Dagblaðið - 15.06.1976, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ — ÞRIÐJUDAGUR 15. JUNl 1976.
Fjölbreytt
úrvalaf
vönduðumog
fallegum
sumarfatnaði
á börnin.
*elfur
tízkuverzlun
œskunnar
Þingholtsstrœti 3
Sími10766
Jarðeigendur!
Óskum eftir landi til túnþökuskurðar
gegn góðri greiðslu. Uppl. í síma 30730
og 30766.
Stúlka óskast á blaða- og bókadreif-
ingu. Þyrfti að geta byrjað sem allra
fyrst. Uppl. leggist inn á afgreiðslu
Dagblaösins fyrir föstudagskvöld
merkt: „Afgreiðslustörf 1105“.
Líbanon:
6-10 þúsund manns
til friðargœzlu
Búizt var viö forseta Samtaka
Arabaríkja til Líbanon i dag
þar sem hann ætlar að gera enn
eina tilraunina til þess aö koma
á friði í landinu.
Mohmoud Riad, sem hefur
verið í Damaskus síðan á föstu-
dag, sagði á blaðamannafundi
þar, að friðargæzlusveitir
Arabaríkja, sem í allt teldu á
milli sex og tíu þúsund menn,
gætu verið tilbúnar til farar
innan tíu daga.
Sýrlendingar hafa sætt
harðri gagnrýni fyrir að skipta
sér af málefnum Líbana og ut-
anríkisráðherra Egyptalands,
Ismal Fahami, sagði í gær, að
hann teldi, að algjört öngþveiti
gæti skapazt á þessum slóðum
Sendinefnd Libanon-stjórnar
kom til New York í gær til þess
að reyna að beita sér gegn því
að málið yrði rætt í öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna, enda
telja þeir þetta vera málefni,
sem þeim einum komi við.
r m
„ENGAR HREINSANIRIUGANDA"
— segir Amin
Idi Amin Ugandaforseti
hefur staðfastlega neitað að
einhverjar hreinsanir hafi
farið fram í landinu eftir
misheppnað morðtilræði _ við
hann í síðustu viku. Þá sagði
hann einnig, að enginn
ráðherra hans hafi verið hand-
tekinn
Að sögn ferðamanna, sem
komið hafa frá Uganda síðan
tilræðið var gert, virðist sem
hermenn hafi safnað saman
fjölda fólks, sumir segja allt að
2000 manns, og tekið það af lífi.
Þá á einn af ráðherrum í stjórn
Amins að hafa verið fluttur til
yfirheyrslu í fangelsi 1
Kampala. Amin, hefur, eins og.
við mátti búast, brugðizt illa við
þessum sögum og segir, að þær
muni aðeins skaða samband
Uganda við önnur lönd. Sér-
staklega aðvaraði hann brezka
þegna við því að breiða út
ósannar sögur um ástand 1
innanríkismálum Uganda.
Amin slapp nauðulega,
er þremur handsprengjum
var varpað að bifreið hans sl.
föstudag. Segir í opinberri til-
kynningu, að ein sprengjanna
hafi lent í andliti forsetans, en
ekki hafi hann þó sakað.
Idi Amin Úgandaforseti.
Ródesía:
Smith telur umbóta-
tillögur aðgengilegar
Ian Smith, forsætisráðherra
Ródesíu, hefur látið hafa eftir
sér, að margar af þeim
tillögum, sem nefnd, er kannað
hefur leiðir til samstjórnar
hvítra manna og þeldökkra,
hefur lagt fram, séu að-
gengilegar.
Þó taldi hann, að breytingar-
tillögurnar, sem gera ráð fyrir
verulegum breytingum á
kosningalögum og jarðalögum
í Ródesíu, gætu mætt andstöðu
og þá fyrst og fremst í hægri
flokki hans sjálfs.
Nefndin lét kosningaréttinn
ekki til sín taka, en ef kosninga-
aldurinn yrði lækkaður, er allt
eins líklegt, að blökkumenn,
sem eru 20 á móti hverjum
einum hvítum, gætu kjörið
stjórn með blökkumenn í meiri-
hluta, en fyrir því eru þeir nú
að berjast með vopnum.
Sagði Smith í útvarpsræðu í
gærkvöldi, að hann teldi
margar af tillöigunumskynsam-
legar, en samt gæti hann ekki
fallizt á þær allar. Hann skýrði
mál sitt ekki frekar.
Áttu leið um Snœf ellsnes?
í Ólafsvík starfar sumarhótel í fyrsta sinn nú í sumar
k 38 vel búin tveggja manna herbergi.
k Vistlegur matarsalur.
k Heimilislegur matur, kaffi og kaffibrauö, grill-
réttir allan daginn.
k Þægileg setustofa þar sem spjallað er saman og
horft á sjónvarp.
Snæfellsnes er frægt fyrir stórbrotið og fagurt landslag
ðtVVJUfL> OiN Ær ÞjÞjLiOíN TjO, - VJIO I III iwn UIMVUIV.
SJÓBÚÐIR HF.
Olafsvík, — Sími (93)6300
Þríðja kynlífs-
hneykslið á 3 vikum
Bandaríski fulltrúadeildarþing-
maðurinn Allan Howe, sem er
þriðji þingmaðurinn á þremur
vikum til að flækjast inn í kynlífs-
hneyksli, heyrir nú hvatningar úr
öllum áttum um að hætta þing-
mennsku.
Howe, sem er 48 ára mormóni
ög fimm barna faðir, kemur fyrir
rétt í dag sakaður um að hafa
sótzt eftir viðskiptum við vændis-
konu. t ljós kom að „vændis-
konan” var lögreglukona í leit að
væntanlegum viðskiptavinum
vændiskvenna. Howe sagði eftir
að hann var handtekinn, að
greinilega hefði handtaka hans
verið settt á svið.
Hinir tveir þingmemjirnir,
Ohio-demókratinn Wayne Hays
og Texas-demókratinn John
Young, hafa verið sakaðir af
riturum sínum um að borga fyrir
kynlífsævintýri sín úr ríkissjóði.
Talið er að þessi mál geti orðið
til að skemma verulega fyrir
demókrötum i þingkosningunum
í haust.
„Einkaritarinn" Elísabet Ray.
Þingmaðurinn Wayne Hays.