Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2003, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 1.JÚLÍ 2003 MENNING 11
í
Menning
Leikhús ■ Bókmenntir ■ Myndlist ■ Tónlist ■ Dans
Þriðjudagstónleikar
(kvöld heldur Snorri Heimisson
fagottleikari debut-tónleika sína
hér á landi ásamt Arne Jorgen
Faea og Berglindi MaríuTómas-
dóttur. Þau munu leika verk fyrir
fagott og píanó eftir Gabriel Pi-
erné, Emil Petrovics, Chick Cor-
ea og Roger Boutry og einnig
Bachianas Brasilieras fyrirflautu
og fagott eftir Heitor Villa-
Lobos.Tónleikarnir hefjast
klukkan 20:30. Snorri Heimisson
lauk blásarakennaraprófi frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík
árið 1997 með flautu sem aðal-
hljóðfæri og fagott og klarínett
sem aukahljóðfæri. Ári síðar hóf
Snorri nám við Tónlistarháskól-
ann í Kaupmannahöfn. Snorri
hefur víða komið fram á tónleik-
um, í Danmörku, Svíþjóð, Fær-
eyjum, Grænlandi og (slandi.
Bónus Britney
hittir Birgittu Haukdal
Æl, ÉG VIL EKKl GAT í EYRAÐ: Totta (Tinna Hrafnsdóttir) pínir Sandí (Birgitta Haukdal) í Gre-
ase. DV-mynd ÞÖK
LEIKLISTARGAGN RÝNI
Silja Aðalsteinsdóttir
Líklega hefur Bjarni Haukur Þórs-
son enn hitt á gullæð með því að láta
sér detta í hug að setja Birgittu
Haukdal og Jón Jósep Snæbjömsson
upp á svið í aðalhlutverkunum í
söngleiknum Grease. Ailt niður í
þriggja ára börn sátu á hnjám for-
eldra sinna á uppseldri síðdegissýn-
ingu á laugardaginn og biðu and-
stutt eftir að Birgitta birtist á sviðinu;
vinsældir Jónsa byrja lfklega heldur
ofar í aldursstiganum.
Aðdáendur Jónsa fá talsvert meira
út úr sýningunni en aðdáendur
Birgittu, einfaldlega vegna þess að
hlutverk Jónsa er bæði stærra og
skemmtilegra. Hann fær að dansa,
vera fyndinn og töff, laða að sér
stúlkur og skemmta sér með strák-
unúm; Birgitta fær aðallega að
nöldra, æla og vera fúl. Vissulega fær
hún að syngja líka, en það er erfitt að
líta fram hjá því að hlutverk Sandí í
Grease er að loknu fyrsta atriði og
fram undir hið síðasta óttalega leið-
inlegt.
Áður en verkið hefst hafa Sandí og
Danni Júst og kynnst í Munaðarnesi
(í staðfærðri þýðingu Gísla Rúnars
Jónssonar). Fyrsta daginn í Verk-
menntaskóla Grafarvogs um haustið
segja þau félögunum frá sumarást-
inni sinni - hvort á sinn hátt: Hún
hefur kynnst ljúfum og góðum strák,
hann hefur neglt ofsa kúl stelpu.
Þetta fýrsta söngatriði er húð eftir-
minnilegasta í söngleiknum, snilld-
arlega hugsaður texti sem afhjúpar
persónur beggja ungmennanna og
hópanna í kringum þau. „Segðu
meir, segðu meir," syngja þrýstihóp-
arnir hvor sínum megin og ung-
menni um víða veröld hafa tekið há-
stöfum undir í þrjáú'u ár.
Eins og lesendur vita verður Sandí
svekkt út í Danna fyrir að segja hana
létdyndari en hún er, og hún er um
það bil að glata honum með fýlu og
pempíuskap þegar hún ákveður -
fyrir áhrif ffá töffustu píunni í
ldflcunni, hinni óléttu Krissu (Unnur
Ösp Stefánsdóttir) - að hætta að vera
saklaus og leiðinleg og verða villt og
skemmtileg. í söngnum „Björt mey
og hrein II" kveður Sandí Bónus Brit-
ney Spears, eins og krakkarnir kalla
hana, og verður töff og djörf. Þá fell-
ur Danni aftur fyrir henni og allt
endar með ágætum. Ekki beinlínis
boðskapur fyrir smámeyjar enda
ósennilegt að þær nái bonum.
Jónsi og Birgitta syngja
svo vel og eru svo sæt
að manni er nokk sama
þótt þau leiki viðvan-
ingslega. Ýmsir í kring-
um þau leika ágætlega
og ber þar af Unnur Ösp
í bestu rullunni sem í
boði er.
Jónsi og Birgitta syngja svo vel og
eru svo sæt að manni er nokk sama
þótt þau leiki viðvaningslega. Ýmsir í
kringum þau leika ágætlega og ber
þar af Unnur Ösp í bestu rullunni
sem í boði er. Hún bætti talsverðu
við persónu Krissu, til dæmis var
norðlenskan hennar ansi fyndin
þegar hún var að gera gys að „nýbú-
anum“ Sandí frá Akureyri! Sveinn
Þór Geirsson (Kommi), Guðjón Dav-
íð Karlsson (Keli), Jón Páll Eyjólfsson
(Sjonni) og Jóhannes H. Jóhannes-
son (Rabbi) í strákagenginu voru
kraftmiklir og sannfærandi. í stelpu-
genginu voru þær Iflca fínar Tinna
Hrafnsdóttir og Margrét Eir Hjartar-
dóttir.
Helsti gallinn á þessari uppsetn-
ingu er hvað hún er teygð. Sum at-
riðin eru beinlínis löng og leiðinleg,
til dæmis skólaballið strax eftir Júé.
Hrynjandi sýningarinnar - hjart-
sláttur hennar - er of óregluleg og er
freistandi að kenna þar um of langri
leikgerð Gísla Rúnars, þótt sniðug sé,
frekar en leikstjórn Gunnars Helga-
sonar. Hvorum sem um er að kenna
þá finna aðstandendur að eitthvað
vantar, því þegar leiknum var lokið
tóku leikararnir lagasyrpu úr verkinu
með miklu trukki og æstu upp
stemningu og hita í salnum sem
vantaði talsvert á undir leiknum
sjálfum.
Lýsing er glæsileg, lærðir dansarar
eru fimir og flottir en dansatriði ollu
annars nokkrum vonbrigðum vegna
tilþrifalítilla spora. Hljómsveitin er á
sviðinu eins og vera ber, svið og bún-
ingar eru af Júáasta tagi - en þeir
sem koma til að heyra Jónsa og
Birgittu og aðra flytja þessi marg-
sungnu lög hafa áreiðanlega litlar
áhyggjur af umgjörðinni. Þeir fá líka
sitt.
Bjarni Haukur Þórsson sýnir I Borgarleik-
húsinu: Grease eftir Jim Jacobs og Warren
Casey. Þýðing og staðfæring: Gísli Rúnar
Jónsson.Tónlistarstjóri: Þorvaldur Bjarni
Þorvaldsson. Danshöfundan Guðfinna og
Birna Björnsdætur. Leikmynd: Ólafur Egill
Egilsson. Ljós: Halldór Örn Óskarsson. Bún-
ingan Guðrún Lárusdóttir og Helga Rós V.
Hannam. Leikstjóri: Gunnar Helgason.
Minning Sörens Larsens heiðruð í Seattle
Einni stærstu glerráðstefnu heims, GAS, er nýlokið í
Seattle í Bandarflcjunum en hún var haldin í 33. sinn.
Gallery Global Art Venue í Seattle var einn af samstarfs-
aðilum ráðstefnunnar og hélt sýningu meðal annars á
verkum Sörens S. Larsens. Á sýningunni var minning
Sörens heiðruð en hann lést í bflslysi 28. mars sl. og
hafði þá gert samning við galleríið. Hann hafði sent á
annan tug verka á sýninguna og hlutu þau verðskuld-
aða athygli. Ekkja Sörens, Sigrún Ó. Einarsdóttir gler-
listarmaður, sótti ráðstefnuna og hélt fyrirlestur um
Sören og verk hans.
Seattle er oft nefnd mekka glersins í Bandaríkjunum.
Þar býr einn þekktasti glerlistarmaður Bandaríkjanna,
Dale Chihuly, en hann sýndi á Kjarvalsstöðum árið afar vel að ráðstefnunni og fór ekki fram hjá neinum,
2000. Söfn borgarinnar, gallerí og glerlistarmenn stóðu sem leið átti um borgina, að glerið var í brennidepli.
ÖRKIN HANS NÓA: Eitt verka Sörens S. Larsens á sýningunni í Gall-
ery Global Art Venue í Seattle.
Ef þú kaupir smáauglýsingu á
HAPPDRÆTTIS
Aðalvinningurinn, flugmiði
frá lceland Express er
dreginn út 2. september
Svo er einnig hægt að vinna bíóveislu - miða, gos
snakk og prinsessu-súkkulaðikassa, auk þess sem
að allir vinningshafar munu fá fría áskrift að DV
Jóa útherja
Sjónvarpsmiðstöðinni
Heildversluninni
Hvítum stjörnum
Stick'n' Sushi
Thorvaldsen
Café Sólon
Galileo
r>i | lM»l Hj Tíigji UPii r*j
m m TTF Í|*jfíTÍHl m 1 kTf jm
'Sfi! i7ft H B
Smáauglýsingar ^
550 5000 £