Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2003, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2003, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2003 ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið DV ehf. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Örn Valdimarsson AÐALRITSTJÓRI: Óli Björn Kárason AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jónas Haraldsson DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjóm: 550 5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsingan augiys- ingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000, - fax: 462 5001 Setnlng og umbrat Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerð og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endur- gjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Efni blaðsins Vonir um hærra kjötverð með nýrri tækni - frétt bls. 4 Ávinningur af breyttum lögum um þungaskatt - frétt bls. 6 Vöðvabúnt í kosninga- baráttu - frétt bls. 14 Virkilega blaut helgi - Helgarblað bls. 18-19 Gullnu reglur Feng Shui - Helgarblað bls. 26-27 Kubb leikið hérlendis - Helgarblað bls. 28 Fara í leikinn fyrir 3 stig - DV Sport bls. 40 Verðsprengja FASTEIGNIR: ÁvefFjarða- byggðar segir að fasteignaverð hafi rokið upp og skortur sé á leiguhúsnæði. Mikil fasteigna- sala hefur leitt til þess að sölu- verð er um 60% hærra en fast- eignamatið. Hafa bæjaryfirvöld vakið athygli Fasteignamatsins á þessu og vonast eftir leiðrétt- ingu. Hefur leiguverð íbúða hækkað við aukna eftirspurn. Banaslys BANASLYS: Karlmaður, 24 ára, beið bana í fjórhjólaslysi á Arnarvatnsheiði upp úr hádegi á fimmtudag. Virðist maðurinn hafa misst stjórn á fjórhjólinu, lent út fyrir veg og kastastaf hjólinu. Maðurinn sem lést hét Skúli Már Níelsson, búsettur að Laugarbakka. Hann var 24 ára og lætur eftir sig unnustu. Hrefnugrill ÖGRUN: Nokkrir ungir menn tóku sig til og settu upp einnota grill á hafnarbakkan- um þar sem Rainbow Warrior, skip Grænfriðunga, liggur bundið við bryggju. Skelltu þeir hrefnukjöti á grillið í von um að hrekkja skipverjana. Þeirgrilluðu hins vegar óáreittirog gerðu kjötinu ágæt skil. Fyrsta kvennablaðið á grænlensku - íslenskur ritstjóri: Tvær erfiðar fæðingar Hún er við nám í Blaðamanna- skóla Grænlands, er ritstjóri fyrsta kvennablaðsins á græn- lensku og nýbökuð móðir. Inga Dóra Guðmundsdóttir er íslensk í föðurætt. í fyrsta blaðinu væri m.a. fjallað um innréttingar íbúða, bækur, fbt, stjömuspá o.fl. Þá væri meginþema í blaðinu, þar sem fjallað væri um hinn illvíga sjúkdóm krabbamein og sorgina í kringum hann. „Þetta vom tvær erfiðar en yndis- legar fæðingar," sagði Inga Dóra Guðmundsdóttir Markussen, rit- stjóri nýs grænlensks kvennablaðs sem kom í fyrsta sinn út þar í landi í gær. Sl. mánudag ól Inga Dóra svo son, sem var 57 sentímetra langur og 4 kg og 385 grömm. Myndarlegur piltur það. Nýja blaðið er 56 síður að stærð og hefur hlotið heitið „Arnanut" sem þýðir einfaldlega: „Fyrir konur“. Þetta er í fyrsta skipti í blaðasögu landsins sem slfkt blað kemur út á grænlensku. Hingað til hafa Græn- lendingar einungis keypt dönsk blöð af þessu tagi. Það er fréttablaðið „Sermitsiaq" sem gefur nýja blaðið út. Inga Dóra sagði í spjalli við DV í gær að blaðið kæmi út á þriggja mánaða fresti til að byrja með. Það væri mjög litrfkt, með mörgum myndum - blanda af hinum ýmsu blöðum sem þegar væm á markaði. Helst mætti bera það saman við Nýtt líf eða Mannlíf hér á landi og Alt for Dameme og Femina, svo dæmi væm nefnd. Nemur í blaðamannaskóla Inga Dóra er nú að hefja nám á síðasta misseri í Blaðamannaskóla Grænlands, sem er til húsa í Nuuk, þar sem hún er raunar búsett. Hún býst við að ljúka námi f janúar næst- komandi. Inga Dóra er dóttir hjón- anna Benediktu og Guðmundar Þor- steinssonar, sem búa í Hafn- arfirði. Sjálf hefur hún búið í Grænlandi síðan 1984. „Móðir mín er grænlensk svo ég er hálfur Grænlend- ingur," sagði hún við DV og bætti við að hún væri gift grænlenskum manni og ætti nú tvö lítil böm. Það er því ljóst að brautryðjandinn Inga Dóra hefur mörg jám eldinum: námið, barna- uppeldi og ritstjóm nýja blaðsins. Enda segist hún ekki vera á leiðinni til íslands. „Það er svo margt skemmtilegt að gerast og lífið er satt að segja þræl- spennandi," sagði hún og bað fyrir bestu kveðjur heim. jss@d.is KIIblJUKI IUNNUM: Inga Dóra Guðmundsdóttir Markussen, ritstjóri nýja kvennablaðsins, með son sinn, taeplega vikugamlan, (fanginu. Á innfelldu myndinni er forsíða fyrsta kvennablaðsins I sögunni sem kemur út á grænlensku. Vopnaðir þjófar stálu kanarífugli Vopnaðir ræningjar réðust að manni í Rio de Janeiro f Brasilíu á dögunum og hrifsuðu af honum kanarífugl- inn hans. Fuglseigandinn, Sil- vio Luis Pereira, hefur boðið rúmlega hundrað þúsund krónur þeim sem getur upplýst um vemstað fúglsins. „Fuglinn minn er ómetan- legur. Hann söng 238 sinnum í keppni og það er met,“ sagði Pereira. Lögreglan rannsakar þjófn- aðinn. „Þetta er allt saman hálffáránlegt en við verðum að taka það alvarlega," sagði tals- maður yfirvaldsins. Par svarar til saka fyrir dómi: Ákært fyrir vændi fslenskt par sem býr í Dan- mörku mun mæta fyrir dóm í Hafnarfirði í næstu viku og svara til saka í óvenjulegu sakamáli þar sem þau eru bæði ákærð fyrir að hafa haft fram- færslu af því að konan, sem er 25 ára, seldi líkama sinn. Þetta er því með öðrum orðum vændismál eins og það hefur gjarnan verið kallað manna á milli. HVERJIR ERU 0DYRASTIR? Svartar-Bláar-Dökkgraar-Ljósgráar SKOLABUXUR KR. 490 Opnurtarlími: Virkirdagar kl. 10-18 Laugardagar kl. 11-16 Sunnudagar kl. 12-16 FATALAND Fákafeni 9 • Reykjavík Dalshraun 11 • Hafnarfirðf Eftir rannsókn lögreglu og ákærumeðferð ríkissaksóknara þykir yfirvöldum ljóst að parið hafi haft 9 milljónir króna í brúttótekjur upp úr krafsinu. Þarna er um að ræða tímabilið frá 5. júní á síðasta ári fram til 27. febrúar síðastliðins, eða tæpa níu mánuði. Konan var ekkert að fara í launkofa með þjón- ustu sína - auglýsti hana á vefsíðu - erótískt nudd, samfarir og munn- gælur. Ríkissaksóknari ákærir konuna fyrir að hafa veitt „fjölda karl- manna" kynlífsþjónustu á heimili sínu í Hafnarfirði, á gistiheimili þar í bæ en einnig í bílskúr við íbúðar- hús í bænum. Konan fór ekki í laun- kofa með þjónustu sína - auglýsti erótískt nudd, samfarir og munngælur á Netinu. Maðurinn er 37 ára. Hann er ákærður fyrir að hafa haft viður- væri sitt af þeim tekjum sem konan aflaði með því að stunda vændið. Þarna er átt við síðari hluta árs 2002 og til febrúarloka. Hann að- stoðaði konuna við starfsemi hennar með því að uppfæra vefsíð- una, taka af henni ljósmyndir sem þar birtust og leggja hluta af tekj- um ýmist inn á eigin bankareikn- ing eða reikning hennar en einnig að færa fé á milli reikninga, segir í ákæru. Hún játar, hann neitar Þegar réttur verður settur í Hér- aðsdómi Reykjaness í næstu viku Talin hafa stundað vændi Frétt DV frá 20. júní verða þinghöldin haldin fyrir lukt- um dyrum. Sumum kann að leika forvitni á að vita hvort karlmenn - viðskiptavinir konunnar - verði leiddir sem vitni. Svo verður hins vegar ekki - að minnsta kosri að svo stöddu. Ástæðan er sú að konan viðurkennir vændið. Það er því eng- inn ágreiningur milli hennar og ákæruvaldsins um að hún hafi stundað þá iðju sem henni er gefin að sök. Konan neitar því að hafa haft það sem aðalframfærslu að selja líkama sinn og þjónustu, tengda því. Þremur dómurum í málinu kann því að leika forvitni á að vita hvernig fólk getur fengið 9 milljónir króna á tæplega níu mán- aða tímabili - og það án þess að hafa viðkomandi iðju sem aðal- framfærslu. Þetta mun væntanlega allt skýr- ast þegar réttarhöldin fara fram. Þá mun einnig koma í ljós hvers vegna konan heldur því fram að hún álíti ekki að hún hafi framið lögbrot með starfsemi sinni, en því hefur hún haldið fram til þessa. Maðurinn neitar alfarið að viðurkenna það sem honum er gefið að sök. Fjórir lögreglumenn sem komu að rannsókninni verða spurðir út í ýmsa hluti, tengda málinu, þegar réttur verður settur. onar@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.