Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2003, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2003, Page 10
70 ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2003 Fréttir DV Útrás Baugs Baugur Group keypti meirihlutann í bresku tískuvörukeðjunni Oasis fyrir tæpa 20 millj- arða króna. Um er að ræða 342 Oasis og Coast tísku- vöruverslanir í Bretlandi ásamt nokkrum öðrum verslunum í tólf löndum. Þá keypti Baugur 90% í bresku leikfangaverslun- inni Hamleys, að verðmæti 7 milljarðar króna. Fjárfest- ingar Baugs í Bretlandi nema nú tæplega 40 millj- örðum króna. Samruni Búnað- arbanka og Kaupþings Nafni sameinaðs banka verður breytt í KB banki um áramótin, en Kaupfé- lag Borgfirðinga telur sig hafa einkarétt á vörumerk- inu KB. Með samruna þessara banka í ár skýrðust línurnar á fjármálamarkaði verulega. Þar starfa nú þrír öflugir bankar sem allir hafa sterk ítök í viðskipta- lífinu. Þeir tengjast allir tryggingafélögum á einn eða annan hátt. Samstarf er milli Landsbankans og TM, Kaupþing Búnaðar- banki tengist VÍS og ís- landsbanki Sjóvá-Almenn- um. Kaupaukar Kaupþing Búnaðarbanki varð fyrir verulegum álits- hnektó þegar frétt- ist af kaupréttar- samningum stjórnarformanns og forstjóra fyrir- tækisins. Hefðu þeir getað hagnast um rúmar 730 miljónir. Uppreisn varð í þjóðfélaginu og féllu þeir frá samningnum. Stefnt er að því að bera slíka samninga við stjórn- endur fyrirtæk- isins undir hluthafa- fund í Kaupin á SPR0N Kaupþing Búnaðarbanki gerði samning um kaup á SPRON á níu milljarða. Hljóti kaupin samþykki, meðal annars frá sam- keppnisyfirvöldum, er talið að kapphlaup hefjist milli stóru viðskiptabankanna þriggja um kaup á öðrum sparisjóðum í landinu. Þeir hafa allir þrír lýst áhuga á slíkum kaupum. Gríðarhagnaður Áætlaður hagnaður stóru viðskiptabankanna þriggja er í kringum 25 milljarðar á árinu. Þjón- ustugjöld þeirra duga fyrir öllum launakostnaði. Metár í gjald- þrotum Samkvæmt upplýsing- um frá Lánstrausti virðist árið 2003 vera metár í fjölda gjaldþrota. Gjald- þrotin fýrstu tíu mánuði ársins voru 872 talsins, en voru 686 á sama tíma í fyrra. Þetta er 27% aukning. Ljóst er að gjaldþrot eru mun tíðari hér en hjá öðr- um Evrópuþjóðum. Mikil dramatík í alþingiskosningum á árinu gaf tóninn fyrir stjórnmálaumræðuna. Erfið og umdeild mál komu upp hvert á fætur öðru. Framundan eru snúnir kjara- samningar, skipt verður um karlinn í brúnni og ráðherraslagur er í uppsiglingu hjá Framsókn þegar ráðherrastólum flokksins fækkar um einn. Á komandi ári verður tveggja merkra atburða í íslandssögunni minnst. Fyrsta febrúar verða liðin eitt hundrað ár frá því íslendingar fengu heimastjórn og fyrsti íslenski ráðherrann hóf störf. Á sautjánda júní eru svo liðin sextíu ár frá stofn- un lýðveldisins. Þjóðfélagið hefur tekið miklum breytingum á þeim tíma og lífskjör almennings í land- inu batnað gríðarlega. Slíkt er ár- angur Ianghlaups en ekki sprett- hlaups, en um leið einnig afleiðing stefnu stjórnvalda á hverjum tíma og þeim ákvörðunum sem teknar eru á hverju kjörtímabili fyrir sig. Við skulum lfta yflr árangur núver- andi rfkisstjórnar hingað til, sem kosin var í maí á árinu, borið saman við stefnu hennar í stjórnarsátt- mála. Skattalækkanir Loforð um skattalækkanir ein- kenndu kosningabaráttuna og eftir kosningar var ákveðið að á kjör- tímabilinu verði tekjuskattur lækk- aður um allt að 4%. Þá á að fella niður eignar- skatt, lækka erfðafjárskatt og taka virðis- aukaskattkerfið til endurskoð- unar. Alls á að Næsti forsætisráð- herra Framsóknar- ráðherrum fækkar um einn í haust þegar Halldór tekur við af Davið. verja tuttugu milljörðum króna í skatta- lækkanir á kjör- tímabilinu. Út- færslan liggur hinsvegar enn ekki fyrir, og hvað sem sfðar verður hafa álögur það sem af er kjörtíma- bilinu einungis aukist. Þungaskatt- ur var hækkaður og vörugjald á bensíni, en samtals mun þetta auka tekjur ríkissjóðs um einn milljarð á ári. Bensínverð hækkaði í kjölfarið, og þar með var íslendingum boðið uppá dýrasta bensín í heimi. Út- reikningar sýndu að þetta myndi hælcka verðbólguna um 0,12%, sem aftur hefur áhrif á greiðslubyrði á lánum almennings. Fjármálaráð- herra varði ákvörðunina með því að ekki hefði verið hreyft við þessum gjöldum frá árinu 1999, nema til lækkunar, en á sama tíma hefði verðlag hækkað um 18%. Hátekju- skatturinn sem átti að falla niður um áramót var framlengdur. Húsnæðismál Hækka á lánshlutfall íbúðalána í allt að 90% af kaupverði á kjörtíma- bilinu. Enn liggur ekki fyrir hvernig staðið verður að því. Haldið verður fast í þessar fyrirætlanir þrátt fyrir að Seðlabankinn, meðal annarra, hafi varað við þensluhvetjandi áhrifum. Stólaskipti Ríkisstjórnin mun breytast töluvert i haustþegar utanrikis- og umhverfisráðu- neytin færast yfir til Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðuneytið til Framsóknar. Þá verða vaxtabætur allra sem eiga rétt á þeim lækkaðar um 10% á næsta ári. ASÍ telur skerðingu vaxta- bóta hjóna geta orðið allt að 110 þúsund. Samkeppnismál í stjómarsáttmála er lögð sérstök áhersla á að tryggja öíluga sam- keppni á sem flestum sviðum. Um leið hefur vart orðið önnur eins samþjöppun á stórum sviðum at- Kosningarnar á árinu voru æsispennandi og nkti meiri óvissa en oft áður um úrslit. Kannanir sýndu lengst af verulegt fylgistap Framsóknarílokks og hátt fylgi Vinstri Grænna. Svo fór þó að Vinstri Grænir misstu einn mann en tugmilljóna króna kosningabarátta skilaði Framsóknarflokknum hins vegar óbreyttri þingmannatölu, og lenti hann eins og svo oft áður hefur gerst í lykilstöðu í stjórnarmyndun. Möguleiki var á stjórn án Sjálfstæð- isflokks en svo fór að rfldsstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar var mynduð með fimm' manna meiri- hluta. Strax varð ljóst að HalldórÁs- grímsson myndi gera tilkall til for- sætisráðherrastólsins. Það gekk eftir og sest hann í stól Davtðs næsta vinnulífsins, svo sem á viðskipta- bankasviði og á sviði fjölmiðlunar. Þá er enn beðið skýrslu samkeppn- isyfirvalda um olíufélögin og trygg- ingafélögin sem hefur verið í vinnslu í nokkur ár. Bankarnir hafa legið undir ámæli fyrir litla samkeppni, og í ljós kom að nánast enginn munur er á lánavöxtum þeirra til einstak- linga. Valgerður Sverrisdóttir, við- skiptaráðherra, hefur lagt mitóa áherslu á að skipta sér ekki af starfi haust. Sjálfstæðisflokkur tapaði fjór- um þingmönnum en Samfylking bætti við sig þremur mönnum. Frjálslyndi flokkurinn bætti við sig tveimur mönnum og tvöfaldaði nærri fylgi sitt. Mitól endurnýjun varð í þingmannaliðinu og settust átján nýir menn á þing. Meðalaldur þingmanna er nú 47 ár, sem er fimm árum lægra en áður. Konum á þingi fækkaði um fjórar eftir kosningar. Mikil dramatík einkenndi kosning- arnar, en það var fyrst ljóst morgun- inn eftir að vonarstjarna Samfýlk- ingarinnar, Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, náði ekki inn á þing. Samfýlk- ingarmenn lentu í nokkmm vand- ræðum með að frnna henni viðeig- andi hlutverk, og fór svo að hún var kjörinn varaformaður flokksins. eftirlitsstoínanna heldur eigi þær að vinna sitt verk óháðar stjórnvöldum. Á móti kemur að viðurkennt er að samkeppnisyfirvöld hafi ektó bol- magn tU að sinna eftirlitshiutvertó sínu að fullu vegna fjárskorts, og bfða mörg stór mál betri tíma. Niðurskurður hjá Landspítala I stjórnarsáttmála segir að rítós- stjórn Framsóknarflokks og Sjálf- stæðisflokks vilji enn bæta þjónustu í heilbrigðiskerfinu. Það sem við blasir er hinsvegar niðurskurður hjá Landspítala Háskólasjúkrahúsi upp á 800 til 1000 milljónir og uppsagnir á annað hundrað starfsmanna spít- alans blasa við nú um áramótin. Heit eftirlaun Ríkisstjórnin segist í stjórnarsátt- mála vilja samráð við aðila vinnu- markaðarins um efnahagslegan stöðugleika. Það kom því verkalýðs- forkólfum mjög á óvart að þing- menn samþykktu rétt fyrir jól hækk- un eftirlauna æðstu manna þjóðar- innar og launa formanna flokka og nefnda. Þannig hækka leiðtogar stjórnmálaflokka um 220 þúsund í launum á mánuði. Forsætisráðherra fær -712 þúsund krónur á mánuði í eftirlaun í stað 381 þúsunda og getur farið á eftirlaun strax. Halldór Ás- grímsson, sem verður forsætisráð- herra í haust þarf aðeins að sitja í þeim stóli í rúm tvö ár til að njóta hámarks eftirlauna. Eftir þetta var lítið um samheldnisandrúmsloft milli stjórnar og verkalýðsleiðtoga, sem hyggjast gera stórauknar kröfur um lffeyrisréttindi í komandi kjara- samningum. Forsætisráðherrarnir Það erákveðið að Davíð Oddsson hætti sem forsætisráðherra í haus og Halldór Ásgrímsson tekur við. Línuívilnun og Héðinsfjarðar- göng Forsætisráðherra sagði á opnum stjórnmálafundi á ísafirði fyrir kosn- ingar að hann teldi að ívilnun fyrir dagróðrabáta sem róa með línu ætti að geta komið til framkvæmda með haustinu. Síðar töldu ráðamenn sér ekki heimilt að framkvæma breyt- inguna þá um haustið, við litla ánægju sjómanna á dagróðrabátum, sem brigsluðu þeim um svik. Línuí- Ingibjörg komst ekki á þing Tvísýnt varalla kosninganóttina um hvort vonarstjarna Samfytkingarinnar dytti inn á þing. Hún var ekki alveg úti fyrr en undir morgun. Dramatískar kosningar 2003

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.