Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2003, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2003, Side 3
DV Fréttir FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2003 3 Sjálfstæðisflokkur í limbói Spurning dagsins Er rétt að leggja af sjómannaafslátt? Sjálfstæðisflokkurinn beið í vor einn mesta kosningaósigur í sögu sinni. Flestum þætti gott að vera með þriðjung fylgisins en hjá Sjálf- stæðisflokknum er það afhroð. Eftir kosningarnar var talað um að sjálf- stæðismenn þyrftu að iðka sjálfs- gagnrýni, en á því hefur ekki bólað. Það er líkt og flokkurinn sé í limbói, vanti bæði forystu og markmið. Altént er merkilega lítið að gerast í honum fyrir utan einkastríð Davíðs við auðmenn úti í bæ. Þau gera líflð ekki beinlínis einfaldara fyrir skara flokksmanna sem skilja Ula hvað for- maðurinn er að fara. Deyfðin í ráðherraliðinu Það er ekki víst að Davíð viti sjálf- ur hvað hann ætlar að gera. Það er partur af sjarma hans hvað hann virkar oft óútreiknanlegur. Sjálf- stæðismenn kvarta heldur ekki þótt hann fari með flokkinn eins og sína prívatútgerð. Sumir segja dreng- skaparbragð að hann standi upp fyr- ir sínum gamla samstarfsmanni Halldóri. Svo má vissulega líta á, en aðrir segja að hann hafí einfaldlega ekki átt annan kost. Halldór hafi stillt honum upp við vegg nóttina þegar Samfylkingin bauð honum að verða forsætisráðherra. Davíð er langrækinn og gæti vel náð sér niðri á Halldóri seinna. En margir flokks- ntenn eru argir yfir þessu. I samtöl- um við unga sjálfstæðismenn skynj- ar maður ógurlegan leiða á Fram- sókn; þeir eru meira að segja farnir að tala vel um Samfylkinguna. Deyfðin virðist allsráðandi í ráð- herraliði flokksins. Sjávarútvegsráð- herrann hefur verið á flótta undan loforðum um línuívilnun, en neyðist nú til að leggja fram frumvarp sem er honum á móti skapi. Mennta- málaráðherrann bíður þess að kom- ast í sendiráð. Það er búið að taka Símann, stærsta bitann, frá Sturlu. Allir sjá að dómsmálaráðuneytið er ekki fullt starf fyrir dugnaðarfork á borð við Björn Bjarnason; það var bara leið til að troða honum aftur íslenskur Markús Guörún Sveinssdóttir skrifar. Ég vil segja, vegna ritskoðunar- stefnu hjá RUV, að mér finnst Friðrik Páll Jónsson, stjórnandi Spegilsins, einn reyndasti og besti útvarpsmað- ur landsins, hef hlutsað á hann ára- tugum saman og ber fullt traust til hans sem eins besta fréttamanns okkar. Ekki spillir róleg og yfirveguð röddin. Spegillinn er alls ekki hlut- Lesendur drægur þáttur, þarna koma fram mjög góðar fréttaskýringar og engan veginn hægt að tala um einhverja vinstri slagsíðu. Hitt er annað mál að það sem er ekki eftir flokkslínunni hjá stjórnendum RÚV er strax stimplað. Ég er alveg hjartanlega sammála honum Jónasi Kristjánssyni í leiðara f DV þar sem hann talar um að leifar Kolkrabbans og Sjálfstæðisgæðingar ráði yfir Sjónvarpinu og að hags- munagæsla sé þar mikil - oft mjög litaðar fréttir. Ég legg til að Markús Örn Antons- son verði látinn fara eitthvað annað Markús „Þarna þarf menningarsinnaðan mann, góðan penna og helst hlutlausan," segir bréfritari. Egill Helgason veltirfyrirsér fyrirætlunum Davíðs og flokksins. inn í ríkisstjórn. Geir er orðinn svo samdauna fjármálaráðuneytinu að varla er hægt að sjá mun á honum og embættismönnunum þar. Valdabarátta kraumar undir Ungu þingmennirnir sem áttu að hleypa nýju blóði í þingflokkinn virka einkennilega ástríðulausir, eins og þeir kannist varla við sjálfa sig lengur. Tómarúmið fer einna verst með þá. Með hrókeringum verður hægt að laga kvennakvótann í þingflokknum aðeins; hann verður sæmilegur þegar líður á kjörtímabil- ið. En samt er ekki beinlínis nýnæmi að Arnbjörgu Sveinsdóttur eða Sig- ríði Ingvarsdóttur. Undir niðri kraumar svo valda- barátta eða einhvers konar uppkast að valdabaráttu sem ekki kemur upp á yfirborðið nema kannski niðri í Heimdalli. Er tilefni til að sækjast eftir völdum þegar enginn veit hvort Davíð hættir? Hvenær má yfirleitt fara að hugsa um arftakann? Orða þá hugsun að einhver þurfi að taka við? Er goðgá að gera það íyrr en Davíð gefur merkið? Og hvað þá? Dreymir Björn enn þá um æðstu metorð? Getur hann unnt Geir þess að verða formaður? Er Geir nógu mikill bógur? Nógu afgerandi? Þarf kannski pólitíkus af nýrri kynslóð, með öðruvísi aðdráttarafl? Þorgerði Katrínu? Hver er rulla leikskáldsins? Um stjórnarsáttmálann sagði sjálfstæðismaður að hann væri svo rýr að hvaða almannatengslamaður sem væri hefði getað skrifað hann á dagsparti. Hins vegar var gerð ógur- lega þaulhugsuð áætlun um hver fengi hvaða starf og hvenær. Eina að stjórna; svona hægrimaður á ekki að vera í forsvari fyrir Útvarp allra landsmanna. Ef maður vitnar í þetta fræga skeyti hans til sinna manna í yfirstjórninni þá er allt sundurskotið epskuslettum: contribution, so what og svo framvegis. Annars einkennast skrif hans af slökum stíl og lélegu málfari, tilgerð með zetuna sem hann hefur ékki einu sinni á valdi sínu. Þessi maður kemur síðan fram fyrir alþjóð á hátíðlegustu stundum, áramótum og fleira. Þarna þarf menningasinnaðan mann, góðan penna og helst hlut- lausan. Var ekki einhvern tíma talað um hálfkana hér á Islandi? Það virð- ist ekki ofsagt um suma. Frábær þjónusta Þóra Sigríður Magnúsdóttir, skrifar: Ég vildi bara vekja athygli á frá- bærri þjónustu. Ég fer vikulega í nuddmeðferð hjá Gigtarfélaginu í Ármúla 5. Þar á jarðhæðinni er nú starfræktur jólavörumarkaður og ég varð fyrir því að bíllinn minn varð rafmagnslaus beint fyrir utan búð- ina. Ég fór inn og leitaði eftir aðstoð. Það var bara eins og við manninn mælt; ungur maður stökk til og reddaði málunum íyrir mig á flmm mínútum. Síðan fór ég inn og skoðaði betur hvað fékkst þarna. Þá sé ég að þarna var allt milli himins og jarðar. Ég ákvað að kaupa mér jólatré því það var virkilega fallegt, en það var of stórt í bílinn minn, svo ungi maður- inn sagðist bara skutla trénu heim fyrir mig. Þetta finnst mér frábær þjónusta á þessum síðustu og verstu tfmum. Ég spurði hvaðan hann væri og þá sagði hann mér að hann og for- eldrar hans hefðu búið í Bandaríkj- unum síðustu níu ár. Þetta finnst mér frábært hjá ungu fólki. rullan sem ekki var skrifuð til hlítar er hlutverk sjálfs leikskáldsins, Davíðs. Ólíkindatólið lætur ekki sjá svo glatt í gegnum sig. Kannski er hann ekki enn þá búinn að ákveða hvort hann hættir sem forsætisráð- herra og lætur sig hverfa úr pólitík- inni. Eða ætlar hann, sem aldrei hef- ur verið undir neinn settur í stjórn- málum, að taka eitthvert annað djobb í ríkisstjórn undir Halldóri? Og vill hann þá sitja áfram sem for- maður, leiða flokkinn í enn einum kosningum - þeim fimmtu? Eftir mörg dásamleg ár í náðarsól Davíðs horfa sjálfstæðismenn allt í einu fram á tímann að honum gengnum. Þetta er líkt og að sleppa undan forræði strangs föður, hvers skipanir má aldrei draga í efa. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur alltaf elskað sterka menn. Það verður sjálfsagt skrítið ástand á heimilinu eftir brott- för hans, en svo má kannski opna glugga og lofta aðeins út. DV tekur við lesendabréfum og ábendingum á tölvupóstfanginu lesendur@dv.is. DV áskilur sér rétt til að stytta allt það efni sem berst til blaðsins og birta það í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Afnám sjómannaafsláttar er ekki á bætandi „Það fyrsta sem mér kemur í hug eru skattalækk- unarloforð ríkisstjórnarflokkanna i aðdraganda alþingiskosninga síðastliðið vor. Sömu loforð koma orðið ansi mörgum spánskt fyrir sjónir nú, og þá sérstaklega íslenskum sjómönnum. Sjó- mennskan er ekki venjulegtstarf, það þekki ég af eigin raun. Ég er andsnúinn þessum tillögum fjár- málaráðherra um að afnema sjómannaafslátt- inn. Sjómenn hafa orðið fyrir mikilli tekju- skerðingu sökum lækkandi fiskverðs á undanförnum misserum. Það er ekki á það bætandi." Gunnar Örlygsson alþingismaður i „Nei! Þetta er hluti afkjörum sjómanna. Hvernig þætti mönnum efAI- þingi setti lög sem rýrðu kjör einnar stéttar mikið? Efþessi lög verða sam- þykkt vona ég að ráðherra búi þannig um hnútana að í því verði einhver farvegur til þess að bæta sjómönnum upp þessa kjara- skerðingu. Ég hefreyndar ekki ástæðu til að ætla að það verði gert. En ég vona það samt sem áður." — Sævar Gunnarsson formaður Sjómannasamb. íslands „Það á ekki að leggja sjó- mannaaflslátt: in niður. En ef þetta frumvarp ferígegnum þingið þarfað bæta sjó- mönnum upp þá tekjuskerð- ingu. Eðlilegt er að sú uppbót komi frá útgerðarmönnum." Aðalsteinn Baldursson, formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur „Já, ég er á þeirri skoðun. Það eiga að gilda almenn- ar reglur um skattheimtu og ósanngjarnt er að ein stétt manna fái eitt- hvað sem aðrir fá ekki." Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor við Háskóla íslands „Já, það á að gera það. En hafa verður i huga að sjó- mannaafslátt- urinn er hluti aftekjum sjó- manna og taka verður til- lit til þess ef breytingar á núverandi fyrirkomulagi verða gerðar." Birkir J. Jónsson alþingismaður Fjármálaráðherra hefur lýst yfir að hann vilji leggja af sérstakan skattaafslátt til sjómanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.