Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2003, Blaðsíða 10
10 INNLENDAR FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 3.JÚNÍ2003
Fjaran hreinsuð
Bensínlausir og þurftu hjálp
Árleg fjöruhreinsunarferð
10. bekkjar Dalvíkurskóla og
Sparisjóðs Svarfdæla var farin í
vikunni. Krakkarnir hreinsuðu
upp heilmikið af rusli á
Böggvisstaðasandi ásamt Frið-
riki Friðrikssyni sparisjóðs-
stjóra. Að verki loknu bauð
Sparisjóðurinn upp á veitingar.
-HIÁ
Björgunarskip Slysa-
varnafélagsins Lands-
bjargar, Björg frá Rifi var
kallað út síðdegis á laug-
ardag eftir að boð komu
um gervihnött frá Noregi
að neyðarsendir væri í
gangi á Breiðafirði.
Engir bátar eða skip
voru skráð á sjó á þess-
um slóðum hjáTilkynn-
ingaskyldunni og þess vegna
voru björgunarsveitirá Snæ-
fellsnesi kallaðar út til að fara í
hafnir á svæðinu ög athuga
um bátsferðir.
Fréttir bárust síðan af því að
lítill plastbátur með tveimur
mönnum hefði farið frá Breiðu-
vík fyrr um daginn og engar
fréttir hefðu borist af honum.
Björgunarskipið fór á þann
stað sem neyðarsendirinn átti
að vera í gangi og kom þá í
Ijós að þar voru á ferð menn-
irnir tveir sem farið höfðu frá
Breiðuvík en talið er að þeir
hafi orðið bensínlausir og látið
vita um vandræði sín á þennan
hátt. Björgunarskipið fylgdi
þeim síðan til hafnar.
Hvatti til herferð-
ar gegn ofbeldi
Hafnarstrætismálið svokall-
aða, sem fjallar um þegar
Magnús Freyr Sveinbjömsson
var barinn til dauða, er um
margt sérstakt. Gerendur í
þessu máli komu við sögu í síð-
asta áramótaávarpi forseta ís-
lands. Annar ofbeldismann-
anna, sem ákærður var fyrir að
sparka f höfuð hins látna auk
þess að veita honum hnefa-
högg, sendi Ólafi Ragnari
Grímssyni bréf þar sem hvatt
var til herferðar gegn ofbeldi.
Frá þessu var greint í DV f jan-
úar. Sami maður er ákærður
fyrir tvær aðrar stórfelldar lík-
amsárásir í mánuðinum áður
en Hafnarstrætisátökin áttu
sér stað. Hann mætti með bibl-
íu f hönd þegar málið var þing-
fest.
í bréfrnu til forsetans frá
manninum sem borinn er
þyngri sökum sagði meðal
annars:
„Vinur minn hefði aldrei get-
að gert sér grein fyrir því að eitt
spark gæti leitt mann til dauða.
Skilaboðin sem heimurinn
sendir inn í hug svo margra
ungra drengja eru þau að slags-
mál séu töff og þau að fólk geti
slegist eins og í kvikmyndum
þar sem þau hafa engin áhrif.
Gerð er hetja úr manni sem
nær að lemja flesta og konur
laðast að þeim í kvikmyndum.
Sem sagt, þetta er sett upp eins
og það sé flott að berja fólk.
Enginn getur ímyndað sér að
slagsmál leiði til dauða."
Þessi „vinur minn“, sem vís-
að er til í bréfinu, er sá sami og
gefið var að sök að hafa spark-
að í fórnarlambið í Hafnar-
stræti andartökum áður en það
féll þar á götuna. f máli þessu
kemur neysla árásarmannanna
á áfengi og kókafni einnig við
sögu.
Fyrir dóm: Gunnar Friðrik Friðriksson og Baldur Freyr Einarsson, sem skýlir sér á bak við biblíu, í fylgd lögreglu.
Þriggja ára dómur fyrir
146 þúsund krónur
Viðtal við Sveinbjörn Magn-
ússon, föður Magnúsar Freys
sem lét lífið í fyrravor í kjölfar
áverka í hrottalegri líkams-
árás, hefur vakið sterk við-
brögð.
Fleiri hafa líkar sögur að segja um
álit á dómnum yfir banamönnum
Magnúsar. Einnig hefur fólk bent á
fleiri dóma sem það telur ekki vera í
nokkru samræmi við eðli mála.
Kona ein sem er fyrrverandi
verslunareigandi segir farir sínar
t.d. ekki sléttar eftir að hafa orðið
fyrir því að vera rænd og síðan
dæmd fyrir fjárdrátt vegna sömu
peninga, sem voru peningar úr
lottókassa.
„Ég var dæmd í 60 daga fangelsi
eða þrjú ár skilorðsbundið fyrir 146
þúsund krónur sem hafði verið
stolið af lottófé. Þetta var ég þó
búin að borga til baka og var með
kvittanir upp á það. Saksóknarinn
Við leiði látins sonar og bróður:
DV birti viðtal við Sveinbjörn E.
Magnússon í gær. Á forsíðu blaðsins
var fjölskylda Magnúsar Freys Svein-
björnssonar við leiði hans á (safirði í
gær.talið frá vinstri: Þorbjörg Finn-
bogadóttir, Sveinbjörn E. Magnússon,
Laufey Annika Sveinbjörnsdóttir, Stef-
án Reyr Sveinbjörnsson og Fannar
Halldór Sveinbjörnsson.
var meira að segja reiður yfir því að
ég væri ekki sett í fangelsi vegna
málsins. Ég var því á skilorði í þrjú
ár eins og glæpamaður og á saka-
skrá fyrir fjárdrátt. Ég trúði þessu
ekki þegar ég fékk dóminn afhent-
an.“
Þessi kona segir sér hafa verið of-
boðið þegar hún sá dómsniður-
stöðuna í Hafnarstrætismálinu í
DV. „Maður getur drepið annan
mann og fengið fyrir það tveggja
ára dóm og aðrir sem hafa valdið
þvílíku tjóni fá skilorðsbundna
dóma, á meðan ég fékk þrjú ár á
skilorði fyrir 146 þúsund króna fjár-
drátt sem ég framdi þó ekki.
- hkr@dv. is
Um 1500 manndráps- og líkamsmeiðingarmál
Hafnarstrætismálið var þrett-
ánda sakamálið á íslandi frá því í
júlf 1999 þar sem ákært er fyrir
manndráp eða árás sem leiðir til
dauða. Fjöldi manndráps- og lík-
amsmeiðingarmála síðustu fjögur
ár nemur að jafnaði nærri 1500 á ári
samkvæmt tölum frá Rfkislögreglu-
stjóra. Fjölmörg mál varða mann-
dráp af gáleysi en langflest eru mál-
in vegna líkamsárása sem ekki leiða
til dauða, eða um 1100 á ári.
Líkamsárásir og líkamsmeiðing-
ar eiga sér langflestar stað sam-
kvæmt tölum lögreglu á laugardög-
um og á sunnudögum. Á laugar-
dögum er hlutfali brotanna innan
vikunnar um 17 til 25%, en um 30
til 40% eiga sér stað á sunnudög-
um. Fæst slík mál koma hins vegar
upp á miðvikudögum og fimmtu-
dögum, eða 6 til 8%. Ekki er eins af-
gerandi munur á hlutfallslegri
skiptingu brota milli mánaða, en
þó virðast brot að jafnaði eiga sér
flest stað yfir björtustu mánuði árs-
ins, eða á tímabilinu frá apríl til
september. Tíðni mála sem flokk-
ast undir lfkamsmeiðingar á lands-
vísu hefur að jafnaði verið um 50 til
55 á hverja þúsund íbúa á undan-
förnum árum.