Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2003, Side 29
-
DV Fókus
FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2003 29
Rprinn milli Slones og
Bitlonna heldur áfram
Dætnr rokkgoöa í hsr ss
Þær eru báðar dætur rokkgoða og ættu eigin-
lega að eiga margt sameiginlegt. Elizabeth
Jagger er ekki alveg sammála því henni finnst
fatahönnuðurinn Stella McCartney, dóttir bítils-
ins Paul, ömurleg. Eða alla vega fötin sem hún
hannar. Hin 19 ára dóttir Micks Jagger sagði:
„Mér finnst Stella vera löt við hönnun sína. Það
er bara ekki nóg að endurgera buxnadragtir." Og
Elizabeth, sem vill láta kalla sig Lizzy, segist ekki
heldur fá neina ánægju út úr því að umgangast
Stellu og hennar fólk: „Hún er aðeins of mikið.
fyrir mig. Hún lætur eins og við séum systur en
ég þekki hana eiginlega ekki neitt. Ég þoli ekki
þetta rokkstelpudæmi. Ég er heldur ekkert fyrir
það að hanga með börnum annarra rokkstjarna
þótt ég lumi reyndar á slúðri um nokkur."
Stella í vandræðum
Elizabeth hefur útlitið frá mömmu sinni,
fyrrum fyrirsætunni Jerry Hall, og hóf sjálf störf í
fýrirsætuheiminum þegar hún var 13 ára. Hún
hefur nú starfað sem fyrirsæta í New York í eitt
ár. Árásir hennar koma ekki á mjög góðum tíma
fyrir hina 31 árs Stellu efúr að nýlega kom í ljós
að tískufyrirtæki hennar tapaði yfir 7 milljónum
punda fyrstu tvö árin í rekstri, og treystir nú á
verkefni og ölmusur frá móðurfélagi sínu, Gucci.
Annar hönnuður, Jeff Banks, sagði nýlega að föt
Stellu væru viðvaningsleg hönnun en hún getur
þó huggað sig við að Madonna, Gwyneth Pal-
trow og Uma Thurman hafa allar klæðst fötum
frá henni.
Jagger stoltur af dótturinni
Elizabeth gefur þó ekki mikið fyrir það. Hún
er reyndar sjálf upptekin af því að eyða sögu-
sögnum um að pabbi hennar sé ekki fylgjandi
því að hún starfi sem fyrirsæta. „Það er bara
kjaftæði," sagði hún. „Eins og allir pabbar vildi
hann bara að ég kláraði námið áður en ég færi
að vinna. Ég gerði það og hann er mjög stoltur af
mér núna. Hann er líka sáttur við að yngri systir
mín ætlar að verða dýralæknir." í framtíðinni
stefnir Elizabeth á að verða leikkona, en er ekki
tilbúin að gera hvað sem er til að ná því mark-
miði. „Ég flaug til Los Angeles í prufu íýrir mynd
um Lísu í Undralandi. En eins og týpískt er fýrir
1A átti Lísa að vera bandarísk og eiturlyfjafíkill.
Ég fór áður en ég heyrði meira, þetta var ömur-
legt."
Elizabeth Jagger fkki sátt vid Stellu, dóttur
bítilsins Paul McCartney.
Stella
McCartney
ÁI stöðugum
erfíðleikum
með að fóta
sig sem fata-
hönnuður..
DV.
'*
Fáðu
áskrift
Sími 550 5000
askrift@dv.is
www.visir.is
Nýtt DV sex morgna vikunnar.
Ekkert kynningartilboð.
Engin frídreifing.
Mánaðaráskrift 1.995 krónur.