaður félagsins frá 1999.
Fjölskylda
Eiginkona Markúsar er Steinunn Ármannsdóttir, f.
20.2. 1946, BA, skólastjóri Álftamýrarskóla. Foreldrar
Steinunnar: Ármann Halldórsson námsstjóri og
Sigrún Guðbrandsdóttir kennari.
Börn Markúsar og Steinunnar eru Sigrún Ása, f.
13.11. 1965, MA í alþjóðasamskiptum, starfsmaður
Financial Times í London en eiginmaður hennar er
dr. Jón Daníelsson hagfræðingur, dósent við London
School of Economics; Anton Björn, f. 6.1. 1971,
lögmaður hjá embætti borgarlögmanns í Reykjavík,
en eiginkona hans er Helen Ólafsdóttir,
rekstrarráðgjafi og starfmaður Deloitte&Touche en
dóttir þeirra er Katrín Steinunn Antonsdóttir, f. 23.3.
1993.
Hálfsystkin Markúsar, börn Berthu og eiginmanns
hennar, Magnúsar Jóhannessonar, f. 9.12.1920, d. 1.10.
1983, húsasmiðs og bæjarfulltrúa í Reykjavík, eru
Karl, f. 19.10. 1945, lögregluþjónn; Guðrún, f. 23.10.
1947, húsmóðir; Magnús Hrafn, f. 4.5. 1950, d. 12.11.
1989; Erla Kristín, f. 30.8. 1956, tölvuritari.
Foreldrar Markúsar voru Anton Björn Björnsson, f.
6.6. 1921, d. 26.11. 1943, íþróttakennari, og unnusta
hans, Bertha Karlsdóttir, f. 16.5. 1921, d. 5.9. 2000,
hárgreiðslukona.
Ætt
Föðursystur Markúsar: Sigríður, kona Bjarna
Benediktssonar forsætisráðherra og móðir Björns
alþm.; Ásta, móðir Grétars Hjartarsonar bíóstjóra og
Hildur, móðir Antons Arnar Kærnested
framkvæmdastjóra. Faðir Antons var Björn, skipstjóri
í Ánanaustum í Reykjavík Jónsson, tómthúsmanns í
Ánanaustum Björnssonar, b. á Eiði Bjarnasonar.
Móðir Björns var Hildur, systir Jóns, afa Guðmundar
Böðvarssonar skálds. Hildur var dóttir Jóns, b. í
Fljótstungu í Hvítársíðu Böðvarssonar og Margrétar
Þorláksdóttur, langömmu Halldórs Laxness og Stefáns
Jónssonar rithöfundar.
Móöir Antons var Anna, systir Stefaníu, ömmu
Þórðar Arnar Sigurðssonar dósents, föður prestanna
Döllu og Yrsu. Anna var dóttir Páls, Stefánssonar, b. í
Múla Pálssonar, b. í Neðradal Þorsteinssonar. Móðir
Stefáns var Guðrún Guðmundsdóttir, ættfóður
Kópsvatnsættar Þorsteinssonar. Móðir Páls var Vigdís
Diðriksdóttir. Móðir Vigdísar var Guðrún Högnadóttir
„prestaföður" Sigurðssonar, langafa Þuríðar,
langömmu Vigdísar Finnbogadóttur.
Bertha var dóttir Karls, bryta í Reykjavík, bróður
Ágústs, föður Harðar listmálara. Karl var sonur
Markúsar, veggfóðrarameistara í Reykjavík
Þorsteinssonar, b. í Gröf í Hrunamannahreppi
Jónssonar. Móðir Markúsar var Guðrún, systir
Ingibjargar, langömmu Eðvarðs Sigurðssonar alþm..
Guðrún var dóttir Jóns, b. í Galtafelli Björnssonar, b.
í Vorsabæ Högnasonar, lrm. á Laugarvatni
Bjömssonar, bróður Sigríðar, móöur Finns Jónssonar
biskups. Móðir Jóns var Bryngerður Knútsdóttir,
systir Sigríðar, ömmu Tómasar Guðmundssonar
skálds og þeirra bræðra, Hannesar þjóðskjalavarðar og
Þorsteins hagstofustjóra Þorsteinssona. Móðir
Guðrúnar var Guðrún Guðmundsdóttir, pr. í Hruna
Magnússonar. Móðir Karls var Jóhanna
Sveinbjörnsdóttir. Móðir Jóhönnu var Kristín
Einarsdóttir, systir Ingveldar, langömmu Steinþórs
Gestssonar alþm., föður Gests, skattstjóra í Reykjavík.
Móðir Berthu var Ingeborg, f. Tengelsen, frá Arendal i
Noregi.
Laugardagurinn 24, maí
80 ÁRA_____________________
Ingibjörg Pétursdóttir,
Barónsstíg 61, Reykjavík.
75 ÁRA
Guömundur Vilhjálmsson,
Hrísmóum 5, Garðabæ.
Þorgerður Bergsdóttir,
Vesturgötu 109, Akranesi.
Þuríður Oddsdóttir,
Nýbýlavegi 26, Kópavogi.
70 ÁRA_____________________
Anna Þóra Ólafsdóttir,
Æsufelli 6, Reykjavfk.
Hulda Friðbertsdóttir,
Brekkugötu 40, Þingeyri.
Kópur Kjartansson,
Drekavogi 4, Reykjavfk.
Rut Árnadóttir,
Miðieiti 3, Reykjavík.
60 ÁRA_____________________
Málfríður Ólína Viggósdóttir,
Geislalind 4, Kópavogi.
50ÁRA ____________________
nppH^I Ragnheiður
Kl g. Sigurðardóttir,
|f - J Hraunbrún 34,
■l Hafnarfiröi. i til-
efni afmælisins
tekur hún á móti vinum og
vandamönnum í Eurovision-
gleði í Haukahúsinu að Ásvöll-
um frá kl. 21. Blóm vinsam-
lega afþökkuð en ferðabaukur-
inn góði verður á staðnum
Ásdís Sigurðardóttir,
Njálsgötu 86, Reykjavík.
Bryndís Tryggvadóttir,
Vfðigrund 14, Akranesi.
Emil Guðjónsson,
Austurbrún 4, Reykjavík.
Fanney Bjarnadóttir,
Kirkjuvegi 19, Keflavík.
Kári Húnfjörð Bessason,
Rauöhömrum 3, Reykjavfk.
Kristín Finnbogadóttir,
Spóahöfða 6, Mosfellsbæ.
Tómas Frosti Sæmundsson,
Blikaási 20, Hafnarfirði.
Úlfar Guðni Sigurjónsson,
Álfholti 34a, Hafnarfirði.
Þuríður Bogadóttir,
Bakkasmára 9, Kópavogi.
Örn ingólfsson,
Borgargeröi 16, Stöðvarfiröi.
40 ÁRA_____________________
Aima Kristmannsdóttir,
Vættaborgum 152, Reykjavík.
Anna Jónsdóttir,
Kirkjustétt 9, Reykjavík.
Ágústa Kristófersdóttir,
Ástúni 12, Kópavogi.
Frosti Eiðsson,
Háaleitisbraut 32, Reykjavík.
Grétar Erlingsson,
Lyngbergi 19b, Hafnarfirði.
Guðjón Böðvarsson,
Lónabraut 43, Vopnafirði.
Háifdan Þórir Markússon,
Þrúövangi 9, Hafnarfirði.
Hörður Jónsson,
Egilsbraut 22, Þorlákshöfn.
Ingibjörg Óladóttir,
Hólavöllum 5, Grindavfk.
Jaroslaw Jablecki,
Krummahólum 6, Reykjavfk.
Kjartan Kjartansson,
Næfurási 7, Reykjavík.
Kristborg Halidórsdóttir,
Hlaðbrekku 11, Kópavogi.
Líney Hrafnsdóttir,
Bylgiubyggð 1, Ólafsfirði.
Nanna Friðriksdóttir,
Kaplaskjólsvegi 27, Reykjavík.
Ólafur Gísli Baldursson,
Garðaflöt 15, Garðabæ.
Sigurbjörg Nielsdóttir Hansen,
Leirutanga 37a, Mosfellsbæ.
Sigurfljóð Sveinbjörnsdóttir,
Heiöarbrún, Kópaskeri.
Svanfríður Anna Lárusdóttir,
Þverbrekku 2, Kópavogi.
Þorbjörg Guðlaugsdóttir,
Búlandi 12, Reykjavík.
WM ,.......
Stinnudagurinn 25. mai
95 ÁRA____________________
Magnús Ögmundsson,
Kleppsvegi 64, Reykjavfk.
80 ÁRA____________________
Guðrún Grímsdóttir,
Böðvarsgötu 17, Borgarnesi.
Sigrun Frederiksen,
Skagabraut 35, Akranesi.
Þorbjörg Ragna Bjömsdóttir,
Barðastöðum 23, Reykjavík.
75ÁRA_____________________
Björg Finnbogadóttir,
Lindasíðu 2, Akureyri.
Fjóla Pálsdóttir,
Heiðargerði 42, Reykjavík.
Guðmundur Ó. Jóhannsson,
Skúlagötu 40a, Reykjavík.
Solveig Arnórsdóttir,
Dýjabekk, Sauðárkróki.
70 ÁRA____________________
Ásta Sigurdís Valdimarsdóttir,
Ljósheimum 2, Reykjavík.
Elísabet Gunnlaugsdóttir,
Sævarlandi 14, Reykjavík.
Elsabet Jónsdóttir,
Hátúni 19, Eskifirði.
Grímur M. Steindórsson,
Kársnesbraut 106, Kópavogi.
Gylfi Jónsson,
Dalbraut 47, Akranesi.
60 ÁRA
Guðjón Kristinsson,
Túngötu 13, Keflavík.
Guðrún Maggie Magnúsdóttir,
Langagerði 88, Reykjavík.
Kristín Sæunn Pétursdóttir,
Hveralind 2, Kópavogi.
Margrét Aðalsteinsdóttir,
Langholtsvegi 25, Reykjavík.
Sigurjón Marinósson,
Akurgerði 30, Reykjavík.
50 ÁRA
Diethard Benedikt Biermann,
Blönduhlíð 26, Reykjavík.
Guðrún Gunnlaugsdóttir,
Sundabakka 7, Stykkishólmi.
Ingimundur Einarsson,
Klausturhv. 30, Hafnarfirði.
Jakob Möller,
Heiöarási 7, Reykjavík.
Jónas Sigurðsson,
Urðargötu 18, Patreksfirði.
Kristín Friðriksdóttir,
Iragerði 6, Stokkseyri.
Reynir Jóhannsson,
Arnartanga 34, Mosfellsbæ.
Rúnar Sigþórsson,
Reynivöllum 4, Akureyri.
Vilborg Jóhannsdóttir,
Arnarhrauni 32, Hafnarfirði.
40 ÁRA
Bergiind G. Magnúsdóttir,
Lækjasmára 86, Kópavogi.
Bergljót Jónsdóttir,
Grundargarði 3, Húsavík.
Gemma Marissa S. Helgason,
Kelduhvammi 5, Hafnarfirði.
Guðmundur Ingi Gústavsson,
Njálsgötu 12, Reykjavfk.
Guðmundur Pálsson,
Hamraborg 34, Kópavogi.
Helga Jóhannesdóttir,
Ásgötu 18, Raufarhöfn.
Ingi Þór Oddsson,
Garöarsvegi 22, Seyðisfirði.
José Joaquim C. Moreira,
Vestursfðu 14f, Akureyri.
Jón Guðmundur Hreinsson,
Hafnagötu 11, Höfnum.
Kristín Guðrún Gestsdóttir,
Silfurbraut 4, Höfn.
Kristján Geirsson,
Dunhaga 13, Reykjavfk.
Skúli Skúlason,
Grettisgötu 83, Reykjavík.
Sæmundur Jónsson,
Hamravík 8, Borgarnesi.
Þorgeir Jóhannsson,
Vesturbergi 94, Reykjavfk.