Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2003, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2003 DV HELGARBLAÐ 25
DV-myndir E.ÓI.
i
Hákon snyrtir flakið af laxinum
góða sem hann veiddi í
Miðfjarðará. Þegar hann
roðflettir vill hann ekki fara með
hnífseggina alveg ofan í roðið.
Soðnar gullaugakartöflurnar eru
helmingaðar með hýðinu á, velt
upp úr smjöri og fersku dilli og
síðan er grófu sjávarsalti stráð
yfir.
Að síðustu er smjörsósa sett á
diskinn en hún er gerð með því
að þeyta saman lint smjör og
örlítið hvítvín.
^AUCIO ni LA VEGA
CsiANJA
NAV\RRA
Cap
Royal
Öordeaun
Ferskt Bordeaux-hvítvín
og fyllt spænskt rauðvín
er val Ágústs Guðmundssonar hjá víndeild Globuss
Þegar fiskrétt eins og hér má sjá ber á
góma líður ekki á löngu áður en orðið
hvítvín kemur í hugann. Þó að ýmsar
þumalfingursreglur séu góðar og gildar
þar sem vín er annars vegar gildir þar
hið sama og á flestum öðrum sviðum, að
rétthugsunarofstæki og annað andlegt
harðlífi þrengir sjóndeildarhringinn og
setur fólki skorður í löngun sinni til að
upplifa spennandi hluti.
Þess vegna er þetta nefnt hér að það er
síður en svo goðgá að drekka rauðvín
með fiski, andstætt því sem margir
halda. Ágúst Guðmundsson, hjá vín-
deild Globuss, er sér meðvitandi um
þetta og þess vegna gefur hann fólki tvo
möguleíka í vali á víni með uppskerulax-
inum. Hann býður annars vegar upp á
klassíska lausn, ferskt hvítvín, og hins
vegar vandað spænskt rauðvín frá
Navarra sem er í Baskalöndunum, norð-
ur af Rioja. Hann hefur nefnilega á til-
finningunni að fólk drekki oftar en áður
rauðvín með fiskréttum. Nægir að nefna
saltfiskrétti í því sambandi.
Hvítvínið sem Ágúst mælir með að
þessu sinni kemur frá Bordeaux, nefnist
Cap Royal, og fellur undir Bordeaux
Superieur-flokkunina. Vínið er unnið úr
Semillon- og Sauvignon-vínþrúgunum
sem eru ríkjandi við framleiðslu hvítvína
í Bordeaux. Einnig er talsvert notað af
Muscat-þrúgunni. f nefi má greina ilm af
sítrusávöxtum í bland við nýja ffanska
eik og aðlaðandi ferskan ávöxt í góðu
jafnvægi.
Cap Royal er vín sem best er að njóta á
meðan það er ungt og ferskt, eins til
tveggja ára gamalt.
Við val á mat með þessu víni skal hafa
í huga að þetta er ffekar létt vín sem best
er að hafa með fersku hráefni eins og
rauðsprettu (kola), karfa og bleikju.
Einnig myndi vínið ganga vel með léttari
kjúklinga- og kalkúnaréttum. Cap Royal
er í reynslusölu ÍÁTVR (Heiðrún, Kringl-
an, Hafnarfjörður, Seltjarnarnes, Smára-
lind og Akureyri) og kostar flaskan 1.290
krónur.
Og þá að rauðvíninu. Palacio de La
Vega er ungt fyrirtæki sem stofnað var
1991. Árið 1995 varð fyrirtækið svo part-
ur af Pernod & Ricard samsteypunni.
Vfnekrur fyrirtækisins eru staðsettar við
lítinn bæ sem heitir Dicastillo. Auk
rauðvína framleiðir fyrirtækið einnig
vönduð rósavín og hvftyín.
Vfnið sem Ágúst mælir með er Palacio
de La Vega Crianza og er blanda af
Cabemet Sauvignon (70%) og
Tempranillo (30%). Vínið einkennist af
dökkum og sætum berjum en einnig má
greina myntu, mildan kryddaðan ávöxt,
svartan pipar og nýja eik. Þetta er vín
með góðri fyllingu.
Palacio de La Vega Crianza fellur vel
að flestu kjötmeti, ekki síst íslenska
fjallalambinu sem Siggi Hall segir að sé
besta lambakjöt í heimi. Einnig fellur
hinn mjúki karakter vínsins vel að
mörgu fiskmeti, þá sérstaklega bragð-
meiri fiskréttum sem í er t.d. hvítlaukur,
ætiþistlar, ólífúr og sólþurrkaðir tómat-
ar, svo eitthvað sé nefnt. Geymsluþol
vínsins er 3-4 ár. Palacio de La Vega Cri-
anza fæst í áðurnefndum verslunum
ÁTVR og kostar 1.190 krónur sem þykja
afbragðskaup.