Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2003, Page 46
46 LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2003
Síðast en ekki s/'sf DV
*K
Rétta myndin
Það er sifellt verið að aka á skiltið og ekkert lát á.
Enda sett upp á röngum stað þar sem það flækist
bara fyrir á horni Lækjargötu og Bankastrætis.
Ha?
„Það kom ósk frá forsetaembætt-
inu um að forsíðunni yrði breytt og
við urðum við þvt',“ segir Steinar J.
Lúðvíksson, aðairitstjóri
hjá Fróða um nýjasta tölu-
blað Mannh'fs sem dreift var í versl-
anir í gær. Þar prýðir Dorrit Moussai-
eff forsíðuna en fyrirsögnin er ekki
sú sama og send var í prentsmiðjuna
Odda. í upphaflegu útgáfunni var
Dorrit kynnt til leiks sem Demanta-
drottningin á Bessastöðum en nú
stendur þar einfaldlega Dorrit
Moussaieff. „Það þurfti hvort eð er
að breyta forsíðunni þannig að þetta
var minna mál en ella,“ segir Steinar.
Það var Örnólfur Thorsson, skrif-
Forsetinn stöðvar Mannlíf
stofustjóri forsetaembættisins sem
setti fram óskina um breytingu á
orðalagi fyrirsagnarinnar. Eigandi
Fróða og aðalútgefandi, Magnús
Hreggviðsson, var staddur í Osló
þegar þetta gerðist og fór ekki var-
hluta af aðgerðum.
„Fyrirsögnin á forsíðunni var í
engu samræmi við efni viðtalsins og
afar villandi fyrir væntanlega lesend-
ur tímaritsins. Við bárum því fram-
ósk þess efnis að staðið væri við gef-
in fyrirheit, það er að segja að textinn
væri borinn undir Dorrit og sam-
þykktur af henni, en það hafði
gleymst hvað varðaði fyrirsögn á for-
síðu," segir Örnólfur Thorsson.
• ísólfur Gylfi Pálmason, fyrrver-
andi alþingismaður, hefur verið
ráðinn sveitarstjóri í Hrunamanna-
hreppi með aðsetur á Flúðum.
ísólfur Gylfi er þó enn heimilisfast-
ur á Hvolsvelli þar sem eiginkona
hans býr og sinnir
einnig sveitar-
stjórnarmálum.
„Fyrst um sinn
verð ég hér í sum-
v arhúsi," segir ísólf-
ur Gylfi sem unir
hag sínum vel á
Flúðum þó vetur
sé enda mikill hiti þar í jörðu. „Eg
hef enn ekki afskrifað pólitfkina,"
segir hann.
• I hádeginu á
sunnudag mæta
allar stjörnur
íslenskra fjölmiðla
og keppa í fótbolta.
Um er að ræða ár-
legt Fjölmiðlamót í
Knattspyrnu og er
búist við hörku-
keppni enda alls ekki víst að Stöð 2
vv vinni leikinn eins og í fyrra. Þar fór
ívar Guðmundsson mikinn en í liði
Síðast en ekki síst
RÚV í fyrra stóð Logi Bergmann
upp úr enda hávaxinn með
afbrigðum. í ár er fólk hvatt til þess
að mæta í Fífuna í Kópavogi, stund-
víslega kl. 12 og hvetja sinn fjölmið-
il til dáða.
• Tónleika bresku rokksveitarinnar
Muse í Laugardalshöll hinn 7. des-
ember næstkomandi er beðið með
mikill eftirvæntingu. Eins og áður
hefur verið greint frá seldist upp á
tónleikana á nokkrum klukkutím-
um og miðar hafa gengið á milli fyr-
ir tvöfalt verð og ríflega það. Þegar
erlendar stórsveitir koma hingað til
lands slást íslensku böndin um að
fá að hita upp fyrir þau og hefur nú
verið gengið frá upphitunarbandi
fyrir
Muse. Er
það
rokksveit-
in Mínus
sem fær
'1 þann
heiður en
hún þykir
helsta von
okkar í
rokk-
bransan-
um um
þessar
mundir...
^ HVA!? ^
BÚU ALLTÍ LASl
v SJÖ&SI?
..-.OSPASASfelES:
*éS KAUPXÞÁ BAkA
BÆMFwmTÆmr
HA. HA!
NEI!
FJANÚAKORNW
ERT
ÞU
REFUR
SlbDI!
Snillingurinn sem
slennur við gagnngrunninn
Mikla athygli hefur vakið sú nið-
urstaða Hæstaréttar að átján ára
stúlka, Ragnhildur Guðmundsdótt-
ir, hefði rétt til að leggja bann við
því að upplýsingar úr sjúkraskrá
föður hennar yrðu fluttar inn í
gagnagrunn Kára Stefánssonar.
Þykir niðurstaðan setja strik í reikn-
ing Kára, þótt hann haldi því raun-
ar fram að hæstaréttardómurinn
hafi engin áhrif á það sem íslensk
erfðagreining sé nú að fást við.
Látni faðir Ragnhildar sem hún
vill fría undan því að lenda í gagna-
grunninunt var Guðmundur Ing-
ólfsson djasspíanóleikari, en Ragn-
hildur er dóttir hans og Birnu Þórð-
ardóttur, sem er kunn baráttukona
fyrir ýmsum málefnum.
Viðmælendur DV segja að væri
Guðmundur enn á lífi hefði niður-
staðan Hæstaréttar sl. fimmtudag
orðið til að gleðja hann. „Hann var
líka baráttumaður alla tíð og vildi
hafa hlutina á hreinu,“ segir Vern-
harður Linnet sem þekkir líklega ís-
lenska djassögu manna manna best
- og jafnframt þá menn sem hafa
helgað sig þessum stíl tónlistar.
Guðmundur, sem fæddist árið
1939, hóf ungur klassískt píanónám
hjá Rögnvaldi Sigurjónssyni og
þótti undrabarn við hljóðfærið en
hélt síðan utan til frekara náms úti í
Kaupmannahöfn. Þar suður við
Eyrarsund varð honum hinsvegar
ljóst að klassískur píanóleikur yrðu
seint hans ær eða kýr og því lagði
hann klassíkina á hilluna og helgaði
sig djassi. í tvígang fór hann til
náms í djassleik úti í Noregi en árið
1977 sneri hann alkominn heini.
Hann starfaði eftir það eingöngu
við djassleik og er örfárra manna
hér á landi sem hefur tekist að hafa
í sig og á af því einu að leika djass.
Þótti hann fágætlega fimur við pí-
anóið en lék jafnframt af svo mikilli
og djúpri tilfinningu að unun var að
á að hlýða. Orðið „snillingur" var
fyrr en varði komið fram á varir
allra sem um list Guðmundar fjöll-
uðu.
„Guðmundur var afburðamaður
í hverju því sem hann tók sér fyrir
hendur,“ segir Vernharður. Þótt
snilld Guðmundar á því sviði hafi
verið alkunn vissu hins vegar færri
að á sínum yngri árum var Guð-
mundur frábær skíðamaður og
seinna náði hann ekki síður góðum
árangri á golfvellirtum.
Guðmundur lést af völdum
krabbameins árið 1991.
Jón Ólafsson Pottþéttur titringur
Sjónvarpsauglýsing til kynn-
ingar á nýjum geisladiski frá Skíf-
unni, Pottþétt 33, olli geðshrær-
ingu í höfuðstöðvum sjónvarps-
T deildar Norðurljósa þegar hún
barst þangað. Auglýsingin sýnir
dularfull launráð viðskiptamanna,
naktar stúlkur á kúlupennum og
einkaþotu í aðflugi. Loks kemur
svo diskurinn sjálfur. Þótti sum-
um sem stuttur söguþráður aug-
lýsingarinnar minnti um of á síð-
ustu atburði í lífi Jóns Ólafssonar
og var því beðið með birtingu
hennar. Allt þar til Jón hafði afsal-
að sér stjórnarformennsku í fyrir-
tækinu. Nú geta allir séð. Flott
auglýsirig.
Veðrið
+IJ: ■* 9ie
Nokkur vindur
r
Q/
* *
*
* *
Nokkur vindur
Nokkur vlndur"3
”2 Nokkur
vindur
> * * ▼
0 Nokkur
vindur
* * -V,-
* —_vindur
♦o<£y
,2 * *
A Nokkur
vindur
^~~\^Strekkingur
— »*/ „Qv
Nokkur___ l
vindur/--' • vmdur
Strekkingur
*2* *
**
V