Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2003, Blaðsíða 53
LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2003 TILVERA 57
Sjötíu ára
Fjörutíu ára
fyrrv. húsfreyja og bóndi á Egilsstöðum og gjaldkeri á Hvanneyri
Guðrún Gunnarsdóttir, húsfreyja
og bóndi á Egilsstöðum og gjald-
keri við Landbúnaðarháskólann á
Hvanneyri, Ásvegi 6, Hvanneyri,
verður sjötug á morgun.
Starfsferill
Guðrún fæddist á Gestsstöðum í
Norðurárdal í Borgarfirði. Hún lauk
prófum frá Héraðsskólanum í
Reykholti og síðar frá Samvinnu-
skólanum 1954.
Guðrún starfaði hjá Kaupfélagi
Héraðsbúa á Reyðarfirði 1954-56,
var húsfreyja og bóndi á Egilsstöð-
um 1956-86, starfaði jafnframt um
skemmri tíma hjá Kaupfélagi Hér-
aðsbúa á Egilsstöðum, hjá Bruna-
bótafélagi fslands og Gistihúsinu á
Egilsstöðum. Hún stundaði síðan
gjaldkera- og skrifstofustörf hjá
Landbúnaðarháskólanum á
Hvanneyri á árunum 1986-2002.
Guðrún starfaði að kvenfélags-
málum á Héraði og gerir enn í
Borgarfirði, var umsjónarmaður
Orlofssjóðs húsmæðra á Austur-
landi um níu ára skeið, var félagi í
hestamannafélaginu Freyfaxa um
árabil og formaður þess í þrjú ár og
sat um árabil í stjórn Landssam-
bands hestamannafélaga, fyrst
kvenna.
Á síðustu misserum hefúr hún
verið félagi í ljóðahópnum fsabrot
sem er klúbbur áhugafólks um
ljóðagerð í Borgarnesi og nærsveit-
um. Hún hefur ort ljóð og samið ör-
sögur en fáein Ijóð hennar hafa
birst á prenti. Þá er hún áhugamað-
ur um handavinnu hvers konar og
ástíðufúll prjóna- og saumakona.
Fjölskylda
Guðrún giftist 25.12. 1956 Ingi-
mar Sveinssyni, f. 27.2. 1928, fyrrv.
bónda og kennara við Landbúnað-
arháskólann á Hvanneyri. Hann er
sonurSveins Jónssonar, f. 8.1.1893,
d. 26.7. 1981, bónda og oddvita á
Egilsstöðum, og k.h., Sign'ðar
Sjötíu ára
íyrrv. skólastjóri
Höskuldur Goði Karlsson, fyrrv.
skólastjóri, Höfðabrekku 29a,
Húsavík, verður sjötugur á morg-
un.
Starfsferill
Höskuldur fæddist á Akureyri og
ólst þar upp. Hann lauk íþrótta-
kennaraprófi frá íþróttaskólanum á
Laugarvatni 1952, stundaði nám í
íþróttafræðum í Danmörku
1974-75 og hefur sótt fjölda nám-
skeiða.
Höskuldur var kennari á Eyrar-
bakka, Stokkseyri, Ásgarði í Kjós, í
Ólafsfirði og í Keflavík 1952-60, var
forstöðumaður Sundlaugar Vestur-
bæjar 1960-65, kennari við Sam-
vinnuskólann á Bifröst 1965-69,
forstöðumaður Laugardalshaliar-
innar í Reykjavík 1969-71, kennari
við Reykjaskóla í Hrútafirði
1971-79, FB 1979-81, skólastjóri
Laugargerðisskóla á Snæfellsnesi
1981-98, og stundakennari við
Borgarhólsskóla á Húsavík frá
1999. Hann er nú starfsmaður
skjalasafhs SÍS á Húsavík.
Höskuldur var þjálfari hjá ýms-
um héraðssamböndum 1954-81,
framkvæmdastjóri Æskulýðsráðs
Fanneyjar Jónsdóttur, f. 8.2. 1894,
d. 14.9. 1998, húsfreyju og hótel-
haldara á Egilsstöðum.
Börn Guðrúnar og Ingimars eru
Sigríður Fanney, f. 23.4.1957, cand.
tec. soc., búsett í Kaupmannahöfn,
en maður hennar er Lars Christen-
sen og eru börn þeirra Magnús
Larsson og María Larsdóttir; Gunn-
ar Snælundur, f. 19.2. 1960, cand.
agr., búsettur í Kaupmannahöfn,
en kona hans er Anne Mette Skov-
hus og eru börn þeirra Maren Krist-
ín, Markús Snælundur og Anna
Vigdís; Kristín María, f. 31.3. 1962,
myndlistarmaður og kvikmynda-
teiknari, búsett í Mosfellsbæ, en
maður hennar er Jóhannes Eyfjörð
og eru börn þeirra Guðrún Ýr og
Matthías; Ásdís, f. 7.11.1967, kenn-
ari í Borgarnesi; Sveinn Óðinn, f.
Keflavíkur 1957-60, sat í stjórn
Frjálsíþróttasambands íslands
1959- 60, rak sumaríþróttaskóla,
ásamt Vilhjálmi Einarssyni,
1960- 70, var forstöðumaður ÍSI að
Laugarvatni 1967-74, og erindreki
ÍSÍ 1967-68. Hann var í landsliði ís-
lands í frjálsum íþróttum 1953-57
og var sæmdur gullmerki FRI 1964
og gullmerki ÍSÍ1981.
Fjölskylda
Höskuldur kvæntist 28.2. 1957
Guðnýju Helgu Árnadóttur, f. 1.11.
1937, kennara. Hún er dóttir Árna
Þorsteinssonar skipstjóra og
Jennýjar Lovísu Einarsdóttur hús-
móður sem bæði eru látin.
Börn Höskuldar og Guðnýjar
Helgu eru Þorbjörg Ágústa, f. 18.3.
1958, starfsmaður Islandspósts, gift
Guðmundi Rúnari Gunnarssyni,
rafvirkja og sjómanni, og eru börn
þeirra Hallveig Hörn, f. 15.10.1980,
verslunarmaður, Höskuldur Goði,
f. 3.2. 1987, nemi, og Hjörtur, f.
12.10. 1989; Ásdís Þrá, f. 29.8. 1959,
háskólanemi, gift Ásmundi Magn-
ússyni tæknifræðingi og eru dætur
þeirra Guðný Helga Herbertsdóttir,
f. 18.11. 1978, háskólanemi, og
2.11. 1972, vélstjóri á Selfossi, en
kona hans er Guðrún Halldóra Vil-
mundardóttir skrifstofumaður og
er sonur þeirra Ingimar Örn.
Systkini Guðrúnar: Guðmundur
Kristinn Gunnarsson, f. 30.8. 1930,
búsettur á Akureyri; Jóhanna
Gunnarsdóttir, f. 22.10. 1931, bú-
sett í Kópvogi; Sesselja Þorbjörg
Gunnarsdóttir, f. 17.11. 1934, bú-
sett í Reykjavík.
Foreldrar Guðrúnar voru Gunnar
Guðjónsson, f. 7.9. 1899, d. 5.1. j
1948, og k.h., Kristín María Jó- j
hannsdóttir, f. 22.6. 1894, d. 25.8.
1987, bændur að Gestsstöðum og
Hafþórsstöðum í Borgarfirði.
Guðrún verður að heiman á
afmælisdaginn.
Katrín, f. 13.4. 1992; Hallveig Björk,
f. 1.3. 1965, kennari, en hennar
börn eru Hlíf, f. 1.7. 1987, nemi,
Pétur Geir, f. 15.3. 1993, og Vigfús
Karl, f. 5.4. 1994; Haildís Hörn, f.
5.10. 1967, kennari, en maður
hennar er Henrik Holm markaðs-
stjóri og er dóttir hennar Jónína
Björk Þorgrímsdóttir, f. 5.5. 1995.
Systldni Höskuldar: Kári, f. 17.8.
1919, nú látinn, póstmaður; Gunn-
ar, f. 5.6. 1923, nú látinn, iðnverka-
maður; Skarphéðinn, f. 18.8. 1925,
nú látinn, kjötiðnaðarmaður; Ás-
dís, f. 6.6. 1935, kennari; Þráinn, f.
24.5.1939, leikari.
Foreldrar Höskuldar voru Karl
Valdimar Sigfússon, f. 9.12.1886, d.
25.7. 1962, smiður, og Vigfúsa Vig-
fúsdóttir, f. 28.12. 1899, d. 23.5.
1967, húsmóðir.
HöskuldurGoði Karlsson
Sverrir Stormsker
tónlistarmaður og rithöfundur
Sverrir Stormsker, tónlistarmað-
ur og rithöfundur, er fertugur í dag.
Starfsferill
Sverrir fæddist í Reykjavík. Hann
var einn vetur í myndlistarnámi f
Vín, einn vetur í auglýsingasálfræði
í Boston og tvo vetur í tónbók-
menntum, tóngreiningu og hljóm-
fræði í San Diego.
Sverrir hefur verið tónlistarmað-
ur, rithöfundur og auglýsingagerð-
armaður frá 1983. Hann sá um við-
talsþáttinn í messu hjá Stormsker á
Útvarpi Steríó, 2001, og var með
vikulega pistla í þættinum ísland í
bítið á Stöð 2, 2002.
Sverrir lék með hljómsveitinni
Exodus,1975; Amen, 1984, og
Stormsveitinni, 1987. Hann hefur
gefið út eftirtaldar sólóplötur:
„Hitt“ er annað mál, 1985; Lífsleið-
in(n), 1986; Ör-lög, 1987; Storm-
skers guðspjöll (tvöfalt albúm),
1987; Nú er ég klæddur og kominn
á rokk og ról (barnaplata), 1988;
Nótnaborðhald, píanóverk,1988;
Hinn nýi íslenski þjóðsöngur, 1989;
Glens er ekkert grín, 1990; Greatest
Shits (úrval 1), 1991; Ör-ævi, 1993;
Tekið stórt uppí sig, 1995; Tekið
stærra uppí sig, 1996; Best af því
besta, úrval 2, 2002.'Auk þess hafa
komið út textar og lög eftir hann á
annarra plötum og safnplötum.
Bækur Sverris: Kveðið í kútnum,
ljóð, 1982; Bókin, trébók í 7 eint.,
1983; Vizkustykki, ljóð, 1991;
Stormur á skeri, frumsamdir máls-
hættir, 1993; Með ósk um bjarta
framtíð, ljóð, 1997; Orðengill,
frumsamin nýyrðabók, 1997; Hroll-
vekjur og hugvekjur, pistía- og
greinasafn, 2002.
Sverrir hélt málverkasýningu
með systkinum sínum, Stefáni
Ólafssyni og Gunnellu, í Gallerí
Borg 1993. Hann sigraði í forkeppni
Sjónvarpsins um framlag fslands til
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva 1988, með lagi sínu, Þú
og þeir. "<■
Fjölskylda
Dóttir Sverris er Hildur Storm-
sker Sverrisdóttir, f. 1.9.1989.
Systkini Sverris: Stefán Ólafsson,
f. 23.8. 1952, offsetprentari og gler-
listamaður; Guðrún Elín Ólafsdótt-
ir (Gunnella), f. 6.7. 1956, listmál-
ari; Ólafúr Ólafsson f. 12.12. 1959,
bíla- og flugvélamálari.
Foreldrar Sverris: Ólafúr Berg-
man Stefánsson flugumsjónar-
maður og Vilhelmína Norðfjörð^-
Baldvinsdóttir, matreiðslumeistari
og gerlafræðingur.
Sverrir verður að heiman og út
úr heiminum á afmælisdaginn.
Blóm og kransar vinsamlegast af-
þakkaðir, svo og annar trjágróður
og vafningsjurtir. Peningar leggist
inn á reikning nr. 301-26-3992. Kt:
060963-4879.
Sjötíu ára
Kristján S. Sigurjónsson
húsgagnasmiðurog starfsmaðúr Orkuveitu Reykjavíkur
Kristján Stefán Sigurjónsson
húsgagnasmiður, Hamraborg 16,
Kópavogi, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Kristján fæddist í Ólafsvík en ólst
upp á Hellissandi og á Akanesi.
Hann lærði húsgagnasmíði hjá Ást-
ráði Proppé á Akranesi.
Kristján starfaði á trésmíðaverk-
stæði Landspítalans, starfrækti
eigið verkstæði, ásamt Þorgeiri
Gíslasyni, Diddi og Geiri, upp úr
1960, og starfrækti fyrirtækið
Tréfang, með Einari Sturlaugssyni
snemma á áttunda áratugnum.
Síðustu árin hefur Kristján starf-
að hjá Orkuveitu Reykjavíkur.
Fjölskylda
Eiginkona Kristjáns er Helga
Kristjánsdóttir frá Þingeyri, f. 26.8.
1934, húsmóðir. Hún er dóttir
Kristjáns Einarssonar, bónda f
Hvammi í Dýrafirði, og k.h., Önnu
Jónsdóttur kjólameistara.
Börn Kristjáns og Helgu eru Sig-
urjón, f. 1962, grafískur hönnuður í
Hafnarfirði; Jónína, f. 1963, hag-
fræðingur hjá SPRON, gift Magnúsi
E. Kristjánssyni markaðsfræðingi
hjá Fróða; Freyja, f. 1965, tónlistar-
kennari á Egilsstöðum, gift Thor-
vald Gjerde tónlistarskólastjóra;
stúlka fædd 1969, d. sama ár; Arnar
Logi, f. 1973, málari í Reykjavík; Júl-
fus Steinn, f. 1975, sálfræðingur og
starfsmannastjóri, í sambúð með
önnu Lísu Rasmussen, rekstrar-
stjóra hjá Hýsingu. Bamabörnin er
Ijórtán talsins. v
Stjúpsynir Kristján, sem Helga
átti fyrir, em Hörður Þorbergur
Garðarsson, f. 1956, byggingaverk-
fræðingur, í sambúð með Margréti
Pétursdóttur leikskólakennara;
Kristján Þór Gunnarsson, f. 1958,
matvælafræðingur og fiskútflyt-
andi, kvæntur Guðrúnu Huldu
Birgis, ferðafræðingi.
Systkini Kristjáns: Steinar, f.
1928, d. 1992, skáld og rithöfundur
í Reykjavík; Ólafía Oddný, f. 1929,
húsmóðir á Akureyri; Hreiðar Haf-
berg, f. 1931, búsettur í Bandaríkj-
unum; Sævar, f. 1932, lést ungur
sjóslysi.
Foreldrar Kristjáns vom Sigurjón
Kristjánsson, f. 1902, d. 1989, skip-
stjóri á Hellissandi og á Akranesi,
og k.h., Sigríður Ólafsdóttir, f. 1906,
d. 1987, húsmóðir.
Kristján og fjölskylda samfagna
þessum tímamótum og sigri ís-
lenska landsliðsins í dag.