Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2003, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2003, Blaðsíða 32
36 DV HELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2003 BARÁTRIMAÐURINN. HörðurTorfason hefur aldrei hikað við að segja skoðun sína. Hann hefur sungið fyrir þjóð- ina í rúmlega 30 ár og er ekkert á leiðinni að hætta. DV-mynd ÞÖK Hörður Torfason hefur sungið fyrir þjóð sína í rúmiega 30 ár og aldrei hikað við að segja okk- ur hvað honum finnst. Hann ræddi við DV um nýjan geisladisk, nauðsyn þess að bjarga Aust- urbæjarbíói frá niðurrifi og baráttu fyrir mann- réttindum samkynhneigðra. Ef það er hægt að lýsa Herði Torfasyni söngvaskáldi þá mætti kannski segja að hann hættir aldrei. Hörður er kominn á þann aldur að hann er farinn að gera grín að því en það er erfitt að trúa því þegar maður situr and- spænis honum að hann sé degi eldri en fer- tugur. Samt hlýtur hann að vera eitthvað eldri því það var 1970 sem hann söng sig inn í hjörtu þjóðarinnar með ódauðlegum lögum eins og Ég leitaði blárra blóma og Þú ert sjálfur Guð- jón bak við tjöldin, svo aðeins tvö séu nefnd af þeim aragrúa laga sem hann hefur flutt okkur gegnum árin. Hörður hefur verið búsettur í nokkrum löndum en er alinn upp í Skólavörðuholtinu og er löngu kominn heim og býr í litlu bak- húsi í gamla hverfinu sínu. Það er óhætt að segja að það sé iftið hús því að einbýlishús sem er 49 fermetrar er óneitanlega lítið. Þar innan dyra er samt nóg pláss enda sagt að þar sem er hjartarúm þar sé húsrúm. Þar bauð Hörður blaðamanni upp á heilsusamlegt te úr bláum katli og þessi líka fínu vínarbrauð. Við byrjuðum á því að tala um nýjan hljómdisk sem Hörður er að gefa út og er sá 20. í röðinni á 33 ára ferli þessa skapheita listamanns. Diskurinn heitir Elds saga og Hörður gefúr hann sjálfur út en það er hið nýbakaða útgáfufyrirtæki Óttars Felix Hauks- sonar, Sonet sem dreifir gripnum í búðirnar. „Nú er ég kominn á þann aldur að ég er far- inn að vinna í ævisögunni, ef svo má segja," segir Hörður og hlær. Húmorinn að eldast „Það er húmor að eldast. Sumir óttast ald- urinn og þegar maður var ungur þá gerði maður svo mikið grín að þeim eldri en það verður fyndið þegar maður kemur þangað sjálfur. Fyrir nokkrum árum skissaði ég upp verk um mann sem er að finna sjálfan sig og kallaði Vitann. Ég skipti því niður í nokkra hluta eins og frumefnin ijögur, eld, loft, jörð og vatn. Úr þessu eiga að verða fimm plötur sem hver um sig tengist því sem ég hef verið að gera gegnum lífið. Þetta er samt ekki sjálfsævisögulegt raup heldur saga einstaklings sem litast af mínum lífsviðhorfum og kveikjur laganna eru alltaf stundir úr mínu eigin lífi.“ Silli og Valdi og Hörður - Hörður tekur sem dæmi eina viku úr lífi sínu þegar hann var 21 árs gamall og hafði fengið fi'na vinnu hjá Silla og Valda og þar á bæ vildu menn gera hann að verslunarstjóra í fyrstu sjálfsafgreiðslubúðinni á íslandi. En það átti ekki að verða. „Það voru mikil umbrot í mér og mér gekk vel í vinnunni og hækkaði hratt í tign en ég var ekki viss. Þetta var mikil upphefð og Silli lét mig vinna við hlið sér í vikutíma því hann vildi kynnast manninum betur sem þeir ætl- uðu að fela þetta hlutverk. í lok vikunnar ræddum við saman og ég sagði honum eins og var að hjartað stefndi annað og ég gæti þetta ekki. Þá var ég byrjaður í Ieiklistarskól- anum hjá Ævari Kvaran. Þetta varð svo kveikjan að einu laginu. „Auðvitað ætti ekki að þurfa að vera starfandi félag um samkynhneigð. Það að félagið skuli vera tilsýnir að það er nauðsynlegt en í fullkomnu samfélagi væri þess ekki þörf." Annar söngur heitir Eldberinn. Ég var 21 árs og bjó í einu herbergi uppi á Ártúnshöfða og var reiður ungur maður sem fékk mælskuköst. Lagið fjallar um að maður verð- ur að þora að stíga skrefin á vit ævintýranna og standa við skoðanir sínar." - Hörður hefur víða komið við í leikhúsi, gefið út fjölda hljómplatna og verið óþreyt- andi við að ferðast um landið og syngja fyrir fólk og hefur ræktað þann akur lengur en flestir aðrir. Hann hefur einnig fengist við að gera vinsæla útvarpsþætti sem heita Sáð- menn söngvanna sem hafa verið á dagskrá RÚV í fimm ár og Hörður var í sfðustu viku að ljúka gerð þáttar númer 200. „Ég hafði ekki mikla reynslu af gerð út- varpsþátta en Óskar Ingólfsson gaf mér ann- að tækifæri til þess að þróa þessa hugmynd. Ég segi sögur af fólki sem tengist tónlist en er ekki endilega tónlistarfólk. Þetta eru allt sög- ur af áhrifavöldum og ég reyni að segja sögur af lífsbaráttu þessa fólks.“ Björgum Austurbæjarbíói Hörður hefur haft það fyrir sið árum sam- an að halda hausttónleika í Reykjavík og stundum verið í Borgarleikhúsinu eða ís- lensku óperunni en að þessu sinni verða hausttónleikar Harðar haldnir í Austurbæ eða Austurbæjarbíói eins og flestir eru van- astir að kalla það merka hús. „Þessir tónleikar verða 12. september og fljótlega eftir það legg ég af stað með gítarinn út á land. Með þessu staðarvali vil ég sérstak- lega vekja athygli Reykvíkinga á því hve nauðsynlegt er að forða Austurbæjarbíói frá því að verða rifið eins og nú stendur til. Ég vil safna saman listafólki og bjarga þessu húsi. Borgin getur ekki skotið sér und- an ábyrgð í þessu máli. Það er ekkert annað hús eins og þetta í borginni. Þarna muna all- ir eftir miðnætursýningum, leiksýningum. tónleikum, bfósýningum og ég veit ekki hvað. Ég man eftir mér þarna í þrjúbfóum á fram- haldsmyndum, Frumskóga-Jim eða eitthvað þess háttar, og ég man eftir mér baksviðs að tala við Steinku Bjarnadóttur söngkonu, mágkonu mömmu og Hallbjörgu systur hennar og það hafði mikil áhrif á mig að hitta þessa listamenn og komast í snertingu við þetta andrúmsloft. Þarna sá ég Tommy Steéle í bíó, hitti Frankie Lyman sem var svartur bandarískur rokkari og marga fleiri. Ég vil bjarga þessu húsi og þeim fína hljómburði og ágætu aðstöðu sem þarna er og stendur framar sumum þeim húsum sem borgin er að styrkja í dag eins og Loftkastal- anum. Þarna mætti vera veitingastaður eins og Silfurtunglið var í gamla daga og þama em mörg kjörin tækifæri fyrir metnaðarfullt fólk. Svo þarf í guðs bænum að taka málninguna utan af því. Það var illa gert að klessa henni á.“ Stundum bara þrír -Hörður segir að það séu yfirleitt um 30 staðir utan Reykjavíkur sem hann heldur tónleika á í hverju ferðalagi. Hann viður- kennir að vera gríðarlega þrjóskur í sínu tón- leikahaldi. „Ég kom stundum í gamla daga einn með gítarinn, átti ekkert söngkerfi og það mætti kannski einn, svo við vomm þrír, ég, gítarinn og einn hlustandi. Það var ekki alltaf gaman en þá kemur maður bara aftur og aftur þang- að til fleiri fara að mæta. í dag em það þús- undir manna sem em fastagestir á öllum tón- leikum sem þeir fá kost á. „Það var oft erfitt í gamla daga þegar það kom fyrir að það var hrækt á mann og manni hótað en þá sagðist ég bara koma aftur og gerði það alltaf." Tilgangurinn í mínu starfi er að ræða við fólk. Mfn listsköpun er samræða við áheyrandann. Það var oft erfitt í gamla daga þegar það kom fyrir að það var hrækt á mann og manni hótað en þá sagðist ég bara koma aftur og gerði það alltaf. Ég hef séð mikla breytingu á jafnvel heilum bæjarfélögum í gegnum tíðina. Ég vildi geta sagt að það væri mér að þakka en svo er ekki." Fjaðrafok í „frostpinnasamfélaginu" - Hörður fer að rifja upp það sem hann kallar „frostpinnasamfélag" fyrri ára. Þá var allt sem ekki var sérstaklega leyft með þar til gerðri reglugerð stranglega bannað. Samfé- lagið var frosið og fábreytt og fáir þorðu að hafa skoðanir sem stungu virkilega í stúf við það viðurkennda. Það var í þessu samfélagi sem Hörður Torfason kvaddi sér hljóðs árið 1975 og kom fram í umtöluðu tímamótaviðtali í Samúel og talaði opinskátt um samkynhneigð sína. í kjölfarið varð gríðarlegt fjaðrafok og uppi- stand og er líklega sanngjarnt að segja að Hörður hafi með þessu viðtali lagt feril sinn sem leikara, söngvara og listamanns í rúst og hafi verið mjög mörg ár að byggja hann upp á ný og í kjölfarið flutti hann úr landi eða flúði öllu heldur land. „Það var óneitanlega erfitt og þetta var ekki vel unnið viðtal ef út f það er farið. Næstu þrjú ár á eftir voru í rauninni miklu erfiðari en þau harkalegu viðbrögð sem það vakti en þá var ég að leysa það verkefni að stofna Samtökin ‘78 til þess að koma mannréttinda- baráttu samkynhneigðra á rekspöl. Það var mikil og erfið barátta. Ég held að það hafi orðið samtökunum til happs að við völdum okkur góðan formann í fyrstu sem var Guðni Baldursson. Það er honum að þakka að sam- tökin lifðu." Að færa fórnir - Þegar Hinsegin dagar voru haldnir í Reykjavík á dögunum, með þátttöku tugþús- unda, var Hörður fenginn til þess að setja samkomuna og syngja tvo söngva. Var það heiðursvottur vegna brautryðjendastarfs hans á þessu sviði? „Ég tek það þannig og er þakklátur fyrir að fólk er að gera sér grein fyrir hversu miklu ég þurfti að fórna á sínum tíma. Án þeirrar fóm- ar væru málin ekki komin svona vel á veg. Það var gleðilegt að virða fyrir sér tugþúsund- ir manna sem komu til að sýna málstað okk- ar samstöðu. Þetta sýnir mér og sannar að fórn mín var ekki einskis virði. Framtakið Hinsegin dagar er frábært fram- lag þar sem baráttan er háð með gleði í hjarta, söng á vör og öllum regnbogans litum mannlífsins undir kröftugri stjórn Heimis Más og alls hins stóra hóps ónefnds krafta- verkafólks. Svona á lífið og baráttan að vera! Og Samtökin ‘78 bjarga sér í dag vel undir forystu mjög hæfra einstaklinga. Hitt er svo aftur annað mál að þótt um- burðarlyndi hafi aukist þá er mikið starf óunnið í baráttunni fyrir mannréttindum samkynhneigðra. En höfúm hugfast að frelsi þýðir að við berum fulla ábyrgð á orðum okk- ar og athöfnum í hvívetna." poUi@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.