Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2003, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2003
Schwarzenegger og kosningabaráttan:
Batnandivöðva-
búnti er best að lifa
FRÉTTAUÓS
Erlingur
Kristensson
erlingur@dv.is
Vöðvabúntið og Hollywoodleik-
arinn Arnold Schwarzenegger,
sem nú býður sig fram til emb-
ættis ríkisstjóra í Kaliforníu, hef-
ur ekki átt sjö dagana sæla að
undanförnu, eftir að gömlu
blaðaviðtali, sem tekið var við
kappann árið 1977 og birt í full-
orðinstímaritinu Oui, var laumað
inn á vefsíður vestanhafs en í
viðtalinu gortar þessi frægasti
frambjóðandi til ríkisstjóraemb-
ættisins meðal annars af vafa-
samri kynlífsreynslu sinni og við-
urkennir að hafa notað fíkniefni.
Þetta gamla glappaskot repú-
blikanans Amolds Schwarzeneggers
hefur að vonum farið fyrir brjóstið á
viðkvæmum og siðavöndum kjós-
endum og kallað fram efasemdir um
að hann sé hæfur til þess að gegna
svo mikilvægu embætti sem ríkis-
stjóraembætti Kaliforníu sé.
Meira að segja sumir liðsmenn
Repúblikanaflokksins, sem harðast
börðust fyrir því að fá kosningar end-
urteknar í ríkinu til þess að losna við
hinn óvinsæla demókrata Gray Dav-
Þetta gamla glappa-
skot repúblikanans
Arnolds Schwarzen-
eggers hefur að vonum
farið fyrir brjóstið á
viðkvæmum og siða-
vöndum kjósendum.
is úr stól ríkisstjóra hafa lýst
hneykslan sinni þótt þeir kalli ekki
allt ömmu sína á siðferðissviðinu
frekar en andstæðingar þeirra,
demókratar.
Ríki smjörs og hunangs
Davis, sem var fyrst kosinn ríkis-
stjóri í Kaliforníu árið 1998, náði
endurkjöri í fyrra með aðeins 47 pró-
senta stuðningi, sem er slakasti ár-
angur kjörins ríksistjóra í Kaliforníu
til þessa, enda fjárhagur ríkisins í
molum eftir fjögurra ára stjórnartíð
hans svo jaðraði við algjört gjaldþrot.
Ekki tók betra við í upphafí nýs kjör-
tímabils og stefnir nú í mesta fjár-
lagahalla í sögu ríkisins sem löngum
hefur verið kallað „ríki smjörs og
hunangs".
f kjölfarið varð Davis auðvitað fyr-
ir aukinni gagnrýni, sem varð til þess
að andstæðingar hans hófu undir-
skriftasöfnun þar sem krafist var
endurkosninga um það hvort svipta
eigi hann embætti og þá hver eigi að
taka við. .
Til þfess þurfti hátt f níu hundruð
þúsund undirskriftir atkvæðisbærra
Kaliforníubúa og tókst að sögn emb-
ættismanna að safna hátt í milljón
undirskriftum. Þar með voru endur-
kosningar tryggðar og fara þær fram
þann 7. október nk., þær fyrstu f
Bandaríkjunum síðan árið 1921 þeg-
ar rfkisstjóri Norður-Dakóta fékk
reisupassann.
Auk Schwarzeneggers hafa kjós-
endur úr 133 frambjóðendum að
velja en í upphafi sóttust 247 eftir að
komast í framboð en 112 var hafnað
auk þess sem einn heltist úr lestinni.
Strengjabrúða Bush?
Samkvæmt skoðanakönnunum
þykir líklegt að Davis fái að líta rauð
spjaldið, en sá sem þykir líklegastur
til að taka við er demókratinn og
vararíkisstjórinn Cruz Bustamante
sem þessa daga mælist með gott for-
skot á Schwarzenegger sem er í öðru
sætinu.
Aðrir frambjóðendur komast ekki
með tærnar þar sem þeir hafa hæl-
ana en þeir sem koma næstir eru
repúblikaninn og öldungadeildar-
þingmaðurinn Tom McClintock,
sem nú mælist í þriðja sætinu,
dálkahöfundurinn Arianna Huffing-
ton, sem býður sig fram óháð, fyrr-
um hafnaboltaumboðsmaðurinn
Peter Ueberroth, sem einnig er
óháður, og græninginn Peter
Camejo.
Öllum hefur þeim verið boðið að
taka þátt í þriggja þátta sjónvarps-
kappræðum sem hófust í fyrrakvöld
og þáðu þau það öll nema Szhwarz-
enegger sem segist frekar vilja eyða
dýrmætum tíma sfnum í meiri ná-
lægð við kjósendur.
Hann þáði þó að koma fram í síð-
asta þættinum, en þar fá frambjóð-
endur að sjá spurningarnar fyrir
fram. Þykir það sýna hræðslu
Schwarzeneggers við að mæta
keppinautum sínum þar sem tekist
er á um málefnin í rullulausum
kappræðum, en einnar línu frasar
þykja hafa einkennt kosningabar-
áttu hans til þessa og honum jafnvel
núið um nasir að vera ekkert annað
en strengjabrúða Bush Bandaríkja-
forseta.
Fljúgandi start
Eftir að hafa fengið fljúgandi start
í kosningabaráttunni, þar sem hann
mældist með yfir fjörutfu prósent,
hefur Schwarzenegger þurft að
glíma við hvern fortíðardrauginn á
fætur öðrum.
Áðurnefnt viðtal við fullorðins-
blaðið Oui er aðeins eitt þeirra, en
þykir þó það vandræðalegasta. Þar
lýsir Schwarzenegger óábyrgu lífs-
mynstri sínu á líkamsræktarárunum
þegar hann hnyklaði vöðvana fyrir
gesti og gangandi.
„Líkamsræktarmenn eru miklir
partíkarlar og einu sinni gekk svört
nakin stúlka í salinn. Allir hópuðust
að henni og fengu hana með sér upp
á loft þar sem við vorum öll saman,"
segir Schwarzenegger meðal annars
í viðtalinu.
Þegar hann er spurður hvort hann
hafi notað fíkniefni, svarar hann. „Já,
gras og hass en aldrei hörð efni."
Fyrstu viðbrögð Schwarzeneggers
við spurningum fréttamanna þegar
þeir spurðu hann út í viðtalið var að
segja að hann myndi lítið eftir því
sem gerst hefði fyrir tuttugu eða þrjá-
tfu árum. Hann reyndi að hlæja sig út
úr vandanum og sagði að auðvitað
hefði hann oft verið með fáránlegar
og hneykslanlegar yfirlýsingar á þess-
um árum.
„Þannig var ég og þetta var mín að-
ferð til þess að ná athygli. Öðruvísi
hefði ég aldrei komist þangað sem ég
ætfaði mér, fyrst í líkamsræktinni og
svo í skemmtanabransanum. Ég
reyndi allt sem ég gat,“ sagði
Schwarzenegger þegar fréttamenn
gengu á hann.
Vill heyra leynilegar skoðanir
Schwarzenegger tókst þó ekki að
sannfæra alla um sakleysi sitt og
meðal þeirra eru flokksmenn og ýms-
ir áhrifamiklir siðapostular sent
heimtað hafa nánari skýringar.
„Við höfum áhyggjur af þessu um-
tali um fjöllyndi frambjóðandans og
viljum að hann komi fram fyrir
skjöldu og segi okkur hvort hann hafi
hætt þessu þegar hann var 29 ára eða
haldið því áfram," sagði einn þeirra.
Aðrir hafa sýnt þessum vandræða-
gangi Schwarzeneggers minni áhuga
og meðal þeirra er áðurnefndur mót-
frambjóðandi hans, öldungadeildar-
þingmaðurinn Tom McClintock. „Ég
hef engan áhuga á kynlífi
Schwarzeneggers. Það sem ég hef
áhuga á að heyra eru leynilegar
stjórnmálaskoðanir hans,“ sagði Mc-
Clintock.
Þegar Schwarzenegger hafði sofið
á vandræðunum reyndi hann að
krafsa yfir hneykslið með því að segja
að hann hefði aldrei lifað lífinu með
það í huga að gerast stjórnmálamað-
ur. Hvað þá heldur ríkisstjóri í Kali-
forníu.
Innblástur frá Nixon
Umrætt viðtal við Oui-tímaritið er
ekki það eina sem íþyngir Schwarz-
enegger í kosningabaráttunni þvf í
nýlegu viðtali sagðist hann hafa orðið
fyrir innblæstri frá hinum smánaða
forseta Bandaríkjanna, Richard M.
Nixon.
Þar sagðist Schwarzenegger hafa
stutt Repúblikanaflokkinn alveg frá
því hann hlustaði á ræðu Nixons árið
1968, nokkrum árum áður en hann
varð að segja af sér forsetaembætti
eftir Watergate-hneykslið.
„Ég hlustaði á Nixon forseta tala
um írjálst framtak, lækkun skatta og
eflingu hersins," sagði Schwarzen-
egger og bætti við hann hann hefði
þá snúið sér að félaga sínum og sagt:
„Ég er sannur repúblikani. Þetta er sú
stefna sem ég hef trú á.“
„Líkamsræktarmenn
eru miklir partíkarlar
og einu sinni gekk svört
nakin stúlka í salinn.
Allir hópuðust að henni
og fengu hana með sér
uppáloft."
Þarna þykir Schwarzenegger hafa
skotið yfir markið í þeirri trú að hann
væri að höfða til íhaldssamra kjós-
enda en virðist þó hafa misreiknað
sig vegna vafasams orðspors Nixons.
Varði aðskilnaðarstefnuna
Schwarzenegger hefur einnig verið
nuddað upp úr því að hafa á yngri ár-
um verið haldinn kynþáttafordóm-
um en það var Rick Wayne, líkams-
ræktarfélagi Schwarzeneggers til
margra ára, sem nýlega hélt því fram
í viðtali við bandaríska fréttablaðið
San Jose Mercury.
Wayne, sem er svartur á hörund,
sagði að Schwarzenegger hefði varið
aðskilnaðarstefnuna í Suður-Afríku
og sagt að með því að afhenda svört-
um stjórn landsins væru hvítir að
steypa þjóðinni i glötun. „Á þeim
tíma hélt ég að hann væri algjör kyn-
þáttahatari," segirWayne íviðtalinu.
Á meðan helstu mótframbjóðend-
ur Schwarzeneggers tókust á f sjón-
varpssal á miðvikudaginn hélt hann
sjálfur kosningafund á skólalóð Kali-
forníu-háskóla þar sem einn nem-
andinn, væntanlega andstæðingur
Schwarzeneggers, kastaði í hann
eggi-
Schwarzenegger sló á létta strengi
og sagði að nú vantaði bara beikonið.
Síðan tók hann til við frasana og
byrjaði að spyrja sjálfa sig: „Arnold,
nú hefur þú lifað svo frábæru lífi. Þú
hefur þénað milljónir dollara á
kvikmyndunum og mörgu öðru. - Af
hverju viltu þetta? Og hann hét
áfram: „Allt þetta, frægðin, pening-
arnir, fjölskyldan og allt það sem ég
hef eignast og afrekað er Kaliforníu
að þakka," sagði Schwarzenegger,
sem segist bjóða sig fram í nafni
fólksins. „Ég vil að draumar þess
verði að veruleika."
HELSTU KEPPINAUTAR SCHWARZENEGGERS: Helstu kepppinautar Schwarzeneggers um ríkisstjóraembættið mættir til kappræðna í sjón-
varpssal á miðvikudaginn.