Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2003, Qupperneq 25
DV Sport
FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2003 25
pretthlauparinn Jón Oddur Halldórsson og sundkonan Kristín Rós Hákonardóttir sem hljóta þessa
Jón Oddur er að hljóta hana í fyrsta sinn. DV Sport heyrði í þeim hljóðið eftir útnefninguna í gær.
Best hjá fötluðum Sundkonan
Kristin Rós Hákonardóttir og
spretthlauparinn Jón Oddur
Halldórsson voru valinn íþróttakona
og iþróttamaður ársins úr röðum
fatlaðra I gær.
„Við Lloyd erum góðir mátar en harðir keppni-
nautar. Hann hræðist mig og ég hræðist hann,
við berum mikla virðingu fyrir hvor öðrum og
æfum eins og við getum til að gera betri hluti
þegar við hittumst næst."
Jón Oddur Halldórsson er 21 árs
gamall spretthlaupari og kemur frá
Hellissandi. Honum skaut fyrst upp
á stjörnuhimininn hjá íþróttum
fatlaðra þegar að hann vann
silfurverðlaun í bæði 100 og 200
metra hlaupi á Heimsmeistaramóti
fatlaðra í Frakklandi árið 2002. I ár
gerði hann enn betur og sú
viðurkenning sem hann fékk í gær,
sem fyrsti frjálsíþróttamaðurinn til
að vera valinn íþróttamaður ársins
hjá fötluðum í fjögur ár, er góð
viðurkenning fyrir frábært ár sem er
að baki hjá honum.
Þegar Jón Oddur ákvað á sínum
tíma að fara spreyta sig í íþróttum
var stefnan ekki sett á frjálsar íþróttir
til að byrja með.
„Sannleikurinn er sá að ég ætlaði
alltaf fyrst að verða borðtennisspilari
en þegar ég fór í æfingabúðir hjá ÍF
var mér ýtt út í spretthlaupin. Kári
Jónsson, landsliðsþjálfari ÍF í
frjálsum sannfærði mig um að velja
frekar frjálsar. Hann sagði mér að ég
myndi finna mig best þar og þar gæti
ég náð mínum besta árangri. Hann
sá möguleikana í mér og ég sé ekki
eftir þessu, Kári hjálpaði mér að velja
rétt,“ sagði Jón Oddur sem á
skömmum tíma hefur komist í allra
fremstu röð í sínum fötlunarflokki.
f ár náði hann eins og áður sagði
að að gera enn betur en árið 2002 og
standa tvenn gullverðlaun hans frá
Evrópumótinu í júlí upp úr. Jón
Oddur vann þar sigur í bæði 100 og
200 metra hlaupi og vann heims-
meistarann, Ólympíumeistarann og
heimsmethafann, Lloyd Upsdell. Jón
Oddur sýndi og sannaði styrk sinn
líka mánuði síðar þegar þeir mættust
aftur á opna breska mótinu og vann
báðar greinarnar aftur. Auk þessa
tryggði Jón Oddur sér þátttökurétt á
Ólympíuleikunum í Aþenu á næsta
ári. Jón Qddur var kátur með vera
valinn íþróttamaður árins.
„Þetta er dýrmæt reynsla fyrir mig
og það er mjög gaman að fá
viðurkenningu fýrir það sem maður
er að gera. Þetta er besta árið mitt
hingað til. Ég keppti á mínu fyrsta
stórmóti í Frakklandi í fyrra og þar
var maður algjörlega reynslulaus.
í ár bjó ég hins vegar að þessari
keppnisferð til Frakklands. Þegar
maður mætti á Evrópumótið í sumar
var maður búinn að kynnast öllu
þessu fólki mildu betur og
andrúmsloftið var orðið miklu
vinalegra og betra. Keppnisreynslan
var líka orðin meiri og það átti
mikinn þátt í árangrinum," sagði Jón
Oddur sem vann 100 metra hlaupið
á 13,46 sekúndum og 200 metra
lrlaupið á 27,72 sekúndum.
„Ég náði ekki að bæta minn besta
tíma á Evrópumótinu en engu að
síður gekk það mjög vel. Við Lloyd
erum góðir mátar en liarðir
keppninautar. Hann hræðist mig og
ég hræðist hann, við berum mikla
virðingu fyrir hvor öðrum og æfum
eins og við getum til að gera betur
þegar við hittumst næst. Hann
meiddi sig eitthvað á Evrópumótinu
en síðan hitti ég hann aftur mánuði
seinna og þar vann ég hann í báðum
hlaupum. Þetta var skemmtileg
reynsla en ég vil nefna það í þessu
samhengi að hann tók þessu
drengilega og óskaði mér til
hamingju með sigurinn," sagði Jón
Oddur um sinn helsta keppinaut,
Bretann Lloyd Upsdell.
„Það sem ég hugsa um á æfingum
er að geta mætt sem best undirbúinn
á næsta mót. Þegar maður er í
sprettæfingunum þá ímynda ég mér
að hann sé þama við hliðina á mér
sem gefur mér aukinn kraft. Það er
líka alltaf hægt að bæta sig og ég veit
það. Ég tel liðleikann vera nokkuð
góðan hjá mér en það spillir ekld
fyrir að hafa meiri sprengikraft og
það er það sem mig vantar aðallega
til þess að geta gert enn betur," segir
Jón Oddur sem ædar reyna að gera
enn betur á næsta ári.
„Ég vonast til þess að næsta ár
geti orðið enn betra hjá mér. Ég veit
að sjálfsögðu að maður getur aldrei
ákveðið framtíðina sína en ég ætla
að halda áfram að æfa á fullu og er
staðráðinn í því að gera mitt besta.
Það verður svakalega gaman að fara
til Aþenu og Ólympíuleikar eru
langstærsta mót sem ég hef tekið
þátt í,“ sagði Jón Oddur að lokum.
ooj@dv.is
Kristjana fékk Guðrúnarbikarinn Kristjana Jónsdóttir fékk igær Guðrúnarbikarinn en
þetta er farandbikar hjá ÍF sem er veittur þeim sem hefur starfað sérstakiega vel iþágu fatlaðs
iþróttafólks. Kristjana sést hér á mynd með Össuri Aðalsteinssyni sem gafbikarinn til
minningar um eiginkonu sina.