Dagblaðið - 28.07.1976, Side 15

Dagblaðið - 28.07.1976, Side 15
I)A(íllLAt)li) — MIÐVIKUDACUH 28. JULÍ 1976. i íþróttir iþróttir 15 íþróttir Bþróttir D Markaflóð í bikarnum! — 27 mörk voru skoruð í sex leikjum bikarkeppni KSÍ í gœrkvöld Þa<) sk.vldi þó aldrei verda að Islandsmeistarar ÍA sigruðu í bikarkeppni KSÍ! Sjö sinnuni hafa Akurnesingar leikið til úrslita í bikarnum — aldrei sigrað. Nú, í gærkvöld brá svi viðað Akurnesingar sigruðu Víking 3-0 í 16-liðaúrslitum! Hvað er svo merkilegt við það? Jú, undanfarin ár hefur ávallt brugðið svo við, að það lið er sigraði Viking í bikarnum hefur staðið upp sem sigurvegari í lokin. Hafa heilladísirnar gengið í lið með Akranesi? Nú, en leikurinn í gærkvöld var fjörugur og vel leikinn af beggja hálfu — þó sérstaklega Akurnesinga. Skagamenn fengu sannkallaða óskab.vrjun því eftir aðeins þrjár mínútur hafði Teitur Þórðarson skorað — með langskoti sem Diðrik Olafsson markvörður Víkings réð ekki við. Ekki leið nema ein mínúta og þá höfðu Skagamenn bætt við sínu öðru marki — Árni Sveins- son skoraði eftir sendingu Karls Þórðarsonar. Víkingar náðu sér aldrei á strik eftir þessa slæmu byrjun þó reyndu þeir að krafsa I bakkann og litlu munaði að Öskar Tómasson skoraði — en svo átti ekki að verða. Pétur Pétursson bætti við þriðja marki ÍA í síðari hálfleik og innsiglaði öruggan sigur ÍA. Jón Alfreðsson lék með að nýju — greinilegt var að þrátt fyrir æfingarleysi þá var hann félögum sínum mikil stoð — bæði í leik og móralskt. KR skoraði sex KR tryggði sér rétt í 8-liða úrslit bikarkeppni KSÍ, þegar það sigraði KA norður á Akur- e.vri 6—2. Furðulegur leikur tveggja ólíkra hálfleikja. 1 þeim fyrri sóttu Akureyringar látlaust að marki KK — tókst aðeins að skora einu sinni. Það var á siðustu mínútu hálfleiksins, Jóhann Jakobsson var þar að verki. En þrátt fyrir markið voru Akure.vringar aðeins að jafna metin — KR hafði skorað í sinni einu sókn að heitið gat — Sverrir Herbertsson. í síðari hálfleik tóku KR-ingar öll völd og ntörkin létu ekki á sér standa, enda vörn KA gatasigti líkust. Ölafur Ölafsson náði forystu fyrir KR, Haukúr Ottesen bætti við þriðja marki KR og Halldór Björnsson hinu fjórða. Allt loft var úr KA og sáu þeir sjálfir unt að skora fimmta markið. Hálfdán Örlygsson skoraði sjötta mark KR — 6—2. En markaskorari þéirra Akur- eyringa — Siglfirðingurinn Gunnar Blöndal átti siðasta orðið í leiknum, 2—6. KR heldur því áfram i 8-liða úrslit — Akure.vringar sitja heima með sárt ennið — hver ósigurinn rekur nú annan. ÍBK hóf vörnina með stórsigri! Bikarmeistarar ÍBK hófu vörn titils síns í gærkvöldi þegar þeir fengu Vestmannaeyinga í heim- sókn — ósigraða í 2. deild í ár. Þegar upp var staðið höfðu Kefl- víkingar skorað fjórum sinnum. — Eyjamenn ekkert. En furðulegur var leikurinn — Eyjamenn byrjuðu leikinn af krafti og áttu varnarmenn IBK fullt í fangi með að hemja spræka sóknarmenn tBV. Tvívegis fengu framherjar ÍBV ágæt tæki- færi, en inn vildi knötturinn ekki — vörnin traust og Þorsteinn Ölafsson markvörður öruggur í markinu., Það kom því nokkuð á óvart þegar Keflvíkingar skoruðu sitt fyrsta mark — gegn gangi leiksins. Jón Ólafur lék upp kantinn og gaf góða sendingu á Ólaf Júlíusson, sem skoraði af stuttu færi. Ólafur skoraði annað- mark ÍBK — þá eftir sendingu Sigurðar Björgvinssonar. Við þetta riðlaðist vörn IBV illa — og tvívegis fékk Steinar Jóhannsson góð tækifæri sem ekki nýttust. Staðan i hálfleik var þvi 2-0 Síðari hálfleikur byrjaði líkt og hinn fyrri — Eyjamenn sóttu stíft en þeim virtist gjörsamlega fyrir- munað að skora. Til að mynda átti Örn Öskarsson skot í stöng og Einar Ólafsson bakvörður IBK bjargaði á línu. En ÍBK skoraði sín mörk. Hinn bráðefnilegi Þórður Karlsson sendi góða sendingu fyrir markið á Gísla Torfason, sem skoraði eftir barning mikinn. Þórður var aftur á ferðinni skömmu síðar — lenti I návígi við Ársæl markvörð IBV — frá þeim hrökk knött- urinn til Rúnars Georgssonar sem skoraði örugglega, 4-0 Furðulegur leikur — en þrátt fyrir margar og góðar sóknir IBV þá hafði maður alltaf á tilfinningunni að vörn Keflvíkinga réði ávallt við sóknarmenn ÍBV. emm MARTEINN TIL BELGÍU „Ég fer utan á föstudag fái ég mig lausan úr vinnu og mun kynna mér aðslæður hjá belgiska 2. deildarliöinu Union — þar sem Slefán Ilalldórsson er nú,“ sagði Marteinn Geirsson, landsliðs- maöurinn kunni úr Fram, en hið helgíska félag hefur sýnl mikinn áhuga á að fá Marlein Geirsson í lið með sér og undanfarna daga hefur verið ra‘ll \ið Marlein nokkrum sinnum. meual annars um l'jármálahliðina. ,,Eg vona að af samningum geti orðið," héll Marteinn áfram, „en lið'ið ér frá Brussel. Eg hef einu sinni komið á leikvang félagsins — hann er stór og glæsilegur. Fyrír nokkrum áruin var liðið í 1. deild en míssti sæti sitt. / En vonandi ler að birla til hjá þeim." sagði Marleinn að lokum. Þess’ má gela að Union St. Gilloise liefur lengi verið stór- anemma Deygist Krókurinn.... Skúli Helgason — Skúlasonar leikara — bregður á leik í hálfleik í leik FH og Þróttar. DB-mynd Bjarnleifur. Hefnd FH! FH hefndi ófara sinna gegn Þrótti á dögunum þegar liðið sigraði Reykjavíkurliðið í bikar- keppni KSÍ 2-0 á nýja gras- vellinum í Laugardal í gærkvöld. Því hafa FH-ingar tryggt sér rétt í 8-liða úrslit en greinilegt var á leiknum í gærkvöld, að þar fóru tvö neðstu lið 1. deildar — leikurinn var slakur og lítil skemmtun mjög fáum áhorfendum sem lögðu leið sína í Laugardalinn. Þróttur byrjaði leikinn af krafti og sótti stíft að marki FH- inga, sem áttu fullt í fangi með að bægja leikglöðum Þrótturum frá marki sinu. En það tókst — og kom þar til fyrst og fremst klaufa- skapur Þróttara, sem illa notuðu upplögð tækifæri. FH náði síðan forystu á 30 mínútu fyrri hálfleiks með marki Ólafs Danivalssonar — sem skaut föstu skoti eftir að einn varnar- manna Þróttar hafði sent knött- inn til hans í vítateignum. Við þetta áfall dofnaði mjög yfir Þrótti og FH fór að sækja meira í sig veðrið án þess þó. að ógna verulega. Eftir því sem lengra á leikinn leið náðu Hafnfirðingar betri tökum á honum og síðara mark sitt skoruðu þeir á 40. mínútu síðari hálfleiks — Leifur Helgason var þá að verki. Því sigur FH 2-0 og sæti í 8-liða úrslitum. Völsungar stöðvoðir — Blikarnir bundu enda á sigurgöngu þeirra á Húsavík Ingi Björn naut góðrar aðstoðar Hermanns Gunnarssonar og Guðmundar Þorbjörnssonar þegar hann skoraði mörk sín. Hið fyrsta skoraði hann á 21. mínútu — eftir sendingu fra Hermanni. Skömmu fyrir hálfleik bætti Ingi Björn við öðru marki Vals — eftir að Guðmundur hafði brotizt upp og gefið síðan á Inga Björn. Lofti Eyjólfssyni tókst- að minnka muninn fyrir Hauka fljót- lega í síðari hálfleik þegar hann veldi i belgískri knattspyrnu — 11 sinnum hefur félagið unnið belgíska meistaratitilinn — aðeins Anderlecht hefur unnið oftar, 16 sinnum. Fyrir nokkrum árum hallaði hins vegar undan fæti fyrir Union — félagið missti sæti sitt í 1. deild. Stefán Halldórsson mun í kvöld leika æfingaleik með Union og skýrast þá línurnar hvort Stefán geri santning við félagið eða ekki. Þvi er hugsanlegt að tveir ís- lentlingar geri samning við þetta fr.ega lið — þá yrðu fjórir at- vinnumenn i belgískri knatt- spvrnu, fjiilgun um 100%! h halls. slnum hefur Völsungi vegnað mjög vel í 2. deild og unnið hvern sigurinn á fætur öðrum. Nú, en Húsvíkingar náðu forystu fljótlega í leiknum og var þar að verki Hermann Jónasson við mikinn fögnuð fjölmargra áhorfenda. En mjög óvænt jöfnuðu Blikarnir fyrir hálfleik og var þar að verki Bjarni Bjarna- son. Húsvikingar létu mótlætið ekki á sig fá — Helgi Helgason náði forystu fyrir heimamenn í síðari hálfleik. Ólafur Friðriksson svaraði þegar fyrir Blikana og Gísli Sigurðsson tryggði Blikun- um sigur með góðu marki. Heima- menn máttu sætta sig við ósigur — en þeir geta borið höfuðið hátt, því þeir Iéku skínandi vel á köflum. Breiðablik slapp sannarlega vel frá Húsavik í gærkvöld þegar liðið heimsótti Völsung í bikar- keppni KSÍ. Breiðablik náði að sigra 3—2 og var talsverður heppnisstimpill yfir sigri 1. deildarliðsins. Völsungur hafði undirtökin í leiknum lengst af og tvívegis var 2. deildarliðið í forystu en að lok- um máttu Húsvíkingar sætta sig við tap, 2—3. Þar , með batt Breiðablik endi á sigurgöngu Húsvíkinga en í síðustu leikjum Ingi Björn í ham! Forystuliðið í 1. deild — Valur tryggði sér rétt í 8-Iiða úrslit bikarkeppni KSl í gærkvöld þegar Valur sigraði Hauka í Kaplakrika 4-1. Ingi Björn Albertsson var maður leiksins — fjórum sinnum sendi hann knöttinn í net and- stæðinga sinna og tryggði þar með sigur Vals. Annars var leikurinn í gærkvöld dæmigerður malar- leikur, mikið um langspyrnur. Þó fór aldrei á milli mála hvort liðið var sterkara. Valsmenn höfðu ávalt undirtökin þó Hafn- firðingarnir berðust vel og sköpuðu sér nokkur ágæt mark- tækifæri. skoraði úr vítaspyrnu. -En dýrðin stóð ekki lengi — á 30. mínútu átti Hermann góða sendingu á Inga Björn, sem skoraði örugglega. Ingi Björn skoraði skömmu siðar — hver skyldi hafa gefið á hann nema Guðmundur Þorbjörnsson.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.