Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2003, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2003, Blaðsíða 30
30 DV HELCARBLAÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2003 Refu ri n n er mættur MIKKI REFUR. Þröstur Leó Gunnarsson fer meí og Sigurðar Sigurjónssonar sem báðir hafa tek mér mikið þá hefði ég helst viljað vera laus við að lenda í þessu." - Er sjómannsferill þinn þá á enda? „Ég reyndi aðeins í sumar og get staðið á trillu á handfærum en það er það eina.“ Bíldudalur engu líkur - Þröstur ólst upp í flæðarmálinu á Bíldudal og þar búa foreldrar hans og nú hefur hann, ásamt bræðrum sín- um, gert upp sitt eigið hús svo ljóst er Bíldudalur togar alltaf í hann en þó misjafnlega fast. Það sannast á Þresti sem sagt er að það er hægt að taka Það er Sigurður Sigurjónsson, einn af íslandsmeisturunum í fyndni, sem leikstýrir „Dýrunum" og það liggur beinast við að spyrja hvort nokkuð megi hreyfa við þessu leikriti til þess að trufla ekki minningar leikhúsgesta af eldri uppfærslum: „Það er gaman að þessu en þetta er djöfull erfltt, mikil hiaup og príl. Við gerum þetta á okkar hátt, án þess að vera að herma eftir gömlu sýning- unni,“ segir Þröstur. Hann lýkur sérstöku lofsorði á leik- mynd Brians Pilkingtons, sem hefur verið eftirsóttur og vinsæll teiknari en gerir nú leikmynd í Þjóðleikhúsinu í fyrsta sinn. „Þarna birtist mikill ævintýraheim- ur þegar tjaldið fer frá.“ Hélt ég væri of gamall - Er slegist um þessi frægu hlutverk í leikhúsinu þegar verk eins og þetta er fært upp? „Það eru kannski ekki beinlínis slagsmái en það eru alltaf nokkrir sem koma til greina. Ég varð hissa og glaður þegar ég fékk refmn því ég hélt ég væri orðinn of gamall í þetta. Ég vona að ég komist í gegnum þetta." „Ég var skammaður mjög mikið þegar ég fór í frí í fyrra skiptið og fólk sagði að ég kæmist aldrei inn í leikhúsið aftur. En ég sagðistþá bara fara á sjó- inn aftur." Þröstur Leó var af sumum talinn hálfgert undrabarn þegar hann mætti í Leiklistarskólann beint af bryggj- unni á Bíldudal með slorið í hárinu. Hann útskrifaðist 1986 og segist reyndar hafa verið staðráðinn í því að verða gamanleikari. Það fór á annan veg því árið eftir að hann útskrifaðist lék hann titilhlutverkið í Hamlet og seinna eitt aðalhlutverkið í Degi von- ar eftir Birgi Sigurðsson og mörg fleiri dramatísk hlutverk fylgdu í kjölfarið. Það var ekki fyrr en í Þjóðleikhúsinu á síðasta ári sem hann fékk fyrsta hiut- verkið í alvörufarsa sem sviðsstjórinn taugaveiklaði í Allir á svið, sem hann fékk góða dóma fyrir, og má hverjum ljóst vera sem sá að hann lék hlut- verkið af fádæma krafti og innlifun. - En er Mikki refur ekki kómískt hlutverk? „Jú, og við höfum verið að leggja inn mikið af gríni sem bæði foreldr- amir og börnin geta hlegið að. Ég held að við séum með nóg af gríni fyr- ir alla þama. Mér finnst hlutverkið liggja betur fyrir mér en ég bjóst við." - Varstu gerður að stjörnu í upp- hafi ferilsins? „Ég fékk mjög gott start en leit ekki endilega á mig sem stjörnu. Svo komu tímar sem ég fékk algerlega nóg af leikhúsinu og hef tvisvar tekið mér löng frí. Fyrst fór ég heilt ár vest- ur á Bíldudal á sjóinn 1991, og svo aftur 1999, og ætlaði þá að vera í ann- að ár en þau urðu tvö áður en ég sneri aftur." - Hvers vegna fékkstu leiða á leik- listinni? „Mér fannst þetta vera of mikið umstang og fyrirhöfn en fyrst og fremst langaði mig aftur á sjóinn, aft- ur til einfaldleikans og þessa kyrrláta lífs sem er lifað á Bfldudal." - Er þetta ekki áhættusamt að taka sér frí þegar atvinnulausir leikarar standa í röðum fyrir utan stóru leik- húsin? „Það stressar mig ekkert. Ég var skammaður mjög mikið þegar ég fór í frí í fyrra skiptið og fólk sagði að ég kæmist aldrei inn í leikhúsið aftur. En ég sagðist þá bara fara á sjóinn aftur og ég var svo heppinn að ég fékk strax nóg að gera þegar ég kom aftur." Ferillinn á enda? - Það er dálítið dramatísk saga bak við það hvers vegna seinna frí Þrastar varð lengra en til stóð. „Ég var að leika í sýningu vestur í Loftkastala, sem hét Trainspotting, og sleit krossband í hnénu á mér dag- inn fyrir aðalæfingu. Það kostaði að breyta öllum stöðum og hreyfingum í sýningunni daginn fyrir frumsýningu sem var svakalega erfitt. Ég var settur í spelkur og sprautaður fyrir hverja sýningu. Svo tók ég mér frí, fór vestur og réð mig á sjóinn og var búinn að vera um borð í eina þrjá mánuði þegar ég fékk kar á hnéð og sleit hitt krossbandið. Þá var ég frá vinnu í heilt ár og gat ná- kvæmlega ekkert gert. Það var rosa- lega erfiður tími," segir Þröstur. - Hvað gerðir þú í heilt ár? „Ég var bara fýrir vestan og hékk í tölvunni og barðist við Trygginga- stofnun og lögfræðinga, fór í upp- skurði til að reyna að laga þetta. Það tókst ekki nema að litlu leyti. Ég finn það núna, þegar ég er farinn að hlaupa á sviðinu, að þetta er ekki nógu gott. Ég var ansi liðugur hér áður en fyrr en ég get ekki nema helminginn af því sem ég gat gert áður. Þetta var ansi hreint erfiður tími." - Verða menn ekki hræddir um fer- ilinn þegar svona lagað kemur fyrir? „Að sjálfsögðu. Ég missti fullt af verkefnum út af þessu. Ég átti að leika stórt hlutverk í Monsters, amerískri bfómynd sem var tekin upp hérna, en fékk bara eitthvað örlítið í sárabætur. Það munar miklu ef þetta er ekki í lagi. Ég hef alltaf verið mikið í veiði og því fylgja miklar göngur. Ég get ekki gengið nema einn kílómetra í dag án þess að þurfa að hvfla löppina. Svo var baráttan við tryggingafélögin og allt það batterí algjör frumskógur. Þetta eru alger skrímsli. Ég var að leigja hús fyrir 35 þúsund á mánuði á Bfldudal og Tryggingastofnun henti í mann 20 þúsundum á mánuði. Það var ekki fyrr en ég fékk aðstoð lög- fræðings sem þetta varð nokkurn veginn í lagi á endanum. En miðað við það hvað þetta háir Þröstur Leó Gunnarsson leikari hefur átt í ástar- haturssam- bandi við leikhúsið frá því hann útskrifaðist fyrir 17 árum. Þrátt fyrir að vera eftirsóttur og vin- sæll leikari hefur hann tvisvar tekið sér frí og snúið baki við heimsins glaumi vestur á Bíldu- dal. Þröstur Leó leikur Mikka ref í Dýrunum í Hálsaskógi sem verða frumsýnd í Þjóðleikhúsinu eftir viku. Allar atvinnugreinar eiga sitt slang- ur og innanhússmál sem aðeins inn- vígðir skilja. Óperusöngvarar tala um „Flautuna" þegar þeir eiga við Töfraflautu Mozarts og í leikhúsinu er talað um „Dýrin" og þá er átt við Dýrin í Hálsaskógi eftir Thorbjörn Egner. Eftir rétta viku verða Dýrin í Hálsa- skógi frumsýnd í Þjóðleikhúsinu og enn ein kynslóð barna mun hrífast af þessari hjartnæmu og einföldu sögu, þar sem hið góða og hið illa takast á, en boðskapurinn er svo skýr og ein- faldur. „Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir." Þetta er ekki flókið en þetta er ekki eini boðskapur „Dýranna" því þar er líka talað mikið um heilbrigt matar- æði og nauðsyn þess. Kannski voru „Dýrin" Latibær síns tíma, hið full- komna uppeldis- og áróðursleikrit fýrir börn og alla aldurshópa. Þetta mun vera í íjórða sinn sem „Dýrin" eru sýnd í Þjóðleikhúsinu og það eru nýir leikarar í nær öllum hlutverkum. Margir muna sjálfsagt eftir túlkun Bessa Bjarnasonar á Mikka ref og Árna Tryggvasonar á Lilla klifurmús en þessir kumpánar eru höfuðandstæðingar í verkinu. Bessi Bjarnason lék Mikka ref í tveim- ur uppfærslum svo það er ljóst að það hnoss er ekki farandbikar heldur er hægt að vinna hann til eignar. Að þessu sinni er það Atli Rafn Sig- urðarson sem leikur klifurmúsina ráðagóðu, sem stöðugt sleppur und- an refnum, en hinn slóttuga Mikka ref leikur Þröstur Leó Gunnarsson. Refur á mótorhjóli Blaðamaður DV settist niður með Þresti eftir æfingu á „Dýrunum" í búningsherbergi sem refurinn deilir með Hérastubb bakara og fleiri dýr- um úr skóginum. Þar er fátt innan- stokksmuna, utan dívan allgóður, og þar liggur mótorhjólagalli refsins. Þröstur ekur um á torfærumótorhjóli, KTM 520 endurohjóli, og glottir fyrir- litlega þegar spurt er um götuhjól. Hann er búinn að eiga fjöldann allan af mótorhjólum en alltaf torfæruhjól því hann segir að það sé skemmtileg- ast að komast á hjólinu upp á fjöll. NÝR MIKKI. Þröstur er þriðji leikarinn sem spreytir sig á hlutverki Mikka en áður hafa Bessi Bjarnason og Sigurður Sigurjónsson tekist á við þann slóttuga skúrk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.