Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2003, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2003, Blaðsíða 34
38 DV HELCARBLAÐ LAUOARDAGUR 6. SEPTEMBER 2003 Helga hefur teklð vlðtöl vlð skjólstæðlnga sína og lagt fyrir þá viðkvæmar spurningar um hvernig þeir vilji mæta dauðanum - spurningar sem eru mótaðar frá sjónarhóli læknisins. Leik- arar hafa skráð og endurflutt viðtöl Helgu fyrir útvarp og sett inn í rými sem verður í heiid sinni' ■ eins konar memento mori, áminning um dauð- bundið. Þess vegna minnir þessi sýning okkur jafn- framt á vanmátt tækninnar andspænis hin- um endanlega sannleika dauðans, andspæn- is hinum óhjákvæmilega harmleik mannlegr- ar tilveru. Sá sannleikur er jafnframt markað- ur sársaukanum, og hann stendur utan og of- an við allar mælistikur og kvarða reiknings- listarinnar. Endanlega spurningin snýst ekki um rök reikningslistarinnar og tungumáls- ins, heldur hvort við kjósum heldur að lina þjáninguna með ópíum eða morfíni. Það reynist endanlega hin blinda von Promeþeifs, sem hann gaf manninum ásamt með reikningslistinni og tæknikunnáttunni. Mynd Holbeins Sú mynd sem Magnús Pálsson hefúr dreg- ið upp með þessum óvenjulega efniviði á sér ýmsar hliðstæður í sögu myndiistarinnar. Mér kemur í hug mynd sem þýski málarinn Hans Holbein (1497-1543) máíaði í London árið 1533 af „Sendiherrunum". Mynd þessi, sem er ein af helstu gersemum National Gall- ery í London, sýnir tvo karlmenn í nánast fullri líkamsstærð. Þeir standa uppréttir og uppstilltir eins og við ljósmyndatöku og hvfla hönd á dúklagðri hillu sem er hlaðin tólum og tækjum vísinda og lista. Mennimir tveir eru nafngreindir sem sendiherra Frakklands í Lundúnum og vinur hans og samlandi úr stétt guðfræðinga. Þeir bera það með sér að þeir hafi fulla stjórn á sjálfum sér og umhverfr sínu í krafti þekkingar sinnar á vísindum og listum. Annar þeirra hefúr yfirbragð veralds- legs valdsmanns, hinn ber með sér geistlegt yfirbragð. Hnattlíkön, tæki tii rannsóknar á sólargangi og tímatali, hljóðfæri, fræðibækur og lúthersk guðsorðarit em til vitnis um þekkingu þeirra og vald. Bakgrunnurinn er íburðarmikið grænt sUkitjald með rósaflúri. Efst tU vinstri hangir lítil mynd af Kristi á krossinum. Gólfið er steingólf með mósaík, ann. Prómeþeifur var guðinn sem færði mann- inum eldinn og þar með tæknikunnáttuna sem gerði honum kleift að losa sig úr viðjum hinna blindu náttúmafla til þess að byggja framtíð sína á vísindalegri þekkingu og tækni. Með því að ganga inn í heim tækninn- ar leitaðist maðurinn við að rjúfa þá hringrás náttúmnnar sem allt líf var undirorpið í ár-» daga. Eldur Prómeþeifs ger<3i manninum mögulegt að skapa merkingu úr tilvem sinni og í þeim skilningi að greina sig frá dýrnm merkurinnar. Með gjöf sinni, sem > Promeþeifur hafði stoiið: frá Seifi alföður, hafði hann gert manninn nánast jafnoka guðanna f öllu nema einu: Hann þurfti óhjá- kvæmUega að deyja en guðirnir vom ódauð- legir. Eini munurinn var sáað eldur Seifs kom af himni ofan í formi eldingar en eldur mannanna var bundinn jörðinni og líf þeirra og tilvist mörkuð dauðanum. Þetta þýddi meðal annars að sjúkdómur- inn var ekki lengur tilkominn vegna þess að maðurinn ætti að deyja og þyrfti nauðsyn- lega að deyja, eins og það var í árdaga, heldur varð hann smám saman skilgreindur sem bil- un í því kerfi sem læknisfræðin á að viðhalda - út yfir hina blindu von. Það er eðli tæknirmar og sögu framfaranna að storka upprunalegri hringrás náttúmnnar og beygja hana undir vilja og blinda von mannsins fram yfir rauð- an dauðann. Prómeþeifúr hlaut grimmilega refsingu fyrir agabrot sitt og þann hroka sem Seifur taldi í því fólginn: Hann var hlekkjaður fastur á íjallstind þar sem öm átti að nærast 'á lifur hans um alla framtíð eða „unz eilífðin er tæmd," eins og segir í þýðingu Helga Hálf- danarsonar á harmleik Æskflosar um þessa goðsögn. í leikritinu segir Prómeþeifur mennina hafa verið fávísa þar til hann kenndi þeim að greina rétt frá röngu: „þeir höfðu sjón en sáu þó til einskis gagns; þeir höfðu heym en skildu samt hvórki eitt né neitt; þeir létu lífið streyma hjá sem drauma- myndir, allt var óskapnaði líkt... Svo kenndi ég þeim líka reikningslist, sem æðst er vís- inda, og leturgerð sem geymir allt í minni og hverri menntagrein er fóstra sönn ...“ Grískir harmleikir í þýðingu Helga Hálfdánarsonar, Mál og menning 1990, Æskflos: Prómeþeifur, bls. 211. Prómeþeifur segist líka hafa kennt mönn- unum læknislistina og þá list „að þekkja og byrla lyf, sem gátu lfknað vel í sjúkdóms kröm og þungum þrautum af þeim létt“. En merkilegast af öllu er þó sú játning hans að hann haf! létt af mönnum vitundinni um dauðann með því að „gróðursetja blinda von í brjósti þeirra". Sama, bls. 206. Dauðinn merkir skipbrot allrar þeirrar merkingar sem maðurinn hefur byggt upp með lífi sínu og starfi og bundið í minni tungumálsins. Með dauðanum þurrkast minnið út og merkingin hverfur. Hin mesta náðargjöf Prómeþeifs var því sú að létta af mönnum vitundinni um dauðann og sá blindri von í brjóst þeirra. Magnús og Helga vinna saman Sú sýning sem hér hefur verið unnin í sam- vinnu Magnúsar Pálssonar myndlistarmanns og Helgu Hansdóttur öldrunarlæknis fjallar með óbeinum hætti um þá harmsögulegu þversögn sem hér um ræðir. Helga hefur tek- Sendlherramin Mynd sem þýski málarinn Hans Holbein (1497-1543) málaði í London árið 1533 af „Sendiherrunum". I grein þessari fjallar Ólafur Gíslason um sýningu Magn- úsar Pálssonar og Helgu Hannesdóttur sem var opnuð á fimmtudag í Listasafni Reykjavlkur. ið viðtöl við skjólstæðinga sína og lagt fyrir þá viðkvæmar spurningar um hvernig þeir vilji mæta dauðanum - spurningar sem eru mót- aðar frá sjónarhóli læknisins. Leikarar hafa skráð og endurflutt viðtöl Helgu fyrir útvarp og sett'inn í rými sem verður í heild sinni eins konar memento mori, áminning um dauð- ann. í rými þessu sjáum við, auk útvarpstækj- anna er flytja viðtölin, háþróaðan tæknibún- að læknislistarinnar sem opnar fyrir okkur lifandi kviku og leyndardóm mannslflcam- ans, hjartsláttinn og andardráttinn. Því hefur verið haldið fram að á meðan reglubundin hegðun dýranna í heild sinni ráðist af eðlis- hvötinni þá gegni öðru máli um manninn. Þar er eina reglufestan fólgin í taktfastri end- urtekningu hjartsláttar og andardráttar. Þess vegna er lfldngamál um sál mannsins gjarnan bundið við anda og hjarta í flestum tungu- málum, sbr. Umberto Galimberti: Psiche e techne, L’uomo nell’etá della tecnica, Milano 1999, bls. 93. Reglufestan í þessari lflcams- starfsemi verður grunnurinn að samskiptum líkamans við umheiminn og leit mannsins að reglufestu í náttúrunni og umhverfinu. Þessi taktfasta regla hjartsláttarins og andar- dráttarins vitnar um um órofa tengsl lflcam- ans (og sálarinnar) við náttúruna og jörðina. Enn sem komið er hefur tækninni ekki tekist að slíta þeim tengslum nema kannski tíma- Prómeþeifur: Já, víst er mínum vinum raun að sjá mig hér. Kór: En hefurþú auk þessa framið eitthvert brot7 Prómeþeifur: Ég létti af mönnum vitund um sín ævilok. Kór: Hver var sá iæknisdómur er þar dugði bextl Prómiþeifur: Ég gróðursetti blinda von í brjósti þeim. Kór: Þar hefur þú veitt hinum feigu sanna líkn. Æskllos: Prómeþeifur sem mun vera það sama og er að finna í Westminster Abbey f London. Myndin er öll máluð af raunsæislegri nákvæmni þar sém sérhver hlutur er í réttu hlutfalli við heildina og öllum reglum fjarvíddarglugga endur- reisnarinnar fylgt til hins ýtrasta. Að öllu leyti nema einu: á gólfinu fyrir miðri mynd sjáum við undarlegan hlut, sem við nánari athugun reynist vera skekkt mynd af hauskúpu, sem eins og hangir í lausu lofti. Mynd sem virðist kippa grundvellinum undan fúllvissu þess vaids og þeirrar sjálfsstjórnar sem mennimir standa fyrir. Hauskúpan er að sjálfsögðu al- gengt tákn um fallvaltleikann og dauðann í myndlist 16. aldar, en það hvernig Holbein málar hana með meðvitaðri sjónskekkju virðist undirstrika með afar óvæntum hætti þá þversögn sem dauðinn ber með sér: hann grefur ekki bara undan dýrð valds og virðing- ar, vísinda og lista, heldur mglar hann líka reglum allrar þeirrar rökhyggju, sem sjálf bygging myndarinnar stendur annars fýrir með afgerandi hætti. Vissulega em aðferðir þeirra Holbeins og Magnúsar Pálssonar við að túlka þetta við- fangsefni eins ólíkar og hugsast getur. En þegar betur er að gáð kemur í ljós að í verk- unum má finna sameiginlegan skilning á fall- valtleik þess tækniheims sem umlykur okkur og reynir sífellt og með öllum ráðum að telja okkur trú um að við séum ömgg og óhult. Tæknin sem Prómeþeifur færði manninum í árdaga er orðin örlög hans. Örlög sem hann hefur skapað sér, en kemst nú ekki undan. Það sem hefur breyst er kannski sú alvarlega staðreynd að maðurinn hefur ekki lengur tök á því hvert tæknin er að leiða hann. Á endan- um snýst spurningin ekki um það hvað við munum gera við tæknina til þess að skilja heiminn, heldur hitt, hvað tæknin mun gera við okkur til þess að skilja við heiminn. Ólafur Gislason ■ ■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.