Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2003, Síða 34
38 DV HELCARBLAÐ LAUOARDAGUR 6. SEPTEMBER 2003
Helga hefur teklð vlðtöl vlð skjólstæðlnga sína
og lagt fyrir þá viðkvæmar spurningar um
hvernig þeir vilji mæta dauðanum - spurningar
sem eru mótaðar frá sjónarhóli læknisins. Leik-
arar hafa skráð og endurflutt viðtöl Helgu fyrir
útvarp og sett inn í rými sem verður í heiid sinni' ■
eins konar memento mori, áminning um dauð-
bundið.
Þess vegna minnir þessi sýning okkur jafn-
framt á vanmátt tækninnar andspænis hin-
um endanlega sannleika dauðans, andspæn-
is hinum óhjákvæmilega harmleik mannlegr-
ar tilveru. Sá sannleikur er jafnframt markað-
ur sársaukanum, og hann stendur utan og of-
an við allar mælistikur og kvarða reiknings-
listarinnar. Endanlega spurningin snýst ekki
um rök reikningslistarinnar og tungumáls-
ins, heldur hvort við kjósum heldur að lina
þjáninguna með ópíum eða morfíni. Það
reynist endanlega hin blinda von
Promeþeifs, sem hann gaf manninum ásamt
með reikningslistinni og tæknikunnáttunni.
Mynd Holbeins
Sú mynd sem Magnús Pálsson hefúr dreg-
ið upp með þessum óvenjulega efniviði á sér
ýmsar hliðstæður í sögu myndiistarinnar.
Mér kemur í hug mynd sem þýski málarinn
Hans Holbein (1497-1543) máíaði í London
árið 1533 af „Sendiherrunum". Mynd þessi,
sem er ein af helstu gersemum National Gall-
ery í London, sýnir tvo karlmenn í nánast
fullri líkamsstærð. Þeir standa uppréttir og
uppstilltir eins og við ljósmyndatöku og hvfla
hönd á dúklagðri hillu sem er hlaðin tólum
og tækjum vísinda og lista. Mennimir tveir
eru nafngreindir sem sendiherra Frakklands í
Lundúnum og vinur hans og samlandi úr
stétt guðfræðinga. Þeir bera það með sér að
þeir hafi fulla stjórn á sjálfum sér og umhverfr
sínu í krafti þekkingar sinnar á vísindum og
listum. Annar þeirra hefúr yfirbragð veralds-
legs valdsmanns, hinn ber með sér geistlegt
yfirbragð. Hnattlíkön, tæki tii rannsóknar á
sólargangi og tímatali, hljóðfæri, fræðibækur
og lúthersk guðsorðarit em til vitnis um
þekkingu þeirra og vald. Bakgrunnurinn er
íburðarmikið grænt sUkitjald með rósaflúri.
Efst tU vinstri hangir lítil mynd af Kristi á
krossinum. Gólfið er steingólf með mósaík,
ann.
Prómeþeifur var guðinn sem færði mann-
inum eldinn og þar með tæknikunnáttuna
sem gerði honum kleift að losa sig úr viðjum
hinna blindu náttúmafla til þess að byggja
framtíð sína á vísindalegri þekkingu og
tækni. Með því að ganga inn í heim tækninn-
ar leitaðist maðurinn við að rjúfa þá hringrás
náttúmnnar sem allt líf var undirorpið í ár-»
daga. Eldur Prómeþeifs ger<3i manninum
mögulegt að skapa merkingu úr tilvem sinni
og í þeim skilningi að greina sig frá dýrnm
merkurinnar. Með gjöf sinni, sem
> Promeþeifur hafði stoiið: frá Seifi alföður,
hafði hann gert manninn nánast jafnoka
guðanna f öllu nema einu: Hann þurfti óhjá-
kvæmUega að deyja en guðirnir vom ódauð-
legir. Eini munurinn var sáað eldur Seifs kom
af himni ofan í formi eldingar en eldur
mannanna var bundinn jörðinni og líf þeirra
og tilvist mörkuð dauðanum.
Þetta þýddi meðal annars að sjúkdómur-
inn var ekki lengur tilkominn vegna þess að
maðurinn ætti að deyja og þyrfti nauðsyn-
lega að deyja, eins og það var í árdaga, heldur
varð hann smám saman skilgreindur sem bil-
un í því kerfi sem læknisfræðin á að viðhalda
- út yfir hina blindu von. Það er eðli tæknirmar
og sögu framfaranna að storka upprunalegri
hringrás náttúmnnar og beygja hana undir
vilja og blinda von mannsins fram yfir rauð-
an dauðann.
Prómeþeifúr hlaut grimmilega refsingu
fyrir agabrot sitt og þann hroka sem Seifur
taldi í því fólginn: Hann var hlekkjaður fastur
á íjallstind þar sem öm átti að nærast 'á lifur
hans um alla framtíð eða „unz eilífðin er
tæmd," eins og segir í þýðingu Helga Hálf-
danarsonar á harmleik Æskflosar um þessa
goðsögn. í leikritinu segir Prómeþeifur
mennina hafa verið fávísa þar til hann
kenndi þeim að greina rétt frá röngu: „þeir
höfðu sjón en sáu þó til einskis gagns; þeir
höfðu heym en skildu samt hvórki eitt né
neitt; þeir létu lífið streyma hjá sem drauma-
myndir, allt var óskapnaði líkt... Svo kenndi
ég þeim líka reikningslist, sem æðst er vís-
inda, og leturgerð sem geymir allt í minni og
hverri menntagrein er fóstra sönn ...“ Grískir
harmleikir í þýðingu Helga Hálfdánarsonar,
Mál og menning 1990, Æskflos: Prómeþeifur,
bls. 211.
Prómeþeifur segist líka hafa kennt mönn-
unum læknislistina og þá list „að þekkja og
byrla lyf, sem gátu lfknað vel í sjúkdóms
kröm og þungum þrautum af þeim létt“. En
merkilegast af öllu er þó sú játning hans að
hann haf! létt af mönnum vitundinni um
dauðann með því að „gróðursetja blinda von
í brjósti þeirra". Sama, bls. 206.
Dauðinn merkir skipbrot allrar þeirrar
merkingar sem maðurinn hefur byggt upp
með lífi sínu og starfi og bundið í minni
tungumálsins. Með dauðanum þurrkast
minnið út og merkingin hverfur. Hin mesta
náðargjöf Prómeþeifs var því sú að létta af
mönnum vitundinni um dauðann og sá
blindri von í brjóst þeirra.
Magnús og Helga vinna saman
Sú sýning sem hér hefur verið unnin í sam-
vinnu Magnúsar Pálssonar myndlistarmanns
og Helgu Hansdóttur öldrunarlæknis fjallar
með óbeinum hætti um þá harmsögulegu
þversögn sem hér um ræðir. Helga hefur tek-
Sendlherramin Mynd sem þýski málarinn Hans Holbein (1497-1543) málaði í London árið 1533 af „Sendiherrunum". I grein þessari fjallar Ólafur Gíslason um sýningu Magn-
úsar Pálssonar og Helgu Hannesdóttur sem var opnuð á fimmtudag í Listasafni Reykjavlkur.
ið viðtöl við skjólstæðinga sína og lagt fyrir þá
viðkvæmar spurningar um hvernig þeir vilji
mæta dauðanum - spurningar sem eru mót-
aðar frá sjónarhóli læknisins. Leikarar hafa
skráð og endurflutt viðtöl Helgu fyrir útvarp
og sett'inn í rými sem verður í heild sinni eins
konar memento mori, áminning um dauð-
ann. í rými þessu sjáum við, auk útvarpstækj-
anna er flytja viðtölin, háþróaðan tæknibún-
að læknislistarinnar sem opnar fyrir okkur
lifandi kviku og leyndardóm mannslflcam-
ans, hjartsláttinn og andardráttinn. Því hefur
verið haldið fram að á meðan reglubundin
hegðun dýranna í heild sinni ráðist af eðlis-
hvötinni þá gegni öðru máli um manninn.
Þar er eina reglufestan fólgin í taktfastri end-
urtekningu hjartsláttar og andardráttar. Þess
vegna er lfldngamál um sál mannsins gjarnan
bundið við anda og hjarta í flestum tungu-
málum, sbr. Umberto Galimberti: Psiche e
techne, L’uomo nell’etá della tecnica, Milano
1999, bls. 93. Reglufestan í þessari lflcams-
starfsemi verður grunnurinn að samskiptum
líkamans við umheiminn og leit mannsins að
reglufestu í náttúrunni og umhverfinu. Þessi
taktfasta regla hjartsláttarins og andar-
dráttarins vitnar um um órofa tengsl lflcam-
ans (og sálarinnar) við náttúruna og jörðina.
Enn sem komið er hefur tækninni ekki tekist
að slíta þeim tengslum nema kannski tíma-
Prómeþeifur: Já, víst er mínum vinum raun að sjá mig hér.
Kór: En hefurþú auk þessa framið eitthvert brot7
Prómeþeifur: Ég létti af mönnum vitund um sín ævilok.
Kór: Hver var sá iæknisdómur er þar dugði bextl
Prómiþeifur: Ég gróðursetti blinda von í brjósti þeim.
Kór: Þar hefur þú veitt hinum feigu sanna líkn.
Æskllos: Prómeþeifur
sem mun vera það sama og er að finna í
Westminster Abbey f London. Myndin er öll
máluð af raunsæislegri nákvæmni þar sém
sérhver hlutur er í réttu hlutfalli við heildina
og öllum reglum fjarvíddarglugga endur-
reisnarinnar fylgt til hins ýtrasta. Að öllu leyti
nema einu: á gólfinu fyrir miðri mynd sjáum
við undarlegan hlut, sem við nánari athugun
reynist vera skekkt mynd af hauskúpu, sem
eins og hangir í lausu lofti. Mynd sem virðist
kippa grundvellinum undan fúllvissu þess
vaids og þeirrar sjálfsstjórnar sem mennimir
standa fyrir. Hauskúpan er að sjálfsögðu al-
gengt tákn um fallvaltleikann og dauðann í
myndlist 16. aldar, en það hvernig Holbein
málar hana með meðvitaðri sjónskekkju
virðist undirstrika með afar óvæntum hætti
þá þversögn sem dauðinn ber með sér: hann
grefur ekki bara undan dýrð valds og virðing-
ar, vísinda og lista, heldur mglar hann líka
reglum allrar þeirrar rökhyggju, sem sjálf
bygging myndarinnar stendur annars fýrir
með afgerandi hætti.
Vissulega em aðferðir þeirra Holbeins og
Magnúsar Pálssonar við að túlka þetta við-
fangsefni eins ólíkar og hugsast getur. En
þegar betur er að gáð kemur í ljós að í verk-
unum má finna sameiginlegan skilning á fall-
valtleik þess tækniheims sem umlykur okkur
og reynir sífellt og með öllum ráðum að telja
okkur trú um að við séum ömgg og óhult.
Tæknin sem Prómeþeifur færði manninum í
árdaga er orðin örlög hans. Örlög sem hann
hefur skapað sér, en kemst nú ekki undan.
Það sem hefur breyst er kannski sú alvarlega
staðreynd að maðurinn hefur ekki lengur tök
á því hvert tæknin er að leiða hann. Á endan-
um snýst spurningin ekki um það hvað við
munum gera við tæknina til þess að skilja
heiminn, heldur hitt, hvað tæknin mun gera
við okkur til þess að skilja við heiminn.
Ólafur Gislason
■ ■