Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2003, Side 31
DV S/'ðosf en ekki síst
FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2003 3 7
Maltið enn áfengt
„Áfengið er enn í maltinu, það er
alltaf eitt prósent," segja vísinda-
mennirnir á rannsóknarstofunni hjá
Ölgerð Egils Skallagrímssonar. Þeir
slá þar með á áhyggjur lesenda
blaðsins sem kvartað hafa yfír því að
maltið sé ekki lengur áfengt. Fólk
hefur staðið sig að því að leita með
logandi ljósi á merkingum malt-
flasknanna að alkóhólinnihaldi en
enga merkingu fundið í þá veruna.
„Það er ekki skylda að merkja áfeng-
isinnihaldið ef það fer ekki yfír 1,2
prómill," segja vísindamennirnir á
ranrisóknarstofunni. „Maltið hefur
ekki tekið neinum breytingum frá
því það var bruggað fyrst af stofn-
anda Ölgerðarinnar, Tómasi
Tómassyni, árið 1913."
Maltið er í raun alvöru öl en að-
eins bruggað upp að því marki að
það nái einu prómilli í styrkleika.
Auðvelt væri að gera það áfengara
með því að láta það gerjast lengur og
yrði það þá á við það besta sem þekk-
ist í dökkum bjór. Þó þykir sumum
betra að blanda það með appelsíni.
Nýlega var farið að framleiða
maltið í nýjum flöskum sem skír-
skota bæði til fortíðar og ffamtíðar í
lögun. Við þá breytingu var áfengis-
innihaldslýsing numin á brott. Allt er
þó enn á sínum stað og maltið held-
ur áífam að gefa gott og hraustlegt
útíit - auk þess sem það bætir melt-
inguna, eins og sagt var 1913 þegar
þetta landsþekkta öl kom fyrst fram
á sjónarsviðið.
Maltið er í raun al-
vöru öl en aðeins
bruggað upp að því
marki að það nái einu
prómilli í styrkleika.
Það væri hægt að
gera það áfengara
með því að láta það
gerjast lengur.
• Dagnýjónsdóttir, þing-
maður Framsóknarflokksins,
rökstyður það á bloggvef sín-
um hvernig hún kaus gegn því
að auka fjár-
framlög til Há-
skóla íslands,
þrátt fyrir fyrri
yfirlýsingar
sínar um
nauðsyn auk-
inna fjárfram-
laga. Dagný segir að hún til-
heyri stjórnarliðinu og hún
kjósi með sínu liði. Enda fylgi
hún Framsóknarflokknum
vegna þess að hún fylgi stefnu
hans, sem er samkvæmt
hennar sannfæringu, í það
minnsta núna. Nú segir hún á
vefnum að ef flokkurinn færi
fram með mál sem ekki fylgdi
stefnu llokksins og færi líka
gegn sannfæringu hennar þá
myndi hún ekki greiða því at-
kvæði. Framsóknarflokkurinn
þarf sumsé að breyta gegn
eigin stefnu til að fara gegn
sannfæringu Dagnýjar. En það
þykir henni réttilega hæpið að
muni gerast; því er hún og
ílokkurinn eitt...
• Stórsveitin Todmobile
mun sem kunnugt er verða
með tvenna tónleika á Nasa
nú um helgina og er þess að
vænta að margir aðdáenda
þessarar stórsveitar mæti
þangað. I DV í gær sagði Ey-
þór Amalds að hljómsveitin
væri í góðum
gír um þessar
mundir; hefði
smolfið saman
eftir tónleika
með Sinfóníu-
hljómsveitinni
á dögunum. Ekki er vitað
hvort Todmobile lumar á ein-
hverjum feynivopnum fyrir
komandi tónleika, en menn
bíða spenntir. Sjónir beinast
ekki síst að Eyþóri, sém fyrr á
árum sýndi oft algjöra snilld-
artakta við seilóið. Þar minn-
ast menn meðal annars þess
úr Eurovision-keppninni árið
1991 þegar hann lék í Draumi
um Nínu - og tókst með
snilldartöktum að snúa hljóð-
færinu í heilan hring fyrir
framan linsur myndavélanna í
Dublin. Nú á hann heiður að
verja að þessu leyti og við sjá-
um hvað setur...
• Leikritið Kvetch eftir
Steven Berkoff hefur verið
sýnt við afar góðan orðstír í
Borgarleikhús-
inu undanfarin
misseri.. Það
var leikhópur-
inn Á senunni,
í samvinnu við
Leikfélag
Reykjavflotr,
sem setti verkið upp og hlaut
það Grímuna fyrr á þessu ári.
Nú er aftur á móti komið að
síðustu sýningunni, þeirri
allra síðustu. Hún verður ann-
að kvöld, föstudagskvöld,
klukkan 20 í Borgarleikhús-
inu...
Castor kynnir
Mp3.is opnunartónleikar á NASA
Til styrktar Tónlistarbróunarmiðstöðvarinnar
Hljómsveitirnar Týr, Vínyll, Kanis, Amos, Douglas Wilson,
Margrét Eir, Bodies, Anonymous, Noise, Atómstöðin, Ókind,
Pan og Gizmo spila. Kynnir kvöldsins er Haukur Sig.
Húsið opnar kl. 20:00 | Miðaverð 1 500 ki
f *
#■