Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2003, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2003, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2003 Fréttir DV Komiðíveg fyrir undirboð Það er mLkilvægt að stjórnvöld móti almenna stefnu um málefni EES- borgara og útlendinga á ís- lenskum vinnumarkaði í samráði við aðila vinnu- markaðarins, segir í sam- þykkt miðstjórnar ASÍ. Slík stefna hafi að markmiði að þátttaka þessara ein- staklinga á íslenskum vinnumark- aði leiði ekki til röskunar með skerð- ingu á kjör- um eða lakari vinnuskil- yrða, hvort sem er á vinnu- markaðinum almennt, í einstaka starfsgreinum eða á tilteknum landssvæðum. „Markmiðið er að koma í veg fyrir félagsleg undirboð, svarta atvinnustarfsemi og misnotkun á erlendu vinnuafli." Kvöldveröarboð Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur og valinna gesta á Hótel Holti kostaði nefndina 265 þúsund krónur í peningum. Einnig voru veislugestir leystir út með alls kyns varningi sem fyrirtæki gáfu. Tilefnið var 75 ára afmæli Mæðra- styrksnefndar. Eiga jólasveinar að gefa sælgæti í skóinn? „Ég held að jólasvein- arnir eigi að fá að ráða þessu. Þeir eru náttúrulega fagmennirnir. Ef þeir ráð- færðu sig við mig myndi ég frekar mæla með einhverju uppbyggilegra. En ég held að það eigi ekki að vera nein lög yfir þetta og að jólasveinarnir eigi að fá að halda áfram að styðjast við sínar hefðir." Magnús Scheving rithöfundur Hann segir / Hún segir „Mér finnst að minnsta kosti ekki að það eigi að vera sælgæti á hverjum degi. Það er líka svo margt sem er miklu skemmti- legra, og sælgæti fá til dæmis flest börn um helgar allt árið. Ýmiss konar smá- hlutir, svo sem skrautlegir blýantar eða strokleður í pennaveskið, jólalímmiðar, föndurdót og skraut lífga upp á jólaundirbúninginn og endast ekki bara í örfáar mínútur, eins og sætt bragð í munni. Þetta þarf heldur alls ekki að vera dýrara en nammið. Sjálf fékk ég sem barn nánast daglegá mandarínur í skóinn og var hæstánægð með það. En kannski væri gaman að bæta um betur og setja framandi ávöxt í skóinn sem barnið hefur aldrei séð áður.“ Anna Sigríður Ólafsdóttir matvæla- og næringafræðingur „Það er nákvæmlega ekkert að fela," segir Ás- gerður Jóna Flosadóttir, fyrrverandi formaður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, um kvöldverð- arboð sem haldið var nefndarkonum og völdum gestum á Hótel Holti. Mæðrastyrksnefnd greiddi veislureikninginn, 265 þúsund krónur. Þessi upphæð svarar t.d. til ríflega þriðjungs af 750 þúsund króna styrk sem Reykjavíkurborg veitir nefndinni á þessu ári. Kvöldverðurinn á Hótel Holti fór fram 22. apr- íl í vor og var í tilefni af 75 ára afmæli Mæðra- styrksnefndar. Gestir voru leystir út með fjöl- mörgum veglegum gjöfum. Formenn aðildarfélaga sátu veisluna Þær sem boðið var til kvöldverðarins voru, auk meðlima Mæðrastyrksnefndar og starfsmanna, formenn og hamámenn kvenfélaganna sem aðild eiga að nefndinni. Fjórir af sjö formönnum mættu til veislunnar; þær Steinunn Jónsdóttir, formaður Húsmæðrafé- lags Reykjavíkur, Guðlaug Jónína Aðalsteinsdótt- ir, formaður Thorvaldsensfélagsins, Þorbjörg Inga Jónsdóttir, formaður Kvenréttindafélags íslands, og Erla Jónsdóttir, formaður Hvíta bandsins, sem þá hafði nýverið tekið við formennsku af Hildi G. Eyþórsdóttur. Hildur tók einmitt einmitt við formennsku af Ásgerði Jónu í Mæðrastyrksnefnd í hallarbyltingu í byrjun nóvember. Ekki í lagi, segir veislugestur „Það fannst mér ekki en hitt er annað mál að ég er ekki tilbúin að ræða það,“ segir Hildur að- spurð hvort veislan á Holtinu hafi verið í lagi. Þeg- ar rætt var við hana í gær sagðist hún eiga erfitt með að tjá sig um málið þar sem hún væri í miðri úthlutun til skjólstæðinga. „Það er allt brjálað að gera og ég er í engri að- stöðu til að segja eitt eða neitt. Svo myndi ég held- ur ekki gera það þótt ég gæti það. Ég var ekki einu sinni í nefndinni," segir Hildur sem þó viður- kennir að hafa setið veisluna. „Jú, jú, ég var þar,“ segir hún. En ætlar hún, sem nýr formaður Mæðrastyrks- Kvöldverður á Hótel Holti Þjónn skenkir Hildi G. Eyþórsdóttur, núverandi formanni Mæðrastyrksnefndar, vin. Hildi til hægri handar er Þorbjörg Inga Jónsdóttir, formaður Kvenréttindafélags Islands. Eins og aðrir gestir i 75 ára afmælisveislu Mæðrastyrks- nefndar fengu Hildur og Þorbjörg paté i forrétt, lamb i aðalrétt og is i eftirrétt á Hótel Holti. Fordrykkur var borinn fram á undan matnum og vín meðá honum. Á eftir var koniak með kaffinu. nefndar, að halda uppteknum hætti hvað veislu- höld snertir? „Það myndi ég alveg örugglega ekki gera, enda er félagið ekki alltaf 75 ára,“ segir nýi formaðurinn. Drekkhlaðið gjafaborð Ásgerður Jóna, sem nú stýrir Fjölskylduhjálp íslands, sagðist vilja minna á að veislan í apríl hafi ekki verið einsdæmi eða nýjung í starfi Mæðra- styrksnefndar. „Það var haldið stórt upp á afmælið þegar nefndin varð 60 ára. Einnig var haldið hóf þegar nefndin varð 70 ára. Það var á Hótel Loftleiðum. Þannig að þetta var ekkert nýjabrum í vor þegar nefndin varð 75 ára,“ sagði Ásgerður Jóna. Veislugestir, sem voru tæplega 30 talsins, fóru ekki tómhentir heim úr veislunni. Dregið var úr alls kyns gjöfum sem komið var fyrir á drekk- hlöðnu borði í veislusalnum. Að sögn Ásgerðar Jónu hafði hún sérstaklega fengið þessar gjafir frá rausnarlegum fyrirtækjum sem vildu sýna nefnd- arkonum Júýhug. gar@dv.is Gnægtarborð Mæðrastyrksnefndar Ásgerður Jóna Flosadóttir segir fyrirtæki hafa verið rausnarleg þegar þau voru beðin um gjafir i hlutaveltu fyrir meðlimi Mæðrastyrksnefndar og afmælisgesti nefndarinnar. Gjafirnar voru svo margar að nefndar- konur gátu ekki Ijósmyndað þær í einu lagi. „Það fannst mér ekki en hitt er ann- að mál að ég er ekki tilbúin að ræðaþað"

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.