Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2003, Blaðsíða 36
40 DVSPORT LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2003
Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari gerirsérþó grein fyrirþví að verkefnið verðurerfitt
íslenska landsliðið í knattspyrnu mæt-
ir því þýska á Laugardalsvellinum í
dag kl. 17.30 í undankeppni EM. Leik-
urinn er einn sá mikilvægasti sem ís-
lenskt landslið hefur leikið frá upphafi
enda er liðið í efsta sæti riðilsins og
getur með sigri í leiknum farið lang-
leiðina með að tryggja sér eitt af
tveimur efstu sætunum í riðlinum. DV
Sport hitti Ásgeir Sigurvinsson lands-
liðsþjálfara í gærmorgun og ræddi við
hann um leikinn.
„Ég verð að viðurkenna það að ég er orðinn
verulega spenntur íyrir leiknum," sagði As-
geir í gærmorgun þegar blaðamaður DV
Sports settist niður með honum.
„Trú mín á góðum úrslitum í leiknum hefur
eiginlega aukist eftir því sem liðið hefur á vik-
- una því að hópurinn virðist vera sér mjög vel
meðvitandi um mikilvægi verkefnisins sem
fram undan er. Það er góð stemning í hópn-
um og andinn er jákvæður. Það er engin
taugaveiklun í honum og mér finnst menn
tækla þetta álag mjög vel.“1
Varkárir í byrjun
Aðspurður sagði Ásgeir að hann myndi
leggja leikinn upp á svipaðan hátt og gegn Lit-
háum úti.
„Það liggur ljóst fyrir að við munum ekki
mæta Þjóðverjunum með neinni hápressu í
byrjun. Ef við gerum það er hætta á því að
Þjóðverjar refsi okkur grimmilega. Við þurf-
um að véra þéttir fyrir og passa að það mynd-
ist ekki svæði á miíli varnar, miðju og sóknar.
Ef það tekst er ég mjög bjartsýnn.
Ég hef reyndar sagt það áður að við þurfum
að skerpa miðjuspilið mikið til að eiga mögu-
leika í leiknum. Ég hef ekki verið ánægður
með það í neinum af þessum þremurleikjum.
Takturinn hefur einhvem veginn ekki verið til
^staðar og honum þurfum við að ná. Ég býst
við því að gera einhverjar breytingar á miðj-
unni en hverjar þær verða koma í ljós á morg-
un [innsk. blm. í dag].“
Rúnar bestur gegn stórþjóðum
Rúnar Kristinsson hefur ekki fundið sig í
síðustu landsleikjum og Ásgeir sagði það vera
mjög mikilvægt fyrir liðið að hann næði sér á
strik f leiknum.
„Ég get ekki tekið undir það að Rúnar hafi
ekki sýnt sitt rétta andlit að undanförnu. Við
höfum rætt saman og farið yflr þá hluti sem
hafa misfarist og ég á von á Rúnari sterkum í
þennan leik. Það hefur verið vani hans að
spila vel á móti stórþjóðunum og ég trúi því
að hann geri það," sagði Ásgeir.
Breytt kerfi
Ásgeir sagðist hafa trú á því að Þjóðverjar
myndu breyta um leikkerfi íýrir leikinn.
„Þeir hafa spilað 4:4:2 í undanförnum leikj-
um en ég hef það á tilfinningunni að þeir
muni spila 3:5:2, sama kerfi og við spilum. Ég
er ekki frá því að það henti okkur betur því að
þá eiga þeir erfiðara með að tvöfalda á
vængmennina okkar. Það er í eðli Þjóðverja
að byrja rólega og ég hef ekki trú á því að þeir
„Okkur er ekki stætt á öðru en
en að fara í þennan leik fyrir
þrjú stig. Það væri gaman að
standa sig loksins þegar
þörfin ermest."
mæti okkur í byrjun með einhverjum látum.
Þeir eru þolinmóðir, halda boltanum ágæt-
lega og bíða færis. Ég er eiginlega hræddastur
við aukaspyrnunar hjá þeim því að þeir hafa
frábæra skotmenn eins og [Michael] Ballack,
[Sebastianl Deisler og [Bernd] Schneider.
Vörnin er kannski helsti veikleiki þeirra því að
hvorki Christian Wörns eða Frank Baumann,
sem ég tel mjög líklegt að byrji inn á, eru fljót-
ir. Miðjan er frábær hjá þeim og sóknarmenn-
irnir er stórhættulegir.
Þetta er frábært lið en langt frá því að vera
ósigrandi," sagðiÁsgeir.
Verja efsta sætið
Ásgeir sagði að menn gerðu sér grein fyrir
mikilvægi leiksins og þýðingu þess ef liðið
færi með sigur af hólmi.
„Það er kannski óraunhæft að ætlast til
þess að íslenska liðið vinni það þýska. Við
verðum alltaf litla liðið en knattspyrnan er
óútreiknanleg. Getumunurinn á liðunum er
töluverður en það geta aðrir hlutir spilað inn í
knattspyrnuleik. Okkur er ekki stætt á öðru en
en að fara í þennan leik fyrir þrjú stig. Það
væri gaman að standa sig loksins þegar þörfin
er mest en hefðin er með Þjóðverjum og þeir
hafa mun meiri reynslu af úrslitaleikjum
heldur en við.
Við mætum samt ekki með neina
minnimáttarkennd í leikinn. Við erum í efsta
sætinu og ætlum að reyna að verja það með
kjafti og klóm," sagði Ásgeir Sigurvinsson.
oskar@dv.is