Dagblaðið - 08.11.1976, Side 12
12
IÍAÍJBLAÐIÐ. MANUDAíJUR 8. NOVEMBER 1976.
Ný sending
Loðfóðraðir kuldaskór
fyrir alla fjölskylduna.
Tilvaldir skór fyrir
íslenzka veðráttu, þola |
frost og bleytu.
Mjög slitsterkir.
Litur: Dökkbrúnt
Stærðir 24-46
Verð frá
2315 til
3465
Skóverzlun
Þórðar Péturssonar
Kirkjusræti 8 v/Austurvöll. Sími 14181
BIFREIÐASTILUNGAR
Við framkvæmum véla-, hjóla-,
Ijósastillingu og ballansstillingu
á hjólbörðum
Eftirfarandi atriði eru yfirfarin í
vélastillingu:
1. Skipt um kerti og platínur.
2. Mæld þjappa.
3. Athuguð og stillt viftureim.
4. Hreinsuð eða skipt um loftsíu.
5. Stilltur biöndungur og kveikja.
6. Mældur startari, hleðsla og geyi
7. Mældir kerlaþræðir.
8. Stilltir ventlar.
9. Hreinsuð geymasambönd.
10. Hreinsaður öndunarventill.
11. Hreinsuð eða skipt
um bensínsíu
12. Þrýstiprufað vatnskerfi
Vélastilling sf.
AUÐBREKKU 51
KÓP. SÍMI 43140
0. ENGILBERTSSON
Laust starf — Grindavík
Laust er starf á skrifstofu bæjar-
fógetans í Grindavík.
Vinnutími frá kl. 12.00 til 17.00
alla virka daga nema laugardaga.
Laun samkvæmt kjarasamningum
opinberra starfsmanna.
Umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf skal skila til
undirritaðs fyrir 15. nóvember nk.
Bæjarfógetinn i (Jrindavík, Keflavík
og Njarðvík. Sýslumaðurinn i
Gullbringusýslu. Vatnsnesvegi 33,
Keflavík.
Greda
tauþurrkarar
Veruleg verðlækkun á CREDA
TD 275 (2,75 kg) þurrkurum
vegna lækkunar á gengi sterl-
ingspundsins.
Fyrirliggjandi útblásturs-
barkar og veggfestingar fyrir
TI) 275. 1
k 4
ARAAULA 7 - SIMI 84450
Myndlist
Um samklippingar Magnúsar
að Kjarvalsstöðum
Undanfarin misseri hefur tölu-
vert borið á samklippingum og
álímingum (collage) í myndverk-
urn ungra listmálara. mörgu
listáhugafólki til hrellingar.
„Rusl", „rifrildi" og „móðgun",
— þetta eru upphrópanir sem
flogrð hafa um sýningarsali
þessara listamanna. En samklipp-
ingar eru ekki fæddar í gær, þær
eiga sér 60 ára hefð erlendis sem
meiri háttar listgrein og reyndar
langa og slitrótta hefð hér á landi.
Á 19. öld var það í tísku að klippa
saman blaðsnifsi allskonar og
myndir, auk taubúta og að líma
skeljar og kuðunga á stokka, á
spjöld og þykir mér meir en lík-
legt að dætur á betri heimilum í
Reykjavík hafi stundað þennan
leik. Síðan eignumst við klipp-
myndir Muggs sem unnar eru upp
úr 1920, — „Sjöunda dag í Para-
dís“ sem gerð er úr glitpappír og
vatnslitum, svo og ásaumsmyndir
hans eins og „Flyðruna" sem sam-
sett er úr silki, ull og moldvörpu-
skinni. Síðan fikta listamenn eins
og Scheving, Þorvaldur og fleiri
við samklippingar á árunum
kringum 1950 og fyrir Nínu
Tryggvadóttur var sá vinnumáti
skref í átt til glermyndagerðar
hennar. Seinna mætti nefna sam-
klipp manna eins og Einars Þor-
lákssonar og Sigurjóns Jóhanns-
sonar eftir 1960, svo og samsetn-
ingar Braga Ásgeirssonar um
svipað leyti, en sameiginlegt ein-
kenni nær allra þeirra verka sem
gerð eru fram yfir 1970, — ef
fráskildar eru tímabundnar popp-
klippingar Sigurjóns og myndir
Braga, er að þau eru hjáverk,
leikur eóa þá hluti af þróun
ákveðinnar hugm.vndar. — en
aldrei uppistaða meiri háttar
myndverka.
Stórkostlegir möguleikar
Það er ekki fyrr en á allra
síðustu árunt að myndlistarmenn
hér á landi hafa uppgötvað þá
stórkostlegu ntöguleika sem
„collage" býður upp á, eins og
þeir koma fram í verkum hinna
kúbísku forvera og myndum
nokkurra amerískra listamanna.
Með samklippingunt er hægt að
brúa bilið milli hlutveruleikans
og hins óhlutbundna, auk þess
sem þær opna leiðir til margræðs
og ríkulegs samspils ýmisskonar
áferðar og iita i myndverki.
Sá listamaður sem nú stendur
einna best að vígi á þessu sviði
hér er Magnús Kjartansson. Hann
klippir saman og límir úr allskyns
úrgangi, en ávallt með óvenju
sterkri tilfinningu fyrir mynd-
heild og litgildi. Föng hans hafa
ávallt persónulega þýðingu: úr-
klippur úr blöðum sem hann
hefur lesið, sporvagnsmiðar frá
Kaupmannahöfn þar sem hann
var við nám, arkir utan af póst-
sendingum sem hann eða kona
hans hafa fengið, afgangs vegg-
fóður eða tau úr eigin húsi, ný-
tæmdir kaffipokar og merki utan
af gosdrykkjaflöskum eða öðrum
veigum.
Traustir innviðir
Samsetningar Magnúsar eru
aldrei háðar tilviljuninni ein-
göngu og innviði mynda sinna
treystir hann frekar með ákveðn-
um pensildráttum sem marka
bakgrunn eða skáhallandi slóða,
tengja úrklippurnar eða skipta
myndfletinum í áherslur. I
sumum myndum hans er snertur
af landslagi, en í öðrum afneitar
hann rúmsköpun og setur saman
einskonar myndasögur, þar sem
áhorfandinn verður æ að vera
á varðbergi, stilla sjón sína og
endurskoða ályktanir sínar í sam-
ræmi við ummyndanir og útúr-
dúra listamannsins. Magnús er
ekki fyrr búinn að beina athygli
okkar að læsilegri blaðaúrklippu
eða girnilegum ávexti úr vikuriti
þegar hann sposkur bregður fyrir
Krókur og lykkja
okkur fæti með afstrakt fram-
haldi og máluðum tilbrigðum úr
samhengi, — allt í þeim tilgangi
að tjá margbreytilegt og raunar
óskiljanlegt eðli umhverfis okkar.
Tengsli við
umheiminn
Tengslin við umheiminn eru
því sjaldan rofin til fulls, heldur
jafnan undirstrikuð með tilvitn-
unum í tákn eða merki sem við öll
þekkjum. Eitt þeirra er SS merki
Sláturfélagsins sem birtist í
ýmsum gervum í ótal myndum
Magnúsar. Stöku sinnum er hlut-
verk þess einvörðungu myndrænt
og litur þess og lögun notuð sem
rím innan í myndheild, annar-
staðar er merkið höndlað af
glettni, en oftar má ætla að lista-
maðurinn sé að vitna í ofneyslu
allsnægtarþjóðfélagsins. Lista-
verk Magnúsar Kjartanssonar eru
reyndar öll andóf og afneitun á
þesskonar þjóðfélagi, þar sem þau
eru gerð úr leifum þess og úr-
kasti og eru þau jafnframt sönn-
un þess að innan listar eru allir
vegir færir séu hæfileikar og
hugsun fyrir hendi.
Sýningu Magnúsar lýkur í
kvöld.
Geirfinnur fundinn.
Mjög góðar tveggja
herbergja íbúðir
við Arnarhraun, Álftamýri,
Gaukshóla, Hringbraut og
Vallargerði.
Einnig ódýrar
2ja herb. íbúðir við Njálsgötu
og Öldugötu. Ovenju hagstætt.
3ja herb. íbúðir
nýlegar og í byggingu, einnig
góðar 3ja herb. íbúðir í eldri
steinhúsum. Góð kjör í mörgum
tilvikum.
Sölum.: Hjörtur Bjamason
. Sölustj.: úrn Scheving
Lögm.: Ólafur ÞortákMon
Í Norðurmýri
Góð 130 ferm efri sérhæð
með mörgu, svo sem góðum
bílskúr. Góð eign sem býður
upp á mikla möguleika.
Höfum trausta
kaupendur
að einbýlishúsum i Arbæjar-
hverfi, Kópavogi og víðar.
Stórar sérhæðir koma einnig til
greina. Góð útborgun i boði.
EH5NAÞJÓNUSTAM
fASTEÍGWA- OG SKIPASALA
njAlsgötu Íó
siivri; 2