Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2003, Qupperneq 35
DV Fókus
ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2003 3*
Auðunn Blöndal, sjón-
varpsmaður og krabbi
Hvernig var 2003?
Árið 2003 var alveg
brilli]ant, árið hefði
verið verra hefði það
verið betra.
Skandall ársins?
Þaðvar náttúrlega
skandall að 70 minútur hafi verið til-
nefndur sem besti sjónvarpsþáttur-
inn á Edduverðlaunahátiðinni.
Hvað kom mest á óvart?
Það kom mér mjög á óvart að
Sveppi skildi verða pabbi.
Hvað breytti lífi þínu?
Ég eignaðist kærustu.
Hvað breytist 2004?
Ég kem til með að selja rauða
Hyundai bílinn minn, það er Ijóst að
hann fer á næsta ári.
Maður ársins?
Maggi Scheving hefurgert það
ágætt.
Skúrkur ársins?
George Bush.
Arnþór Helgason, fram-
kvæmdastjóri Öryrkja-
bandalags íslands og
Hrútur
Hvernig var 2003?
íeinkalifinu var það
gott ár.
Skandall ársins?
Brot stjórnvaldaá
samningi Öryrkjaband■
lags Islands og stjórnvalda frá 25.
mars2003.
Hvað kom mest á óvart?
Heigulsháttur framsóknarmanna
við siðustu stjórnarmyndun.
Hvað breytti lífi þínu?
Aukin þroski og lifsreynsla.
Hvað breytist 2004?
Vonandi ná menn sáttum i þeim
deilu- og álitamálum sem nú eru á
milli Öryrkjabandalags Islands
stjórnarflokkanna.
Maðurársins?
Garðar Sverrisson
Skúrkur ársins?
Formenn stjórnarflokkanna.
Friðrik Sophusson, for-
stjóri Landsvirkjunar og
vog
Hvernig var 2003?
Árið 2003 var gottað
flestu leyti.
Skandall ársins?
Efég nota sama mæli-
kvarða og DVþá
kæmust þeir ekki fyrir í blaðinu.
Hvað kom mest á óvart?
Ég er kominn á þann aldur að fátt
kemur mérá óvart.
Hvað breytti lífi þínu?
Ný eldhúsinnrétting heima hjá mér.
Nú er mun einfaldara og þægilegra
að vaska upp.
Hvað breytist 2004?
Þá hættir Davíð Oddsson, forsætis-
ráðherra, eftir langan og farsælan
feril
Maður ársins?
Saddam Hussein
Skúrkur ársins?
Saddam Hussein
Guðný Hrund Karlsdótt-
ir, sveitarstjóri á Raufar-
höfn og tvíburi.
Hvernig var 2003?
Þetta varerfitten
ágætt ár. Það skánaði
eftir því sem leið á.
Skandall ársins?
Gríðarlegt niðurbrot
byggða úti á landi.
Hvað kom mest á óvart?
Uppsagnir I Jökli á Raufarhöfn.
Hvað breytti lífi þínu?
Hvað raunverulegur mótbyr kallar
fram mismunandi eiginieika i fari
fólks.
Hvað breytist 2004?
Aukin bjartsýni og velmegun á Rauf-
arhöfn.
Maður ársins?
Gunnlaugur Hreinsson, fram-
kvæmdastjóra GPG fiskverskunar á
Húsavik, fyrir að taka við Jökli.
Skúrkur ársins?
Get ekki gert upp á milli Bush og
Saddam.
Ásgerður Jóna Flosa-
dóttir, formaður Fjöl-
skylduhjálpar íslands
og sporðdreki.
Hvernig var 2003?
Árið 2003 varákaf-
lega gott ár og. Efn-
hagsmálin virðast
lofa góðu. Farið er
að virða réttyngstu
öryrkjanna með tilkalli til
þess að þeir haldi sjálfsvirðingu
sinni. Það varlíka mjög jákvætt að
það var hægt að ná Saddam
Hussein.
Skandall ársins?
Man ekki eftir neinum skandal. Ég er
eins og flestir Islendingar að ég er
fljót að gleyma. Efst i hugann kemur
þó eftirlaunafrumvarp ríkisstjórnar-
innar sem var keyrt I gegn á síðustu
stundu. Það mun skapa mikla ólgu
innan verkalýðshreyfingarinnar við
næstu samningagerð.
Hvað kom mest á óvart?
Að þessar 290 þúsund hræður á Is-
landi geti haldið úti battarii sem er
eins og tugmilljóna samfélag. Imínu
lifi fannst mér markverðast að koma
Fjölskylduhjálp Islands á laggirnar
og geta hjálpað um tvö þúsund
manns Ijólamánuðinum án þess að
samtökin ættu eina krónu. Það segir
mikið um fyrirtækin I landinu.
Hvað breytti lífi þínu?
Margt. Ég komst að þvi hvað fólk
getur verið illa innrætt. Á á móti
kemur að miklu fleiri eru gott fólk. Is-
lendingar eru yfirhöfuð gott fólk en I
hverju samfélagi er ein karfa af
skemmdum eplum og það breytist
ekki.
Hvað breytist 2004?
Ég er ekki spákona eða I tengslum
við völvur þannig að ég get ekki séð
fram I timann. En ég vona að þjóðlif-
ið á Islandi gangi beturrþað verði
stöðugt betra og eftirsóknarverðara
að búa á Islandi og að Islendingar
sjálfir læri að meta landið sitt.
Maður ársins?
Það er enginn maður i mínum huga
maður ársins á Islandi
Skúrkur ársins?
Það eru svo margir skúrkar á Islandi
að það er ómögulegtað taka einn
út.
Ögmundar Jónasson, al-
þingismaður og
Hvernig var 2003?
Það var persónulega
prýðilegt en sama
gildirekki um pólitik-
ina. Kosningarnar
skiluðu þjóðinni þvi
miður ekki þeirri niður-
stöðu sem ég hafði vonast
til.
Skandall ársins?
Ætli skandala ársins sé ekki að finna
I fjármálageiranum og þá helst að
ríkisstjórnin kannist ekki við afleið-
ingar gjörða sinna. Siðan má ekki
gleyma Kárahnjúkamálinu, að
ákveðið skyldi vera að fara iþá fram-
kvæmd á forsendum erlends álrisa.
Hvað kom mest á óvart?
Máttur auglýsingarinnar, það sann-
aði Framsókn i kosningunum.
Hvað breytti lífi þínu?
Ekkert sem kemur i hug það er i
sæmilega stabílum farvegi.
Hvað breytist 2004?
Það sem vonandi breytist er að þjóð-
in skilji að það breytist ekkert nema
baristséfyrirþví.
Maður ársins?
Við skulum hafa þá þrjá, Garðar
Sverrisson eina ferðina enn fyrir
staðfestu og baráttuþrek, Ómar
Ragnarsson, sem alltafer maður árs-
ins og ÞorgrimurHaraldsson sem
breytti viðhorfum margra til geðheil-
brigðismála.
Skúrkur ársins?
Þeir sem eru ábyrgir fyrir smíði kyn-
þáttamúrsins í Palestinu eru skúrkar
ársins.
Krabbi
Ómar Ragnarsson,
fréttamaður og meyja
Hvermg var 2003?
Persónulega varþetta
stormasamt krefjandi
og gefandi ár.
Skandall ársins?
Stöðu minnar vegna
er þaðekki mittað
dæma um það. Kára-
hnjúkavirkjun er eina mál ársins sem
örugglega hefuráhrifum alla fram-
tið. Sumir útlendinganna sem sáu
mynd mina um Vatnajökulsþjóð-
garð sögðu að virkjunin væri mesta
umhverfishneuyskli Evrópu. Efþeir
hafa rangt fyrri sérgætu ummæli og
skoðanir af þessu tagi alveg eins veP*.
ið skandall ársins.
Hvað kom mest á óvart?
Sá stóri en þögli atburður hve þjón-
usta i fíugsamgöngum við Evrópu
varstórbætt.
Hvað breytti lífi þínu?
Að ég skildi geta stjáklað um jarð-
sprengjusvæði þjóðlifisns án þess að
springa I loft.
Hvað breytist 2004?
Ég get ekki spáð þvi, og ætla ekki að
lenda i þvi sama og Siggi stormur
sem spáði hláku um jólin.
Maður ársins?
Halldór Ásgrimsson. Meðfram-
kvæmdum við Kárahnjúka byrjaði
einn stærsti draumur hans að rætast.
Hann breytti fyrirsjáanlegum ósigri i
kosningum i varnarsigur og tryggði
sér valdamesta embætti þjóðarinnar
á næsta ári. Hann braut blað i utan-*m
ríkisstefnu Islands I Iraksmálinu og
samkskiptum okkar við þróunar-
lönd.
Skúrkur ársins?
Fréttamaðurinn segirpass.
Þórey Edda Elísdóttir,
frjálsíþróttakona og
krabbi
Hvernig var 2003?
Ég prófaði nýja hluti,
eins og kosningabar-
áttuna og flutti til
Þýskalands til að
stunda frjálsíþróttir.
Skandall ársins?
Að við studdum stríðið i Irak.
Hvað kom mest á óvart?
Hvað kosningabaráttan var ,
skemmtileg.
Hvað breytti lífi þínu?
Ég flutti til Þýkalands.
Hvað breytist 2004?
Keppni á Ólympíuleikunum.
Maður ársins?
Magnús Scheving.
Skúrkur ársins?
Kristján Ra. Kristjánsson.
Jón Kristjánsson, heil-
brigðisraðherra og tví-
buri.
Hvernig var 2003?
Þetta var gott ár fyrir
mig persónulega og
vonandisem flesta.
Skandall ársins?
Ég myndi segja að það
væri fréttin afmanninum sem tók
sér það sem hann átti ekki.
Hvað kom mest á óvart?
Það kom mér mest á óvart þau
miklu og góðu viðbrögð sem ég fékk
persónulega og almennt við úr-
skurðinum um Norðlingaöldu.
Hvað breytti lífi þínu?
Það sem breytir lifi mínu á hverju ári
og hverjum degi eru samskiptin við
fólk sem ég hitti. Lærdómur og
reynsla affólki gerirmann betur
hæfan til að takast á við lifíð.
Hvað breytist 2004?
Ég myndi segja eins og Daninn
Storm P að það er erfítt að spá, og
þá sérstaklega um framtíðina.
Maður ársins?
Ég held mig við Halldór Ásgrimsson
því hann fóri kosningari erfíðri
stöðu og endaði sem forsætisráð-
herraefni.
Skúrkur ársins?
Saddam Hussein.