Dagblaðið - 18.09.1976, Page 1
2. ARG. — LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1976 — 208. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. SlMI 83322, AUGLVSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SÍMI G7022
„EF ENGIN BREYTING
VERÐUR Á ÞESSARI
STOFNUN LIÐAST
HÚNí SUNDUR
— segir Eiður Guðnason um ástandið i fjármála-
heyrzt neitt heldur. Því fór það
svo, að ekki var sjónvarpað í gær-
kvöld. Ef ekkert heyrist í dag
verður heldur ekki sjónvarpað í
kvöld.
„Getum ekki lifað
af laununum“
Launamálanefndin sagði á
alaðamannafundinum að meða1-
laun starfsfólks sjónvarpsins
/æru um 80-90 þúsund krónur á
rnánuði. Um 80% fólksins vinna í
vaktavinnu svo að litlir
möguleikar eru á að hækka þessi
laun. Flest er fólkið þrautþjálfað
ístörfum sínum, svo að lítið er um
að laun séu greidd í byrjunar-
flokkum.
Einn meðlimur launamála-
nefndarinnar orðaði kjör sjón-
varpsstarfsmannanna á eftirfar-
andi hátt:
„Ef flestir starfsmannanna
ættu ekki útivinnandi konur, þá
gætu þeir ekki lifað af þessum
launum!“ Og annar meðlimur
launamálanefndar, Eiður Guðna-
son, bætti við: „Ef engin breyting
verður á þessari stofnun í náinni
framtíð þá liðast hún í sundur.“
— AT —
Stríð i friðsœlum Laugardalnum
Það fer hér vel á með Gunnar G. Júlíussyni bónda að Laugabóli
við Engjaveg i Laugardal og einni af fimm kúm hans sem var
tjóðruð hcima við bæ. Gunnar segir sína raunasögu af samskipt-
um við borgaryfirvöld. Þau vilja hann brott úr dalnum enda
samrýmist búrekstur varla lengur borgarlífinu. En Gunnar
segist ekki bótalaust geta yfirgefið eigur sínar sem byggjast á
hans lífsstarfi. Frá þessu segir hann á bls. 6.
stjórnun sjónvarpsins
Algjör samstaða var með þeim
100 manns sem mættu á óformleg-
an fund launamálanefndar starfs-
fólks sjónvarpsins í gærdag. Eng-
inn mun mæta til vinnu fyrr en
hlustað hefur verið á launa- og
sérkröfur fólksins.
Launamálanefndin boðaði til
fundar með fréttamönnum í gær-
kvöid. Þar kom fram að fjármála-
ráðuneytið lætur sér kröfur sjón-
varpsstarfsfólksins engu skipta
og þó að í gær og fyrradag hafi
ríkt verkfall í stofnuninni hefur
enn ekkert heyrzt frá ráðuneyt-
inu. Yfirmenn sjónvarpsins hafa
ekki einu sinni beðið fólkið um að
vinna.
Þann fyrsta júlí síðastliðinn
hækkuðu laun starfsfólksins um
1.8%. Launanefndin fer fram á
10—15% hækkun. Allt starfs-
fólkið er einhuga um að hvika
ekki frá þeirri kröfu. Þá eru
gerðar margar sérkröfur.
Talsmenn launanefndarinnar
sögðu á fundinum að engin tilvilj-
un hefði verið að fimmtudagur
var valinn sem upphafsdagur að-
gerðanna. Með því var fjármála-
ráðuneytinu gefinn kostur á að
ræða launantálin. Það var ekki
gert og á föstudaginn hafði ekki
HÆTTULEG ÞRÓUN -Sr,2T““
,.í augum bankanna er þetta
hættuleg þróun.“ sagði Helgi
Bergs. bankastjóri Landsbanka
Íslands. í viðtali við fréttamann
DB norður á Akureyri í gær.
í erindi sem bankastjórinn
flutti á námskeiði. sem Banka-
mannaskólinn heldur nyrðra
f.vrir útibússtjóra og embætti.s-
menn bankanna, benti hann á
hvernig þróunin væri sífellt að
fara í þá áttina að ýmsir fjár-
festingarsjóðir. lífeyrissjóðir og
aðrir voldugir sjóðir annast
útlán en hlutur bankanna
minnkar að sarna skapi.
Undanfarin 25 ár hefur
þróunin mjög verið á þennan
veg, benti Helgi á i spjalli við
fréttamann DB. Árið 1951
önnuðust bankarnir um 61% af
útlánunum en í fyrra var þessi
ta'a aðeins 36%. Þannig lána
bankar aðeins út þriðjung láns-
fjárins meðan hinir ýmsu sjóðir
lána 2/3 hluta. Helgi benti á að
hlutfall heildarsparnaðarins
væri ekki nógu hagstætt og ráð-
stöfunarfé bankanna minnkaði
stöðugt.
Námskeið útibússtjóranna á
Hótel KEA á Akureyri héfur
vakið óskipta ath.vgli bæjarbúa.
því að þar eru á einum stað
samankomnir 56 af æðstu yfir-
mönnum banka og sparisjóða.
Auk erindis Helga Bergs um
þröun lánamarkaðarins ræddi
Sigurgeir Jónsson. aðstoðar-
bankastjóri Seðlabankans. um
vaxtaaukainnlán, Jónas Rafnar
bankastjóri um þróunvaxtamála
og Stefán Gunnarsson banka-
stjóri um vaxtapólitík og
afkomu bankanna.
Á sunnudag lýkur námskeið-
inu og þá mun trúlega verða
rætt um mál málanna, e.t.v.
tékkamálið.
—JBP