Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2003, Qupperneq 28
28 OVHEtGARBLAÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2003
Kubb heitir sænskur eftirmiðdagsleikur sem hef-
ur átt síauknum vinsældum að fagna, ekki bara
hér á landi heldur viðs vegar annars staðar í
Evrópu. Leikurinn snýst um að berja niður kóng-
inn en þrátt fyrir lítið konungsblóð í íslenskum
æðum var hatrammlega barist um kónginn
þegar l'slandsmeistaramót í greininni fór fram
um síðustu helgi. Blaðamaður DV tók þátt í að-
förunum en aðdáendur leiksins spáþví að hann
nái fljótlega að leggja heiminn að fótum sér.
„Þessi leikur er smátt og smátt að breið-
ast út og ef íslendingar ætla ekki að verða
algjörir aular í greininni verða þeir að fara
að æfa sig því að mér sýnist ljóst að þessi
leikur muni fara sigurför um heiminn,"
segir Óskar Eggert Óskarsson þar sem hann
stendur sveittur við skipulagningu á þriðja
íslandsmeistaramótinu í kubbi. Fjórtán lið
hafa skráð sig til keppni í ár sem er stigvax-
andi fjölgun frá því f fyrra og hittiðfyrra.
Það er sæmilegasta veður til keppni og eru
menn að tínast f Laugardalinn þar sem
mótið er haldið. Óskar hefur verið ötull
boðberi kubbleiksins hér á landi alveg síð-
an hann og kona hans, Jóhanna Þórdórs-
dóttir, kynntust kubbleiknum árið 2000,
þegar þau voru f heimsókn hjá sænsku
vinafólki sínu, og hefur í nógu að snúast við
að stilla upp og sjá um að allir vellir séu lög-
legir að stærð. „Fyrir um fimm árum varð
þetta spil að algjöru æði í Svíþjóð. Hvert
heimili fjárfesti í svona leik, þetta var jafn-
vinsælt og fótanuddtækin hér á íslandi. Nú
er vart hægt að fara í sænskan almennings-
garð án þess að sjá fólk spila kubb,“ upplýs-
ir Óskar sem dreymir um að ein-
hvern tíma verði spilið einnig svona
vinsælt á íslandi.
Fullkomið fjölskylduspil
Kubb er spil í ætt við keiluleiki en
slíka leiki má rekja allt til Forn-
Egypta. Kubb í þeirri mynd
sem spilið þekkist nú er
talið vera frá byrjun
20. aldar og er upp-
runnið á Gotlandi en
það er reyndar sagt vera
gamalt vfkingaspil. f
stuttu máli er þessi leikur í
því fólginn að skipt er í lið
sem reyna að fella kubba
andstæðingsins með þar til
gerðum kylfum. Þeim kylf-
um þarf að kasta eftir öllum
kúnstarinnar reglum og það
liö vjnnur sem fýrst nær að
fella alla kubba andstæðings-
ins, sem og kónginn sem
trónir á miðjum vellin-
um.
„Það má eiginlega
segja að kubb sé al-
múgaútgáfan af
keilu. Á meðan að-
allinn spilaði keilu
eftir þar til gerðum
sérútbúnum tré-
brautum, pússuð-
um og ffnum, fór
almúginn að kasta
í keilur á grasi og
upp úr því þró- I
aðist kubb,“ segir
Óskar sem er
greinilega með
söguna á hreinu.
Þeir sem til þekkja segja að
aðalsnilldin við þennan leik sé
sú að allir virðast geta spilað
hann, ungir sem
gamlir, bara svo
lengi sem þeir
lofta kylfun-
um. Þetta
sést berlega
mijgjj
» “• SKEMMTILEGUR LEIKUR: Munu
kubbarnir leggja heiminn að fótum sér? Aðdáendur leiksins spá því að
hann verði næsta æði á fslandi. Hægt er að kaupa kubbspilið hjá Intersporti á 3.990 krón-
ur en þau hafa verið vinsæl í tækifærisgjafir.
„Þessi leikur er smátt og smátt
að breiðast út um heiminn og
ef íslendingar ætla ekki að
verða algjörir aular í greininni
verða þeir að fara að æfa sig
því að mér sýnist Ijóst að þessi
leikur muni fara sigurför um
heiminn."
á liðunum sem skráð hafa sig til leiks á ís-
f landsmeistaramótið. Þar má t.d. sjá par
mætt til leiks þar sem konan er kasólétt,
vinkonur á fertugsaldri, sem og heilu fjöl-
skyldurnar. „Ég fékk þetta spil f brúðkaups-
gjöf í sumar og við höfum aðeins verið að
spila þetta,“ segir svartklæddur maður sem
er mættur til leiks ásamt föður sín-
* um, samrýndir feðgar í fyrsta sinn
á fslandsmeistaramóti eins og
* reyndar svo margir aðrir hér. Það er
greinilega létt yfir mannskapnum sem
tekur keppnina misalvarlega. Eitt liðið
^ er mætt í sérstökum keppnisgöllum,
annað lið hefur fellistóla meðferðis og
enn aðrir eru með kaffi á brúsa til að hita
sig upp fyrir leikinn. „Þetta spil er mjög
sænskt og algjört jafnaðarmannaspil því
k að allir geta verið með í því. Þetta er hið
fullkomna fjölskylduspil," segir Óskar.
Þegar líður á keppnina virðist reyndar
keppnisandinn farinn að verða jafnaðar-
mannaandanum yfirsterkari í hans liði,
enda eiga Óskar og félagar titil að verja frá
því í fyrra.
Á leið á heimsmeistaramótið?
Fyrir nýliða virðist þetta spil við fyrstu
sýn svo fáránlega einfalt að það hljód að
FYRIR ALLA' Kubb er leikur sem hentar fólki á öllum aldri og af báðum kynjum og er fullkomið fjölskylduspil. Á hinu árlega heimsmeistaramóti í Svíþjóð keppa allir aldurshópar saman og ekki er heldur skipt niður í lið eftir kyni.
íslandsmeistaramót hefur þrisvar verið haldið í greininni en enn sem komið er hefur (sland ekki sent lið á heimsmeistaramótið. Áhugasamir geta kynnt sér íþróttina nánar á http:kubb.kontra.org. Myndir Hreinn Hreinsson
SVONA SPILAST KUBB:
• Keppt er í liðum. í hverju liði geta verið
tveir til sex leikmenn. Þeir geta verið á hvaða
aldri sem er. Tvö lið reyna með sér I einu.
• Leikurinn snýst um að fella alla kubba and-
stæðingsins og þar á eftir kónginn sem er
stillt upp á miðjum velli.Til þess að fella
kubbana eru notaðar kylfur sem kastað er lóö-
rétt með undirhandarkasti. Allt annað er
bannað, t.d svokölluð þyrluköst. Hvert lið hef-
ur í upphafi fimm kubba sem raðað er upp á
grunnlínu. Það lið sem byrjar reynir að fella
eins marga kubba og það getur hjá andstæð-
ingnum. Ef liðið nær t.d. að fella þrjá kubba þá
eignast liðið kubbana. Þeim er kastað yfir á
þeirra vallarhelming og andstæðingurinn þarf
að byrja á að fella þá áður en hann fær færi á
að fella kubbana á grunnlínunni. Svona geng-
ur þetta þar til annað liðið hefur fellt alla
kubba andstæðingsins og getur þar með
vaðið I kónginn.
• Vallarstærð er venjulega 5x8 metrar en
getúr verið meiri eða minni, allt eftir getu leik-
manna. Venjulega er spilað á grasi en stund-
um á möl, sandi eða snjó. Allt flatt kemur til
greina.