Dagblaðið - 12.05.1976, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 12.05.1976, Blaðsíða 24
Dráttarhruulin í Kcflavík. — vi'tlvanjjUr hrortalcnra vihburrta (DB- mynd OV). Re.vkvískir lögregluþjónar á vakt í gærkvöldi og i nótt. fengu fyrirskipun um aö gefa þýzka sendiráóinu við Túngötu og bústað sendiherrans sér- stakan gaum. Áttu lögreglu- menn að aka reglulega framhjá húsunum og kanna hvort nokkuð óeðlilegt væri á se.vði i nágrenninu. Attu þeir alls ekki að stoppa við húsin. sæju þeir ekkert, heldur vera stöðugt á ferðinni. Ráðstafanir þessar standa i- sambandi við sjálfsmorð Ulriku Meinhof, seni stuðningsmenn hennar túlka sem morð þýzkra yfirvalda og hafa þegar framið riermdarverk. Sem kunnugt er, var sett skothelt gler í vestur-þýzka sendiráðið í fvrra, svo það verður að teljast vel útbúið í þessu tilliti. Blaðinu er ekki kunnugt um að lögreglan hafi arðið vör við neitt óeðlilegt í nótt. -G.S. Búnoðarbankinn keypti Yotmúki ú 30 milljóiiir Búnaðarbanki lslands hefur nú keypt jörðina Votmúla í Sandvíkurhreppi á 30 milljónir króna. Til viðbótar við það kemur uppgjör jarðagjalda, en ábúandi og í þessu tilfelli eig- andinn, Þórkell G. Björgvinsson, fær að búa á jörð- inni um sinn, sem þó er háð einhliða samþykki kaupenda. Fasteignamat jarðarinnar er um 1200 þúsund, en Þórkell keypti jörðina árið 1970 á 1950 þúsund krónur. Fyrir hönd Búnaðarbankans undirrituðu Stefán Hilmarsson og Magnús Jónsson og ekki er minnzt á vaxtagreiðslur í kaupsamningn- um, sem gerður var 7. maí s.l. „Mönnum þykir það dálítið furðulegt, að bankinn skuli geta snarað út þessari upphæð á meðan bændur geta ekki fengið meira en 500 þúsund til jarðakaupa,” sagði Páll Lýðs- son, hreppstjóri Sandvíkur- hrepps, í viðtali við DB „Þetta er sama upphæð og Selfoss- hreppi bauðst að kaupa jörðina á og bankinn á örugglega eftir að hagnast á þessum viðskipt- um. „Það eina sem ég get sagt við þessar fréttir er að ég sem oddviti þáverandi hrepps- nefndar var fylgjandi kaupun- um,” sagði Öli Þ. Guðbjartsson oddviti Selfosshrepps er blaðið hafði samband við hann. „Mín skoðun á málinu hefur ekki breytzt.” —HP. Mörgu ósvarað í Geirf innsmólinu: Var ham fifondl? GUÐRtJN ERLA, — hún hefur viðurkennt að hafa skotið mann sem gæti verið Geirfinnur. Saga hennar virðist þó næsta ótrúleg eins og Saka- dómur hefur skrifað hana og matað fjölmiðla á henni. Hver hefur sagt að maður- inn, sem Erla skaut og talinn er hafa verið Geirfinnur, hafi verið lifandi þegar hún skaut á hann? Þetta er ein af mörgum spurningum sem vakna við ó- fullkomna fréttatilk.vnningu frá Sakadómi Reykjavíkur. Ekkert hefur komið fram um að það hafi verið staðfest aó maðurinn hafi enn verið lifandi, eftir þá meðferð sem hann hafði hlotið. Hvað var þetta fólk að gera i Dráttarbrautinni í Keflavík í þetta sinn? Hafði það komið þangað af sjálfsdáðum eða var það boðað þangað? Hver boðaði það? Hvers vegna bað lögreglan ekki fvrr um upplýsingar frá aimenningi um mikilvæg at- riði málsins en búið var að láta gæzlufahgana fjóra lausa? Dagblaðið nefndi í gær fjöl- margar aðrar spurningar, sem ósvarað er. —HH FRETTATILKYNNINGIN BEINLÍNIS VILLANDI — segir Hafsteinn Baldvinsson hrl. „Fréttatiikynning sakadóms er beinlínis villandi um viss atriði,” sagði Hafsteinn Baldvinsson hrl., réttargæzlu- maður Magnúsar Leópolds- sonar frkvst., í viðtali við Dag- blaðið. Benti lögrriaðurinn í þessu sambandi á eftirfarandi kafla til dæmis um þetta: I tilkynningu sakadóms segir orðrétt: „Kristján Viðar og Erla töldu sig bera kennsl á nokkra þeirra, sem voru þarna staddir á athafnasvæði Dráttarbrautar- innar. og voru þeir Einar Gunnar Bollason, Magnús Leópoldsson, Valdimar Olsen og Sigurbjörn Eiríksson til- greindir í þvi efni, en þeir hafa staðfastlega neitað því." Erlu og Kristjáni Viðari hefur alls ekki borið saman í framburði sínum fyrir rétti um þetta atriði. Er rétt, að fram komi, að Erla hefur borið að hafa séð Magnús Leópoldsson þarna, sem og stóran mann með vindil, sem hún telur að geti hafa verið Sigurbjörn Eirlks- son. Kristján Viðar hefur hins vegar borið að hann hafi þarna séó Einar Bollason og Valdimar Olsen á umræddum tíma. Það sem fram hefur komið við yfirheyrslur um þetta atriði er því í raun mjög á annan veg en skilið verður í frásögn fréttatilkynningar sakadóms. Er full ástæða til að itreka það sem fram kom í Dagblaðinu í gær, að fréttatilkynningin vekur mun fleiri spurningar en hún svarar. Engum þeirra hefur enn verió svarað, og þá ekki frekar greint frá fjar- vistarsönnunum fvrrverandi gæzlufanga en öðrum veiga- miklum atriðum. BS Portúgal við bankann... Það þarf ekki glöggt gests- auga til að sjá að íslendingar eiga við ofdrykkjuvandamál að stríða. Jafnvel i hjarta borgar- innar má sjá rónana svonefndu vera að blanda sér morgun- kokkteilinn, Eau de Portugal blandað út í maltöl. Síðan hefja þeir drykkju sína, jafnframt því sem þeir svífa á fólk og spyrja: „Máttu missa hundrað. ..?” Þessi sat undir vegg sjálfs Útvegsbankans og blandaði (DB-mynd Björgvin), fijálst, úháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 1976. i« „ISLAND HEFUR AÐDÁUN ÞJÓÐANNA — segir bandarískt blað um iandhelgismdlið „Litla ísland hefur skapað sér aðdáun þjóða og einstakl- inga um allan heim með því að slíta stjórnmálasambandi við Bretland vegna þorskastríðs- ins og taka að sér hlutverk „músarinnar, sem öskraði”?” Þetta segir í leiðara blaðsins Albuquerque Journal í Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum. Blaðið ræðir um, að miklu meiri hætla sé samfara skorti á alþjóðalögum um fiskveiðilög- sögu og efnahagslögsögu en hættan sé, sem stafi af átökum í Mið-Austurlöndum annað veifið. Aðgerðir íslendinga og væntanleg útfærsla Banda- ríkjamanna muni ýta við öllum þjóðum í þessum efnum. —HH Héðinsinnbrotíð: Lögreglan vill tala við bílstjóra Eins og flestum er kunnugt var framinn stór- þjófnaður í Vélsmiðjunni Héðni í nóvember sl. Að gefnu tilefni álítur rannsóknarlögreglan að við- komandi aðili hafi tekið sér far með leigubíl úr vestur- bænum upp í Laugavegsapó- tek og síðan aftur vestur í bæ. Maðurinn, sem mun vera sá hinn sami og sat í gæzluvarðhaldi vegna málsins í vetur, er talinn hafa ver-ið með blæðandi sár undir hökunni. Rannsóknarlögreglan beinir þeim eindregnu til- mælunt til viðkomandi bíl- stjóra, að hann gefi sig fram. — JB — Ekið í veg fyrir lögreglumann ú bifhjóli Ekið var t veg fyrir lögreglu- mann á bifhjóli á gatnamótum Skothúsvegar og Sóleyjargötu um klukkan hálffimm í gær. Lögreglumaðurinn féll af hjólinu, en slapp ómeiddur. Ökumaður bílsins, sem slysinu olli, ber að hann hafi ekki séð mótorhjólið nógu snemma til að forðast árekstur, þar eð það hafi verið í hvarfi við bil sem ók á undan því. —AT— V-ÞYZKA SENDIRAÐIÐ UNDIR STRÖNGU EFTIRLITI — Víðbúnir hryðjuverkum Baader-Meinhof

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.