Dagblaðið - 24.05.1976, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 24. MAÍ 1976.
— erum ánœgðir með árangur œfingarinnar, segir Guðjón Petersen
„Flugslys" á Reykjavíkurf lugvelli:
Lœknanemar áttu heiður-
inn af þeim „slösuðu"
Nœtursvall í góðviðrinu
í Reykjavík:
Sóttu á svalir
Alþingis
— rifu borða og
brutu rúðu
Mikil ólæti og ölvun áttu sér
st,að f miðborg Reykjavíkur á
föstudagskvöldið og fram eftir
nóttu. Stóðu ólætin með ýmsum
blæbrigðum fram eftir nóttu
allt fram undir kl. 4 að morgni
laugardags. Áttu lögreglumenn
í miklum önnum og friður
komst ekki á fyrr en farið var
með bíla og lið manna og óláta-
hóparnir grisjaðir og þeir sem
dólgslegast létu fluttir á brott.
Tveir piltar klifruðu upp á
svalir Alþingishússins og urðu
lögreglumenn að sækja þá
þangað upp. Þá var brotin rúða
í hurð Þallar við mót Austur-
strætis og Aðalstrætis. Gerðist
það meðan söluskálinn var enn
opinn og þóttust menn vera að
mótmæla afgreiðsluháttum í
Þöll.
Oft var hringt og tilkynnt um
slagsmál en þeim var ævinlega
lokið er lögreglumenn komu á
staðinn.
Loks var ráðizt að aug-
lýsingaborða Listahátíðar sem
strengdur var yfir Austur-
stræti. Var hann rifinn niður og
hvarf með öllu. Hefur ekkert af
honum fundizt enn. Ekki
náðust þeir er þar voru að
verki.
Lögreglan telur að góða
veðrið hafi haft þau áhrif að
fólkið ráfaði um miðbæinn svo
lengi. Eitthvað ófegurra mun
orsök skemmdarverkanna sem
framin voru og illindanna.
—ASt.
13 teknir ölvaðir
við akstur
Þrettán ökumenn voru tekn-
ir fyrir meinta ölvun við akstur
á götum Reykjavíkur um helg-
ina. Tölur þessar ná yfir tíma-
biiið frá klukkan liðlega 3 að
morgni föstudags til kl. 5.30 á
Vestmannaeyjaflugvélin sem „sprengingin” varð í. Slökkviliðí-
maður þvær froðuna af vélinni eftir æfinguna.
Siökkvilið og björgunarsveitir sáu um að koma fólki á spítala.
Læknanemar fyigdust með og dæmdu um hvort menn iétust í
Hutningi.
Siökkviiiðsmenn flytja „látna
og slasaða” út úr véiinni.
Stórtíðindalaus
ölvunarhelgi
Fangageymslur fullar
Fangageymslur lögreglunnar
snarfylltust snemma á föstu-
dagskvöld. Er slíkt ekkert eins-
dæmi. Ölvun var hins vegar
mikil og almenn í Reykjavík
þetta kvöld. Höfðu lögreglu-
menn af því miklar annir. Ekki
dró til stórtíðinda.
Aðfaranótt laugardags var
rúða brotin í hurð á bakhlið
verzlunar SS við Háaleitis-
braut. Ekki er vitað hvort ein-
hverju var stolið enda óhægt
um vik að kanna það í þeirri
verzlun.
Brotizt var milli íbúða í húsi
við Bergstaðastræti. Þar var
um skemmdarverk að ræða og
engu stolið.
Skemmdarverk voru unnin í
ölæði í Umferðarmiðstöðinni á
laugardagskvöldið og á sunnu-
dagsmorgun var tilkynntur
þjófnaður á hljómflutnings-
tækjum úr íbúð í austurborg-
inni.
Ölvun var mikil á sunnudags-
nótt, einkum er líða tók á
nóttina.
—ASt.
Hlaut spark í
andlit í Óðali
Enn kom til átaka á Óðali við
Austurvöll aðfaranótt sunnu-
dagsins. Tveir gestanna urðu
ósáttir og skyldu nú hnefar
látnir ráða málum til lykta.
Ekki var farið eftir neinum
viðurkenndum hnefaleikaregl-
um og fljótlega lauk átökun-
um með því að annar gestanna
sparkaði í andlit hins.
Lögreglumenn af miðborgar-
stöð komu á vettvang. Sá sem
sparkið hlaut var fluttur í slysa-
deild og þar gert að sárum
hans Sá er sparkaði gisti fanga-
geymslur.
—ASt.
Læknar þustu út á flugvöll ásamt hjálparsveitum. Hér stumrar eiun
yfir „slösuðum” manni. A bak við er Rúnar Bjarnason slökkviliðs-
stjóri. Lið hans þótti standa sig vel á æf ingunni.
A spítulum tók gjörsamlega
óviðbúið starfsfólk við flugfar-
þegunum og veitti þeim að-
hlynningu.
DB-myndir Ragnar Th. Sigurðs-
son.
Flugstjóri Fokkerflugvélar,
sem var að fara f áætlunarflug
til Vestmannaeyja, tilkynnti
klukkan níu mfnútur yfir þrjú
á laugardaginn að sprenging
hefði orðið f flugvél sinni.
Slökkvilið Reykjavfkurflug-
vallar og Reykjavíkur, svo og
lögregla og hjálparsveitir,
brugðu skjótt við og skunduðu
á slysstað. Þegar þangað kom
var öllum tilkynnt að um æf-
ingu frá Almannavörnum væri
að ræða.
„Gegnumsneitt erum við
mjög ánægðir með viðbrögð
manna við þessu slysi,” sagði
Guðjón Petersen fulltrúi Al-
mannavarna er DB spurði hann
um árangur æfingarinnar.
„Þegar í stað komu þó í ljós
nokkrir vankantar, svo sem á
fjarskiptasambandi frá flug-
turni við lögreglu. Einnig var
greiningarlæknir frá Borgar-
spítalanum nokkuð lengi á leið-
inni, en orsakir þess koma í ljós
er við förum að rannsaka frum-
skýrsluna sem var gerð eftir
„slysið”.”
Fokkerflugvélin var full af
farþegum, „af báðum kynjum,
öllum stærðum , og gerðum”,
eins og Guðjón kömst að orði.
Það var hópslysanefnd, sem
læknanemar við Háskóla Is-
lands hafa komið á laggirnar,
sem sá um að afskræma hina
slösuðu. Hópslysanefndin
fylgdi einnig hinum slösuðu
eftir frá slysstað á spftalana og
dæmdi um hvernig meðferðin
hefði verið og hve margir hefðu
látizt f meðförum. „Læknanem-
arnir unnu ómetanlegt starf við
þetta „flugslys”,” sagði Guðjón
Petersen.
Almannavarnir eru sérstak
lega ánægðar með viðbrögð
slökkviliðanna á Reykjavíkur-
flugvelli og í Reykjavík. Við-
brögð þeirra voru til fyrir-
myndar og virðast slökkviliðin í
mjög góðri æfingu. Lögreglan
þótti koma óvenju seint á slys-
stað. Guðjón Petersen sagði
skýringuna á þvf vera þá að
lögreglan dreifðist á lang-
stærsta svæðið af öllum flokk-
um. Hún hefði þegar farið f að
loka öllum leiðum að flugvellin-
um svo og að sjá um að flutn-
ingar til sjúkrahúsa gengju sem
greiðlegast.
Undirbúningur þessa „flug-
slyss” hófst fyrir um það bil
mánuði. Það var Hafþór Jóns-
son frá Almannavörnum sem
átti mestan veg og vanda af
skipulagningu þess í samvinnu
við Gunnar Sigurðsson flugvall-
arstjóra, Sverri Jónsson frá
Flugfélaginu og yfirmenn lög-
reglu og slökkviliðs.
Á þeim rúmlega klukkutíma,
sem tók að afgreiða „slysið”
sveimuðu nokkrar flugvélar
yfir flugvellinum. Meðal þeirra
var flugvél frá Flugfélagi Is-
lands, sem var að koma úr áætl-
unarflugi frá Vestmannaeyj-
um, og nokkrar litlar vélar.
— AT —
sunnudagsmorgun.
Lögreglan á Selfossi tók tvö
ökumenn um helgina grunaða
um ölvun við akstur. —ASt.
Á 6 hross en
hefur enga
aðstöðu
Þau eru nú í vörzlu
lögreglu
Sex hross eru nú á vegum
Árbæjarlögreglunnar í rétt við
eitt hesthúsa Fáks við Elliðaár.
Þarna hafa hrossin dúsað í
fjóra daga og verða að minnsta
kosti viku til viðbótar.
Hross þessu eru í eigu gamals
manns sem með engu móti vill
missa þau. Hann hefur þó enga
aðstöðu fyrir þau og því lentu
þau í höndum lögreglunnar.
Hrossunum var komið fyrir í
vetur en var síðan sleppt á land
lögreglunnar. Þau voru síðan
rekin út og lentu á þvælingi unz
taka varð þau úr umferð.
Lögreglan hefur enga
aðstöðu til að hýsa hross, þó
henni beri skylda til slíks er
hross lenda á vergangi. Hefur
lögreglan augastað á bragga í
Víðidal sem borgin á. Þann
bragga hefur hún ekki ekki
fengið þrátt fyrir þrábeiðni.
Bragginn myndi leysa vandann.
ASt.
Lík konu fannst í
fjöru Skerjaf jarðar
Miðaldra kona fannst látin í
fjörunni milli Nauthólsvíkur og
olíustöðvarinnar í Skerjafirði
kl. 16.13 á föstudaginn. Við
athugun kom í ljós að hér var
um að ræða lík konu sem aug-
lýst hafði verið eftir meðal
lögreglumanna. Hafði konan
farið að heiman frá sér sl. mið-
vikudag. Voru fjörur gengnar
á fimmtudag í leit að henni en
þá urðu leitarmenn einskis
varir.
Konan mun hal'a átt við van-
heilsu að striða.
—ASt.