Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2003, Síða 9
DV Fréttir
FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2003 9
Áætlanir eru uppi um að markaðssetja læknisaðgerðir á íslandi. Fyrst og fremst horft til útlendinga sem
vilja fara til annarra landa í aðgerðir til þess að vera í friði á meðan. Til greina kemur að bjóða upp á
tæknifrjóvganir, fegrunar- og lýtaaðgerðir, liðskiptaaðgerðir og aðgerðir vegna kvensjúkdóma, eins og
þvaglekaaðgerðir.
Áætlanir eru uppi um að Heilbrigðisstofn-
un Suðurnesja útvíkki starfsemi sína með því
að reka skurðlækningadeild sem myndi ann-
ast aðgerðir á fólki sem flygi hingað til lands
sérstaklega í þeim tilgangi. Fimm manna hóp-
ur námsmanna við Endurmenntunarstofnun
Háskóla íslands hefur undirbúið verkefnið í
tengslum við nám sitt f Verkefnastjórnun og
leiðtogaþjálfun.
„Við höfum kannað viðhorf heilbrigðis-
ráðuneytisins, bæjaryfirvalda á Suðurnesjum,
íjármálastofnanna og Bláa lónsins til þessa, og
viðbrögðin eru góð“, segir Konráð Lúðvfksson,
yfirlæknir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
sem er í forsvari fyrir hópnum. „Hugmyndin er
Öll auglýsingastarfsemi í
tengslum við þetta verkefni
yrði þannig að hún valdi
engri úlfúð
að bjóða upp á vissar tegundir af aðgerðum
hér og tengja það við annað sem er þekkt í
okkar umhverfi, sérstaklega Bláa lónið sem er
þekkt vörumerki víða erlendis. Þá er hér góð
nálægð við alþjóðaflugvöll".
Einkafyrirtæki yrði stofnað innan veggja
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, sem nyti að-
stöðunnar þar og greiddi fyrir hana. Fyrst og
fremst er horft til einstaklinga sem eru vel
hreyfanlegir, fólk sem vill fara til annarra landa
í aðgerðir til þess að vera í friði á meðan. Til
greina kemur að bjóða upp á tæknifrjóvganir,
fegrunar- og lýtaaðgerðir, liðskiptaaðgerðir og
aðgerðir vegna kvensjúkdóma, eins og þvag-
lekaaðgerðir.
„Við vissum ekki hvort það væri
réttlætanlegt að fara af stað með svona starf-
semi undir þaki hins opinbera, en það er ráðu-
neytinu ekki óþóknanlegt svo fremi sem allir
samningar eru gegnsæir", segir Konráð. Beðið
er eftir frekari viðbrögðum ráðuneytisins, en
næsta skref er að fara út í markaðssetningu. Er
þar helst horft til Norðurlanda og Bretlands.
Þeir sem unnið hafa verkefnið ásamt Konráð,
Helga Kristín Friðjónsdóttir, Svanhildur Aðal-
steinsdóttir, Elín Björg Ragnarsdóttir og Páll
Ketilsson.
Læknum á íslandi er óheimilt að auglýsa
sig öðruvísi en að tilkynna að þeir hafi byrjað
störf á nýjum stað. Konráð segir að öll auglýs-
ingastarfsemi í tengslum við þetta verkefni
yrði þannig að hún valdi engri úlfúð. „Lækn-
arnir sjálfir verða ekki auglýstir persónulega,
heldur eingöngu stofnunin eða fyrirtækið
sjálft".
brynja@dv.is
DESEMBERTILBOÐ - 15% AFSLATTUR
út desember á hágæðarafgeymum fyrir flestar gerðir bifreiða. Frí ísetning og þriggja ára ábyrgð. www.toyota.is
' •! ; |
---—-—L