Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2003, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2003, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 1 h DESEMBER 2003 Sport 0V Houllier alls óhræddur Gerard Houllier, stjóri Liverpool, segir að hann sé á réttri leið með Liverpool og að honum finnist hann alls ekki vera undir pressu frá stjórn félagsins en stjórnarformaður Liver- pool sagði að lágmarkskrafa félagsins í ár væri að það kæmist í Meistaradeildina. „Þessi ummæli eru ekkert ný af nálinni því takmarkið er það sama og það hefur alltaf verið," sagði Houllier. „Við erum að vanir að sigra hjá Liverpool og það er alltaf stefnan að vinna titla. Það er engin pressa eða krísa innan félagsins heldur kemur hún öll utan frá." Boa Morte í leikbann Luis Boa Morte, leikmaður Fulham, hefur verið dæmdur í eins leiks bann og til að greiða 4000 punda sekt vegna atviks sem átti sér stað í leik Fulham og Leicester í október. Boa Morte náðist á myndband er hann traðkaði á Frank Sinclair, varnarmanni Leicester, en Boa Morte var eitthvað heitt í hamsi þrátt fyrir að hafa skorað tvö mörk í leiknum. Þetta er annað bannið sem Boa Morte fær í vetur en hann fékk þriggja leikja bann fyrr í vetur vegna rauðs spjalds sem hann fékk gegn Liverpool. Chelsea vill fá Nedved Zdenek Nehoa, umboðsmaður tékkneska landsliðsmannsins Pavels Nedveds, segir að Chelsea sé á höttunum eftir Nedved og að Sven-Göran Eriksson sé maðurinn sem skipuleggi allt dæmið. „Forseti Juventus, Luciano Moggi, hefur tjáð mér að Chelsea hafl gert tilboð í Nedved en hann hefur ekki mikinn áhuga á að selja. Hann vill gera nýjan samning við skjólstæðing minn. Það var væntanlega Eriksson sem stóð á bak við tilboðið en hann verður næsti þjálfari liðsins," sagði Nehoa sem virðist vita meira en flestir aðrir. Þessar fréttir eru ekki góðar fyrir Eriksson sem hefur ítrekað verið orðaður við stjórastöðuna hjá Chelsea síðan Roman Abramovich keypti félagið. Chelsea komst í hann krappann er þeir mættu tyrkneska félaginu Besiktas í Meistaradeildinni á þriðjudag. Þrátt fyrir að leikurinn hafi farið fram á hlutlausum velli í Þýskalandi fóru Tyrkirnir hamförum á pöllunum. Það var allt á suðupunkti þegar Besiktas og Chelsea mættust á heimavelli þýska liðsins Schalke í Gelsenkirchen. Leikurinn fór fram á hlutlausum velli vegna sprenging- anna sem voru í Istanbul á dögunum. Það að leikurinn færi fram í Þýskalandi hafði engin áhrif á stuðningsmenn þýska liðsins sem létu öllum illum látum á áhorfendapöllunum og rigndi margvíslegum hlutum yfir leikmenn Chelsea meðan á leik stóð. Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, mun bíða skýrslu dómara áður en ákveðið verður hvort tyrkneska félaginu verði refsað. Sú ákvörðun liggur þar að auki væntanlega ekki fyrir fyrr en í febrúar. Það var þungt hljóðið í leikmönnum Chelsea eftir leikinn. „Ég er viss um að UEFA er með einhverjar reglur vegna svona atvika og það er tími til kominn að þeir taki í taumana. Það var heppni að enginn skyldi slasast. Það var meira að segja grýtt í okkur smápeningum á meðan við hituðum upp,“ sagði Frank Lampard og félagi hans John Terry bætti við: „Þetta var svipað og þegar við lékum með landsliðinu í Tyrklandi á dögunum nema þessir áhorfendur voru enn brjálaðri." Jimmy Floyd Hasselbaink sagði að lætin hefðu hvatt Chelsea-liðið áfram. „Lætin gáfu okkur kraft til að gera enn betur og það gerðum við. Við vissum að þeir myndu ögra okkur. Það er ekki gaman að láta hrækja á sig en hvað getur maður gert? Ekki slæst maður við 50.000 manns." henry@dv.is Háspenna-Lífshætta Leikmenn Chelsea áttu fótum sínum fjörað launa i Gelsenkirchen á þriðjudag. Á stóru myndinni sést markvörður tiðsins, Carlo Cudicini, henda reyksprengju af vellinum sem stuðningsmenn Besiktas höfðu kastað inn á völlinn.A smærri myndinni má svo sjá varamenn Chelsea verja sig gegn fljúgandi aðskotahlutum með regnhlifum. Þór frá Þorlákshöfn missir tvo sterka leikmenn sem eru hættir og á leið heim Dreher og Robins hættir Það gengur mikið á í herbúðum nýliðanna í Intersportdeildinni, Þórs frá Þorlákshöfn, þessa dagana. Þjálfarinn, Billy Dreher, hefur óskað eftir því við stjóm félagsins að hætta störfum og Raymond Lee Robins er einnig hættur og er á leið heim. „Billy óskaði eftir því við okkur að fá að láta af störfum," sagði Kristinn Guðjón Kristinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Þórs, í samtali við DV Sport í gær. „Hann gaf nokkrar skýringar fyrir því af hverju hann vildi hætta. í fyrsta lagi þá var hann mjög ósáttur við árangur liðsins í vetur og hann telur það vera liðinu fyrir bestu að hann hætti að þjálfa það. Robins er einnig hættur hjá okkur og hann fer væntanlega af landi brott fljótlega," sagði Kristinn en þess utan hefúr Dreher ekki getað leikið mikið með félaginu í vetur en hann hefur verið meiddur undanfarinn mánuð. Hættir 19. desember „Hann mun þrátt fyrir það stýra liðinu fram til 19. desember. Þá stóð alltaf til að hann fengi að fara heim í jólafrí en nú er ljóst að það jólafrí verður lengra en í fyrstu var talið. Þetta er náttúrulega nýtilkomið en það er ljóst að við munum leita okkur að erlendum þjálfara sem einnig getur spilað en hvenær við finnum þann mann er erfitt að segja til um á þessari stundu. Einnig munum við fylla skarð Rays og næstu dagar verða vel nýttir til þess að skoða þá möguleika sem við eigum í stöðunni. Það er vissulega á brattann að sækja en við erum hvergi nætti búnir að gefast upp og þjöppum okkur bara saman," sagði Kristinn. Billy Dreher lék 7 leiki fyrir Þór og skoraði í þeim 16,7 stig að meðaltali í leik. Tók 4,3 fráköst og gaf 5,1 stoðsendingu. Robins lék 10 leiki fyrir nýliðana í vetur og var með 20,6 stig að meðaltali í leik. Hann gaf 2,7 stoðsendingar en var sterkur undir körfunni þar sem hann var að rífa niður 9,5 fráköst að meðaltali. henry@dv.is Lýkur keppni Billy Dreher hættir með Þór frá Þorlákshöfn siðar i mánuðinum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.