Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2003, Page 6
6 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 1.JÚLÍ 2003
Bæri vott um litla dómgreind
Fleiri kynferðisbrot hjá KFUM
VARNARMÁUN: „Hafi Bandaríkja-
stjórn tilkynnt einhliða rétt fyrir
alþingiskosningar að fáeinum vik-
um eftir kosningarnar yrði gjör-
breyting á fyrirkomulagi varna
landsins og tvíhliða varnarsamn-
ingi þjóðanna er það til marks um
litla þólitíska dómgreindsegir
Björn Bjarnason, dóms- og kirkju-
málaráðherra, í grein í Morgun-
blaðinu í dag.Telur Björn að ein-
hliða áform Bandaríkjastjórnar
um breytingar hafi ekki náð fram
að ganga. Því til stuðnings nefnir
hann að enginn hafi túlkað bréf
Bandaríkjaforseta til forsætisráð-
herra á þann veg að í því felist úr-
slitakostir. (öðru lagi byggist við-
ræðurnar nú á því að varnar-
samningur þjóðanna sé tvíhliða
samningur sem ekki sé hægt að
breyta einhliða.
Björn Bjarnason.
Þremur mönnum hefur verið
vikið úr starfi hjá KFUM & K á
síðustu 15 árum vegna gruns
og ásakana um kynferðisbrot
gegn börnum, en sagt var frá
málinu í fréttum Stöðvar 2 í
gærkvöld. Einn þeirra starfaði
sem formaður deildar KFUM á
suðvesturhorninu og var rekinn
fyrir 11 árum vegna ásakana um
að hann hefði leitað á unga
drengi. Sá starfar nú sem
grunnskólakennari á höfuð-
borgarsvæðinu. Annar maður,
sem gegndi trúnaðarstarfi fyrir
KFUM & K, var látinn hætta eftir
að hann var kærður fyrir kyn-
ferðisbrotgegn þroskaheftum
einstaklingi árið 1988. Brotið var
framið á einkaheimili. Þriðja
málið hefur svo áður verið gert
oþinbert í fjölmiðlum.
Bensínhækkun
Verð á bensíni hækkar um tvær
krónur og þrjátíu aura lítrinn í
dag. Olíufélögin Esso, Olís og
Skeljungur hækka öll um sömu
uþphæð. Dísilolía og svartolía
hækka um eina krónu og fimm-
tíu aura. Samkvæmt upplýsing-
um á vefsíðum olíufélagana
skýrist hækkunin af heimsmark-
aðsverði á oiíu og vegna hækk-
unar á gengi Bandaríkjadollars.
DV er í stórsókn
JÁKVÆÐAR BREYTINGAR: Breytingar á útliti og efnistökum DV hafa mælst vel fyrir en meðallestur blaðsins hefur aukist um
þriðjung.
Aukning er á lestri DV alla viku-
daga. Aukningin er mest á lestri
fimmtudagsblaðsins, 9,3 pró-
sentustig, og föstudagsblaðs-
ins, 8,5 prósentustig. Aukning á
lestri Helgarblaðs DV mælist
7,2 prósentustig.
Niðurstöður könnunar Gallups
voru annars á þann veg að Frétta-
blaðið, sem dreift er ókeypis til les-
enda, er mest lesið. Meðalllestur
þess mældist 65,9 prósent, Morg-
unblaðsins 53,4 prósent og DV 29,1
prósent. Þegar litið er á tölur yfir
„eitthvað lesið í vikunni" mælist
Fréttablaðið, sem dreift er ókeypis
til lesenda, hins vegar með 89,8
prósenta lestur, Morgunblaðið
með 75,7 prósenta lestur og DV
með 57,3 prósenta lestur. Þróunin
er sú að það dregur saman með
blöðunum, DV vinnur á.
Meðallestur á tölublað
hefur aukist um þriðj-
ung frá síðustu könn-
un, hefur stokkið úr
22,1 prósenti í 29,1 pró-
sent. Greinilegt er því
að nýlegar breytingar á
útliti og efnistökum DV
hafa mælst vel fyrir
meðal lesenda.
Þegar ry ít er frekar í niðurstöður
fjölmiðlakönnunar Gallups vekur
athygli að DV er stærra en Morgun-
blaðið þegar uppsöfnuð dekkun
yfir vikuna er mæld á landsbyggð-
inni. Þá mælist lestur DV 65,1 pró-
sent, Morgunblaðsins 64,9 prósent
og Fréttablaðsins 82,1 prósent.
Fjölmiðlakönnun IMG Gallup
var framkvæmd vikuna 30. maí til
5. júní síðastliðinn. Úrtakið var 800
manns á aldrinum 12-80 ára. End-
anlegt úrtak var 507 manns og
nettó-svarhlutfall því 62 prósent.
Sendar voru út dagbækur til þátt-
takenda og þeim fylgt eftir með 1-3
símhringingum yfir könnunar-
tímabilið.
Nh@dv.is
MEÐALLESTUR Á TBL.
(AUKNING FRÁ SÍÐ. KÖNNUN)
31,7%
Mbl. Fréttabl. DV
EITTHVAÐ LESIÐ ÍVIKUNNI
(AUKNING FRÁ SÍÐ. KÖNNUN)
Eldur í einbýlis-
húsi á Suður-
landsbraut
Ráðist á Ijósmyndara á staðnum
Eldur kom upp í Álfabrekku á
Suðurlandsbraut í morgun. Eldur-
inn kom upp í forstofu hússins en
að sögn slökkviliðsins gekk vel að
ráða niðurlögum hans þar sem
hann var á afmörkuðu svæði í hús-
inu. Ekki er enn ljóst hver upptök
eldsins voru en íbúa hússins sakaði
ekki. Töluverðar skemmdir eru á
húsinu, aðallega vegna mikils
reyks, en þegar búið var að slökkva
eldinn var hafíst handa við að
reyklosa húsið.
Þegar ljósmyndari DV mætti á
staðinn réðst maður á hann og
reyndi að ná myndavélinni af hon-
um. Maðurinn hélt því fram að
ljósmyndarinn, sem var að sinna
störfum sínum á brunavettvangi,
væri á einkalóð. Lögreglan brást
skjótt við og tók manninn. Þrjá lög-
reglumenn þurfti til að halda
manninum sem var mjög æstur.
Atvinnutæki ljósmyndarans
skemmdust ekki í átökunum.
-EKÁ
BRUNII MORGUN: Eldur kom upp i einbýlishúsi við Suðurlandsbraut í morgun. Vel gekk að ráða niðurlögum hans.
DV-mynd E.ÓI.
1
......... .... ■k____________________________________________________